Morgunblaðið - 24.06.2007, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 45
UMRÆÐAN
SÍMI 5 900 800
Ólafur B. Blöndal, löggiltur fasteignasali.
KRISTNIBRAUT 16 – 2. HÆÐ
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 15.30–16.00
4ra herb. íbúð á 2. hæð í 3ja
íbúða stigahúsi, alls 124,9
fm. Íbúð er: forstofa,
hol/gangur, 3 svefnherb.,
baðherb., stofa/borðstofa,
eldhús, þvottaherb. inn af
eldhúsi, suðursvalir og sér-
geymsla í kjallara. Glæsilegt
útsýni úr stofu í átt að
Esjunni og yfir Grafarvog-
inn. Verð 28,8 millj.
VÆTTABORGIR – PARHÚS
Snyrtilegt og vel staðsett
parhús á 2 hæðum með
innb. bílskúr alls 165,1 fm.
Suðursvalir, glæsilegt út-
sýni. Eignin er: forstofa,
þvottaherb., 2 baðherb., 3
svefnherb, stofa/borðstofa,
eldhús, þvottaherb., geymslu-
loft og innb. bílskúr. Vönduð
eign á frábærum stað. Verð
49,8 millj.
ÞORLÁKSGEISLI - ENDARAÐHÚS
Vel skipulagt endaraðhús á
2 hæðum með innbyggðum
bílskúr ca. 186,5 fm. Á efri
hæð er forstofa, baðherb.,
stofa/borðstofa, eldhús &
bílskúr. Neðri hæð: gangur,
baðherb., þvottaherb.,
4 svefnherb. eitt m/fataher-
bergi. Útgengi í garð úr
svefnherb. Verð 49,5 millj.
ÞORLÁKSGEISLI – EINBÝLI
Glæsilegt einbýlishús á
tveimur hæðum ca. 230 fm
m/bílskúr. Neðri hæð: and-
dyri, hol, gesta-wc, stofa,
borðstofa, sólstofa, stórt
eldhús, geymsla, þvotta-
herb. og bílskúr. Efri hæð:
steyptur stigi, gangur,
3 rúmgóð barnaherb., stórt
hjónaherb. og stórt bað-
herb. Suðaustur svalir ca.
22 fm. Verð 67,3 millj.
ÁSGARÐUR – 5 HERBERGJA
Stór 4-5 herbergja 119 fm
íbúð á 1. hæð auk 26 fm bíl-
skúrs, suðursvalir með
glæsilegu útsýni. Íbúð skipt-
ist í: forstofu, eldhús, stofu/
borðstofu, herb.hol, bað-
herb., þrjú herb., geymslu
innan íbúðar, 2 sérgeymslur
í kjallara og bílskúr. Snyrti-
leg eign á þessum vinsæla
stað. Verð 29,9 millj.
GRENIMELUR – VESTURBÆR
Í sölu snyrtileg 3ja herb.
92,8 fm íbúð auk sér-
geymslu 4,6 fm alls 97,4 fm
á þessum eftirsótta stað á
Melunum. Skipting eignar:
saml. inngangur og anddyri
m/íbúð á hæð. Forstofa/
hol, eldhús, baðherb.,
hjónaherb., stofa/borðstofa
og herb. með útgengi á
suðursvalir. Sérgeymsla í
kjallara og sameiginlegt
þvottahús. Verð 32,5 millj.
GNOÐARVOGUR – SÉRHÆÐ
Í sölu falleg 130 fm 4ra
herb. hæð ásamt 32 fm
bílskúr í Vogunum. Íbúð
skiptist í: anddyri/hol, eld-
hús með búri inn af, 2 stór
barnaherb., hjónaherb.
með útg. á suðursvalir,
rúmgóða stofu og flísal.
baðherb. Verð 34,9 millj.
Upplýsingar veitir Sveinn Eyland,
sölumaður fasteign.is í síma 6 900 820
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Drekavellir - 24a - Hf.
Opið hús í dag milli kl. 14-15.
Hraunhamar fasteigna-
sala kynnir fallega og
bjarta 92,5 fm 3ja herb.
íbúð á 3.h. (efstu) í ný-
byggðu fallegu fjölbýli,
vel staðsettu í Vallar-
hverfi í Hafnarfirði.
Húsið er steypt og
klætt að utan. Eignin
skiptist í forstofu, hol,
stofu, borðstofu, eld-
hús, tvö herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Stórar
suðursvalir og útsýni. Glæsilegar innréttingar og gólfefni. Verð
22,2 millj.
Atli býður ykkur velkomin, s. 868-3066.
Klettagarðar - til leigu
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
Nánari upplýsingar
veittar á skrifstofu.
Vandað 2.944 fm stálgrindarhús rétt
við Sundahöfn. Um er að ræða 1.762
fm vörulager/sal á jarðhæð með
þrennum stórum innkeyrsludyrum og
er lofthæð við útveggi 10,8 metrar en
12,7 metrar við mæni. Auk þess er á
jarðhæð um 522 fm sýningarsalur,
skrifstofu- og lagerhúsnæði með
tæplega 5 metra lofthæð. Á 2. hæð,
millilofti, er 524 fm skrifstofu- og lag-
erhúsnæði auk 124 fm skrifstofurým-
is yfir 2. hæð með útsýni yfir vinnu-
sal. Gott athafnasvæði og stórt mal-
bikað plan. Fjöldi bílastæða. Húsið er
afar vel staðsett rétt við Sundahöfn.
Laust til afhendingar 1. október nk.
SAKSÓKNARI efnahagsbrota
ríkislögreglustjórans hefur und-
anfarna daga farið
mikinn í fjölmiðlum.
Ein af hugmyndum
hans hefur verið að
sameina eftirlitsstofn-
anir landsins undir
merkjum ríkislög-
reglustjóra og þá
væntanlega að gera öll
mál að lögreglumálum.
Önnur hugmynd hans
hefur verið að leggja
embætti skattrann-
sóknarstjóra ríkisins
niður.
Skattrannsókn-
arstjóri hefur að lögum það hlut-
verk að rannsaka meint brot á
skattalögum, lögum um bókhald og
lögum um ársreikninga. Tilgangur
rannsóknar er tvíþættur, annars
vegar að koma að endurákvörðun
skattstofna sem dregnir hafa verið
undan og hins vegar að hlutast til
um refsimeðferð vegna þessara
brota.
Mál sem sæta rannsókn hjá
skattrannsóknarstjóra verða sífellt
flóknari og vandasamari í rannsókn.
Skattrannsóknarstjóri hefur í yfir
fjörutíu ár haft með höndum rann-
sóknir á brotum á skattalögum.
Innan embættisins hefur byggst
upp þekking og reynsla og eru fær-
ustu sérfræðingar starfandi hjá
embættinu í dag.
Refsiþætti flestra mála lýkur með
sekt hjá yfirskattanefnd eða emb-
ætti skattrannsóknarstjóra. Alvar-
legri mál eru send í opinbera með-
ferð hjá ríkislögreglustjóra. Báðar
hinar fyrrnefndu leiða eru val-
kvæðar, þ.e. aðili á þess alltaf kost
að óska eftir opinberri meðferð hjá
ríkislögreglustjóra. Einungis örfá
dæmi eru um að aðilar hafi kosið að
máli þeirra verði vísað til ríkislög-
reglustjóra. Hefur það verið nefnt
sem ástæða þeirrar óskar að þeir
telji líklegt að mál þeirra dagi þar
uppi.
Meðferð brota á skattalögum hjá
ríkislögreglustjóra hefur sætt
ámæli fyrir að taka langan tíma.
Eru fjölmörg dæmi um at-
hugasemdir dómstóla vegna slíks
dráttar, sem áhrif hefur haft á
refsiákvörðun til lækkunar. Þá hef-
ur málum verið lagt upp af hálfu
ríkislögreglustjóra, jafnvel nokkr-
um árum eftir að þeim hefur verið
vísað þangað af skattrannsókn-
arstjóra. Afdrif mála með þessum
hætti eru vitaskuld óviðunandi.
Við rannsókn hjá skattrann-
sóknarstjóra er farið að lögum um
meðferð opinberra mála. Til við-
bótar gilda um starf-
semina stjórnsýslulög
með þeirri rétt-
arvernd sem í þeim
felst. Með þessum
hætti er tryggð sem
ríkust réttarvernd
fyrir þá aðila sem
sæta rannsókn vegna
skattalagabrota.
Skattrannsókn-
arstjóri er bært
stjórnvald við skipti á
upplýsingum á
grundvelli tvískött-
unarsamninga en í
auknum mæli krefjast rannsóknir
mála upplýsinga frá erlendum
skattyfirvöldum. Skattrannsókn-
arstjóri hefur aðgang að öllum
skattgögnum á sama hátt og önnur
skattyfirvöld en mestur fjöldi mála
sem til rannsóknar koma hjá emb-
ættinu eru tilkomin vegna skoð-
unar embættisins sjálfs á þeim
gögnum.
Sú brotalöm sem verið hefur í
meðferð skattalagabrota snýr að
meðferð alvarlegri mála sem vísað
hefur verið til ríkislögreglustjóra til
meðferðar. Nærtækt er að ákæru-
valdi verði fengið embætti skatt-
rannsóknarstjóra. Með því verður
komið í veg fyrir þann tvíverknað
sem nú er viðhafður við endurrann-
sókn mála hjá ríkislögreglustjóra,
skilvirkni eykst og jafnræðis gætir
við afgreiðslu mála. Þá yrði með
þeim hætti verulega dregið úr
kostnaði við meðferð þessa mála-
flokks.
Rannsókn og refsimeðferð
skattalagabrota
Bryndís Kristjánsdóttir skrifar
um starfssvið skattrannsókn-
arstjóra
» Innan embættisinshefur byggst upp
þekking og reynsla og
eru færustu sérfræð-
ingar starfandi hjá emb-
ættinu í dag.
Bryndís Kristjánsdóttir
Höfundur skattrannsóknar-
stjóri ríkisins.