Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Erlendar
metsölubækur
FRÁBÆRT
VERÐ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FORNBÍLAKLÚBBURINN og Ferðafélag Íslands
efndu í gær til ferðar á fornbílum frá Reykjavík til
Þingvalla og Laugarvatns. Tilefnið var að 100 ár voru
liðin frá heimsókn Friðriks VIII konungs til Íslands en
á sama tíma var lokið við gerð Konungsvegarins um
Þingvelli, Laugarvatn, Gullfoss og Geysi, sem er lík-
lega ein dýrasta vegaframkvæmd í sögu landsins.
Stoppað var á nokkrum stöðum á leiðinni og heim-
sókn konungs rifjuð upp í sögum og ljóðum. Ólafur Örn
Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, var fararstjóri
ferðarinnar en um leiðsögn sáu þeir Sigurður G. Tóm-
asson og Gísli Sigurðsson.
Í broddi bílafylkingar var formaður klúbbsins, Sæv-
ar Pétursson, ásamt dönsku sendiherrahjónunum.
Morgunblaðið/Golli
Fornbílar keyrðu konungsveginn
Konunglegrar heimsóknar Friðriks VIII minnst
„Í NÝBIRTRI úttekt Ríkisendurskoðunar var
lagt mat á akademísk gæði háskóla á Íslandi. Þar
kom í ljós að nemendur við Háskóla Íslands fá
mest út úr sínu námi og þeim vegnar best í at-
vinnulífinu að námi loknu,“ sagði Kristín Ingólfs-
dóttir, rektor Háskóla Íslands, í brautskráning-
arræðu sinni í Laugardalshöll í gær.
Háskólarektor lagði áherslu á sterka stöðu HÍ
og nefndi nokkur verkefni sem skólinn vinnur að í
þeim tilgangi að efla íslenskt samfélag og þar með
styrkja stöðu þess alþjóðlega. Meðal þeirra verk-
efna er sókn HÍ í uppbyggingu orkuvísinda og
þátttaka í samstarfsverkefnum með sveitarfélög-
um, orkufyrirtækjum, fjármálastofnunum og öðr-
um menntastofnunum. Kristín gerði einnig að um-
talsefni nýgerða samstarfssamninga, annars
vegar við Harvard-háskóla og hins vegar Háskól-
ann í Minnesota. Sagði hún Háskólann sækja
ómetanlegan styrk í samstarfssamninga á borð við
þessa. Allt miðaði þetta að því að skólinn næði því
langtímamarkmiði sínu að komast í hóp fremstu
menntastofnana í heimi.
Kristín ræddi einnig fyrirhugaða sameiningu
Háskólans og Kennaraháskóla Íslands í þeim til-
gangi að styrkja kennaramenntun á öllum skóla-
stigum. Greindi hún frá því að í tengslum við sam-
einingu skólanna væri ráðgert að hefja stórsókn í
fjarkennslu og byggja hana upp með samstarfi við
fræðasetur HÍ sem nú eru starfrækt á sjö stöðum
á landinu. Fram kom í ræðu háskólarektors að góð
þjónusta við nemendur og kennara væri Háskól-
anum mikið kappsmál. Benti hún á að síðar á
þessu ári tæki skólinn í notkun nýtt 10 þúsund fer-
metra húsnæði sem myndi valda byltingu í aðbún-
aði og þjónustu við nemendur.
Stórsókn í fjarkennslu
Segir góða þjónustu við nemendur og kennara vera Háskóla Íslands mikið
kappsmál Samstarfssamningar við erlenda háskóla veiti HÍ mikinn styrk
Í HNOTSKURN
»Alls voru brautskráðir 1056 kandídatarfrá Háskóla Íslands í gær. Þeir hafa
aldrei verið fleiri.
»695 kandidatar brautskráðust með BS-eða BA-próf og 369 með gráðu á meist-
arastigi.
»Sjö fræðasetur Háskóla Íslands hafaverið byggð upp víða um land. Stefnt er
að því að stórefla fjarkennslu.
HREFNUKJÖT rokselst hjá versl-
unum og veitingastöðum um land allt
og hefur aldrei verið jafnvinsælt og í
ár. Þetta segir Gunnar Bergmann
Jónsson, hjá Félagi hrefnuveiði-
manna, en Morgunblaðið sagði frá
því í gær að Hagkaup hefðu hætt
sölu þar sem illa gengi að koma kjöt-
inu út.
Gunnar segir að kjötið hafi verið
verðlagt allt of hátt hjá Hagkaupum
þegar þau hófu fyrst sölu á því 2003
og því sé von að salan hafi verið
dræm. Kjötið hafi svo verið fryst og
ekki rétt frá því gengið, þar til það
var sagað niður og selt á tilboði. „Það
skyldi engan undra að þeir hafi ekki
náð markaði með ónýta vöru,“ segir
Gunnar. Hann segir annað liggja að
baki afstöðu Hagkaupa til kjötsins
en lítill markaður, því þrátt fyrir að
Félag hrefnuveiðimanna auglýsi lítið
rjúki allt út og áætlað sé að salan í ár
verði 50 tonn hið minnsta. „Við höf-
um ekki verið áberandi en við höfum
heldur ekki þurft að auglýsa okkur
því við seljum allt sem við eigum. Af-
hverju þá að vera að eyða peningum í
auglýsingar?“ segir Gunnar.
Segir
hrefnukjöt
rokseljast
Áætlað að salan í ár
verði a.m.k. 50 tonn
UMFERÐARÓHAPP varð við bæ-
inn Minni-Akur í Blönduhlíð í fyrra-
kvöld þegar tveir bílar ultu út af
veginum, líklega vegna fram-
úraksturs, að sögn lögreglu. Minni-
háttar meiðsl urðu á farþegum en
bílarnir skemmdust mikið. Einn
maður var fluttur með sjúkrabíl til
Akureyrar vegna eymsla í baki og
að sögn lögreglu fóru fjölmargir
fram úr sjúkrabílnum á leiðinni
þótt hann væri í forgangsakstri á
miklum hraða.
Bílvelta vegna
framúraksturs
LÖGREGLAN í Reykjavík fékk um
hádegisbil á föstudag tilkynningu
um ökumann í annarlegu ástandi.
Var hann stöðvaður á Hverfisgöt-
unni og reyndist þá vera góðkunn-
ingi lögreglunnar frá fyrri tíð, í
annarlegu ástandi. Í bifreiðinni
fundust meintar e-töflur og LSD í
einhverju magni.
Í framhaldinu var framkvæmd
húsleit á heimili mannsins þar sem
fundust fleiri fíkniefni, bæði hvítt
efni og töluvert magn af hassi, og
voru greinileg merki um neyslu á
staðnum. Einnig fundust sterar í
sprautuformi og lyfsseðilsskyld lyf.
Í íbúðinni reyndist auk lyfjanna
vera loftriffill og umtalsvert magn
af þýfi, s.s. tölvur og flatskjáir, sem
lögreglan lagði hald á. Maðurinn
var enn í haldi lögreglu þegar blað-
ið fór í prentun.
Með fíkniefni
á Hverfisgötu
MIKILL erill var í fyrrinótt hjá lög-
reglunni á Akureyri. Tjaldstæðið
að Hömrum fylltist um þrjúleytið
og þurfti eftir það að vísa fólki frá,
og safnaðist mikill fjöldi fólks sam-
an í miðbæ Akureyrar. Mikið var
um ölvun og auk þess kom upp eitt
minni háttar fíkniefnamál.
Tilkynnt var um líkamsárás á
tjaldstæðinu um hálffjögurleytið,
en þegar lögreglan kom á staðinn
og hugðist ræða við árásaraðilann
kom annar að og veittist að lög-
reglu. Sá var handtekinn auk fyrri
árásarmannsins. Alls voru til-
kynntar sjö líkamsárásir en auk
þess þurfti lögregla að stöðva
fjöldann allan af slagsmálum, þar á
meðal hópslagsmál.
Margir voru látnir gista fanga-
geymslur og sofa úr sér og þurfti
undir morgun að sleppa þeim sem
fyrr höfðu komið til að losa rými.
Mikil ölvun á
Akureyri
FLUGFÉLAG Íslands hefur hafið
reglubundið áætlunarflug í fyrsta
skipti milli Keflavíkur og Nuuk,
höfuðstaðar Grænlands. Nuuk er
fjórði áfangastaðurinn sem félagið
býður upp á í áætlunarflugi en
einnig er flogið til Kulusuk, Con-
stably Pynt og Narsarsuaq.
Flogið verður þrisvar í viku til
Nuuk til 31. ágúst.
Flug hafið
til Nuuk
„ÞAÐ eru vonbrigði að úrskurðar-
nefndin hafi ekki fundið nein úrræði
til þess að stöðva framkvæmdirnar,“
segir Sigrún Pálsdóttir, stjórnarmað-
ur í Varmársamtökunum, um úrskurð
úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála þess efnis að ekki sé
unnt að stöðva framkvæmdir við
Varmá til bráðabirgða eða þar til
nefndin hafi tekið efnislega afstöðu til
kæru samtakanna. Aðspurð segist
Sigrún ekki vita hvenær kæran fái
efnislega meðferð og tekur fram að
hún hafi áhyggjur af því að búið verði
að vinna óafturkræfar skemmdir á
svæðinu áður en sú niðurstaða liggi
fyrir.
Að sögn Sigrúnar hafa samtökin
m.a. kært aðfarir verktaka fram-
kvæmdanna og að ekki skuli vera far-
ið í neinar mótvægisaðgerðir til að
vernda Varmá og koma í veg fyrir
meiriháttar umhverfisspjöll á meðan
framkvæmdir við lagningu fráveitu á
svæðinu standi yfir.
Sigrún segir einsýnt að með fram-
kvæmdunum sem nú standa yfir í og
við vegarstæði Helgafellsbrautar og
við bakka Varmár sé bæjarstjórn
Mosfellsbæjar að ganga á bak orða
sinna um að hafa samráð við íbúa við
gerð deiliskipulags fyrir svæðið. Seg-
ir hún fráleitt að farið sé út í fram-
kvæmdaleyfisskyldar framkvæmdir
án þess að fyrir liggi deiliskipulag fyr-
ir umrætt svæði, en nýlega var nýtt
deiliskipulag fyrir svæðið auglýst til
kynningar. „Það er blekking og full-
komlega tilgangslaust fyrir íbúa að
gera réttmætar athugasemdir við
eitthvað sem þegar er komið til fram-
kvæmda. Þá er verið að troða á lýð-
ræðislegum rétti íbúa til að hafa áhrif
á skipulagsmál,“ segir Sigrún.
Niðurstaðan
vonbrigði
Segir troðið á lýðræðislegum rétti íbúa
ELDUR kom upp í heimahúsi á Sel-
fossi um kvöldmatarleytið í fyrra-
dag og er húsið mjög mikið
skemmt. Talið er að eldurinn hafi
kviknað út frá potti á eldavél, að
sögn lögreglunnar á Selfossi.
Reykkafarar slökkviliðsins gerðu
leit að heimilisfólki en húsið reynd-
ist vera mannlaust. Vel gekk að
ráða niðurlögum eldsins en húsið er
illa farið eftir bæði reyk og eld.
Eldur kviknaði
út frá potti