Morgunblaðið - 24.06.2007, Page 16

Morgunblaðið - 24.06.2007, Page 16
16 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Menning | Ákvörðun um að aðla rithöfundinn Salman Rushdie hefur endurvakið gamlar hótanir. Erlent | Leiðtog- ar aðildarríkja Evrópusambandsins náðu samkomulagi eftir að bæði Pólverjar og Bretar höfðu hótað að beita neit- unarvaldi. Knattspyrna | Bandarískur auðkýfingur hefur beint sjónum sínum að Arsenal og Thierry Henry er genginn í raðir Barcelona. VIKUSPEGILL » Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is Enn á ný er hafinn söngurhótana í garð SalmansRushdies. Síðan breskakrúnan aðlaði Rushdie fyrir viku hafa raddir mótmæla múslíma orðið æ háværari og á föstudag voru mestu mótmælin gegn þessari ákvörðun til þessa. Í Íran og Pakistan hafa verið settar fram kröf- ur um að öðlun Rushdies verði dreg- in til baka. Talibanar í Afganistan hafa krafist þess sama og ákvörð- unin hefur verið gagnrýnd í Írak og Indónesíu. Íranskur klerkur lýsti yf- ir því á föstudag að dauðadómurinn, fatwa, sem Ayatollah Ruollah Kho- meini gaf út á hendur Rushdies árið 1989 vegna bókarinnar Söngvar Sat- ans, væri enn í fullu gildi. „Í ísl- amska Íran er byltingardómurinn, sem Khomeini erkiklerkur gaf út, í gildi og ekki hægt að breyta hon- um,“ sagði klerkurinn, Hojatoleslam Ahmad Khatami við trúarathöfn í Teheran. „Hin gamla og úr sér gengna stjórn Stóra Bretlands ætti að vita að tími heimsveldis hennar er liðinn og í dag er hún hlaupastrákur í þjónustu Bandaríkjanna.“ Munu aldrei líða niðrandi ummæli um spámanninn Í Kasmír notaði lögregla táragas til að leysa upp hóp mótmælenda. Í Pakistan kom víða til mótmæla og hermt var að brenndar hefðu verið brúður í líki Rushdies og Elísabetar Bretadrottningar. Shaukat Aziz, for- sætisráðherra Pakistans, fordæmdi ákvörðunina um að aðla Rushdie: „Þetta hefur sært tilfinningar músl- íma. Múslímar munu aldrei líða niðr- andi ummæli um spámanninn Mú- hameð.“ Þingmaður úr flokki Nawaz Shar- if, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, hvatti til þess í þingsal að Rushdie yrði myrtur með orðunum: „Hver sá sem myrðir hann verður hetja múslíma.“ Fyrr í vikunni lýsti ráðherra trú- mála í Pakistan, Ijaz-ul Haq, yfir því að öðlun Rushdies réttlætti sjálfs- morðsárásir, en dró þau ummæli reyndar síðar til baka. Haq er sonur Zia-ul-Haqs, sem var einræðisherra Pakistans frá 1977 til 1988. Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráð- herra Pakistans, skoraði á Haq að segja af sér. Faðir Haqs steypti föð- ur Bhutto, Sulfikar Ali Bhutto, af stóli og tók hann af lífi árið 1979. Öðlun Rushdies og ritskoðun Írafár hefst á ný vegna Söngva Satans sem kom út fyrir tæpum 20 árum  Dauðadómur Khomeinis erkiklerks sagður í fullu gildi  Brúður brenndar, lífláts krafist og fé heitið til höfuðs rithöfundinum Reuters MENNING» Reuters  Salman Rushdie og kona hans Padma Lakshmi. Í The Economist sagði að á spjallþráðum á Netinu þar sem múslímar kæmu saman virtist meiri áhugi á Lakshmi, sem er 36 ára fyrirsæta, en guðlasti eig- inmanns hennar. Rushdie varð sex- tugur í liðinni viku.  „Ég hata S. Rushdie,“ stendur á ennisbandi mótmælanda úr röðum Awami Therik-flokksins á mót- mælafundi í Karachi í Pakistan. Harðlínuklerkar í Pakistan mót- mæltu ákvörðun bresku krúnunnar um að aðla Salman Rushdie, höfund bókarinnar Söngvar Satans, með því að sæma hryðjuverkamanninn Osama bin Laden sverði Allah. ’ Allt of margar konur gangastinn á orðræðu karla, þeirra skil- greiningu á því sem skiptir máli, bíða eftir þeim molum sem hrjóta af borði þeirra ef þær eru bara nógu hlýðnar.‘Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra í ávarpi á fundi Kvenréttinda- félags Íslands 19. júní. ’ Kvennafn lækkar launinYfirskrift rannsóknar um launaamun kynjanna, sem leiddi meðal annars í ljós að konur ráð- leggja kynsystrum sínum að biðja um mun lægri laun en þær myndu ráðleggja körlum. Þetta hefur góð áhrif inn í skóla- kerfið og í raun þvert í gegnum samfélagið.‘Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra um gengi íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu. Í sömu vikunni sigraði liðið Frakka og Serba. ’ Stelpurnar eru þarna að nálengra en strákarnir, sýna hvað í þeim býr og það var kominn tími til.‘Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð- herra af sama tilefni. ’ Ég held að húsasmiðir hafiekki mikið vit á sjávarútvegi. Ég held að það fari best á því að þeir haldi sig við sitt fag.‘ Kristján Loftsson , eigandi Hvals og stjórnarmaður í HB Granda, um hug- myndir Sturlu Böðvarssonar, forseta Al- þingis, um að draga úr umsvifum í sjáv- arútvegi á höfuðborgarsvæðinu. ’En ég þakka guði fyrir hverndag sem hún skrifar ekki ævi- söguna.‘Ragnar Bjarnason rétti konu sinni, Helle Birthe Bjarnason, blómvöndinn sem hann fékk þegar hann var valinn borgarlistamaður þessa árs og fór um hana fögrum orðum, en bætti þessari setningu við. ’Ungir knattspyrnumenn eruum margt líkir melónum. Það er ekki fyrr en maður opnar og Ummæli vikunnar Frumkvöðlar Seltirningar eru á fljúgandi ferð í ljósleiðaravæðingunni, hafa náð heimsforystu og það sakar ekki að láta heiminn vita. Morgunblaðið/G. Rúnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.