Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 36
daglegt líf
36 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kaupmannahöfn
Áhersla hefur verið lögð á að
draga úr losun gróðurhúsa-
lofttegunda í
Kaupmannahöfn
vegna þess að
upphitun á hús-
um og raf-
magnsfram-
leiðsla byggðist
áður mest á
olíubrennslu.
Það hefur
tekist með eigin
loftslagsáætlun og til þess hefur
verið nýtt vindorka og fjar-
varmaorka, sem felst í því að
brenna sorp og nýta orkuna sem
myndast til að hita vatn og dæla
því síðan inn á húsin.
Einnig má nefna metnaðarfulla
áætlun Kaupmannahafnarbúa um
lífræn matvæli í skólum og mötu-
neytum fyrir opinbera starfs-
menn. Það sem vinnst með því er
að við framleiðsluna eru ekki not-
uð skaðvænleg efni fyrir um-
hverfið og svo þykir hollustan
meiri.
New York
New York verður leiðandi í bar-
áttunni gegn gróðurhúsaáhrifum
og dregur úr
losun koltvísýr-
ings um 30% til
ársins 2030,
samkvæmt til-
lögum Michaels
Bloomberg
borgarstjóra.
Í þeim felst
m.a. umferð-
artakmörkun
frá 86. stræti til Battery-garðsins
með gjaldtöku frá kl. 6 á morgn-
ana til 18 á kvöldin, en sú tillaga
er afar umdeild.
Einnig er kveðið á um að hinir
frægu gulu leigubílar verði með
blendingsvélar, sem knúnar eru
með rafmagni og bensíni, eigi
síðar en árið 2012 til að draga úr
loftmengun.
London
Hvergi er meiri mengun á Eng-
landi en í London, en talið er að
þúsund hafi lát-
ist vegna loft-
mengunar árið
2005 og svip-
aður fjöldi lagst
á spítala.
Frá árinu
2003 hefur gjald
verið lagt á þá
sem fara akandi
inn í miðborgina
frá kl. 7 á morgnana til 18.30 á
kvöldin. Síðan þá gengur umferð
37% hraðar í miðborginni og út-
blástur koltvísýrings hefur dreg-
ist saman um 15%.
Áætlunin, sem upphaflega var
nefnd „Kengestion“ í fjölmiðlum
eftir Ken Livingstone borg-
arstjóra, nýtur æ meiri stuðnings
borgarbúa. Livingstone náði auð-
veldlega endurkjöri árið 2004 og
nú segjast tveir þriðju Lund-
únabúa styðja áætlunina.
Stokkhólmur
Stokkhólmur tók upp umferð-
artakmörkun í miðborginni í til-
raunaskyni í
fyrra með svip-
aðri gjaldtöku
og í London. Sú
ákvörðun hefur
mælst afar vel
fyrir meðal íbúa
og raunar verið
staðfest í kosn-
ingum.
Stokkhólmur
er einnig framarlega í því að
byggja upp vistvæn hverfi, þó að
í Malmö hafi verið gengið jafnvel
enn lengra í þeim efnum. Slík
hverfi eru byggð með umhverf-
isvæn sjónarmið í forgrunni og
ráða þau m.a. samgöngumynstri,
útivistarsvæðum, fráveitu, bygg-
ingarefni í húsum, orkufram-
leiðslu og nýtingu, upphitun og
lýsingu. Stundum er ekki gert
ráð fyrir bílum í hverfunum,
heldur að þeim sé lagt í bílastæði
fyrir utan þau eða undir þeim.
Borgir nota 75% af orku íheiminum og til þeirramá rekja 80% af út-blæstri gróðurhúsa-
lofttegunda. Því skyldi engan undra
að baráttan gegn gróðurhúsaáhrif-
um fari í auknum mæli fram í borg-
um og bæjum. Á meðan þjóð-
arleiðtogar eru ekki samstiga um
hversu langt eigi að ganga í al-
þjóðasamningum, þá eru skrefin
stigin í hverfunum, einkum í hinum
vestræna heimi. Þar virðast stjórn-
málamenn sífellt finna nýjar leiðir
til að þýða orð yfir í aðgerðir sem
hafa bein áhrif á daglegt líf fólks í
gegnum viðhorf þess og breytni.
Í London er lagt upp með að
breyta ekki lífsgæðum almennings
heldur lífsvenjum. Þannig markaðs-
setur hver borg breytingarnar með
sínum hætti. Og ekki er lítið í húfi
ef heimsendaspámenn hafa rétt fyr-
ir sér. Nýjar rannsóknir benda til
að útblástur koltvísýrings vaxi
þrisvar sinnum hraðar en vís-
indamenn höfðu spáð eða um 3% á
ári á þessum áratug. Og munar þar
mestu um Kína. Til samanburðar
var aukningin um 1,1% á ári á tí-
unda áratugnum.
Það er að hitna í kolunum.
Hægri og vinstri
Lengi vel fengu sjónarmið um-
hverfisverndarsinna helst hljóm-
grunn hjá vinstri flokkum, en nú
finna allir flokkar þeim farveg í
stefnu sinni. Hægri flokkar hafa
jafnvel tekið forystu í þessum efn-
um, svo sem breski íhaldsflokk-
urinn undir forystu Davids Came-
rons.
Þá er það rökstutt með því að að-
ferðafræði frjáls markaðshagkerfis,
s.s. eignaréttur og hagrænir hvatar,
sé best til þess fallin að skila ár-
angri. Það eigi ekki að beita boðum
og bönnum heldur gefa fólki raun-
hæfa og umhverfisvæna valkosti.
En svo halda aðrir því fram að jafn-
vel valkostir geti verið ansi
þvingandi, ekki síst fyrir hina efna-
minnstu, og séu í raun lítið annað
en inngrip stjórnvalda.
Gordon Brown, sem bráðlega
tekur við sem formaður breska
Verkamannaflokksins, hefur mælt
fyrir því að þeir sem noti vistvæna
orkugjafa á heimilum sínum eigi
rétt á skattalækkunum. Og til
stendur að sekta heimili þar í landi,
sem ekki flokka úrgang um 30 pund
á ári en endurgreiða heimilum sem
aðskilja endurnýjanlegan úrgang
eins og gler, pappír, flöskur og dós-
ir.
Nokkurt mál hefur reyndar verið
gert úr því að lagt er til að teknar
verði upp læsanlegar ruslatunnur
til að koma í veg fyrir „sorpstríð“ á
milli nágranna, sem kynnu annars
að laumast með sorp í tunnurnar
hver hjá öðrum.
Hvað sem líður hægri og vinstri
ríkir í stórum dráttum samstaða
þvert á stjórnmálastefnur um að
draga þurfi úr útblæstri gróður-
húsalofttegunda og jafnvel Banda-
ríkjaforseti tekur undir þau sjón-
armið, þó að hann forðist skuld-
bindingar í þeim efnum. Það segir
hinsvegar sína sögu að yfir þrjú
hundruð borgir í Bandaríkjunum
hafa ákveðið að uppfylla skilyrði
Kyoto-bókunarinnar. Það er ekki
beðið eftir þjóðarleiðtogunum;
borgirnar grípa til eigin ráða.
Kannski þar heyrist betur raddir
fólksins?
Garðar á húsþökum
Öll vinna varðandi umhverfisstörf
borga og sveitarfélaga er sprottin
úr staðardagskrá 21 sem samþykkt
var á ráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Rio árið 1992, að sögn Hjalta
J. Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra stefnumörkunar og þróunar
hjá umhverfissviði Reykjavík-
urborgar.
„Síðan þá hafa sveitarfélög víðs-
vegar um heiminn verið að taka
upp þá hugmyndafræði að við meg-
um ekki ganga á okkar auðlindir og
gæði umfram það sem við þurfum,
þannig að við skiljum að minnsta
kosti það sama eftir handa kynslóð-
unum sem koma á eftir okkur.“
Staðardagskráin var útfærð nán-
ar í Jóhannesarborg árið 2002, en
þá var því beint til sveitarfélaganna
að þau færu að vinna afmörkuð
verkefni í átt að sömu markmiðum.
„Það má segja að grænu skrefin
séu dæmi um það, en þetta hafa ná-
grannalöndin einnig verið að gera
og hafa lengri reynslu af því en
við,“ segir Hjalti.
Og það er sama hvar borið er
niður í hinum vestræna heimi, alls-
staðar eru borgir að máta við sig
grænu fötin, fjölga grænum svæð-
um og finna aðferðir til að draga úr
mengun. Það nær ofan í grasrótina,
sem stendur undir nafni í samtök-
unum Grænum þökum í Bandaríkj-
unum, en þau vinna að því að fá
fólk til að rækta garða uppi á hús-
þökum. Þannig voru þökin á Íslandi
öldum saman, af því ekki var um
annað að velja. Nú stunda menn
umhverfisvernd af sömu ástæðu.
Lífrænt ræktaðar Levi’s
Baráttan gegn gróðurhúsaáhrif-
um fer fram á öllum sviðum mann-
lífsins og auðvitað eru það á end-
anum einstaklingarnir sem hreyfa
tíðarandann. Það er þá sem stjórn-
málamenn leggja við hlustir. Og
fyrirtækin.
Nú rjúka út Levi’s-gallabuxurnar
úr lífrænt ræktaðri bómull og ný-
lega var seldur milljónasti Priusinn.
Matador gaf nýlega út nýtt spil og
bílarnir endurspegla tíðarandann, –
Prius. Brad Pitt mætir á frumsýn-
ingu á vetnisknúnum BMW og
Leonardo DiCaprio frumsýnir nýja
umhverfisverndarmynd í Cannes.
Attenborough les Íslendingum pist-
ilinn á mánudagskvöldum. Og því
er hvíslað á kaffihúsi að hafin sé
stærsta bylgjan í pólitík í áratugi.
Borgir máta
sig við grænu fötin
Ekki er lengur beðið eftir
þjóðarleiðtogum heldur
gripið til aðgerða gegn
gróðurhúsaáhrifum á öll-
um sviðum mannlífsins.
Pétur Blöndal kynnti sér
stöðu umhverfismála og
áhrif þeirra á daglegt líf.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Útivist Hjalti J. Guðmundsson hjólar í vinnu allt árið og notar nagladekk á
veturna, en þrengri skorður eru settar með nagladekk á bílinn.
Í HNOTSKURN
»Í Reykjavík eru yfir 600bílar á hverja þúsund íbúa,
sem er svipað og vestra en
mun hærra en í evrópskum
borgum.
»80 til 90% af útstreymigróðurhúsalofttegunda í
Reykjavík kemur frá bílum.
» Í Danmörku fara 40% áhjóli til vinnu en aðeins 2%
á Íslandi.
Reuters
Bangladesh Þúsundir bíla í umferðarteppu í borginni Dhaka í Bangladesh í kæfandi mengunarþokunni.
pebl@mbl.is