Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 52

Morgunblaðið - 27.04.2007, Side 52
52 FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is NEXT kl. 6:30 - 8:30 - 10:30 B.i. 12 ára BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára TÍMAMÓT (ÍSLENSK KVIKMYND) kl. 8 - 10 LEYFÐ THE GOOD SHEPERD kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára BECAUSE I SAID SO kl. 5:50 - 8:10 LEYFÐ 300 kl. 10:30 B.i. 16 ára / KEFLAVÍK BLADES OF GLORY kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ BECAUSE I SAID SO kl. 8 LEYFÐ THE MESSENGERS kl. 10 B.i. 16 ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 6 LEYFÐ / AKUREYRI BECAUSE I SAID SO BESTA MAMMA Í HEIMI GETUR LÍKA VERIÐ ERFIÐASTA MAMMA Í HEIMI Diane Keaton Mandy Moore eee Ó.H.T. RÁS2 eee S.V. MBL BLADES OF GLORY kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ SHOOTER kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 6 LEYFÐ ANNAR ÞESSARA TVEGGJA... HEFUR HEILA... Á STÆRÐ VIÐ HNETU! MÖGNUÐ SPENNUMYND MEÐ MARK WAHLBERG FRÁ LEIKSTJÓRA "TRAINING DAY" Í GÆR VAR ÞAÐ HEIÐURINN Í DAG ER ÞAÐ RÉTTLÆTIÐ eeee SV, MBL eee MMJ, Kvikmyndir.com M A R K W A H L B E R G SANNSÖGULEG MYND UM STÆRSTA HNEYKSLISMÁL Í SÖGU FBI eeee S.V. eeee V.J.V. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ EDISONS LIFANDI LJÓSMYNDIR KYNNIR: SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ GÓÐA HELGI! eee LIB, Topp5.is Lýstu eigin útliti Þessi góðlegi frá Grindavík. Ef þú gætir breytt einhverju einu í öllum heiminum hvað væri það fyrst og fremst? (Spurt af síðasta aðalsmanni, Eyþóri Inga Gunnlaugssyni) Maður þarf alltaf að byrja á sjálfum sér en orð eru til alls fyrst og sendi stjórnvöldum tóninn – EKKERT RUGL Á BUGL – Kirkjunnar presta bið ég að koma upp úr pok- unum (sbr. út úr skápnum) og elska alla eins og Jesús gerði. Elska skaltu og elska skaltu … Ég held að það sé stríð í hjörtum margra hér á Íslandi – og við þráum öll frið. Friðarsúlurnar hennar Yoko eru bara táknrænar en færa okkur ekki frið. Við þurfum kennslu í að sinna okkur sjálfum. Hugga okkur sjálf. Hvað er það furðulegasta sem þú hefur reynt? Draumur sem er ekki hægt að segja frá enda birtist hann á skynjunarformi sem ekki þekk- ist. Hvaða auglýsingar þolirðu ekki? Ég er hættur að ÞOLA EKKI. Uppáhaldsmaturinn? Rjúpa og hreindýr. Uppáhalds- kokkurinn minn er elsku Eva. Hvenær lastu bók síðast? Sendiherrann. Lýsandi fyrir stríð- ið í hjörtum mannanna. Hvaða plötu ertu að hlusta á? Ekkert nýtt. Hinsvegar er stóra uppgötvunin útvarpsstöð á netinu WFMU Live - www.wfmu.org Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig? Að það er frábært að vera giftur. Hver er átrúnaðargoðið? Guð – þú skalt ekki aðra guði hafa. Hefurðu lesið sjálfshjálparbók? Já. Hefurðu reynt að hætta að drekka? Nei. Hefurðu þóst vera veikur til að sleppa við að mæta í vinnu? Nei Geturðu farið með ljóð? Já. Er frostmorgunn flýgur um Reykjavík og fólksmergðin skríður til vinnu er stunan úr andlitum fólksins slík að þú heldur það laust við sinnu. Þá leita ég uppi lífssins sykur eitthvert lag eða stef eða tón en þá kemur hann upp þessi kunni fnykur frá kexverksmiðjunni Frón Og lyktin hún lætur mig andvaka en læðir því að einhvern veginn ad lífið sé lítil kexkaka ljómandi góð – báðum megin. Halldór Gylfason fær aftur í bakið en nú í miðri sýningu á Gretti, hvernig bjargar þú mál- unum svo sýningin verði ekki eitt stórt klúður? Ég næ í hjólastól og læt Tarzan aka Gretti um í honum og spinn eitthvað um að hann sé svo mikil stjarna að mér sé heiður af því að ýta honum áfram. Áttu flatskjá, expresso- kaffivél og stól frá Arne Jacob- sen? Nei, nei og nei. Grettir Ásmundsson eða Gísli Súrsson? Óskar og bleikklædda konan og Yfirvofandi (komið öll á Listahátíð). Hver er verðugasti andstæðingurinn? Ég á enga andstæðinga utan eigið „ego“. Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Hvað ertu algjörlega viss um? BERGUR ÞÓR AÐALSMAÐUR VIKUNNAR GETUR FARIÐ MEÐ LJÓÐ EFTIR SJÁLFAN SIG OG FINNST GOTT AÐ BORÐA RJÚPU OG HREINDÝR. LEIKARINN BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON FER MEÐ HLUTVERK TARZAN Í SÖNGLEIKNUM GRETTI SEM NÚ ER SÝNDUR Í BORGARLEIKHÚSINU. Morgunblaðið/Kristinn Aðall Bergur Þór er hættur að þola ekki.  Gríndávaldurinn Sailesh er aftur mættur á klakann til að dáleiða mann og annan. Sýningin fer fram í kvöld í Broadway og er miðaverð 2.500 krón- ur. Miðað við ásókn unga fólksins á fyrri sýningar dávaldsins ætti húsið að fyllast fljótt en það skal tekið fram að einungis 800 miðar eru í boði. Þeir sem hafa áhuga á að njóta villtra ásta með stólbaki, nú eða að bara að gera sig almennt að fífli eru vinsamlegast beðnir um að fjölmenna. Dávaldurinn með skrítna nafnið  Leitast verður við að svara spurningunni hér að ofan á hádeg- isfundi á vegum Íslensku kvik- mynda- og sjónvarpsakademíunnar í dag. Anna María Karlsdóttir, framleiðandi, heldur um hálftíma fyrirlestur um málið og eftir það gefst tækifæri til fyrirspurna og umræðna. Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 12 í fyrirlestrasal Þjóð- minjasafnsins. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis. Hverjir sjá íslensk- ar kvikmyndir?  B&L hélt glæsilega bílasýningu á Nordica hóteli í fyrrakvöld þar sem ríka, fræga og fallega fólkið kom saman og barði augum nýjustu kyn- slóðina af sportjeppa BMW, X5. Logi Bergmann Eiðsson stýrði veisluhöldum en á meðal þeirra sem komu fram voru tónlist- armennirnir Pétur Ben, Lay Low og Ólöf Arnalds. Einhvern tíma hefði verið sagt að þarna hefðu tveir ólíkir heimar skollið saman en svo virðist sem tónlistin hafi fallið vel í kramið innan um dempaða hurðaskelli og bílabónsangan. Ólíkir heimar á Nordica  „Reisum Rósenberg“ er yf- irskrift tónleika sem haldnir verða í Loftkastalanum laugardag og sunnudag. Í tilkynningu frá að- standendum segir að eitt helsta vígi íslenskrar tónlistarmenningar riði til falls því Café Rosenberg hafi verið sá staður sem hafi veitt ung- um og upprennandi tónlist- armönnum hvað flest tækifæri og mest frelsi undanfarin ár. Vilja margir meina að það versta við þessa „efsta stigs“-yfirlýsingu aðstandenda sé að hún sé, þegar öllu er á botninn hvolft, furðu nærri sannleikanum ef litið er til þess af- leita ástands sem nú sé á tónleika- markaði borgarinnar. Eins og maðurinn sagði: „Sad but true!“  Bandaríska danspönksveitin The Rapture, sem gerði allt vitlaust með tónleikum sínum á Iceland Airwa- ves fyrir fimm árum, snýr nú aftur og treður upp á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll hinn 26. júní. Tónleikarnir eru liður í tónleika- ferðalagi sveitarinnar til kynningar á nýjustu breiðskífu hennar, Pieces of the People We Love, en sú hefur hlotið fádæma viðtökur gagnrýn- enda jafnt og almennings. The Rapture snýr aftur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.