Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 65 Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Fallegir legsteinar á góðu verði Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og kveðjur við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BALDURS HJÁLMTÝSSONAR, Arahólum 4, Reykjavík. Bragi Már Baldursson, Kristina Bergqvist, Jóna Kristín Baldursdóttir, Sigþór K. Ágústsson, Hjálmtýr R. Baldursson, Friðrik Baldursson, Njála Laufdal, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og kveðjur vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, LILJU GUÐMUNDSDÓTTUR, Drekagili 14, Akureyri, sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á Bakka- hlíð, Lyfjadeild FSA og Skógarhlíð á Hlíð fyrir einstaka alúð og hlýhug í veikindum hennar. Gunnar Bergur Árnason, Guðmundur Ö. Gunnarsson, Helena G. Gunnlaugsdóttir, Jóhanna A. Gunnarsdóttir, Vilbergur Kristinsson, Erna H. Gunnarsdóttir, Gunnar M. Guðmundsson og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra, Skafta Friðfinnssonar, Keflavík, síðast Hörgshlíð 4, Reykjavík, sérstakar þakkir færum við starfsfólki Vífilstaða fyrir frábæra umönnun. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Svava Runólfsdóttir. ✝ Innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, systur og ömmu, ÁSTHILDAR BIRNU KÆRNESTED, Háaleitisbraut 105, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við senda starfsfólki 11G á Landspítalanum við Hringbraut og starfsfólki Líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Örn Johnson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Björn Hrannar Johnson, Friðrik Johnson, Alma Rós Ágústsdóttir, Haukur Johnson, Anton Örn Kærnested, Ágústa Bjarnadóttir, Sigrún Gróa Kærnested, Grétar Mar Hjaltested, Sigríður G. Kærnested og barnabörn. ✝ Þökkum af alhug öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR LILJU SIGURÐARDÓTTUR, Faxabraut 13, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hlévangs og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Þórður Kristjánsson, Unnur Þorsteinsdóttir, Sigurður Davíðsson, Gísli Davíðsson, Kristín Ása Davíðsdóttir, Atli Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, ÍSAK JÓN SIGURÐSSON, Hjaltabakka 12, Reykjavík, sem lést þriðjudaginn 22. maí, Benjamín, Helga, Jóna Guðrún, Birna, Guðlaugur, Vera Björk, Tryggvi, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞÓRUNNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Hlíðarhjalla 6, 200 Kópavogi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk 11E Landspítalans og heimahlynning LSH fyrir frábæra ummönnun, Kristján Hilmarsson, Sesselja M. Matthíasdóttir, Guðjón Hilmarsson, Hafdís Svavarsdóttir, Birgir Hilmarsson, Erla Ólafsdóttir, Guðrún Hilmarsdóttir, Hans G. Alfreðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Það er svo skrýtið að þó ég vissi alveg að hverju stefndi hjá þér, elsku frændi minn, var ég ekki tilbúinn að fá hring- inguna frá pabba þegar hann til- kynnti mér brottför þína. Enginn er tilbúinn í svona. Mér finnst gott að hafa getað kvatt þig, Gunni minn, og þann dag rifjuðum við upp þá skemmtilegustu ferð sem ég hef farið um dagana, ferðina í sumarbústaðinn forðum. Þú brostir svo fallega þegar ég var að þylja upp vitleysuna í okkur þegar við fundum ekki bústaðinn í myrkrinu og vorum að máta lyk- ilinn í mörgum húsum. Þú með kveikjarann og ég með lykilinn. Þú brostir svo enn meira þegar ég rifjaði líka upp þegar ég svo henti lambalærinu í ruslið. Þú skammaðir mig ekki svo lítið þá en það hefur verið mikið hlegið að þessu síðan. Svo rifjuðum við upp þegar ég og þú vorum að útbúa her- bergið hans Hlyns. Síðan þá hefur þú kallað mig Dísu litlu og mér hef- ur alltaf þótt vænt um það. Hlynur, sem þá var bara pínulítill pjakkur, rölti á eftir þér, benti á þig og sagði afi Gunni minn, benti svo á mig og Gunnar Þormóðsson ✝ Gunnar Þor-móðsson fæddist í Reykjavík 7. júní 1944. Hann lést á líknardeild LSH 4. júní síðastliðinn og var jarðsunginn frá Digraneskirkju 11. júní. sagði Dísa litla. Alltaf þegar ég var að koma til afa í Hófgerðið komstu niður og spjallaðir við mig og bauðst mér í alvöru kaffi á loftinu hjá þér. Gunni frændi minn. Mér finnst skrýtið að þú skulir ekki lengur vera hér. Mér finnst líka tómlegt í vinnunni. Að rekast ekki lengur á Gunna frænda einhvers stað- ar í húsinu með hon- um Sigga vini þínum. Það er ekki bara ég sem sakna þín í vinnunni, heldur félagarnir líka. Nú er raun- um þínum lokið, Gunni minn. Hinn illi sjúkdómur sigraði að lokum. Ég er sannfærð um að þér líður vel núna og ert kominn til ömmu Finnu og Hrappur þinn hefur líka komið hlaupandi á móti þér. Þakka þér alla þína aðstoð í gegnum árin. Þú varst alltaf tilbúinn til að hjálpa mér, hvenær sem ég þurfti á að halda. Þakka þér allt sem þú gerðir fyrir mig þegar ég stóð í veseninu með íbúðina mína. Það var mér mikils virði. Þakka þér alla kaffi- sopana á loftinu í Hófgerðinu. Elsku Berglind mín, Jonni, Dag- björt, Hlynur og Sólrún, Afi pabbi og Viddi. Hugur minn er hjá ykkur. Elsku Gunni minn. Hafðu þökk fyr- ir allt og allt. Sofðu rótt. Þórdís litla frænka. Oft er það tilviljun hvaða lífsstarf menn velja sér, ekki síst þeir sem læra einhverja iðn og vinna síðan ævilangt við hana. Að Gunnar varð pípulagningamaður helgaðist lík- lega helst af því að við Þormóður faðir hans vorum samherjar og samstarfsmenn á pólitískum vett- vangi, bæði í hinum skammlífa Þjóðvarnarflokki og síðan í bæjar- málum í Kópavogi, auk þess sem Árni bróðir Gunnars var heimilis- vinur. Þannig atvikaðist það að Gunnar varð nemandi minn í pípu- lögnum. Eftir að námi lauk hitti ég Gunnar sjaldan enda ekki hægt um vik. Hann flutti síðar til Svíþjóðar og fór á vegum sinna vinnuveitenda þar vítt um heim, vann meðal ann- ars í Jemen á Arabíuskaga. Heim- kominn hóf hann störf sem pípu- lagningameistari, einyrki eins og svo margir í þessari iðn. Þá hitt- umst við af tilviljun, það varð til þess að við tókum upp samstarf að nýju án þess að stofna saman fyr- irtæki, hann gekk í verk með mér þegar ég þurfti á aðstoð að halda og ég með honum, hagkvæmt fyrir báða. Gunnar var góður fagmaður sem hugsaði oft djúpt um eðli og tilgang þeirra kerfa sem hann var að vinna við. Hann fór ekki hratt yfir í vinnu sinni, en vann af öryggi og lauk oft verkum á ekki skemmri tíma en þeir sem töldu sig vera mikla af- kastamenn. Það sannaðist þar að aðgát og forsjálni í störfum er ekki síðri eiginleiki en að vinna sem hraðast eins og íslenski mátinn á víst að vera. Andlát Gunnars kom mér sem öðrum mjög á óvart, hann var á besta aldri en maðurinn með ljáinn spyr ekki um aldur. Ég sendi öldnum föður hans og öðrum ættingjum samúðarkveðjur. Sigurður Grétar Guðmundsson. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birt- ist valkosturinn Minning- argreinar ásamt frekari upplýs- ingum. Skilafrestur | Ef birta á minn- ingargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveim- ur virkum dögum fyrr (á föstu- degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Þar sem pláss er tak- markað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hvenær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan út- förin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa not- uð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á myndamóttöku: pix@m- bl.is og láta umsjónarmenn minn- ingargreina vita. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.