Morgunblaðið - 17.06.2007, Side 80
80 SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
CODE NAME: THE CLEANER kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára
OCEAN'S 13 kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 7:20 - 10:30 B.i. 10 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
OCEAN'S 13 kl. 3:50 - 5:30 - 6:30 - 8 - 9 - 10:40 B.i.7.ára
OCEAN'S 13 VIP kl. 5:30 - 8 - 10:40
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára
ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára
BLADES OF GLORY kl. 3:50 B.i.12.ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
eeeee
V.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
H.J. MBL.
eeee
F.G.G. FBL.
WWW.SAMBIO.IS
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
ÞÓ ÞÚ SÉRT BARA EINN VERÐUR HEFNDIN FRÁ ÞEIM ÖLLUM
ERTU KLÁR FYRIR EINA SKEMMTILEGUSTU
MYND SUMARSINS?
eeee
KVIKMYNDIR.IS
eee
H.J. - MBL
eee
L.I.B. - TOPP5.IS
Nafnið á sveitinni, [box], erþversögn því hug-myndafræðilegurgrunnur verkefnisins
passar eiginlega ekki í neitt box,
það er ekki auðhlaupið að því að
skorða hana niður á blað, hvað þá
koma henni í kassa. Í grófum drátt-
um er þetta þó svo: Óskalisti var
settur saman með nöfnum fram-
sækinna tónlistarmanna og haft í
huga að ekki væri bara að þeir yrðu
að vera í fremstu röð, heldur líka að
þeir þekktust ekki. Mælst var til
þess að þeir myndu ekki ræða tón-
listina sín á milli fyrr en þeir hittust
í fyrsta sinn og reyndar að þeir
ræði ekki um það sem þeir eru að
gera nema á sviðinu eða í hljóðveri
þótt það sé ekki bannað, það er
nefnilega bannað að banna. Fleira
kemur og við sögu, meðal annars
það að í raun er hljómsveitin ekki til
og hluti af verkefninu að halda tón-
leika með þannig hljómsveit og eins
að fylgjast með áheyrendum, upp-
lifa upplifun þeirra, eins og það var
orðað.
Fræknir fjórmenningar
Þegar haft var samband við þá
sem voru á listanum svöruðu fjórir
þeir fyrstu játandi og því þurfti
ekki að hafa samband við fleiri.
Þessir fjórir eru bassaleikarinn
Trevor Dunn, sem var einn af stofn-
endum Mr. Bungle með Mike Pat-
ton á sínum tíma og hefur spilað
með Fantomas, Secret Chiefs 3,
Trio Convulsant, Marc Ribot og
John Zorn í Moonchild og Electric
Masada. Á trommur er Svíinn
Morgan Ågren sem hefur meðal
annars spilað með Mats/Morgan
band, Frank Zappa, Steve Vai,
Flesh Quartet, Christian Vander,
Kaipa og Frederik Thordendal’s
Special Defects. Gítarleikarinn er
svo finnskur, Raoul Björkenheim,
og spilar reyndar líka á viola da
gamba. Hann hefur leikið með
Scorch Trio, Krakatau, Edward Ve-
sala, Paul Schütze, Bill Laswell,
Gady Gerbracht, William Parker/
Hamid Drake og fleirum. Síðastan
er svo frægan að telja norska
hljómborðsleikarann Ståle Storløk-
ken sem er þekktur fyrir spila-
mennsku með sveitinni mögnuðu
Supersilent, en hefur líka spilað
með Humcrush, Bol, Terje Rypdal,
Generator X, Terje Isungset og
Christian Wallumrød svo dæmi séu
tekin.
Beint á band
Liðsmenn hittust svo í fyrsta sinn
síðastliðinn þriðjudag þegar þeir
mættu í upptökur á breiðskífu sem
Rune Grammophone hyggst gefa
út. Að sögn manns sem var á staðn-
um fór vel á með listamönnunum og
sá sagði líka að þeir hefðu verið
einkar einbeittir og ákveðnir þegar
þeir byrjuðu að taka upp og víða
hefði verið komið við í spunanum,
allt frá grófri rífandi framúrstefnu í
hálfgert innansveim – það var
spenna í samspilinu sem skilaði
spennandi tónlist, flókinni vegna
þess að þetta eru tónlistarmenn
sem hafa gríðarlegt vald á hljóð-
færum sínum, en ekki vegna þess
að menn hafi einsett sér að gera
eitthvað flókið eða framúrstefnu-
legt. Upptökurnar gengu bráðvel að
sögn, og því líkast sem margar
hljómsveitir væru að spila, svo víða
var komið við í stílum og stefnum.
Ekki var tilraunamennskunni lok-
ið þegar haldið var í tónleikaferð,
sem er hluti af verkefninu. Fyrstu
tónleikarnir voru í Amsterdam og
þar mátti þekkja sitthvað sem sveit-
in hafði unnið í hljóðverinu, en á
næstu tónleikum eftir það, sem
einnig voru í Amsterdam síðar
sama dag, var allt annað upp á ten-
ingnum; eintómur frjáls spuni. Enn
var breytt út af í Stokkhólmi á
fimmtudagskvöld, allt nýtt, og
heimildarmaður minn sagði að hann
byggist við því að fá enn nýja tón-
list á tónleikum sveitarinnar í Genf
á föstudagskvöld. Í kvöld er sveitin
svo í Ósló og annað kvöld á Íslandi,
leikur á Gauknum eins og getið er.
Vildu Hilmar
Af tónleikunum fimm eru þrennir
teknir upp og verða hugsanlega
gefnir út síðar eða notaðir sem hrá-
efni í plötuna eða ekki, það veit í
raun enginn hvert stefnir enda regl-
an sú að stefna ekki neitt, en kom-
ast samt á leiðarenda.
Samkvæmt mínum heimildum
óskuðu hugmyndasmiðir verkefn-
isins eftir því að Hilmar Jensson
spilaði með þeim á Íslandi og ætl-
uðu að líta framhjá því að hann
þekkir mætavel þrjá tónlistarmann-
anna og hefur spilað með þeim. Af
því gat þó ekki orðið vegna anna
Hilmars.
Út úr boxinu
Vísast þekkja flestir tónlistaráhugamenn það að
hafa velt fyrir sér draumahljómsveitinni, hvernig
bassaleikari úr einni hljómsveit myndi hljóma
með annarri sveit og síðan ef gítarleikaranum
væri líka skipt út, þá trommaranum og svo má
telja. Sú hugmynd liggur að baki hljómsveitinni
[box] sem leikur á Gauknum annað kvöld, því hún
var sett saman eftir óskalista yfir framsækna tón-
listarmenn.
Box Sveitin samanstendur af tónlistarmönnum í fremstu röð sem þekktust ekki fyrr en bandið var sett saman.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is