Morgunblaðið - 17.06.2007, Side 45

Morgunblaðið - 17.06.2007, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 45 P IP A R • S ÍA • 7 11 31 Nánari upplýsingar á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000 „Hvað er með Ásum?“ Ævintýraferð í goðheima fyrir alla fjölskylduna. Goðastyttur Hallsteins Sigurðssonar við texta Árna Björnssonar, þjóðháttafræðings. Laxárstöðvar í Aðaldal Orka í iðrum jarðar! Heimsækið gestastofuna í Kröflu, sjáið myndir frá Kröflueldum. Kynnist jarðvarma og orkuvinnslu. Kröflustöð í Mývatnssveit Kraftverk Listaverk sem sjaldan hafa komið fyrir almenn- ingssjónir – mörg hver með áhugaverða sögu sem tengist Landsvirkjun og orkumálum. Kjarval, Ásgrímur, Gunnlaugur Blöndal og fleiri. Ljósafossstöð við Sog Kynnist Kárahnjúkavirkjun! Upplýsingar um Kárahnjúkaframkvæmdirnar ásamt ferðamennsku og útivist norðan Vatnajökuls. Góður viðkomustaður áður en haldið er upp á Fljótsdalsheiði. Végarður í Fljótsdal Líf í Þjórsárdal Ómissandi viðkomustaður á leiðinni inn á Sprengisand og í Veiðivötn. Sultartangastöð ofan Þjórsárdals Heimsókn í Húnaþing Kynnið ykkur orkumál og starfsemi Blöndustöðvar í starfsmannahúsi stöðvarinnar. Blöndustöð, Húnaþingi Kynnist okkur af eigin raun Heimsækið Landsvirkjun í sumar. Stöðvarnar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Komdu í heimsókn í sumar! Landsvirkjun býður landsmönnum að heimsækja sex stöðvar í sumar þar sem bæði er hægt að kynna sér staðreyndir um umhverfisvæna íslenska orku og skoða fjölbreyttar sýningar um menningu, list og sögu. Íslensk orkumál og virkjanir – alþjóðleg fyrirmynd í umhverfismálum HAFINN er undirbúningur hjúkr- unarheimilisins Droplaugarstaða og Alþjóðahúss að viðamiklu samstarfs- verkefni um starfsþjálfun nýrra er- lendra starfsmanna í umönnun aldr- aðra. Markmið verkefnisins er að fjölga starfsmönnum í öldrunarþjón- ustu en skortur er á fólki í slík störf. Á námsstefnu í Skíðaskálanum í Hveradölum 9. mars sl., „Mentor er málið – Allar heimsins konur“, sem fjallaði um móttöku erlendra starfs- manna, kom fram hjá Ingibjörgu Bernhöft, forstöðumanni Droplaug- arstaða, og Ingibjörgu Þórisdóttur, deildarstjóra starfsmanna og gæða- mála Droplaugarstaða, að þær teldu að betra væri að mennta starfsfólkið áður það hefur störf. Í framhaldi af þessum degi fór af stað samvinna Droplaugarstaða og Alþjóðahúss til að koma þessari hugmynd í fram- kvæmd. Þrátt fyrir starfsmannaeklu í öldrunarþjónustu hefur margt er- lent starfsfólk sýnt umönnunarstörf- um áhuga og er jafnvel menntað í þeim geira. Ónóg íslenskukunnátta hefur komið í veg fyrir að það gæti sinnt þessum störfum. Gerð er krafa um íslenskukunnáttu. Starfsþjálfun á launum Verkefnið felst í því að bjóða nýju starfsfólki, sem er að hefja störf á Droplaugarstöðum, Dalbraut og hjá heimilisþjónustunni Aflagranda, upp á eins mánaðar starfsþjálfunar- og íslenskunámskeið á launum áður en hin eiginlega vinna hefst. Þannig öðl- ast starfsfólkið nauðsynlegan orða- forða til þess að geta haft eðlileg samskipti á vinnustaðnum og fær samtímis almenna starfsþjálfun og aukna menningarfærni. ,,Við viljum bæta öldrunarþjónustuna og það er nauðsynlegt að starfsfólkið geti skil- ið íslensku og tjáð sig við íbúa heim- ilisins,“ segir Ingibjörg Bernhöft, forstöðumaður Droplaugarstaða. Að sögn Ingibjargar er það forsenda góðrar aðhlynningar að fólk geti skilið hvert annað. ,,Við viljum auka öryggi íbúanna og vellíðan starfs- fólks. Með því að þjálfa starfsfólk áð- ur en það byrjar erum við að gera hvort tveggja,“ segir Ingibjörg Þór- isdóttir Að sögn Ingibjargar Hafstað, kennslustjóra í Alþjóðahúsi, er þessi aðferð við þjálfun erlends starfsfólks tiltölulega ný af nálinni og jafnvel er þetta í fyrsta sinn sem henni er beitt á Norðurlöndunum. Alþjóðahús hef- ur undanfarin misseri lagt mikið upp úr íslenskukennslu og þróun nýrra aðferða til að koma til móts við þarfir samtímans. Samvinna um þjálfun erlends starfsfólks LIONSKLÚBBURINN Freyr hefur fært deild R-2 á Landspít- ala á Grensási að gjöf tvær loft- dýnur til sértækra sáravarna. Dýnurnar eru af gerðinni Auta Logic 200. Lionsmennirnir í Frey hafa verið sérstakir vel- unnarar deildarinnar und- anfarin ár og fært henni margar góðar gjafir. Deildarstjórinn, Hulda Bergvinsdóttir, tók við gjöfinni og sannreyndi ágæti hennar með því að leggjast í rúmið. Lions- klúbburinn Freyr gaf loftdýnur Sértækar sáravarnir Lionsklúbburinn Freyr gaf Landspítala Grensási loftdýnur. VELFERÐARSVIÐ Reykjavíkur- borgar hefur gert þjónustusamning til þriggja ára við AE Starfsendur- hæfingu ehf. um starfs- og atvinnu- lega endurhæfingu fyrir sex Reykvík- inga á ári í Hlutverkasetri. Í fréttatilkynningu segir að mark- miðið með rekstri Hlutverkaseturs sé að efla virkni og þátttöku einstaklinga með geðraskanir og einstaklinga sem misst hafi hlutverk í samfélaginu af öðrum orsökum og þurfi á endurhæf- ingu að halda. Starfsemin byggist á hugmyndafræði um sjálfseflingu not- enda en um er að ræða sameiginlegan vinnustað fagfólks og notenda. Segir að sköpuð verði verkefni við hæfi hvers og eins, og er hugmyndin m.a. að reka kaffihúss. Í Hlutverka- setri verður starfandi þekkingar- banki sem gerir fyrirtækjum kleift að leita eftir starfskröftum þeirra ein- staklinga sem um ræðir og bjóða þeim tímabundna verkefnavinnu. Með starfsendurhæfingu í Hlut- verkasetri verða einstaklingunum sköpuð tækifæri til áframhaldandi starfa á almennum markaði. Hlutverka- setur ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.