Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 29
Í HNOTSKURN
»Steinunn hefur náðhvað lengst Íslend-
inga í tískuheiminum á
alþjóðavísu og hefur
starfað fyrir Calvin
Klein, Gucci og La
Perla. Hún hefur rekið
eigið tískumerki sem
ber nafnið STEiNUNN
frá árinu 2000 og eru
vörur hennar seldar
víða um heim.
»Forseti Íslandssæmir íslenska rík-
isborgara fálkaorðunni
tvisvar á ári, 1. janúar
og 17. júní. Fyrsta stig
orðunnar er riddarakrossinn og flestir orðuþegar
eru sæmdir honum.
»Fálkinn var í skjaldarmerki Íslands í sextán ár.Fannst mönnum veglegra að nota þennan svip-
mikla, harðgera og tígulega fugl sem tákn landsins en þorskinn.
stofur lausar en núna eru allir að
leita að húsnæði hérna. Þetta sýn-
ir hvað hönnunarfyrirtækin eru í
hröðum vexti.“
Sjálf er Steinunn að fara að
opna nýja verslun í miðbænum og
flyst búðarhluti starfseminnar í
nýtt húsnæði við Laugaveg 40 fyr-
ir miðjan júlí.
Steinunn leitar gjarnan í ís-
lenska náttúru og hefðir til þess
að fá innblástur.
„Ég bý við sjóinn og mér finnst
gaman að horfa út. Ég held að vís-
unin í náttúruna og hið þjóðlega
komi til vegna þess að maður
verður enn hrifnari af landinu eft-
ir langa dvöl á erlendri grundu.
Ég fer mjög oft á Þjóðminjasafnið
í leit að munstrum, saumum eða
einhverju öðruvísi. Textíllinn kem-
ur síðan yfirleitt beint úr nátt-
úrunni. Svo hef ég sérstakan
áhuga á Textílsafninu á Blönduósi,
þar er hægt að sækja sér mikinn
innblástur og mögulegt að skoða
ýmislegt handsaumað af konum
frá síðustu öldum. Hið íslenska
handbragð er í öndvegi.“
Þetta íslenska handbragð ratar
oft inn í hönnun Steinunnar.
„Haustlínan mín er með áhuga-
verðu munstri sem ég notaði í
prjónið úr bókahnúti sem ég fann
í gömlum útsaumsbókum frá því
fyrir aldamótin 1900. Nauðsynlegt
er að horfa á smáatriðin og kunna
til verka, handbragðið finnst mér
rosalega mikilvægt.“
Vísanirnar eru þó óbeinar, ekki
er um eftiröpun að ræða heldur
skilar sér tilfinningin fyrir fortíð-
inni. Steinunn segir Íslendinga
hafa ríka hefð í þessu sambandi
og margt til að vinna úr. „Ég nota
alltaf eitthvað íslenskt í hverri
línu.“
Hún er núna að vinna að prenti,
sem unnið er úr myndum af hvönn
og fleiri jurtum úr íslenskri flóru.
Myndirnar eru unnar áfram í þrí-
vídd sem minnir á leik norðurljós-
anna og hlakkar Steinunn til að
sýna flíkur með þessu munstri á
tískustefnunni CPH Vision í
Kaupmannahöfn í ágúst.
Fallegt útlit og
hönnun orðunnar
Vel er við hæfi að spyrja fata-
hönnuðinn hvað honum finnist um
útlit fálkaorðunnar. „Orðan er vel
hönnuð og handbragðið einstakt
en þetta er allt gert hérna heima,“
segir hún en vinnan er í höndum
Þorbergs Halldórssonar gullsmiðs.
„Hvíta emaléringin er mjög falleg.
Hönnunarlega séð sýnir fálkaorð-
an svo mikið hvað Ísland stendur
fyrir, þjóðarstoltið kemur sannar-
lega upp í manni. Með orðunni
fylgir lítil rósetta, sem búin er til
úr borðanum sem fylgir nælunni.
Til viðbótar sýnir grafíska hönn-
unin á innsiglinu frá forsetanum
virðuleika og fágun,“ segir Stein-
unn en athygli vekur að orðu-
bandið er mismunandi eftir því
hvort handhafinn er karl eða
kona. Karlarnir fá kross sinn í
einföldu broti en konurnar í fal-
legri slaufu, sem gefur krossinum
skemmtilegt yfirbragð.
Þannig að þú ætlar ekki að selja
orðuna þína á eBay?
„Nei, ég hef ekki hugsað mér að
gera það,“ segir hún og hlær. „Ég
skrifaði undir það plagg að séð
yrði um að skila henni eftir minn
dag.“
Hvað gerir maður við orðuna?
„Hún er eitthvað sem maður
geymir á fallegum stað. Ég er
ekki enn búin að finna staðinn
minn. En rósettuna geturðu geng-
ið með og til dæmis nælt henni í
jakka. Ég get vel hugsað mér að
bera hana við hátíðleg tækifæri.“
ingarun@mbl.is
öndvegi
Hönnuðurinn sjálfur
Steinunn Sigurðar-
dóttir selur vörur sínar
víða um heim.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 29
www.bluelagoon.is
Bláa Lónið – Gönguferðir með leiðsögn
Bláa Lónið í samvinnu við Leiðsögumenn Reykjaness býður upp á daglegar gönguferðir
klukkan 10.00 tímabilið 1. júní–31. ágúst.
Orkuríkt umhverfi Bláa Lónsins, jarðfræði og saga er
meðal þess sem þátttakendur í daglegum gönguferðum
munu kynnast. Ferðirnar hefjast við Bláa Lónið þaðan
sem gengið er að lækningalindinni. Gengið er að
Þróunarsetri og að orkuveri Hitaveitu Suðurnesja í
Svartsengi. Gangan endar í Bláa Lóninu.
Gönguferðin tekur um eina og hálfa klukkustund. Mælt er
með gönguskóm og hlýjum fatnaði. Verð: 1.000 kr.
Miðar eru seldir í gestamóttöku Bláa Lónsins.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-0
7
2
2
Heimsferðir bjóða
frábært tilboð á
síðustu sætunum
til Montreal 5. og
12. júlí. Þetta er
einstakt tækifæri til
að njóta lífsins í
þessari stórkost-
legu spennandi
borg sem er önnur
stærsta borg Kan-
ada. Í borginni
mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og iðandi nýbreytnin á
einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig um,
versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust
úrval verslana og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag.
Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta
sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Montreal
Kanada
5. og 12. júlí
frá kr. 29.990
Vikuferð - síðustu sætin
Verð kr. 29.990
Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með
sköttum, vikuferð 5. eða 12. júlí.
Verð kr. 49.990
Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í
tvíbýli á Travelodge Montreal m/morgunverði í
7 nætur. Aukagjald fyrir einbýli kr. 19.900.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Flug og gisting í viku
- aðeins kr. 49.990