Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í HNOTSKURN »Þó að skráning á fasta-númer hafi farið af stað árið 1970 var það ekki fyrr en með lagabreytingu árið 1988 að ökutæki voru merkt þeim. Margir söknuðu þess þá að geta ekki lengur séð af núm- erum hvaðan ökutæki voru af landinu. Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is UM MIÐJA þessa viku koma breyt- ingar á bílnúmerakerfinu til fram- kvæmda. Í núverandi kerfi er hægt að búa til um 575 þúsund númer sem eru nú að klárast enda er þrjátíu þúsund bílnúmerum út- hlutað á ári hverju. Breytingin á kerfinu felst í því að nú verða sum númer með bók- stöfum í þriðja dálk númersins. Þannig geta þau sem eignast nýja bíla í næstu viku fengið númer á borð við AB C12, en hingað til hafa númerin verið samsett af tveimur bókstöfum og þremur tölustöfum. Með þessu móti má búa til alls rúmlega tvær milljónir númera og er vonast til þess að það dugi Ís- lendingum næstu fimmtíu árin. Eigendur bifreiða ættu ekki að verða fyrir neinum óþægindum vegna þessarar breytingar, en fyr- irtæki og stofnanir sem vinna með skráningu bílnúmera gætu þurft að laga tölvukerfi sín að nýrri teg- und númera. Einar Magnús Magnússon, upp- lýsingafulltrúi Umferðastofu, segir að númerapotturinn hafi tæmst fyrr en búist var við. „Ég held að bjartsýnustu menn hafi nú ekki gert ráð fyrir því að slíkur fjöldi bíla yrði fluttur inn, eins og hefur verið gert síðustu ár.“ Skráning á fastanúmer hefur staðið yfir frá því 1970 án þess að númerin hafi verið endurnýtt. Það hefur því yfir hálf milljón öku- tækja farið í gegnum þetta kerfi frá upphafi. Í lok síðasta árs voru 227.320 ökutæki í notkun á land- inu. Tvær milljónir númera í pott- inum í nýju bílnúmerakerfi Breyting Gömlu númerin eru að klárast og eiga ný að duga í 50 ár. Möguleg númer að verða fullnýtt  Þriðji bókstafurinn bætist við ÞRJÁTÍU og níu börn og unglingar sýna dýrin sín á hundasýningu um helgina og eru yngstu þátttakendurnir tíu ára gamlir. Hundaræktarfélag Íslands stendur fyrir sýn- ingunni sem fer fram í Reiðhöllinni í Víðidal. Þar eru yfir sex hundruð hundar af sjötíu og fimm ólíkum tegundum saman komnir til að keppa sín á milli og verða úrslit gerð kunn þegar sýning- unni lýkur, um klukkan hálfþrjú. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hundar keppa í Reiðhöllinni Yfir sex hundruð hundar af sjötíu og fimm tegundum til sýnis Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is TIL stendur að færa til Álftanesveg í tengslum við nýja íbúðabyggð í Garðahrauni, að sögn Stefáns Kon- ráðssonar, formanns skipulags- nefndar Garðabæjar. Bæjaryfirvöld eru um þessar mundir í viðræðum við Vegagerðina vegna málsins, en færa á veginn norður fyrir hið nýja hverfi. Þar hef- ur verið úthlutað tæplega fimmtíu lóðum og hófust framkvæmdir við þær fyrir nokkrum mánuðum. Álftanesvegur liggur nú í gegnum hið fyrirhugaða Garðahraunshverfi og því þarf að flytja hann til. Breyta þarf aðalskipulagi bæjarins vegna tilfærslu vegarins og segir Ar- inbjörn Vilhjálmsson, skipulags- stjóri Garðabæjar, að breytinga- tillagan verði líklega auglýst í sumar eða haust þegar bæjarstjórn hefur fjallað um málið. Í næsta nágrenni hins nýja vegar er Gálgahraun, sem er á nátt- úruminjaskrá, en hraunið er á bilinu 7.000-8.000 ára gamalt. Álftanesveg- urinn mun fara í gegnum hraunið á kafla, en Arinbjörn segir að ekki verði hjá því komist. Aukin meðvitund um náttúruvernd Bæjarstjórn Garðabæjar fór fram á það í fyrra að svæðið yrði friðlýst og er málið til meðferðar hjá Um- hverfisstofnun. Um er að ræða Gálgahraunið og allt Búrfells- hraunið, sem liggur í gegnum miðjan Garðabæ og upp í Búrfellsgjá. „Þetta verður langstærsta friðlýsta svæðið á höfuðborgarsvæðinu,“ seg- ir Arinbjörn. Stefán Konráðsson segir að mikl- ar breytingar hafi orðið í samfélag- inu hvað varðar verndun umhverf- isins. „Fólk er orðið mjög meðvitað um umhverfis- og skipulagsmál og pólitíkusar líka,“ segir Stefán. Fólk geri þær kröfur að það sé farið var- lega í allar breytingar og á það hafi verið lögð mikil áhersla í skipulags- nefnd Garðabæjar. Unnið með Vegagerð að skipulagningu nýs vegar Álftanesvegur verður færður til                                      EYJAN, nýr sjálf- stæður fjölmiðill á Netinu, tók til starfa í gærmorg- un. Auk frétta sem unnar verða af tveggja manna rit- stjórn býðst lesend- um Eyjunnar að fylgjast með völd- um bloggsíðum þar sem fjallað er um pólitík og önnur mál sem brenna á þekktum bloggurum. Öflug fréttaveita er á síðunni þar sem lesendur geta á einum stað litið yfir allar nýjustu fréttir íslenskra fjöl- miðla, stórra sem smárra. Eyjan er hugarfóstur tveggja vin- sælla bloggara, þeirra Péturs Gunn- arssonar og Andrésar Jónssonar, sem jafnframt ritstýra síðunni. Auk Pét- urs og Andrésar eru Birgir Erlends- son og Jón Garðar Hreiðarsson eig- endur miðilsins. Meðal þeirra sem leggja til efni á síðuna með bloggfærslum sínum eru Egill Helgason dagskrárgerðarmað- ur, Björn Ingi Hrafnsson borgar- fulltrúi, Össur Skarphéðinsson iðnað- arráðherra og Arna Schram, for- maður Blaðamannafélagsins. Pétur Gunnarsson segir Eyjuna fyrsta vefmiðilinn sem ekki sé tengd- ur blaðarekstri eða ljósvakamiðlum. „Við teljum þetta athyglisverða við- bót við flóruna á Netinu og finnum fyrir afskaplega jákvæðum og góðum viðbrögðum á fyrstu metrunum,“ seg- ir Pétur. Hann kveður Eyjuna ekki beint í samkeppni við þá miðla sem fyrir eru á Netinu, enda sé við ramm- an reip að draga ætli menn að titla sig keppinauta fjölmiðlavelda sem hafi verið starfandi áratugum saman. Nýjum vefmiðli ýtt úr vör Pétur Gunnarsson TENGLAR .............................................. eyjan.is ♦♦♦ RÓLEGT var hjá lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu aðfaranótt laugar- dags. Sjö voru handteknir grunaðir um ölvun við akstur og fjórir gistu fangageymslur vegna ölvunar og óspekta. „Það var óvenjulítið að gera í nótt þrátt fyrir rjómablíðuna,“ seg- ir varðstjóri í Reykjavík. Á Akranesi fer fram Skagamót Coke í knatt- spyrnu og öll tjaldsvæði yfirfull. Allt fór vel fram að því undanskildu að góðkunningi lögreglunnar réðst á dyraverði og lögreglumenn í fyrri- nótt og mátti hann dúsa í fanga- geymslu yfir nóttina fyrir vikið. „Óvenjulítið að gera“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.