Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 15
haldið var í Nýlistasafninu til heið- urs Magnúsi. Ég þekkti auðvitað Sveitina milli sanda í túlkun Ellýj- ar Vilhjálms, en þarna voru flutt elektrónísk verk hans, meðal ann- ars Samstirni, þar sem Magnús notar rödd Þuríðar Pálsdóttur og elektróníkina saman. Þetta var fyrir nokkrum árum og þá hafði ég sungið nokkuð með elektrónik, meðal annars unnið með Hilmari Erni Hilmarssyni, Jó- hanni Jóhannssyni og Sigtryggi Baldurssyni, sungið inn fyrir þá ýmislegt í stúdíói, fyrir kvikmynd- ir, leikhústónlist og inn á hljóm- plötur. En þetta kvöld í Ný- listasafninu vakti svo sannarlega áhuga minn á þessum frumkvöðli okkar á sviði raftónlistar, Magnúsi Blöndal Jóhannssyni. Ég fór að velta því fyrir mér hvort Magnús hefði ekki samið fleiri sönglög en Sveitina. Þegar ég hófst handa var hann því miður orðinn svo veikur, að ég gat lítið leitað í smiðju hans, en talaði við marga sem ég vissi að höfðu þekkt hann. Þuríður Páls- dóttir söngkona var söngkennarinn minn um tíma og hún er líka tengdamóðir mömmu minnar og því átti ég auðvelt með að leita til hennar. Hún sagði mér ýmislegt um Magnús og hvernig var að vinna með honum. Ég leitaði líka til Mummu, Guðmundu Elíasdótt- ur. Hún átti nótur af mörgum lög- um Magnúsar, handskrifaðar af honum sjálfum, auk þess sagði hún mér margt um hann, enda góð vin- kona hans frá gamalli tíð. Ég tengi mjög sterkt við viðfangsefni mín og í gegnum þetta grúsk mitt allt saman fór mér að þykja mjög vænt um Magnús. Það var ánægjulegt að vinna að þessari plötu og margt gott fólk lagði mér lið. Mér fannst sér- staklega gott að vinna með Árna Heimi Ingólfssyni, hann er næmur meðleikari og gaf mér mikið. Ég vona að sem flestir söngvarar eigi eftir að syngja lögin hans Magn- úsar, hann er mjög sjarmerandi tónskáld.“ Það leggst þögn yfir eldhúsið, en þegar Magnús er farinn hjá, tekur Ásgerður aftur upp þráðinn. Allir ættu að múra eins og einn vegg Geisladiskur með íslenzkum ljóðaflokkum er önnur hugmynd, sem er að brjótast um í henni. Ljóðaflokkur Atla Heimis er kveikjan og hana langar að safna ljóðaflokkum á plötu. „Ég ætla að skoða þá ljóðaflokka sem ég finn hjá Tónverkamiðstöðinni, svo ætla ég að leggjast í ljóðalestur á næst- unni og ef ég finn eitthvað sem mig langar til þess að syngja þarf ég að fá tónskáld til liðs við mig. Ég hef líka hugsað mér að nota tímann í Berlín til þess að syngja Schubert með einhverjum góðum þýzkum píanóleikara, mér finnst mjög gaman að syngja Schubert og það er einstaklega gott fyrir röddina, eins og hunang.“ – Þú þjáist ekki af hugmynda- skorti. „Nei, En hugmyndirnar líða stundum fyrir peningaskort,“ segir hún og hlær. – Kannt þú ekki að slaka á? „Ég get alveg slakað á ef ég vil. Mér finnst einstaklega gaman að lesa, fara í langar gönguferðir og mála. Ég ætlaði eitt augnablik að verða myndlistarkona, það var þegar ég var 17-18 ára. Ég fór á myndlistarbraut í FB um tíma og sótti ýmis myndlistarnámskeið til undirbúnings. Ég hef líka sótt nokkur námskeið hjá Myndlist- arskóla Reykjavíkur síðari ár. Ég ákvað að taka mér frí frá því að koma fram opinberlega og syngja í sumar, ég ætla meðal annars að nota tímann til þess að mála mér til skemmtunar. Annars er svo margt sem mér finnst kalla á mig.“ – Í tónlistinni? „Ekki bara í tónlistinni, þó ég geti endalaust fundið skemmtileg verkefni þar. Ég er mikið í að taka til hendinni hérna heima. Við Sig- urjón keyptum hús sem þurfti anzi mikið að gera við, mitt annað starf síðustu ár hefur verið að gera hús- ið upp. Ég flísalegg, mála, flota gólf og annað og Sigurjón smíðar, hann er mjög laginn við það. Nú erum við að mestu búin hér innanhúss og þessa dagana er ég að múra bílskúrinn upp. Það er furðu gaman. Það ætti hver mað- ur að múra eins og einn vegg um ævina.“ – Þú getur ekki séð neitt í friði. Hún lítur hissa á mig. „Nei ætli það. Ég á bágt með að sitja verklaus. Ég vil sjá hlut- ina gerast, ég hef alltaf haft mik- inn áhuga á umhverfi mínu og staðið í alls kyns endurbótum, hef líka saumað mikið og prjónað. Ég hefði allt eins getað orðið hönn- uður.“ Svo fellir hún brosið og horfir alvarleg til mín. „Það skiptir mig miklu máli að vera sjálfbjarga, geta unnið þessa hluti sjálf, en þurfa ekki að leita með þá til annarra. Sennilega einhver furðuleg og ofvaxin sjálfstæð- isþörf. Svo finnst mér gott að hugsa, þegar ég hef eitthvað fyrir stafni. Húsinu okkar fylgir stór garður, eftir að ég fór að sinna honum hef ég komist að því að ég hef gaman af garðyrkju. Ég er langt komin með að fylla garðinn af ávaxtatrjám og rósum. Næsta verkefni er að útbúa góðan mat- jurtagarð. Það er gott að láta hug- ann reika hvort sem það er við garðyrkjustörfin eða í múrvinn- unni við bílskúrsvegginn.“ Ég er ekki kominn niður hálfan stigann, þegar hún er byrjuð að blístra. Og farin að taka til hend- inni.  Morgunblaðið/ RAX Myndlistarsöngverk Þuríður Jónsdóttir samdi tónverk fyrir rafhljóð og mezzósópran sérstaklega fyrir Ásgerði inn í myndverk Ólafar Nordal. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 15 Síðumúli 8 – Sími 568 8410Hafnarstræti 5 - Sími 551 6760 Krókháls 5 – Sími 517 8050 Veidimadurinn.is - Sportbudin.is - Veidihornid.is Þrjár sérverslanir - ein netverslun Alltaf meira úrval - Alltaf betra verð Munið vinsælu gjafabréfin okkar Simms Freestone öndunarvöðlur og Simms Freestone skór. Einhverjar mest keyptu öndunarvöðlurnar á markaðnum. Fullt verð 32.800. Pakkatilboð aðeins 27.880. Simms L2 öndunarvöðlur og Simms L2 skór. Þú færð ekki Gore-tex vöðlur á betra verði. Vöðlur með styrkingu á álagsstöðum. Léttir og sterkir skór með filtsóla. Fullt verð 44.800. Pakkatilboð aðeins 37.990. Scierra fluguveiðipakki. Scierra Avalanche einhenda ásamt Scierra fluguhjóli með góðri bremsu. Vönduð flotlína, undirlína, taumatengi og taumur. Gjöful veiðihúfa og kastkennsla á DVD fylgir. Fullt verð 25.900. Pakkatilboð aðeins 19.900 Scierra tvíhendupakki. Scierra Avalanche tvíhenda í 4 hlutum. 12,6 eða 14 fet. Vandað Scierra fluguhjól úr áli. Scierra skotlína, undirlína og sökktaumur. Gjöful veiðihúfa og kastkennsla á DVD fylgir. Fullt verð 44.900. Pakkatilboð aðeins 37.800. Scierra MBQ vöðlur og skór. Vinsæll öndunarvöðlupakki á frábæru verði. Fullt verð 29.990. Pakkatilboð aðeins 19.950. Ron Thompson Aquasafe veiðijakki. Vinsæll, vatnsheldur jakki með útöndun. Fullt verð 12.995. Nú á tilboði í júní aðeins 9.995. Ron Thompson neoprenvöðlur. 4mm þykkt efni. Styrkingar á hnjám. Góður brjóstvasi. Fóðruð stígvél með filtsóla. Fullt verð 12.995. Nú á tilboði í júní aðeins 8.995 Scierra Canyon veiðijakki. Vandaður, vatnsheldur jakki með gó ðri útöndun. Fullt verð 17.995. Nú á tilboði í júní aðeins 14.495
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.