Morgunblaðið - 17.06.2007, Page 46

Morgunblaðið - 17.06.2007, Page 46
46 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Stöðugt fleiri Íslendingar leggja leið sína til borgarinnar við sundin, sem var okkar höfuðborg um margar ald- ir. Til Kaupmannahafnar sóttu menn menntun sína og Hafnarháskóli hef- ur verið sú menntastofnun sem hefur án efa verið mikilvægust fyrir ís- lensku þjóðina frá upphafi. Hér hafði vagga íslenskrar lærdómsmenningar staðið síðan um siðaskiptin og ís- lenskir fræðimenn norrænna vísinda lifað og starfað. Hér voru íslenskar sagnir, munnmæli og endurminn- ingar bundnar strætum, knæpum og krókum. Því er ekki úr vegi fyrir Íslendinga að fræðast um Jónshús, menning- arsetur Íslendinga í borginni, og þá margvíslegu starfsemi sem fram fer í Jónshúsi. Heimili Jóns Sigurðssonar Frelsishetjan okkar, Jón Sigurðs- son, bjó þar lengst af með konu sinni Ingibjörgu Einarsdóttur eða frá 1852 til dauðadags árið 1879. Meðan þau hjón bjuggu í húsinu var það mið- punktur allra Íslendinga í borginni. Og eins þeirra heima á Íslandi sem þurftu á aðstoð eða hjálp að halda, þeir leituðu til Jóns og Ingibjargar. Hér gat verið um að ræða aðstoð við sjúklinga, námsmenn, fanga eða við að útvega margskonar vörur svo sem timbur, veiðarfæri, fatnað, lækn- ingaáhöld og apótekaravörur. Einu sinni í viku var opið hús hjá þeim hjónum og var þá margt Íslendinga á staðnum og vel veitt af íslenskum mat. En greiðasemin var venjulega þökkuð með matarsendingum að heiman. Gefið íslenska ríkinu Húseignina fékk íslenska ríkið að gjöf 1966 frá Carli Sæmundsen stór- kaupmanni (sem var af íslenskum ættum) og konu hans Jóhönnu og fólu þau það forsjá Alþingis. Árið 1970 var húsið opnað og heyrir hús Jóns Sigurðssonar undir forseta Al- þingis og forsætisnefnd þingsins. Jónshús er nokkuð miðsvæðis í borginni, við Östervoldgade 12, skammt frá Listasafni ríkisins (Sta- tens Museum for Kunst) og Rosen- borgargarðinum, um 15 mínútna göngu frá Kongens Nytorv. Sýningin og starfið í Jónshúsi Árið 2004, á hundrað ára afmæli heimastjórnarinnar, lagði Alþingi fjármagn til töluverðra endurbóta á húseigninni og hefur sýningin um líf og störf þeirra Jóns og Ingibjargar verið aukin og endurbætt, þannig að heimsókn í Jónshús verður bæði fróðleg og ánægjuleg upplifun fyrir alla Íslendinga sem þangað koma. Gjörbreytt starfsemi Margvísleg starfsemi fer fram í húsinu, flesta daga vikunnar og allan ársins hring. Undanfarin ár hefur húsið haft fastan framkvæmdastjóra, Jón Rafn Runólfsson, sem er búsett- ur á efstu hæð hússins ásamt konu sinni, Ingu Harðardóttur. Þessi skipulagsbreyting hafði það í för með sér að öll starfsemi hússins gjör- breyttist og jókst til muna. Nú er húsið opið gestum og gangandi alla daga vikunnar og á sl. ári voru gesta- komur á annan tug þúsunda og þá eru undanskildir allir þeir sem sækja fasta liði starfseminnar. Fræði- mannsíbúðin er þar ekki lengur, heldur örskammt frá í Skt Pauls Gade 70, en skrifstofa er í húsinu til afnota fyrir fræðimenn. Þar er einnig skrifstofa fyrir alla þá félagastarf- semi íslenska sem óskað er. Prestur Íslendinga í Danmörku hefur að- stöðu í húsinu og hefur færst í vöxt að kirkjulegar athafnir, eins og hjónavígslur og skírnir, fari fram í stofu Jóns Sigurðssonar. Bókasafn Íslendinga í Kaupmannahöfn, sem telur um 6.000 bækur á íslensku, barnabækur, fræðibækur og skáld- sögur, er í húsinu. Samkomusalur og veitingasalur eru á fyrstu hæð Jónshúss. Þar eru ýmsar uppákomur: Listsýningar, tónleikar, fundir og kaffisala alla sunnudaga (í umsjá kóranna) og ís- lensk dagblöð liggja frammi. 14 mismunandi hópar og aðilar hafa fasta vikulega starfsemi í Jóns- húsi. Íslenski skólinn hefur kennslu á laugardagsmorgnum. Kaupmanna- höfn borgar kennslulaunin og Náms- gagnastofnun veitir afslátt af náms- gögnum. Íslenskur kennari leiðir tvo hópa grunnskólabarna, eldri og yngri deild, og er tilgangurinn að kenna og viðhalda málinu og eins að kenna þeim ýmislegt um íslenskar hefðir og venjur. Foreldrar þessara 38 barna leggja það á sig að koma um langan veg með börnin, til þess að þau megi verða upplýstir og stoltir Íslend- ingar. Skólinn hefur verið svo lán- samur að hafa fengið mjög hæfa kennara til starfsins og mátti vel finna hvað börnin nutu þess að koma í húsið og njóta samvistanna við önn- ur íslenskumælandi börn. Sunnudagaskólinn er fyrir yngstu börnin á sunnudagsmorgnum. Hon- um stjórna nú tveir reyndir og góðir kennarar, og mæta milli tíu og tutt- ugu börn á sunnudagsmorgnum með foreldrum sínum. Barnakór hefur einnig verið starfræktur. Ákveðið samstarf hefur verið milli þessara barnastarfshópa, sem hefur gefist vel. Þrír aðrir kórar hafa blómlega starfsemi og fastar æfingar í húsinu, sem eru Kvennakórinn í Kaup- mannahöfn, kirkjukórinn og Staka, sem í er ungt tónlistarfólk í fram- haldsnámi. Konukvöldin eru elsta hefðin í Jónshúsi, ríflega 30 ára, og eru þau nokkur á vetri. Bókmenntaklúbb- urinn Thor hefur fundi og kynningar á nýútkomnum íslenskum bókum. Nokkrar deildir AA hafa fasta og vel sótta fundi, eins eru fundir Al- anon-deildar. Hefur tilvist þeirra hjálpað mörgum og skilað góðum ár- angri. Auk þessara hópa funda einnig í húsinu stjórnir íslenska safnaðar- ins, Íslendingafélagsins og íslenska stúdentafélagsins. Það hefur verið gæfa starfseminnar í Jónshúsi að til hennar hefur valist áhugasamt og hæfileikaríkt fólk. Til þess að fá upplýsingar um starfsemi Jónshúss og afgreiðslu- tíma er bent á heimasíðuna, www.jonshus.dk. Jónshús er opið alla virka daga, nema mánudaga, frá kl 12-20, lau. 10-15 og su. 10-17. Eins býður forstöðumaður að opna húsið utan auglýsts tíma sé þess óskað. Á komandi hausti eru liðin 200 ár frá fæðingu skáldsins og náttúru- fræðingsins Jónasar Hallgríms- sonar. Þeir Jón Sigurðsson og Jónas voru félagar á stúdentagarðinum, Regensen, og unnu saman að ýmsum málum. Verður afmælisins minnst á Íslandi og einnig hér í Kaupmanna- höfn. Eftir fjögur ár, árið 2011, munum við allir Íslendingar minnast þess að þá verða liðin 200 ár frá fæðing- ardegi Jóns Sigurðssonar, 17. júní 1811. Öflugt starf Hjónin Inga Harðardóttir og Jón Runólfsson, forstöðumaður Jónshúss, og Sigrún Gísladóttir, sem situr í stjórn Jónshúss. Fyrir allar kynslóðir Börn í íslenskuskólanum í Jónshúsi fara í limbó. Hér gat verið um að ræða aðstoð við sjúklinga, námsmenn, fanga eða við að útvega margskonar vörur svo sem timbur, veiðarfæri, fatnað, lækningaáhöld og apótekaravörur. Menningarsetur Íslendinga í Kaupmannahöfn Jónshús í Kaupmannahöfn á sér langa sögu og merkilega og enn er það kjarni í samfélagi Íslend- inga í borginni við sundin. Sigrún Gísladóttir fjallar um Jónshús. Höfundur er búsettur í Kaupmanna- höfn, situr í stjórn Jónshúss og veitir leiðsögn um borgina. B yggingarlist og skipulag eru í sviðsljósinu um þessar mundir og sann- arlega ekki vanþörf á að hafa endaskipti á rislít- illi umræðunni hér um, einkum í tengslum við þau miklu umsvif sem nú eiga sér stað hvert sem auga er litið í borgarlandinu. Lengi hefur skort gagnrýna og faglega samræðu á vettvanginum og virðast arkitektar næstum jafn hikandi við að taka til máls á opinberum vettvangi og myndlistarmenn, orsökin keimlík, nefnilega óttinn við að það gæti kom- ið sér illa fyrir starfsframa þeirra og verkefnum fækki. En ekki langt síð- an Pétur H. Ármannson skrifaði at- hyglisverða grein og kvað þá við beinskeyttan og harðan tón, gagn- rýndi meðal annars háhýsabygg- ingar, aðallega fyrir þá sjónmengun sem þeim fylgja eins og til að mynda Grand hótel við Sigtún sem nú er verið að ljúka við. Veri hann bless- aður og sammála honum um flest, en annars virðist mér gott samræmi í byggingunni og sem arkitektúr sómi hún sér vel sem viðbót við eldra hót- elið. Annað mál er með húsa- samstæðuna sem þekur nær allan fyrrum Þróttarvöll og er sem þungt kassahlass hafi óforvarendis hrunið af himni ofan og lokað fyrir allt oln- bogarými á staðnum, en verklega séð virðist ljómandi vel að verki stað- ið sem þó er annar handleggur. Íslendingar hafa horn í síðu gagn- rýninnar umræðu og í því tilefni langar mig að vísa til orða hinnar miklu dönsku leikkonu Bodil Udsen, sem hún viðhafði í Berlinginum fyrir nokkrum árum, þá 71 árs að aldri: „Vilji maður standa sig í leikhús- eða óperuheiminum, verður maður að þola að vera sallaður niður og af- klæddur inn að skinni.“ Þetta á auð- vitað við allar listgreinar því leiðin á tindinn getur verið býsna grýtt og sjálf fór Udsen ekki varhluta af vantrú á getu hennar, til að mynda hvort leikkonan réði við stór og erfið hlutverk sem henni buðust á ferl- inum, en sem betur fer var hún gædd óþrjótandi baráttuvilja og ýtti frá sér úrtöluröddum. Leiðin á tindinn í arkitektúr er ekki bein og greið og um það er starfsferill margra arkitekta til vitn- is, það er nefnilega býsna stórt orð að standa við að vera arkitekt og hér hafa próf og meistaragráður lítið að segja, árangurinn hins vegar allt. Yf- irburða þekking á grunnformum það sem máli skiptir, en yfir þau er oft meira og minna hlaupið í arkitekta- skólum ekki síður en myndlist- arskólum nútímans. Gefur skrifara tilefni til að segja litla sögu sem birt- ist í Der Spiegel fyrir fimm árum. Skeði í Basel 1956, að tveir sex ára drengir voru að leika sér með teina Verðlaunavöllur Knattspyrnuvöllurinn í München, sem reis í tilefni heimsmeistarakeppninnar 2006 líkist helst loftbelg og var 280 milljóna evra verkefni (tölvumódel). SJÓNSPEGILL Bragi Ásgeirsson menning Húsameistarar með láði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.