Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 16
16 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
inberlega í formannskosningunum á
sínum tíma og finnst hún hafa staðið
sig vel í því hlutverki.“
Átján mánuðir eru ekki langur tími
til að láta gott af sér leiða og Steinunn
viðurkennir fúslega að hún hefði kos-
ið að verma stól borgarstjóra lengur.
„Auðvitað hefði ég viljað vera lengur
en það var ekki mitt að ákveða það.
Samfylkingin efndi til prófkjörs fyrir
kosningarnar í fyrra, þar sem harður
slagur varð milli okkar þriggja, mín,
Dags og Stefáns Jóns. Það var nauð-
synlegt að það uppgjör færi fram og
ótvírætt umboð fengist frá kjós-
endum Samfylkingarinnar til að leiða
lista flokksins í borginni. Eins og
menn muna hafnaði ég í öðru sæti en
Dagur í því fyrsta. Auðvitað hefði ég
viljað vera í fyrsta sæti en við því var
ekkert að segja. Dagur fékk umboð-
ið.“
Prófkjör óheppileg
Að áliti Steinunnar eru prófkjör
óheppileg leið til að velja fólk á fram-
»Einhverjir blaðamenn kölluðu mig
„alþýðlega borgarstjórann“ og það átti vel við.
Morgunblaðið/Kristinn
Hlýhugur Steinunn Valdís og eiginmaður hennar, Ólafur Grétar Haraldsson, í blómahafi á heimili sínu kvöldið
sem tilkynnt var að hún yrði næsti borgarstjóri. Hún kveðst hafa notið borgarstjórastarfsins fram í fingurgóma.
varðandi lægstlaunuðu stéttirnar.
Það voru ákvarðanir sem margir
héldu að hefðu verið teknar á elleftu
stundu en áttu sér mun lengri að-
draganda. Ég hafði mun fyrr markað
skýra stefnu. Við Einar Oddur Krist-
jánsson, alþingismaður Sjálfstæð-
isflokksins, sem nú er orðinn sam-
herji minn í ríkisstjórn, tókumst
talsvert á um þetta mál en hann taldi
að með þessum ákvörðunum væri
verið að tefla stöðugleikanum í þjóð-
félaginu í hættu og allt færi á annan
endann. Það gerðist auðvitað alls
ekki. Ég finn að þessi aðgerð, að
brjóta ísinn í þessum launamálum,
skipti verulegu máli. Stjórn-
málamenn þurfa að geta tekið af
skarið og þarna gerði ég það. Ég hef
stundum sagt: Þar sem er vilji, þar er
vegur. Það á vel við í þessu máli.“
Ofan í þetta mál kom ákvörðun
kjaradóms um að hækka hæstu laun-
in í samfélaginu. Þá afþakkaði Stein-
unn sína launahækkun. Taldi það í
þessu samhengi ekki rétt.
Fann ekki fyrir samanburði
við Ingibjörgu Sólrúnu
Ingibjörg Sólrún var vel liðinn
borgarstjóri í langan tíma. Steinunn
segir það þó ekki hafa verið erfitt að
koma í kjölfar hennar. Hún hafi ekki
fundið fyrir samanburðinum. „Auð-
vitað eigum við Ingibjörg Sólrún
margt sameiginlegt. Við erum báðar
sagnfræðingar, vorum báðar for-
menn stúdentaráðs og báðar borg-
arstjórar, þannig að ég skil vel að ein-
hverjir vilji bera okkur saman. Ég
fann hins vegar aldrei fyrir sam-
anburði við hana enda er þetta þann-
ig starf að hver einstaklingur verður
að finna sinn takt. Ég held að mér
hafi tekist það ágætlega.“
Steinunn segir samstarf þeirra
Ingibjargar Sólrúnar alla tíð hafa
verið gott. „Auðvitað tókumst við á
um ýmis mál meðan við vorum í borg-
arstjórn eins og aðrir borgarfulltrúar
en ég hef aldrei reynt Ingibjörgu Sól-
rúnu að öðru en trausti. Það skiptir
mjög miklu máli. Ég studdi hana op-
boðslista. Þau fari illa með flokka.
„Auðvitað eru prófkjör leið til að gera
upp á milli fólks í flokkum en þau eru
ekki til þess fallin að bæta samskipti
fólks. Það er alveg klárt. Ég held að
menn verði að fara að endurskoða
þessa aðferð. Hún er líka orðin of dýr.
Láttu mig vita það, ég fór í tvö próf-
kjör á síðasta ári. Það er dýrt að aug-
lýsa, opna kosningaskrifstofu,
hringja út og svo framvegis. Ég veit
um margt fólk sem hefur áhuga á því
að láta að sér kveða í pólitík en hrýs
hugur við því að etja kappi við sitj-
andi þingmenn eða sveitarstjórn-
armenn, aðstöðumunurinn er svo
mikill. Það eru til ýmsar aðrar leiðir
en prófkjör, t.d. væri hægt að gera
skriflega skoðanakönnun meðal
flokksmanna sem formaður og upp-
stillingarnefnd ynnu úr og stilltu í
kjölfarið upp lista.“
Steinunn segir menn hafa gengið
ósára frá prófkjöri Samfylking-
arinnar í borginni á síðasta ári en við-
urkennir að frambjóðendur hafi verið
svolítið móðir eftir rimmuna. „Auð-
vitað tók þetta sinn toll. Ég myndi
ekki segja að það hafi haft áhrif í
kosningabaráttunni en við vorum eigi
að síður ekki ánægð með það að fá
bara fjóra fulltrúa. Við ætluðum okk-
ur meira.“
Sem kunnugt er slitnaði upp úr R-
listasamstarfinu fyrir kosningarnar í
fyrra og í samtali við Morgunblaðið
fyrir viku fullyrti Svandís Svav-
arsdóttir, borgarfulltrúi VG, að Sam-
fylkingin bæri ábyrgð á því. Steinunn
er ósammála þeirri söguskýringu.