Morgunblaðið - 17.06.2007, Blaðsíða 68
68 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Miklar bóðs-úthellingar hafa
verið á svæðum
Palestínu-manna og minnst
108 manns hafa beðið bana í
átökunum á einni viku.
Mahmoud Abbas, for-seti
Palestínu-manna, ákvað á
fimmtu-daginn að leysa upp
palestínsku þjóð-stjórnina og
lýsa yfir neyðar-ástandi á
Gaza-svæðinu og
Vestur-bakkanum.
Mikil spenna hefur verið
milli palestínsku fylk-inganna
síðan Hamas sigraði Fatah í
þing-kosningum
Palestínu-manna í janúar
2006. Hamas sakar Fatah
um að þjóna Ísraelum, en
Fatah segir íslömsku
hreyf-inguna starfa fyrir
klerka-stjórnina í Íran.
Á fimmtu-daginn náðu
liðs-menn Hamas mestum
hluta Gaza-svæðisins á sitt
vald og lögðu undir sig
höfuð-vígi öryggis-sveita
Fatah-hreyfingarinnar eftir
harða skot-bardaga.
Abbas ákvað að verða við
áskorun Frelsis-samtaka
Palestínu-manna (PLO) um
að víkja þjóð-stjórninni frá.
Abbas leysir upp þjóð-stjórnina
REUTERS
Við út-för með-lims Hamas-sam-takanna sem drepinn var af Fata-sam-tökunum.
Ógnar-alda ofsa-aksturs
bifhjóla-manna virðist vera
skollin á þetta sumarið og er
ástandið þegar orðið það
alvar-legt að
bifhjóla-samtökin Sniglarnir
hafa sent frá sér yfir-lýsingu
þar sem hrað-akstur er
harmaður og slys af völdum
hans.
Um seinstu helgi
háls-brotnaði bifhjóla-maður
eftir ofsa-akstur og árekstur
á Suðurlands-vegi og félagi
hans féll af sínu hjóli.
Sýslu-maðurinn á Selfossi
ætlar að gera allt til þess að
mótor-hjól mannanna verði
tekin af þeim fyrir fullt og allt.
Ógnar-alda
ofsa-hraða
bif-hjóla
Af-hending Grímunnar,
Ís-lensku
leiklistar-verðlaunanna, fór
fram í Ís-lensku óperunni á
föstu-daginn og var líka í
beinni út-sendingu í
Sjón-varpinu.
Sýning ársins var Dagur
vonar eftir Birgi Sigurðs-son í
sviðs-setningu Leik-félags
Reykja-víkur og leikstjórn
Hilmis Snæs Guðna-sonar.
Óhætt er að segja að
Benedikt Erlings-son hafi
komið, séð og sigrað á
verð-launa-af-hendingunni,
því hann var valinn
leik-skáld ársins fyrir
ein-leikin Mr.
Skalla-gríms-son í
sviðs-setningu
Sögu-leik-húss
Land-náms-seturs. Benedikt
var einnig valinn leik-stjóri
ársins fyrir leik-stjórn í
leik-sýningunni Ófögru veröld
í sviðs-setningu Leik-félags
Reykja-víkur. Auk þess var
Benedikt valinn leikari ársins
í aðal-hlutverki
fyrir hlut-verk sitt í
leik-sýningunni Mr.
Skalla-gríms-son.
Leik-kona ársins í
aðal-hlutverki var valin Sigrún
Edda Björns-dóttir fyrir
hlut-verk sitt í leik-sýningunni
Dagur Vonar í sviðs-setningu
Leik-félags Reykja-víkur.
Gríman
af-hent
Á mánu-daginn var birt
skýrsla um kín-verskar
verk-smiðjur sem fram-leiða
minja-gripi um
Ólympíu-leikana sem verða
haldnir í Kína á næsta ári.
Þar kom fram að börn, allt
niður í 12 ára gömul, ynnu í
verk-smiðjunum við
hræði-legar að-stæður.
Vara-forseti
skipulags-nefndarinnar segir
að öll fyrir-tækin sem voru
fengin til að fram-leiða
minja-gripana hafi verið
rann-sökuð vand-lega.
Í skýrslunni var krafist
þess alþjóða-ólympíu-nefndin
beitti sér gegn svona
mis-notkun. Hún væri í
algjörri and-stöðu við
ólympíu-hugsjónina.
Ólympíu-
þrælar? Þorsteinn Ingi Sigfússon, prófessor við
Há-skóla Íslands, tók fyrir viku við
Alheims-orku-verð-laununum í Péturs-borg
í Rúss-landi. Verð-launin hlaut Þorsteinn
fyrir rann-sóknir sínar í orku-málum. Þau
eru ein mesta viður-kenning rúss-neska
lýð-veldisins fyrir vísinda-rannsóknir og
eiga að styðja alþjóð-lega sam-vinnu við
lausn á stærstu orku-vanda-málum
sam-tímans.
Verð-launin hafa verið nefnd rúss-nesku
Nóbels-verðlaunin í orku-verkfræði.
Þorsteinn var valinn úr 146 manna hópi,
en bara Nóbels-verðlauna-hafar og
með-limir í rúss-nesku
vísinda-akademíunni mega til-nefna menn
til verð-launanna. 30 manna alþjóð-leg
dóm-nefnd sá svo um valið. Þorsteinn
hlaut verð-launin í ár á móti Breta og
Rússa sem rann-saka varma-skipta-fræði.
„Þetta er geysi-mikill heiður og
hvatning, ekki síst fyrir þá sem stunda
orku-rannsóknir á Íslandi,“ segir
Þorsteinn.
Fékk Alheims-orku-verðlaunin
Pútín af-hendir Þorsteini verð-launin.
Marta Guðmundsdóttir náði
um seinustu helgi tak-marki
sínu um að ganga á skíðum
þvert yfir Grænlands-jökul til
styrktar
krabbameins-rannsóknum.
Marta greindist sjálf með
brjósta-krabba-mein fyrir 2
árum og lauk með-ferðinni
fyrir ári síðan. Á meðan á
henni stóð, setti Marta sér
ýmis mark-mið til að styrkja
sig í bar-áttunni við
sjúk-dóminn og eitt þeirra var
að ganga yfir
Grænlands-jökul.
Leið-angurinn hófst 20.
maí og var leiðin 600 km.
Með leið-angrinum vildi
Marta líka sýna fram á að
ýmis-legt er hægt að gera
þrátt fyrir að greinast með
krabba-mein.
Gekk yfir
Grænlands-jökul
Marta Guðmundsdóttir
Eiður Smári Guðjohnsen,
landsliðs-fyrirliði í
knatt-spyrnu, meiddist í
vikunni á hné á æfingu hjá
liði sínu á Spáni, Barcelona.
Hann getur því ekki verið með
liðinu í loka-umferð 1. deildar
á í dag. Sam-kvæmt föður
hans og umboðs-manni,
Arnóri Guðjohnsen, eru
meiðslin líklega ekki mikil.
Miklar vanga-veltur eru yfir
fram-tíð Eiðs Smára.
Spænskt blað sagði 1 af 8
leik-mönnum Barcelona sem
yrðu seldir í sumar.
Net-miðlar segja að
Barcelona og Manchester
United séu að ræða um að
skipta á honum og Gerard
Piqué hjá United.
„Ég veit í sjálfu sér ekkert
um fram-haldið. Það eru
enda-lausar sögur í gangi,“
segir Eiður Smári.
Eiður Smári
meiddur
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eiður Smári
Netfang: auefni@mbl.is