Morgunblaðið - 24.06.2007, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
„Ég sniðgeng þær nú ekki alveg.
Árshátíðir eru ágætar og ég syng
einstaka sinnum við slík tækifæri, í
fyrra söng ég til að mynda á
árshátíð Alþingis. Um jarðarfarir
gildir öðru máli. Kannski tengist
það fráfalli föður míns. Ég á svolít-
ið erfitt með að líta á þetta sem
hverja aðra vinnu, eins og sumir
söngvarar gera. Ég tek sorgina of
mikið inn á mig og því getur þetta
tekið á. Eigi að síður syng ég
stundum við jarðarfarir, nú síðast
við jarðarför Elíasar Marar.“
Ásgerður hefur verið iðin við
kolann að frumflytja ný söngverk.
Hún hefur meðal annars frumflutt
verk eftir Jórunni Viðar, Karólínu
Eiríksdóttur, Áskel Másson og
Þuríði Jónsdóttur. Og nú er fram-
undan frumflutningur á lagaflokki
eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð
eftir Lindu Vilhjálmsdóttur. Sá at-
burður verður ekki hér heima,
heldur erlendis, því í haust flyzt
fjölskyldan til Berlínar. Þar býðst
eiginmanninum, Sjón, staða ges-
taprófessors við Das Freie Uni-
versität og Ásgerður og börnin
tvö, Júnía og Flóki, fylgja honum.
Þar ætlar Ásgerður að nota tæki-
færið til að kynna íslenzka tónlist,
frumflytja lög Atla Heimis við ljóð
Lindu en einnig verða verk eftir
Jón Leifs, Jórunni Viðar, Magnús
Blöndal Jóhannsson og yngri tón-
skáld á efnisskránni. Hún segist í
fyrsta skipti vera að bræða með
sér að þreifa fyrir sér ytra, syngja
kannski eitthvað fyrir, ef þannig
liggur á henni. Hún hafi líka heyrt
að mikið sé að gerast í tónlistarlíf-
inu í Berlín, mikil gróska og mörg
spennandi tónskáld starfandi þar.
Nú eru börnin orðin stærri og því
auðveldara að kanna nýjar slóðir.
„Það verður engin hökufeitur á því
að syngja nær eingöngu íslenzka
tónlist í útlöndum.“
Flóaskáldin á plötu
En þótt hún skreppi burt af
Fróni heldur hún járnum sínum
við í eldinum heima. Hún er að
undirbúa nýja plötu, Flóaskáldin
skal hún heita, en í þeim hópi eru
m.a. Páll Ísólfsson, Ísólfur Páls-
son, Sigfús Einarsson og Hall-
grímur Helgason. Og trú sinni nýj-
ungagirni hefur Ásgerður dregið
fram verk Guðmundu Nielsen, sem
ólst upp í Húsinu á Eyrarbakka og
var kunn athafnakona þar.
„Ég tileinka þessa plötu honum
pabba, sem ólst upp í Flóanum, og
afa, sem þar var bóndi og hljóm-
sveitargæi síns tíma, hann og Sig-
urjón bróðir hans voru miklir
harmonikkuleikarar, löbbuðu um
Flóann með nikkuna á bakinu og
spiluðu á böllum. Ég get ekki ann-
að en hugsað til bræðra minna
Gulla og Kidda sem nú eru mikið
að spila í hljómsveitum, sagan end-
urtekur sig.
Þessi plata verður einnig óður til
harmonikkunnar, ég ætla að vinna
hana að nokkru leyti með Tatu
Kantomaa sem ég hef mikið álit á
og á henni verða þrír og jafnvel
fleiri harmonikkuleikarar, ég vil
gjarnan nota hljóðfærið á sem fjöl-
breyttastan hátt. Ég ætla kannski
að hafa karlakvartett í sumum lag-
anna og jafnvel einhver fleiri
hljóðfæri, en það kemur allt saman
í ljós, þegar ég er komin betur á
veg með þetta.“
Kvennaríki og lög Magnús-
ar Blöndal Jóhannssonar
Það blæs byrlega fyrir Flóaa-
skáldunum, ef marka má viðtökur
tveggja geisladiska, sem Ásgerður
Júníusdóttir á að baki í samstarfi
við Smekkleysu, en báðir voru til-
nefndir til íslenzku tónlistarverð-
launanna og fengu góða dóma.
Fyrri platan var Minn Heimur
og Þinn – tónlist íslenskra kvenna,
sem kom út 2001og býður upp á
„allt frá rótgróinni sönglagahefð í
lagi Selmu Kaldalóns til módern-
isma Karólínu Eiríksdóttur og allt
þar á milli,“ eins og Valdemar
Pálsson orðar það í umsögn sinni í
Morgunblaðinu. Hún segist hafa
fengið hugmyndina að plötunni,
þegar hún söng við opnun Kvenna-
sögusafns Íslands.
„Ég söng þar þrjú lög við ljóð
eftir íslenzkar konur og í spjalli
við Helgu Kress á eftir kom til tals
sú nauðsyn að gera eitthvað til
þess að koma tónlist íslenzkra
kvenna á framfæri. Fyrst ætlaði
ég að gera disk með lögum við ljóð
kvenna, en svo ákvað ég að sleppa
körlunum alveg og hafa bæði lög
og ljóð eftir konur. Það kom svo í
ljós að ekki var um auðugan garð
að gresja og því var um helmingur
laganna saminn sérstaklega fyrir
mig og þennan disk. Þetta kvenna-
ríki var mjög skemmtileg reynsla
og langvinn, því það tók mig fjög-
ur ár að vinna plötuna. Ég er bara
þeirrar gerðar að vilja ekki kasta
höndum til hlutanna, heldur gefa
mér góðan tíma.“
Í haust kom svo Í rökkri – söng-
lög Magnúsar Blöndal Jóhanns-
sonar og eftir viðtökunum að
dæma hefur hún ekki kastað hönd-
unum til þeirrar plötu frekar en
hinnar. „Hugmyndin kviknaði á
nokkurs konar tónlistarkvöldi, sem
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Carmen Ásgerður í suðrænni sveiflu hlutverki Carmen í uppfærslu Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska dansflokksins; sterk, hættuleg, dimm og sjálfstæð, sem Ásgerður hefur mætur á.
Morgunblaðið/Kristinn
Kvennaríki Skemmtikvöld var í Salnum í tilefni hljómdisksins Minn heimur og þinn - tónlist íslenskra kvenna, sem
kom út 2001. Með Ásgerði á myndinni eru nokkrar kvennanna, sem fram komu á skemmtikvöldinu.
ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR
»Það skiptir mig máli að vera
sjálfbjarga - vinna hlutina sjálf