Morgunblaðið - 24.06.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 170. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
SJÁ MEIRA
HÆGAR
OF MIKILL
GARPSSKAPUR
FERÐAMENNSKA >> 30
ÍSLENSKT
Í ÖNDVEGI
HRÓÐUR STEINUNNAR
SIGURÐARDÓTTUR
FATAHÖNNUN >> 28
SUMAR-
GLEÐIN
HVALRAUÐUR Í
PALM SPRINGS
STEINUNN ÓLÍNA >> 27
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
NIÐURSTÖÐUR jarðeðlisfræðilegra rannsókna
á vegum íslenskra og norskra stjórnvalda, sem
og fyrirtækja í einkaeigu, benda til þess að hugs-
anlegt sé að Íslendingar muni á næstu árum geta
tekið þátt í olíuvinnslu innan eigin efnahags-
lögsögu, að sögn Össurar Skarphéðinssonar iðn-
aðarráðherra. Bæði jarðmyndanir, lega jarðlaga
og lífrænar leifar gefa góðar vonir að sögn Öss-
urar.
„Niðurstöður úr rannsóknum sem unnar hafa
verið á svokölluðu Drekasvæði, sem liggur norð-
austan í efnahagslögsögu Íslands, að Jan Mayen-
svæðinu, benda til þess að meira en ágætar líkur
séu á að þar séu vinnanlegar jarðefnalindir undir
hafsbotni,“ segir hann.
„Ég tel að málið sé komið á það stig að kanna
þurfi hvort alþjóðlegur áhugi sé á því hjá olíu-
fyrirtækjum að fjárfesta í virkri leit með rann-
sóknarborunum og vonandi vinnslu í framhald-
inu. Ég stefni þess vegna að því að fyrir lok
næsta sumars verði hægt að bjóða út sérleyfi til
olíuleitar á þessu svæði.“
Stjórnvöld þurfi nú að meta þörfina á frekari
rannsóknum á náttúrufari og ákveða hvort þær
verða í höndum sérleyfishafa eða hins opinbera.
Líkur á olíu í íslenskri lögsögu
Stefnt er að því að fá olíufyrirtæki til að fjárfesta í virkri leit með borunum og vonandi vinnslu í
framhaldinu Endurskoða þarf íslenskt lagaumhverfi og meta þörf á rannsóknum á náttúrufari
Á blogginu geturðu ekki dulist | 22
SÍÐAN breska krúnan aðlaði rit-
höfundinn Salman Rushdie hafa
vaknað háværar mótmælaraddir
múslíma vegna hinnar umdeildu
bókar hans, Söngva Satans.
Afturganga
Söngva Satans
LEIÐTOGAR Evrópusambandsins
komust í gærmorgun að sam-
komulagi um nýjan stjórnarsátt-
mála eftir erfiðar viðræður, deilur
og málamiðlanir.
Samkomulag
í Brussel
BANDARÍSKI auðjöfurinn Stan
Kroenke reynir að ná undirtökum í
Arsenal. Aðdáendurnir eru ugg-
andi og hjálpar ekki að Thierry
Henry er á leið til Barcelona.
Auðkýfingur
ásælist Arsenal
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
„ÉG HEF verið að velta fyrir mér
óperuforminu og ekki í fyrsta
skipti,“ segir Ásgerður Júníusdóttir
söngkona. „Þetta er ótrúlega spenn-
andi listform sem er þó staðnað að
svo mörgu leyti og bíður eftir end-
urnýjun og öðruvísi hugsun. Auðvit-
að er sjálfsagt að varðveita arfinn
og setja upp klassískar óperur með
glæsibrag, það er alger óþarfi að
gera lítið úr þessum oft yndislegu
og stórbrotnu verkum, en ég hef í
mörg ár látið mig dreyma um ís-
lenzkar óperur, framsæknar og
spennandi.
Í sumar ætla ég til Manchester til
þess að vera viðstödd flutning á
heilmörgum 15 mínútna óperum,
þarna vinna saman margir spenn-
andi listamenn; myndlistarmenn,
tónskáld og aðrir. Ég held að mynd-
listin sé ákveðið svar, þegar kemur
að uppbroti óperunnar, held að auk-
ið samstarf afburða myndlist-
armanna, tónskálda og rithöfunda
auk annarra listamanna gefi fyr-
irheit um spennandi tíma fyrir
óperuunnendur.“
Myndlistarsöngverk
Ásgerður er með ýmis járn í eld-
inum. Eitt þeirra er eins konar
ópera eða „myndlistarsöngverk“
sem hún er að vinna með þeim Ólöfu
Nordal myndlistarkonu, Þuríði
Jónsdóttur tónskáldi og Guðrúnu
Evu Mínervudóttur rithöfundi.
„Við vitum eiginlega ekki hver
útkoman verður,“ segir hún hrein-
skilnislega. „En ég hef mjög mikla
trú á þessu og þetta er mjög spenn-
andi verkefni. Við fengum styrk úr
tónskáldasjóði svo nú er þetta farið
af stað fyrir alvöru. Þessa dagana
erum við að vinna að fjármögnun
verksins og ef allt gengur að óskum
þá verður frumsýnt vorið 2008.“
Ásgerður Júníusdóttir söngkona er með ýmis járn í eldinum
Morgunblaðið/Kristinn
Frumleg Ásgerður Júníusdóttir hefur meira gaman af að fara nýjar leiðir
en feta troðnar slóðir. Hana dreymir um framsæknar íslenzkar óperur.
Óperuformið bíður
eftir endurnýjun
og öðruvísi hugsun
Mér fellur vel … | 10
VIKUSPEGILL