Morgunblaðið - 17.06.2007, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 17.06.2007, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 55 UMRÆÐAN HÆÐ VIÐ INGÓLFSSTRÆTI Skrifstofuhúsnæði Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Glæsileg, 181,2 fm eign í virðulegu húsi á besta stað í miðbænum. Eignin er skrifstofuhúsnæði á 2. hæð sem skiptist í þrjár stórar skrifstofur, opið vinnurými, fundarherbergi, starfsmannaað- stöðu, salerni og skjalaherbergi. Í kjallara er 22 fm geymsla. Út frá fundarherberginu eru stórar og sólríkar svalir. Mikil lofthæð er í húsnæðinu og er fallegur linoleum-dúkur á gólfum. Gluggar eru upprunalegir og eru eir-gluggalistar með rúðum. Eignin er afar snyrtileg og hefur fengið gott viðhald. Sameign er mjög snyrtileg og þar er lyfta. 6825 Nánari upplýsingar veita Hákon Jónsson og Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasalar hjá Eignamiðlun ehf. Laugavegi 170, 2. hæð. Opið virka daga kl. 8-17. Sími 552 1400 ● Fax 552 1405 www.fold.is ● fold@fold.is Þjónustusími eftir lokun er 694 1401. Herragarður í Þrastarskógi Vorum að fá í sölu þennan herragarð, sem samanstendur af sumarhúsi og fl. á ca 18.750 m² eignarlandi í Þrastarskógi, Veru- lega gott 55,2 m² fullbúið sumarhús með 3 svefnherbergjum, kamína í stofu, heitur pottur á verönd. Á landi er 36 m² bílskúr og geymsla, 2 gróðurhús og stór tjörn. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040 • Fax 533 4041 kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali Frábærlega staðsett og rúmgóð íbúð á tveimur hæðum ásamt sér- stæðum bílskúr. Stærð alls 169 fm, þ.a. bílskúr 29,3 fm. Glæsilegt útsýni. Tvennar góðar svalir. Vandaðar innréttingar og gólfefni. Arinn í sjónvarpsstofu. SÉRLEGA GÓÐ STAÐSETNING Í FOSSVOGINUM. GLÆSILEG EIGN. Verð. 46,0 millj. jöreign ehf ÁLFALAND - FOSSVOGI GLÆSILEG EIGN Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is Iðndalur - Vogum, fjárfesting Atvinnuhúsnæði - veitingastaður í Vogum á Vatnsleysuströnd. Húsnæðið er 320 fm og er í dag starfandi veitingastaður í fullum rekstri. Einnig er gott iðnaðarbil m. góðum innkeyrsludyrum, 480 fm. Óvenju stór lóð m. möguleika á byggingarétti. Lóðin er ca 7500 fm. Eignarhlutarnir seljast saman eða sitt í hvoru lagi. Óskað er eftir tilboðum. VIÐ lifum á þeim undarlegu tímum, þegar allt virðist leyfilegt. Ekkert má banna og helst má aldrei segja nei. Sumir vilja halda því fram að við séum á fallanda fæti meðal ann- ars af þessum ástæðum. Hvað sem um það er, sýnist vel við hæfi að rifja upp hvað maður dagsins, Jón Sigurðsson frá Hrafnseyri í Arn- arfirði, sagði um frelsið og agaleys- ið. Skólapiltar úr Lærða skólanum í Reykjavík fóru eitt sinn í skrúð- göngu að húsinu Glasgow í Reykja- vík, þar sem Jóni Sigurðssyni var haldið samsæti. Hann kom út á tröppurnar, hélt ræðu og mótmælti þeim ummælum, að hann hefði aldrei þekkt bönd. Að þola stjórn og bönd væri eitt af skilyrðum þess að geta orðið nýtur maður, bönd væru jafn nauðsynleg inn á við sem út á við, jafn nauðsynleg fyrir líf einstakra manna sem þjóða. Frelsið án banda, án takmörkunar, væri ekki frelsi, heldur agaleysi og óstjórn. Þessi orð frelsisforingjans okkar eru íhugunarefni fyrir okkur öll. Vert er að vekja athygli á því að þau eiga ekki eingöngu við um börn og unglinga. Þau eiga ekki síður við um okkur sem teljumst fullorðin. Og orð hans eiga við á öllum svið- um þjóðlífsins. Svo nýjasta dæmið sé nefnt, á skilgreining Jóns forseta vel við um stjórnendur Seðlabankans við Arn- arhól. Þeir virðast ekki með nokkru móti skilja að þeir eru undir húsaga fólksins í landinu. Þeir virðast ekki með nokkru móti skilja að frelsi þeirra þarna innanstokks við Arn- arhól hefur nú snúist upp í agaleysi og óstjórn. Og þeir virðast alls ekki skilja að nú hafa þeir gengið einum of langt. Stýrivextir og hækkun eða lækkun punkta í þeim efnum er sjálfsagt ágætis hagstjórnartæki. En að hafa almenning með sér en ekki móti er ábyggilega betra en nokkurt tæki til hagstjórnar. Von- andi bera umræddir peningamenn gæfu til að skilja það og þekkja sinn vitjunartíma. HALLGRÍMUR SVEINSSON Brekku, Dýrafirði . Frelsi og agaleysi Frá Hallgrími Sveinssyni Jón Sigurðsson um fimmtugt, á tindi manndómsáranna. Í TILEFNI af fréttum um aukinn hraðakstur í umferðinni verður mér hugsað til þess hömluleysis sem gengur yfir marga í samfélaginu í dag. Hömluleysi gengur ekki upp þar sem það kemur niður á öðrum sem síst skyldi. Hömlur og mörk eiga allir að setja sér til að ganga ekki of langt. Þetta á við um svo margt í okkar lífi sem við þurfum að taka ákvörðun um. Spurningar svo sem hvort keyra eigi hraðar en þau mörk sem eru sett samkvæmt um- ferðarlögum, hvort eigi að neyta áfengis eða ekki, hvort eigi að aka ölvaður eða ekki, hvort beita eigi of- beldi eða ekki. Freistingar eru á hverju götu- horni, oft lagðar fram vísvitandi af þeim sem vilja hagnast á okkur án tillits til afleiðinga. Stundum búum við til okkar freistingar sjálf, sér- staklega þegar við höfum ekki fyr- irfram sett okkur mörk, okkar eigin hömlur. Það getur verið erfitt að fyrir þá sem eru veikir fyrir og haldnir ein- hverjum fíknum að setja sér mörk og standa við þau, en það er hægt að fá aðstoð. Það eru mjög margir sem standa uppúr og ekki falla í freist- ingu. Herra Ólafur Ragnar Gríms- son forseti fékk mikið hól konu sinn- ar fyrir að vera staðfastur og falla ekki fyrir freistingum. Við getum öll tekið okkur hann sem góða fyr- irmynd og sett okkur skynsamleg mörk og staðið við þau, hvað sem á dynur. Höfum í huga að það eru alltaf ein- hverjir sem líta upp til okkar og leita að fyrirmynd. Ekki bregðast þeim. AÐALSTEINN GUNNARSSON, formaður Barnahreyfingar IOGT á Íslandi. Góðar fyr- irmyndir Frá Aðalsteini Gunnarssyni Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.