Morgunblaðið - 27.04.2007, Page 53
Hressir Gleðisveit Ármúla tók lagið í skjóli fyrir rigningunni.
NEMENDUR við Fjölbrautaskólann í Ár-
múla gerðu sér glaðan dag í gær og háðu
meðal annars keppni í sápubandí og úðuðu í
sig pylsum á árlegri vorhátíð skólans.
„Við urðum reyndar að laga dagskrána
aðeins að rigningunni og hljómsveitin lék til
dæmis innandyra til að koma í veg fyrir
skemmdir á hljóðfærum,“ sagði Rebekka Líf
Albertsdóttir, einn skipuleggjenda hátíð-
arinnar.
„Þetta er orðið árlegur viðburður hjá
okkur,“ bætir Rebekka Líf við. Hún er í
málfundafélagi skólans „en allt nem-
endaráðið sér um að skipuleggja þetta í
sameiningu.“ Síðasti skóladagur skólaársins
er í dag og er vorhátíðin hugsuð til skemmt-
unar fyrir nemendur áður en prófalestur
tekur við.
Verst er að líklega verður ekki prófað í
sápubandí.
Morgunblaðið/Kristinn
Pylsur Það hefur enginn prófalestur á fast-
andi maga.
Spennandi Sápubandí verður kannski keppn-
isgrein á Ólympíuleikunum í framtíðinni.Fjör fyrir prófalestur
Vorhátíð FÁ tókst vel þrátt fyrir rigningu
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 53
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SAMbio.is
NEXT kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
BLADES OF GLORY kl. 4 - 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12 ára
BREACH kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ótextuð m/ensku tali kl. 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
/ KRINGLUNNI
BLADES OF GLORY kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
BLADES OF GLORY VIP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10
SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
THE GOOD SHEPERD kl. 10:10 B.i.12.ára
THE MESSENGERS kl. 8 - 10:10 B.i.16.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i.7.ára
/ ÁLFABAKKA
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
eeee
VJV, TOPP5.ISeeee
KVIKMYNDIR.IS
eeeee
FILM.IS
Saga öflugustu leyniþjónustu fyrr og síðar, CIA.
eee
H.J.
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
Börn sjá
meira en
fullorðnir
gera sér
grein fyrir!
HEIMSFRUMSÝNING
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
SPRENGHLÆGILEG
MYND FRÁ
BEN STILLER
Fór beint á
toppin í USA
SJALDAN EÐA ALDREI HAFA
TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFN VEL SAMAN!
UMHVERFISMÁL
Félög sjálfstæðismanna í Langholts, Laugarnes og
Túnahverfum halda fund um Umhverfismál á
kosningaskrifstofunni Langholtvegi 43
(Gamla Landsbankaútibúinu)
sunnudaginn 29. apríl 2007 kl. 14.00.
Gestur fundarins verður Illugi Gunnarsson hagfræðingur
og frambjóðandi til Alþingis.
Heitt á könnunni . Allir velkomnir.
Félög sjálfstæðismanna í Langholts,
Laugarnes og Túnahverfum.
Símar 569 8141 og 569 8240.
KRISTÍN Ólafsdóttir, framleið-
andi hjá Klikk Productions sem
m.a. hefur tekið þátt í gerð kvik-
myndanna Börn, Foreldrar og
How do you like Iceland?, verður
fulltrúi Íslands í Producers on the
Move-verkefninu sem snýst um að
kynna upprennandi framleiðendur
fyrir öðrum í bransanum á kvik-
myndahátíðinni í Cannes sem fer
fram 16. til 27. maí næstkomandi.
Ásamt Kristínu voru tuttugu
aðrir framleiðendur valdir til þátt-
töku í Producers on the Move, þeir
eru allir á þröskuldi alþjóðlegs fer-
ils og hafa vakið athygli fyrir
metnað og áberandi framleiðslu.
Þetta er í áttunda sinn sem slík-
ur hópur af framleiðendum á upp-
leið er valinn og þykir þetta góður
stökkpallur út í heiminn. Fram-
leiðendurnir eru kynntir í bak og
fyrir meðan á Cannes-kvik-
myndahátíðinni stendur og þar
hafa þeir einnig
tækifæri á að
kynna eldri
verkefni sín sem
og þau sem þeir
vinna að um
þessar mundir.
Það er Euro-
pean Film
Promotion sem
stendur fyrir
verkefninu og skilyrði fyrir þátt-
töku er að viðkomandi hafi átt
mynd nýlega á alþjóðlegri kvik-
myndahátíð, selt mynd sína nýlega
á erlendum markaði eða mynd
hans hafi fengið góða aðsókn í
heimalandinu.
Þeir Íslendingar sem hafa áður
orðið fyrir valinu í Producers on
the Move eru m.a: Anna María
Karlsdóttir, Ingvar Þórðarson,
Kristín Atladóttir, Júlíus Kemp og
Hrönn Kristinsdóttir.
Kristín Ólafsdóttir
Kristín Ólafsdóttir fer til Cannes
Framleiðandi á uppleið