Morgunblaðið - 22.07.2007, Síða 4

Morgunblaðið - 22.07.2007, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Erlendar metsölubækur FRÁBÆRT VERÐ Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ÆTLI einhver sér að opna heima- síðu þarf, auk útlits, uppsetningar og efnis, að taka ákvörðun um lénið sem er keypt, þ.e. það sem slegið er inn til að opna síðuna. Oftar en ekki liggur beint við hvert lénið er, svo sem nafn fyrirtækisins eða einstaklingsins sem um ræðir. Sumir kjósa þó að láta frumlegheitin ráða og velja sér grípandi lén sem gefur kannski ekki miklar upplýsingar um innihald síð- unnar. Blaðamaður hafði samband við fólk sem vafrar mikið á Netinu og benti það á nokkur lén sem eru ýmist frumleg, misvísandi eða er hægt að lesa öðruvísi en eigandi síðunnar hefur eflaust ætlað í upphafi. Hass.is er ekki heimasíða hóps sem berst fyrir lögleiðingu kannab- isefna og reyndar tengist síðan ekki fíkniefnum að neinu leyti. Síðan hýs- ir vef Reykjaneshafnar og stendur HASS fyrir Hafnasamlag Suður- nesja. Ótrúlegt en satt þá kemur Elv.is konungi rokksins ekkert við. Á síð- unni er íbúð á Spáni auglýst til leigu og hafa eigendur síðunnar eflaust valið þetta sniðuga lén svo fólk ætti hægara um vik að muna það og er þar með líklegra að þeim takist að leigja íbúðina út. Hins vegar fer eng- um sögum af því hvort eigendurnir eru aðdáendur söngvarans sáluga. Is.is er líklegast það lén sem auð- veldast er að muna. Þar er um að ræða síðu Iceland Seafood þannig að um er að ræða upphafsstafi fyrir- tækisins, sem kemur sér óneitanlega vel í ljósi endingarinnar. Suzukibilar.is er heimasíða Suzuki bíla hf. en sé seinni hlutinn lesinn eins og hann er ritaður, þ.e. án stafs- ins í, hljómar lénið eins og ’Suzuki bilar’ sem er eflaust ekki sá boðskap- ur sem seljendur bifreiðarinnar vilja koma á framfæri við mögulega kaup- endur. Þeir sem eru ósáttir við teg- undina og vilja stofna síðu sínu máli til stuðnings, verða að finna annað lén. Á netinu má einnig finna urmul er- lendra síðna með óheppileg lén, sér í lagi þar sem hægt er að lesa orðin öðruvísi þegar þau eru runnin saman í eitt; fólk getur talið hluta eins orðs tilheyra öðru orði og skapast þá allt önnur merking. Nokkur dæmi: Speed of Art er hönnunarskrif- stofa með lénið www.speedofart- .com. en Speedo sundskýlur koma þar hvergi nærri. Á síðunni expert- sexchange.com geta forritarar skipst á ráðum og skoðunum þó ef- laust hafi margir sem fara inn á síð- una í fyrsta skipti verið með allt ann- að í huga. Þá er hægt að finna meðferðarsérfræðinga en ekki kyn- ferðisafbrotamenn á síðunni www.therapistfinder.com og á www.ipanywhere.com er hægt að nálgast tölvubúnað en ekki hugleið- ingar einhvers blygðunarlauss ein- staklings. Þetta eru aðeins örfá dæmi úr hin- um næsta óendanlega netheimi og er ljóst að áður en lén er keypt þarf að skoða það með augum aðila sem ekki þekkir nafn einstaklingsins eða fyr- irtækisins sem um ræðir því annars er hætta á misskemmtilegum mis- tökum. Lesið úr lénum Sum lén eru frumleg en önnur misvísandi eða þannig að hægt er að lesa þau öðruvísi en eigendurnir ætluðust til Morgunblaðið/ÞÖK Misheppileg lén Á veraldarvefnum er urmull síðna með óheppileg lén. Í HNOTSKURN » Is.is er vefsetur IcelandSeafood og líklega það lén sem auðveldast er að muna. » Elv.is tengist ekki söngv-aranum sáluga, svo vitað sé, en á vefsetri er íbúð á Spáni auglýst til leigu. » Hass.is tengist ekki fíkni-efnum að neinu leyti. HASS stendur fyrir Hafna- samlag Suðurnesja og lénið hýsir vef Reykjaneshafnar. » Suzukibilar.is mun ekkitengjast biluðum bílum. Þetta er hins vegar lén Su- zuki bíla hf. Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is MIKIL aðsókn hefur verið í skipu- lagðar ferðir Útivistar og Ferða- félags Íslands í sumar og segja tals- menn félaganna að eftirspurnin aukist stöðugt ár frá ári. Flestir þeirra sem sækja í ferðirnar eru Ís- lendingar, þótt einn og einn erlendur ferðamaður slæðist með. „Það er búið að vera mjög gott að gera í sumar og vel bókað í lang- flestar ferðir hjá okkur,“ segir Vil- borg Gissurardóttir hjá Ferðafélagi Íslands. „Við finnum fyrir gríðarlega auknum áhuga Íslendinga á að ferðast um sitt eigið land, hann hefur vaxið undanfarin þrjú ár eða svo og mætti jafnvel kalla þetta sprengju.“ Til marks um það nefnir Vilborg ferðir félagsins á Hvannadalshnúk, sem yfir 100 manns taka þátt í, og 160 manna Jónsmessugöngu á Heklu í júní síðastliðnum. „Svo er Esjan iðandi af fólki á hverju einasta kvöldi og lengri ferðir, eins og á Hornstrandir t.d., eru meira og minna uppbókaðar.“ Fólk er farið að bóka með æ meiri fyrirvara, að sögn Vilborgar, enda kemst takmarkaður fjöldi í hverja ferð, bæði vegna tak- markaðs gistirýmis en einnig svo fararstjórinn geti náð til alls hópsins. „Vinsælustu ferðirnar, eins og á Laugaveginn, verða snemma upp- bókaðar. Þá myndast biðlistar og færri komast að en vilja.“ Eins og utanlandsferð Hjá Útivist hefur þróunin verið með svipuðum hætti þannig að ferð- irnar verða uppbókaðar fyrr en áður gerðist og segir Bjarney Sigurjóns- dóttir ferðafræðingur að margir byrji að skrá sig í sumarferðirnar þegar í janúar. „Mér finnst helsta breytingin vera sú að fólk er byrjað að skipuleggja innanlandsferðalögin eins og það gerir þegar það fer utan í frí, sem er mjög jákvæð þróun að mínu mati,“ segir Bjarney. Útivist stendur jafnframt fyrir dagsferðum á hverjum sunnudegi þar sem fyr- irfram skráning er ekki nauðsynleg heldur getur hver sem er mætt á BSÍ, þaðan sem lagt er upp að því gefnu að þátttakendur séu minnst tíu. Bjarney segir að yfirleitt sé mjög góð mæting í þessar ferðir allt árið um kring og mikil stemning. Þar sem lengri ferðirnar eru flest- ar bókaðar með góðum fyrirvara segir Bjarney að góða veðrið sem ríkt hefur í sumar hafi í raun ekki bein áhrif á þátttöku, þótt það skemmi að sjálfsögðu ekki fyrir. Bjarney segir að það þekkist varla, hvenær árs sem er, að hætta þurfi við ferðir vegna veðurs. „Hvort sem það er rigning eða sól förum við í ferðirnar, því þótt spáin sé kannski ekki sérlega góð verður allt betra þegar maður er kominn af stað.“ Íslendingar flykkjast til fjalla Morgunblaðið/Ómar TÖLVUNARFRÆÐ- INGAR hafa nú fund- ið leið til þess að spila fullkominn leik í dammtafli, þannig að ekki sé nokkur mögu- leiki á því að leikmað- ur tapi leiknum. Ef báðir beita aðferðinni endar leikurinn með jafntefli. Dr. Yngvi Björnsson er einn af meðlimum rannsóknarteymisins sem vann þetta verkefni, en því er stýrt frá háskólanum í Alberta í Kanada. Hópurinn samdi hugbúnað, byggðan á gervigreindartækni sem keyrði á mjög öflugum tölvubúnaði. Það tók hann nokkur ár að ljúka sönnun- inni, enda eru mögu- legar stöður í damm- tafli yfir 500 milljarðar milljarða. Þessi lausn þykir marka nokkur tíma- mót hvað varðar stærð vandamála sem hægt er að leysa með slíkri tækni. Þess má til gamans geta að eitt fyrsta gervigreindarkerfið var ein- mitt hannað til þess að spila damm- tafl. Nú hefur loksins fundist end- anleg lausn á dæminu, rúmlega hálfri öld síðar. Tap sagt útilokað Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur og Gunnhildi Finnsdóttur ÁRLA morguns 12. júlí héldu fimm drengir af stað í 34 tíma ferðalag sem á endanum skilaði þeim og leið- beinendum þeirra til Isfahan í Íran. Þangað voru þeir komnir til að taka þátt í Ólympíuleikunum í eðlisfræði. Hvern vetur er hlutskörpustu þátttakendunum í landskeppni í eðl- isfræði boðið að taka þátt í Ólympíu- leikunum. Einu skilyrðin eru þau að keppendurnir mega ekki stunda nám í háskóla eða vera orðnir tvítugir. Að þessu sinni urðu fyrir valinu þeir Arnar Þór Hallsson, Einar Bjarki Gunnarsson, Gunnar Atli Thoroddsen, Hafsteinn Einarsson og Tómas Pálsson, allir nemendur í Menntaskólanum í Reykjavík. Á síðunni ipho.hlekkur.is má finna ferðasöguna sem einn leið- beinandanna, Eysteinn Helgason, ný- útskrifaður eðlisfræðingur, sér um að skrá. Hann veitti góðfúslegt leyfi fyrir birtingu nokkurra vel valinna kafla. Íslandsfyrirlestur og þjóðsöngur „Liðið er lent í Teheran eftir rúm- lega sólarhrings samfellt ferðalag. Við sitjum þó fastir því vegabréfs- áritunin frá sendiráði Írans í Osló er ekki tekin gild.“ Vandamál ferða- langanna leysist þó um síðir og end- uðu þeir með því að deila lítilli rútu til Isfahan með liðinu frá Singapore. Sjálf keppnin hófst svo sunnudaginn 15. júlí. Á mánudeginum fóru strákarnir í skoðunarferð um genarannsóknar- stöð. „ ... mér skildist nú á þeim að þeim hefði ekki þótt það mjög áhuga- vert. Þeir sögðust samt hafa haldið fyrirlestur um Ísland í rútunni á leið- inni og sungið íslenska þjóðsönginn.“ Strembin keppni Verklegi hluti keppninnar fór fram á þriðjudeginum og reyndist strákunum frekar strembinn. „Við [íslensku leiðbeinendurnir] hittum þá áðan í kvöldmatnum sem var í boði íranska ríkisbankans. Bankinn var að sjálfsögðu með sundlaug og gosbrunn í bakgarðinum en ég held að það séu næstum 2 gosbrunnar á mann hér í borginni.“ Liðið snýr aftur til Íslands seint í kvöld, en úrslit lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í prentun. Í hugarleikfimi á Ólympíuleikum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.