Morgunblaðið - 17.06.2007, Side 52
52 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Brunnstígur - Hf. - einbýli
Hraunhamar hefur fengið í
einkasölu glæsilegt einbýli
á þremur hæðum, samtals
um 171,5 fm. Eignin skipt-
ist í forstofu, hol, eldhús,
borðstofu, stofu og gesta-
snyrtingu. Í risi eru 2 herb.,
fatah., gangur og baðh. Í
kjallara er forstofa, 2 herb.
og þvottahús. Glæsilegar
innréttingar og gólfefni.
Einstök staðsetning.
Uppl. veitir Þorbjörn Helgi, gsm. 896-0058.
530 1800
37.400.000
Virkilega fallegt 122,2 fm. 4ra herb. einbýlishús á
frábærum útsýnisstað með 26,1 fm. bílskúr
samt.148,3 fm. Eignin er vel skipulögð og hefur
verið talsvert endurnýjuð. Verönd og fallegur garður
við eignina. BÓKIÐ SKOÐUN S. 530 1800/1811
Móabarð 22b - 220 Hfj
FANNBERG FASTEIGNASALA ehf.
ÞRÚÐVANGI 18 - 850 HELLU
Guðmundur Einarsson, lögg. fasteignasali
Jón Bergþór Hrafnsson, viðskiptafræðingur sími 487 5028
JÖRÐ Í
RANGÁRVALLASÝSLU
Til sölu er jörðin Búð 1 í Þykkvabæ.
Landstærð er talin vera um 77 ha,
sem allt er gróið land. Á jörðinni er
183 fm íbúðarhús, með 43 fm sam-
byggðum bílskúr, 2 garðávaxta-
geymslur, önnur 136 fm og hin 240
fm. Auk þess eru á jörðinni gamalt
fjós og tvær gamlar geymslur. Verð
kr. 60 milljónir.
Nánari upplýsingar og myndir
á www.fannberg.is
og á skrifstofu.
Áhugavert fyrir fjárfesta/verktaka. Um er að ræða 43,7 ha kjörið bygging-
arland við núverandi íbúðabyggð á Selfossi. Landið er mjög vel staðsett
og liggur að Bjarkarlandi, sem er framtíðarbyggingarland sveitarfélags-
ins. Skapandi fjárfesting! Land sem eykur verðgildi sitt.
ÁRBORG - LAND VIÐ SELFOSS
Allar nánari upplýsingar gefur Andri Sig., sölustjóri
DP FASTEIGNA í síma 561 7765 eða andri@dp.is.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Hesthús - Sörlaskeið - Hf.
Glæsileg, ný hesthús. Um er að ræða 5 eining-
ar, 86 fm, ætlaðar 12 hestum hver. Húsið er
steinsteypt, klætt að utan með áli. Hiti í gólfum.
Góð sérgerði, stór hlaða, góð kaffistofa. Hús
verður allt fyrsta flokks. Verð frá 16,9 millj. Hag-
stæð lán.
Nánari upplýsingar gefur
Helgi Jón, sölustjóri, s. 893 2233.
ALMÁTTUGI skapari og eilífi líf-
gjafi. Á þessum góða degi sé ég sér-
staka ástæðu til að þakka þér, kær-
leiksríki Guð, fyrir sköpun þína og
allar þínar góðu gjafir. Þakka þér
fyrir landið mitt, Ísland, fyrir fegurð
þess, hina stórbrotnu náttúru og hið
óviðjafnanlega landslag.
Ég þakka þér fyrir þjóðina mína,
alla Íslendinga og aðra
þá sem hér búa til
lengri eða skemmri
tíma og auðga þannig
samfélag okkar með
veru sinni og lit-
brigðum. Hjálpaðu
okkur þótt ólík séum
að lifa saman í sátt og
samlyndi. Þroskaðu
okkur, gerðu okkur
víðsýnni og umburð-
arlyndari. Blessaðu
skoðanir okkar allra,
menningu, trú og ann-
að það sem okkur er
dýrmætt. Hjálpaðu okkur jafnframt
að virða skoðanir og rétt hvert ann-
ars. Hjálpa þú okkur að standa vörð
um lýðræðið í landinu og hjálpaðu
okkur að horfa sameiginlega til
framtíðar, okkur öllum til heilla og
blessunar. Framtíðar sem byggð er
á traustum grunni.
Fyrst og fremst þakklæti
Fyrst af öllu kemur upp í huga
minn þakklæti á þessum degi. Við
getum verið stolt af landinu okkar
og þjóðinni, þjóðsöngnum og fán-
anum, en þó fyrst og fremst þakklát.
Það er ómetanlegt að mega búa
frjáls í fögru landi.
Íslenski fáninn minnir mig á frels-
ið og hve dýru verði það var keypt.
Blái liturinn minnir mig á kærleika
þinn, á himininn, á þig sem öllu vakir
yfir, á eilífðina, lífið sjálft.
Rauði krossinn í fánanum okkar
minnir mig á blóðið þitt sem rann á
krossinum forðum til fyrirgefningar
synda minna. Hann
minnir mig á þína al-
gjöru fórn, á óend-
anlegan kærleika þinn
og elsku mér til handa.
Og hvíti liturinn sem
umlykur krossinn
rauða minnir mig síðan
á hreinleika þinn. Lát
hann einnig minna mig
á heilagan anda þinn
sem er ávallt yfir mér
og allt um kring, mér
til huggunar og styrkt-
ar, leiðbeiningar, upp-
örvunar og hvatningar.
Frjáls í fögru landi
Já, þakka þér eilífi Guð, fyrir að fá
að búa frjáls í fögru landi. Blessa þú
áfram landið okkar, Ísland og ís-
lensku þjóðina. Blessaðu framtíð
þjóðarinnar og gef að sameiginleg
áform okkar mættu verða okkur öll-
um til heilla og blessunar. Hjálpaðu
okkur að minnast forfeðra okkar og
-mæðra með þakklæti og allra þeirra
sem Ísland hafa byggt við erfið skil-
yrði á misjöfnum tímum.
Hjálpaðu okkur að umgangast
frelsið með auðmýkt og nærgætni,
virðingu og þakklæti. Hjálpaðu okk-
ur að halda friðinn, varðveita frelsið
og viðhalda því og gæta þess að allir
fái notið þess því að það er sann-
arlega öllum ætlað.
Með eilíft sumar í hjarta
Ég þakka þér algóði Guð fyrir all-
ar þínar góðu og nytsamlegu gjafir
og fyrst af öllu hið himneska og eilífa
frelsi sem ég fæ að njóta vegna náð-
ar þinnar.
Hjálpaðu mér að opna hjarta mitt
fyrir vorinu svo það nái þar raun-
verulegum völdum. Gefðu að það
mætti síðan þroskast þar og dafna á
eðlilegan hátt svo þar ríki síðan eilíft
sumar. Fylltu mig af friði þínum,
friði sem er æðri öllum mannlegum
skilningi, en ég má meðtaka, þiggja
og njóta.
Alls þessa leyfi ég mér að biðja
þig, almáttugi og kærleiksríki Guð.
Fylltur þakklæti til þín og aðdáunar
yfir sköpun þinni. Lof sé þér á þess-
um degi, heiður og dýrð. Þér sem ert
höfundur og fullkomnari lífsins.
Amen.
Bæn 17. júní
Sigurbjörn Þorkelsson
skrifar í tilefni þjóðhátíð-
ardagsins 17. júní
»Hjálpaðu mér aðopna hjarta mitt fyr-
ir vorinu svo það nái þar
raunverulegum völdum.
Gef að það mætti síðan
þroskast þar og dafna á
eðlilegan hátt…
Sigurbjörn Þorkelsson
Höfundur er rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju.
RUNÓLFUR Ágústsson, fyrr-
verandi rektor Háskólans á Bifröst,
hefur gagnrýnt Ágúst Einarsson,
núverandi rektor skólans op-
inberlega fyrir að skýra frá þeirri
erfiðu fjárhagsstöðu sem Bifröst
var komin í undir lok stjórnartíðar
Runólfs. Það er tvennt sem ég tel
mikilvægt að benda á í þessari um-
ræðu.
Í fyrsta lagi þá
staðreynd að tölur um
rekstur Bifrastar voru
þegar opinberar í árs-
reikningi skólans áður
en Ágúst minntist á
þær á útskriftarræðu
sinni. Þær er hægt að
nálgast á Netinu
(www.bifrost.is/Files/
Skra_0019180.pdf).
Þar kemur fram að í
lok stjórnartíðar fyrr-
verandi rektors var
eigið fé Bifrastar 74
milljónir króna og
skuldir 678 milljónir. Það er hlið-
stætt því að einstaklingur skuldi
90% í húsinu sínu. Í sjálfu sér þarf
ekkert að vera athugavert við það ef
einstaklingurinn hefur nægar
tekjur til að standa straum af af-
borgunum. En síðasta eina og hálfa
árið sem Runólfur stýrði Bifröst
var tap af rekstrinum 195 milljónir
króna. Ef skólinn hefði verið rekinn
með sama hætti áfram hefði hann
væntanlega orðið gjaldþrota eins og
hvert annað fyrirtæki.
Í öðru lagi er vert að benda á að í
september 2006 fór fram atkvæða-
greiðsla í Háskólanum á Bifröst þar
sem kennarar og starfslið skólans
greiddu atkvæði um hvort rétt væri
að skýra stjórn skólans
sérstaklega frá óvið-
urkvæmilegum stjórn-
unar- og rekstr-
arháttum Runólfs. Alls
greiddu 36 kennarar og
starfsfólk atkvæði með
slíkri tillögu en 3 á móti
(sjá Skessuhorn 27.
september 2006).
Þessi dæmi eru tvö
af nokkrum í stjórn-
unarsögu Runólfs á
Bifröst. Runólfur vann
mikið, merkilegt starf
fyrir Viðskiptaháskól-
ann á Bifröst fyrstu ár sín í starfi.
En undir lokin hafði hann glatað
trausti kennara og starfsfólks og
komið skólanum fjárhagslega á ystu
nöf. Það er minn skilningur að ekk-
ert annað en uppsögn hefði beðið
Runólfs vegna þessa, hefði hann
ekki kosið að segja upp sjálfur.
Sagan öll hefur ekki komið fram í
fjölmiðlum. Þeir sem fylgdust með
síðustu mánuðum Runólfs á Bifröst
hafa ef til vill kosið að láta kyrrt
liggja. Kannski hefðu þeir átt að
ganga lengra og segja frá þeim
ástæðum sem raunverulega bjuggu
að baki brotthvarfi Runólfs frá Bif-
röst. Ágúst Einarsson vísaði á afar
hófstilltan og diplómatískan hátt til
rekstrarvanda Runólfs í ræðu sinni
við útskrift Bifrastar. Ofsafengin
viðbrögð Runólfs gefa einungis til
kynna að enn sé margt sem hann
vill reyna að breiða yfir.
Stjórnartíð Runólfs á Bifröst
Ian Watson skrifar
um málefni háskólans á Bifröst » Það er minn skiln-ingur að ekkert ann-
að en uppsögn hefði
beðið Runólfs vegna
þessa, hefði hann ekki
kosið að segja upp sjálf-
ur.
Ian Watson
Höfundur er doktor í félagsfræði,
kenndi á Bifröst og sá um alþjóðamál
þar á árunum 2005-2007.