Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 68

Morgunblaðið - 24.06.2007, Síða 68
68 SUNNUDAGUR 24. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ / KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á SHREK 3 m/ensku tali kl. 12 - 3 - 8:15 - 10:20 LEYFÐ DIGITAL SHREK 3 m/ísl. tali kl. 12 - 2:15 - 4:15 - 6:15 LEYFÐ DIGITAL CODE NAME: THE CLEANER kl. 12 - 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 7 ára DIGITAL PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5 B.i. 10 ára DIGITAL SHREK 3 m/ensku tali kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ SHREK 3 VIP m/ensku tali kl. 8 - 10:10 SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ OCEAN'S 13 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára OCEAN'S 13 VIP kl. 3 - 5:30 PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 2 - 6 - 8 - 10 B.i.10.ára ZODIAC kl. 6 - 9 B.i.16.ára ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA MYND OG HLJÓÐ Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI SÝND M EÐ ÍSLENS KU OG ENS KU TALI WWW.SAMBIO.IS SHREK, FÍÓNA,ASNINN OG STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN ERU MÆTT AFTUR Í SKEMMTI- LEGASTA ÆVINTÝRI ALLRA TÍMA. STÆRSTA OPNUN Á TEIKNIMYND FYRR OG SÍÐAR. Það er eins og ekki sé hægt að getaConor Oberst og Bright Eyeshljómsveitar hans nema nota orðiðundrabarn í sömu andrá og það þótt piltur sé kominn hátt á þrítugsaldurinn. Skýring á því er vitanlega sú að hann hóf tónlistarferil sinn svo snemma, fjórtán ára, með rokksveitinni Commander Venus og sendi síðan frá sér tvær framúrskarandi breiðskífur árið sem hann varð átján ára. Sjöunda breiðskífa pilts kom svo út á dög- unum og er ekki síðri en fyrri verk, betri reyndar, og greinilegt að Oberst er að hrista af sér undrabarnsstimpilinn – Cassadaga er einfaldlega fyrirtaks plata hæfileikaríks lagasmiðs. Samhliða því sem Oberst var söngvari og gítarleikari í Commander Venus byrjaði hann á sólóverkefni sínu sem hann kallaði Bright Eyes eftir viðurnefni Charltons He- stons í Apaplánetunni. Á árunum 1995 til 1997 tók hann upp talsvert af lögum einn með gítarinn, sjötíu lög segja sumir, aðrir að þau hafi verið enn fleiri, en tók þó um leið fullan þátt í starfi sveitarinnar. Þegar Commander Venus svo lognaðist út af ákvað Oberst að Bright Eyes yrði vettvangur tón- listarsköpunar sinnar og gaf út safnskífu með úrvali úr lagasafninu mikla, A Collec- tion of Songs Written and Recorded 1995- 1997, og skömmu síðar aðra skífu, Letting Off the Happiness, sem var með nýjum lög- um. Misjafnir dómar Skífurnar fengu misjafna dóma en enginn frýði honum hæfileika – það fór ekki á milli mála að piltur var bráðger og bráðsnjall, en sumum fannst hann mega beita meiri sjálfs- gagnrýni. Oberst hélt þó sínu striki, sló lítið af í afköstum, en tók út mikinn þroska í tón- listinni eins og heyra mátti á næstu breið- skífu, Fevers and Mirrors, sem kom út 2000, meira lagt í útsendingar og upptökur, en lög- in jafn vel samin og forðum. Það ár og hið næsta sendi hann frá sér nokkrar smáskífur, en 2002 kom svo helsta plata hans fram að því og sú sem mesta athygli vakti á honum og sveitinni; Lifted or The Story Is in the Soil, Keep Your Ear to the Ground. Óvenju hljótt var um pilt árið 2003 en hann lét til sín taka 2004 og tók þá virkan þátt í kosningabaráttu demókrata þó ekki hafi það dugað til sigurs í forsetakosning- unum. Það dugði þó til að halda pilti í sviðs- ljósinu og skilaði því meðal annars að hann kom tveim smáskífum hátt á Billboard- listanum þá um haustið. Þrjár plötur 2005 Árið 2005 hóf hann svo með því að senda frá sér tvær skífur ólíkrar gerðar, annars vegar lágstemmda órafmagnaða poppskífu, I’m Wide Awake, It’s Morning, og hins veg- ar raftónlistarkryddaða skífu, Digital Ash in a Digital Urn. Mikið tónleikahald í tveimur hlutum fylgdi í kjölfarið, fyrri hlutinn til að kynna I’m Wide Awake, It’s Morning og sá seinni í tilefni af Digital Ash in a Digital Urn. Það dugði og til að þræla skífunum upp sölulista, þó plöturnar hafi allajafna fengið slaka dóma. Um haustið kom svo þriðja breiðskífa hans á árinu, tónleikaplatan Mo- tion Sickness. Eftir svo miklar annir gat það varla komið mönnum á óvart þegar Oberst lýsti því yfir að ekkert myndi koma út með sveitinni 2006, en þrátt fyrir það kom út safnskífa með ýms- um lögum frá ferlinum sem sum höfðu sjald- an heyrst opinberlega, en önnur aldrei, Noise Floor (Rarities: 1998-2005). Í síðasta mánuði kom svo ný breiðskífa með Bright Eyes, Cassadaga. Platan dregur nafn sitt af samfélagi sjá- enda í Flórída, enda er yrkisefni hennar að miklu leyti trú og trúarvitund. Margir telja skífuna ádeilu á hægrisinnaða heittrúarmenn vestan hafs, og kæmi svo sem ekki á óvart í ljósi pólitískrar sannfæringar Obersts, en líklegra þó að hann sé að beina sjónum að þeim hörmungum sem fylgja bókstafstrú, hvaða fígúru sem menn eru annars að mæra. Barnastjarna vex úr grasi Hæfileikamikill Conor Oberst, forsprakki Bright Eyes, gaf út sjöundu breiðskífu sína á dögunum. Þó Conor Oberst, forsprakki Bright Eyes, sé kominn hátt á þrítugsaldurinn er hann enn undrabarn í augum margra. Síðustu skífur hans, en sú nýj- asta kom út í vor, sýna þó að hann er fullorðinn listamaður og rétt að meta hann svo. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.