Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 17

Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 17 arson þekki ég vel úr borgarpólitík- inni enda þótt við værum þar oftar en ekki á öndverðum meiði.“ Geir mýkri en Davíð Steinunn segir það engum vafa undirorpið að kynslóðaskiptin í Sjálf- stæðisflokknum hafi gert þetta sam- starf kleift. „Fólk á mínum aldri, kringum fertugt, er orðið áberandi í flokknum og það dylst auðvitað eng- um að Geir H. Haarde er mun mýkri og sveigjanlegri maður en Davíð Oddsson var nokkurn tíma. Mér virð- ist traust hafa myndast milli hans og Ingibjargar Sólrúnar sem skiptir of- boðslega miklu máli. Annars er þetta bara eins og í góðu hjónabandi, mað- ur einlínir á það jákvæða og reynir að lifa með göllunum.“ Steinunn er bjartsýn á nýju stjórn- ina og segir hana hafa burði til að breyta áherslum og koma ýmsum stórum málum til leiðar. „Það hefur verið hér ákveðinn velferðarhalli á síðustu árum og það þarf að laga. Stjórnin er þegar farin að taka til hendinni í þeim efnum en Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra fylgdi úr hlaði á dögunum risaverk- efni, aðgerðaáætlun í málefnum barna og unglinga. Það er í fyrsta skipti sem alvöru barnapólitík er kynnt á Íslandi. Ég er líka sannfærð um að málefni eldri borgara verða í forgangi.“ Afglöp Steingríms J. Þrátt fyrir bjartsýni á nýju stjórn- ina neitar gamla Röskvu- og R- listamanneskjan því ekki að hún hafi horft til vinstristjórnar í vor. „Ég gerði það, eins og fleiri. Það gekk hins vegar ekki upp.“ – Hvers vegna? „Mín skýring á því er einföld. Það voru afglöp Steingríms J. Sigfússon- ar. Viðbrögð hans strax eftir kosn- ingar voru mjög sérkennileg, t.d. þegar hann fór fram á afsök- unarbeiðni frá Jóni Sigurðssyni út af kosningabaráttunni, og ræðan við þingsetninguna var greinilega bara haldin „for the record“, eins og mað- ur segir. Þar var hann að búa til sög- una, þ.e. segja að hlutirnir væru öðru- vísi en þeir voru. Mér finnst margt í fari vinstri grænna eftir kosningar benda til þess að þeir séu með sam- viskubit. Sjái að þeir gerðu mistök. Svo eru þeir að reyna að réttlæta það eftir á. Ég held að margir í baklandi VG séu afar ósáttir við forystu flokks- ins.“ Steinunn telur Steingrím J. hafa rangtúlkað stöðuna eftir kosningar. „Ég tel að hann hafi haldið að hann hefði einhverja brú yfir til Sjálfstæð- isflokksins, að þeir flokkar gætu myndað stjórn, enda höfðu verið miklar þreifingar af hálfu VG. Við- brögð VG eftir kosningar benda ekki til þess að vinstristjórn hafi verið fyrsti kostur af þeirra hálfu.“ Formaðurinn hefði ekki hætt Sumir hafa haldið því fram að það hafi verið pólitískt lífsspursmál fyrir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að komast í ríkisstjórn á þessum tíma- punkti. Steinunn er ekki endilega sammála því. „Það lá í loftinu að það yrðu breyt- ingar eftir þessar kosningar, einkum eftir útreið Framsóknarflokksins. Þá lá líka í loftinu að Samfylkingin færi í ríkisstjórn. Ég er ekki viss um að Ingibjörg Sólrún hefði dregið sig hlé hefði það ekki gerst. Kosningabar- átta Samfylkingarinnar var frábær, þar sem stemningin, jákvæðið og gleðin voru í fyrirúmi, og sjá það ekki allir á Ingibjörgu Sólrúnu í dag hvernig þetta hefur skilað sér til hennar? Veturinn var erfiður og þeg- ar við héldum stóran landsfund í Eg- ilshöll mældumst við með undir 20% fylgi. Það þurfti mikinn kjark til að standa frammi fyrir flokksmönnum við þær aðstæður og tala í baráttutón til þeirra. Þetta gerði Ingibjörg Sól- rún frábærlega. Það skilaði sér svo sannarlega og alla kosningabarátt- una vorum við að sækja í okkur veðr- ið. Það var því ekkert úrslitaatriði fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og flokkinn að komast í ríkisstjórn enda þótt þar vilji menn vitaskuld vera. Við erum í pólitík til að hafa áhrif.“ Spurð hvort hún muni sjálf sækjast eftir meiri áhrifum innan Samfylk- ingarinnar svarar Steinunn hiklaust játandi. „Ég stefni að sem mestum áhrifum innan míns flokks til að geta hrint ákveðnum hugmyndum og hlut- um í framkvæmd og mun taka að mér þau verkefni sem bjóðast á þeirri leið. Formaður flokksins hefur sýnt með afdráttarlausum hætti að hún treyst- ir konum og nýju fólki í þing- flokknum, bæði með vali á ráðherrum og nefndaformönnum. Þannig að möguleikarnir eru tvímælalaust fyrir hendi.“ Yfir landsbyggðarkarlanefnd Steinunn er formaður samgöngu- nefndar Alþingis og segir það hlut- verk leggjast vel í sig. „Mér skilst að ég sé fyrsta konan til að gegna þessu starfi en þetta hefur víst alla tíð verið mikil landsbyggðarkarlanefnd. Sam- göngumálin eru í brennidepli og það verður mjög spennandi að fást við þau. Að auki flytjast sveitarstjórn- armálin yfir til samgönguráðuneyt- isins um áramót og þau mál þekki ég út og inn. Ég er líka í fjárlaganefnd- inni og er mjög spennt fyrir henni. Þar tel ég að maður fái mjög góða yf- irsýn yfir landsmálin. Þá er ég vara- formaður þingflokksins. Það verður því nóg að gera.“ Steinunn hóf meistaranám í op- inberri stjórnsýslu við Háskóla Ís- lands sl. haust en mun ekki halda því áfram næsta vetur. „Ég sá fram á að það yrði ekki eins mikið að gera hjá mér í minnihlutanum í borgarstjórn og áður og skellti mér því í fram- haldsnám sem mig hafði lengi dreymt um. Það var ofboðslega gaman en vegna fyrirsjáanlegra anna á Alþingi læt ég nú staðar numið í skólanum. Námið verður enn um sinn að bíða betri tíma.“  Ljósmynd/Jóhannes Long Góður gestur Í borgarstjóratíð sinni tók Steinunn Valdís m.a. á móti Mikhail Gorbachev, fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna, í Höfða í fyrra. „Bæði Svandís og Steingrímur J. Sig- fússon eru þessa dagana í örvænt- ingu sinni að reyna að skrifa söguna á annan hátt en hún gerðist. Meira vil ég ekki segja um það mál að svo stöddu en hef í hyggju að fjalla ít- arlega um endalok R-listans í grein í Morgunblaðinu á næstunni.“ Meirihlutamanneskja í eðli sínu Steinunn var kjörin á Alþingi í vor og segir störf sín á þeim vettvangi leggjast afar vel í sig. Samfylkingin á aðild að ríkisstjórn og Steinunn segir mörg spennandi verkefni framundan. „Ég er í eðli mínu meirihlutamann- eskja og þess vegna átti það ekki vel við mig að vera komin í minnihluta í borgarstjórn. Ég ákvað því að bjóða mig fram til Alþingis enda þótt ég vissi vitaskuld ekki hvort Samfylk- ingin yrði í meirihluta eða minnihluta eftir kosningar.“ Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið höfuðandstæðingurinn allan hinn pólitíska feril Steinunnar. Þar til nú. „Það er auðvitað svolítið undarleg til- finning að vera farin að vinna með Sjálfstæðisflokknum í ríkisstjórn. Ég get ekki neitað því,“ segir Steinunn brosandi. „Ég nálgast þetta samstarf hins vegar með opnum huga og á grunni þeirra verkefna sem verið er að vinna að. Þegar öllu er á botninn hvolft erum við líka öll í pólitík af hugsjón og til að ná fram ákveðnum málum. Stefnuskrá þessarar rík- isstjórnar liggur fyrir og báðir flokk- ar munu framfylgja henni af heilum hug.“ Steinunn segir að þar fyrir utan láti sér ágætlega að vinna með ólíku fólki. „Svo þekki ég auðvitað marga úr þingliði Sjálfstæðisflokksins. Við Þorgerður Katrín erum gamlar bekkjarsystur úr MS, Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiði Ríkharðs- dóttur þekki ég úr stjórn Sambands sveitarfélaga og Guðlaug Þór Þórð-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.