Morgunblaðið - 17.06.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 49
UMRÆÐAN
ÞAÐ er mikið að
gerast varðandi bú-
setuúrræði fyrir eldri
borgara í Reykjavík.
Við opnuðum nýja vef-
síðu þann 12. júní þar
sem er að finna upplýs-
ingar um það helsta
sem er að gerast hvað
þau mál varðar. Ég
vona að eldri borgarar
muni fylgjast grannt
með framvindu mála
hjá okkur á vefsíðunni
og senda okkur athugasemdir og góð-
ar tillögur um það sem betur má fara
í málefnum eldri borgara í borginni
okkar.
Vefsíðan „Betra að eldast í borg-
inni“
Á reykjavik.is er að finna borða
„Betra að eldast í borginni“ og með
því að smella á hann er farið inn á vef-
síðu með upplýsingum um úrræði í
búsetumálum aldraðra.
Þar má finna upplýsingar um hvar
stendur til að byggja upp á næstu ár-
um fyrir eldri borgara ásamt upplýs-
ingum um önnur verk-
efni sem tengjast búsetu
eldri borgara, s.s. ör-
yggissíma, breytingar á
íbúðum, samþættingu
heimahjúkrunar og
heimaþjónustu, for-
varnir og fl.
Uppbyggingarsvæði
Sléttuvegur –
Reykjavíkurborg hefur
nú undirritað samning
við Hrafnistu um bygg-
ingu 100 þjónustuíbúða
og þjónustukjarna við
Sléttuveg. Auk þess
hafa Samtök aldraðra fengið fyrirheit
um lóð við Sléttuveg fyrir 50 íbúðir.
Spöngin í Grafarvogi – Reykja-
víkurborg hefur undirritað samning
við Eir um úthlutun byggingarréttar
í Spönginni í Grafarvogi og samstarf,
samvinnu og verkaskiptingu vegna
byggingar og reksturs 112 öryggis-
íbúða og þjónustu- og menningar-
miðstöðvar.
Árskógar í Mjódd – Verið er að
skoða og meta möguleika á byggingu
nýrra þjónustuíbúða við þjónustu-
miðstöð Reykjavíkurborgar við Ár-
skóga í Mjódd. Líklega má koma fyr-
ir allt að 50 íbúðum á svæðinu og mun
Félag eldri borgara líklega koma að
þeirri uppbyggingu.
Gerðuberg – Verið er að skoða
og meta möguleika á byggingu nýrra
þjónustuíbúða við þjónustumiðstöð
Reykjavíkurborgar við Gerðuberg í
Breiðholti, þar má líklega koma fyrir
40-50 íbúðum og mun Félag eldri
borgara koma að þeirri uppbyggingu.
Seljahlíð – Farið hefur fram for-
athugun og mat á möguleikum á
byggingu nýrra þjónustuíbúða við
þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar
í Seljahlíð.
Úlfarsárdalur – Unnið er að
mótun hugmynda um byggingu 200
íbúða fyrir aldraða í Úlfarsárdal í
tengslum við uppbyggingu þjónustu
og verslunar þar. Stefnt er að því að
efna til hugmyndasamkeppni í haust
um hönnun, byggingu og rekstur
íbúða fyrir aldraða á svæðinu.
Betra húsnæði – lengur heima
Verið er að kanna möguleika á að
aðstoða eldri borgara við að gera
breytingar á eigin húsnæði svo þeir
geti búið lengur heima. Meðal kosta
sem ræddir hafa verið er að Reykja-
víkurborg veiti styrki til breytinga
innan íbúðar og aðstoði við að meta
hvaða breytinga er þörf og sjái um að
breytingar seú gerðar. Ríkið komi
hins vegar að breytingum utan íbúðar
t.d. við uppsetningu á lyftu í stigahús.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
og Heilsugæsla höfuðborgarsvæð-
isins hafa ákveðið að fara í til-
raunaverkefni með öryggissíma á eitt
hundrað heimilum í höfuðborginni.
Verkefnið er til 6 mánaða og hefst
þann 1. september næstkomandi.
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
og Miðstöð heimahjúkrunar hafa
unnið að því að samþætta heima-
hjúkrun og heimaþjónustu. Áfram
verður unnið að því og er hugmyndin
að fara í tilraunaverkefni með að
sameina þessa þjónustu í að minnsta
kosti einu hverfi borgarinnar.
Græn heimaþjónusta
Hægt er að sækja um á þjónustu-
miðstöðvum borgarinnar aðstoð við
umhirðu garðs nú í sumar hafi ein-
staklingar ekki tök á að sjá um það
sjálfir. Vinnuskólinn sér um að veita
þessa þjónustu til þeirra sem eru í
metinni þörf samkvæmt mati sem
fram fer á þjónustumiðstöðvunum.
Á frumstigi er samvinna við for-
varnahús Sjóvá um forvarnir eldri
borgara í heimahúsum. Verið er að
móta með hvaða hætti Reykjavík-
urborg mun koma að því verkefni og
er hugmyndin að Forvarnarhús taki á
móti eldri Reykvíkingum og fræði þá
um forvarnir í heimahúsum áður en
hætta skapast. Forvarnir í heima-
húsum edri borgara snúast oft um
einfalda hluti sem auðvelt er að laga.
Þar má t.d. nefna þætti eins og hand-
rið meðfram stigum og við baðkar eða
jafnvel sturtu í stað kars, raða í skápa
þannig að auðvelt sé að ná í það sem
nota þarf dags daglega, taka þrösk-
ulda og mottur o.fl o. fl
Hægt er að fylgjast með framvindu
uppbyggingar og verkefna á vefsíð-
unni sem verður uppfærð eftir því
sem málum vindur fram.
Betra að eldast í borginni
Jórunn Frímannsdóttir Jensen
skrifar um áherslur borgaryf-
irvalda í málefnum
aldraðra
Jórunn Frímannsdóttir
Jensen
» Á vefsíðunni er aðfinna upplýsingar
um hvar stendur til að
byggja upp á næstu ár-
um fyrir eldri borgara
auk upplýsinga um önn-
ur verkefni tengd því.
Höfundur er borgarfulltrúi og for-
maður velferðarráðs Reykjavík-
urborgar auk þess að vera formaður
stýrihóps um búsetuuppbyggingu
fyrir eldri borgara.
AFS International, samtök rúm-
lega 50 landa um allan heim, halda
nú upp á 60 ára afmæli sitt. Í öll þessi
ár höfum við veitt ungu fólki tæki-
færi til að taka þátt í fjölmenning-
arlegum nemendaskiptum, af bestu
mögulegu gæðum. AFS á Íslandi,
sem kom um borð aðeins 10 árum
eftir stofnun alþjóðasamtakanna,
heldur nú upp á 50 ára starfsafmæli
sitt. Á þessum 50 árum hefur félag-
inu tekist að skapa og veita heim-
inum aðgang að einum bestu sendi-
herrum Íslands á alþjóðavísu, sem
eru ungmennin.
Árið í ár, nú þegar við höldum upp
á hálfrar aldar afmæli AFS á Íslandi,
er mjög mikilvægt fyrir AFS á al-
þjóðavísu. Árið 1947-1948 fóru fyrstu
52 skiptinemarnir til ársdvalar í
Bandaríkjunum, víðs vegar að úr
heiminum. Í dag hefur AFS
tekist að verða raunveruleg
alþjóðleg samtök með að-
ildarfélög í yfir 50 löndum
um allan heim. Þátttak-
endur eru yfir 12.000 í yfir
80 löndum. Frá því að AFS
byrjaði að bjóða upp á skip-
tiprógrömm hafa yfir
350.000 þátttakendur, og
svipaður fjöldi fósturfjöl-
skyldna, öðlast mikilvæga
lífsreynslu í gegnum AFS.
Þessar tölur tákna ekki
einungis vöxt, heldur einn-
ig áhrif. AFS-arar taka nú þátt í öll-
um geirum samfélagsins, jafnt hjá
hinu opinbera sem í einkageiranum, í
hinum menningarlega geira og hjá
frjálsum félagasamtökum. Eftir
AFS-reynslu sína hafa þátttakendur
þau tæki og tól sem þarf til að búa og
starfa í fjölþjóðlegu alheims-
samfélagi. Þátttaka í AFS-
prógrammi hefur margvísleg áhrif.
Skiptinemar verða fyrir menningar-
legum áhrifum frá sínu dvalarlandi,
læra að tengjast öðrum og skilja þá
sem eru „öðruvísi“ og geta þannig
komið fram breytingum á eigin sam-
félagi með því að hafa áhrif á viðhorf
annarra, þegar heim er komið.
Við óskum AFS á Íslandi, starfs-
fólki, sjálfboðaliðum, þátttakendum
og stuðningsaðilum til hamingju með
50 ára starf sem hefur einnig lagt
mikið af mörkum til AFS-samtak-
anna á alþjóðavísu. Við fögnum
einnig sífellt vaxandi starfsemi
AFS á Íslandi undanfarin ár.
AFS hóf starfsemi sína á Ís-
landi árið 1957, og hefur síðan
þá sent 3.326 unga Íslendinga
víðsvegar um heim, og tekið á
móti 1.123 skiptinemum frá
fjölmörgum löndum um allan
heim. Síðasta ár var metár í
sögu AFS á Íslandi frá upphafi,
en þá fóru 162 nemar til 32
landa, sem er stórmerkilegur
árangur, einkum í ljósi íbúa-
fjölda.
Bæði Brian Atwood og ég viljum
þakka Rósu Björgu Þorsteinsdóttur,
framkvæmdastjóra AFS á Íslandi,
öðru starfsfólki, sjálfboðaliðum, fjöl-
skyldum, fósturfjölskyldum og skól-
um á Íslandi fyrir ómetanlegan
stuðning. Samtökin hafa boðið til
málþings, móttöku og hátíð-
arkvöldverðar í tilefni þessa stór-
afmælis. Meðal hinna virðulegu
gesta, sem ég er hreykinn af að fá að
fagna með, eru forseti Íslands, hr.
Ólafur Ragnar Grímsson, Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, og Madeleine Ströje
Wilkens, sendiherra Svíþjóðar á Ís-
landi. Það verður ánægjulegt að
fagna með vinum sínum á Íslandi
þann 16. júní nk. og skála fyrir
áframhaldandi 50 ára velgengni AFS
á Íslandi.
Til hamingju með afmælið AFS á Íslandi!
Francisco Tachi Cazal og J.
Brian Atwood skrifa í tilefni af
hálfrar aldar starfsafmæli AFS
á Íslandi
» Á þessum 50 árumhefur félaginu tekist
að skapa og veita heim-
inum aðgang að einum
bestu sendiherrum Ís-
lands á alþjóðavísu, sem
eru ungmennin.
J. Brian Atwood
Francisco Tachi Cazal er forseti og
framkvæmdastjóri Alþjóðaskrifstofu
AFS, og J. Brian Atwood er formaður
Alþjóðastjórnar AFS.
Francisco Tachi Cazal
Í GREININNI „Þurfum að gefa
þessu tækifæri“ í Morgunblaðinu 9.
júní sl. er Jórunn Frí-
mannsdóttir, formaður
velferðarráðs, enn við
sama heygarðshornið
og hamrar á því að
Njálsgata. 74, þar sem
hún og velferðarráð
vilja vista lengst leiddu
vímuefnaneytendur
borgarinnar, verði
heimili en ekki stofnun.
Jórunn heldur því
fram að unnið hafi verið
faglega að því að finna
hentugt húsnæði en
velferðarráð hefur ekki
tekið tillit til staðsetningar hússins,
umhverfis þess, hvort áætluð starf-
semi falli að umhverfinu og síst hefur
komið í hug ráðsins að kynna sér
sjónarmið nágranna á fyrirhugaðri
starfsemi.
Hún vill miða við og bera saman
við starfsemi á Miklubraut 20 en
ólíku er saman að jafna og á þann
mun minnist hún aldrei.
Húsið nr. 20 við Miklubraut er
endahús, það er ekki áfast öðrum
húsum, stendur við breiða og mikla
umferðargötu þannig að ekki er mikil
nánd við húsin hinum megin göt-
unnar eða næstu hús. Leikskóli, skóli
eða leikvöllur eru ekki í næsta ná-
grenni.
Húsið nr 74 við Njálsgötu er sam-
fast húsunum nr. 72 og
76. Það stendur við
þrönga, rólega götu þar
sem húsin eru sam-
byggð þannig að nánd
milli íbúa er mikil. Leik-
skóli, skóli og leikvöllur
eru í næsta nágrenni.
Húsið við Skeggja-
götu, sem velferðarráð
hafði augastað á fyrir
gistiskýli fyrir úti-
gangsmenn, er sam-
bærilegt við húsin við
Njálsgötu. Skeggja-
götuhúsið er parhús og
eigandi hins hlutans mótmælti tilvon-
andi starfsemi og þau mótmæli varð
borgin að taka til greina. Eflaust hafa
ein rök þess húseiganda verið þau að
hús hans félli í verði eða yrði óselj-
anlegt. Ráðamenn borgarinnar virð-
ast hins vegar ætla að hunsa rök og
mótmæli íbúa í nágrenni við 74 gegn
fyrirætlun velferðarráðs.
Vistmenn á Miklubraut eru menn
sem eru hættir að drekka og eru að
reyna „að ná tökum á lífi sínu“ eins
og velferðarráð orðar það. Þeir sem
vistaðir yrðu á Njálsgötu mega
drekka og neyta eiturlyfja, en bara
ekki inni í húsinu. Á þessu tvennu er
reginmunur.
Jórunn segir að á 74 verði vakt-
maður, einn eða fleiri, allan sólar-
hringinn, þar eigi að vera öflug fé-
lags- og heilbrigðisþjónusta, koma
megi í veg fyrir að vistmenn fari inn í
garða nágranna, setja megi upp ör-
yggismyndavélar í götunni, auka lög-
gæslu í götunni og fleiri aðgerðir
kæmu til greina.
Með þessu viðurkennir hún að vist-
menn og gestir þeirra gætu valdið
nágrönnum ónæði og áreiti, að starf-
semi hússins samræmist ekki venju-
legri íbúðarbyggð og venjulegum
heimilum og að áætlaður rekstur
hússins flokkist undir stofnun en ekki
heimili.
Það getur varla talist boðlegt íbú-
um götunnar að búa við það ónæði
sem leiðir af því að nágrannar séu í
eiturlyfjaneyslu þar sem alþekkt er
að hegðum manna í vímu er hömlu-
laus og þeim fylgir bæði slæm um-
gengni, hávaði og ónæði á öllum tím-
um sólarhrings. Það getur heldur
vart talist boðlegt að allar ferðir og
athafnir okkar nágranna séu teknar
upp á öryggismyndavél á vegum
Reykjavíkuborgar.
Jórunn getur seint sannfært okkur
um að ekki sé unnt að finna heppi-
legri stað fyrir stofnunina en Njáls-
götu 74.
Í sama blaði birtist greinin „Eru
ekki já-manneskjur“ og Kristín
Helga Káradóttir á við að hún og
örfáir nágrannar sem styðja stofnun
„heimilisins“ séu ekki já-manneskjur
borgaryfirvalda. Hún segist vilja
leggja áherslu á siðferðilega hlið
málsins, en að hennar áliti snýr sú
hlið öll að velferðarráði og skjólstæð-
ingum þeirra. Hún talar um að íbúar
Njálsgötu hafi valið að búa í mið-
bænum og af þeirri ástæðu geti þeir
ekki gert sömu kröfur til öryggis
barna!
Hér skal Kristínu Helgu bent á að í
götunni býr fólk sem telst til eldri
borgara þessa lands. Margir hafa bú-
ið á Njálsgötunni alla sína ævi og
kannast ekkert við að hafa valið sér
búsetu í miðbæ Reykjavíkur. Þetta
er fólk sem bjó og byggði hús sín á
Njálsgötu, sem er í gömlu og grónu
hverfi sem frá fyrstu tíð hefur verið
kallað austurbær. Gatan, eða sá hluti
hennar sem nr. 74 stendur við, er ein
af fáum borgaralegum götum í
Reykjavík.
Á undanförnum árum hafa borg-
aryfirvöld farið að kalla austurbæ
„miðborg“, eflaust til að hægara sé að
smeygja inn í hverfið ýmiss konar
starfsemi sem íbúar annarra hverfa
hafna og til að telja íbúum austur-
bæjar trú um að þeir sem íbúar „mið-
borgar“ geti ekki gert sömu kröfur
og íbúar annarra hverfa. Á það agn
hefur Kristín Helga bitið. Íbúar við
Njálsgötu sætta sig ekki við að vera
ekki álitnir jafningjar annarra íbúa
borgarinnar og gera sömu kröfur og
aðrir íbúar um að fullt tillit sé tekið til
velferðar þeirra og hagsmuna.
Kristín Helga gerir athugasemdir
við kosningar í nefnd sem átti að
ræða við fulltrúa borgarinnar. Íbúa-
fundur var boðaður með góðum fyr-
irvara og íbúar hvattir til að bjóða sig
fram sem fulltrúa íbúa. Fjórir urðu
við þeim tilmælum og af þeim var
einn meðmæltur stofnuninni og fékk
hann örfá atkvæði.
Þeir tveir fulltrúar sem valdir voru
með lýðræðislegri kosningu áttu að
tala máli hinna 130 íbúa sem skrifuðu
undir mótmælaskjal sem afhent var
borgarstjóra 22. f.m. Málsvarar fyr-
irhugaðrar stofnunar voru hinir tveir
fulltrúar borgarinnar.
Njálsgata 74 er ekki rétti staðurinn
Edda Ólafsdóttir skrifar um
fyrirhugað heimili fyrir heim-
ilislausa á Njálsgötu 74
» Þeir sem vistaðiryrðu á Njálsgötu
mega drekka og neyta
eiturlyfja, en bara ekki
inni í húsinu.
Edda Ólafsdóttir
Höfundur er íbúi á Njálsgötu.