Morgunblaðið - 22.07.2007, Síða 34
34 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Björt og glæsileg 96 fm 1. hæð í einstaklega
fallegu steinhúsi í miðbænum. Hæðin skipt-
ist í samliggjandi stofu og borðstofu, eldhús
sem er uppgert í upprunalegum anda, 2
rúmgóð herbergi og baðherbergi. Mikil loft-
hæð er í íbúðinni og stórir bogadregnir
gluggar fylla íbúðina birtu. Upprunalegar ró-
settur og listar prýða öll herbergi og stofur. Íbúðin er öll parketlögð fyr-
ir utan eldhús og baðherbergi. Húsið allt nýviðgert að utan. Allir glugg-
ar og gler er nýtt, hljóðvistargler að götu.
Eign sem vert er að skoða. Verð 36,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 16-17.
Verið velkomin.
Hringbraut 32
Gengið inn Tjarnargötumegin
Opið hús í dag frá kl. 16-17
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg.
fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Klettagarðar – Til leigu
Vandað 2.944 fm stálgrindarhús rétt við Sundahöfn. Um er að
ræða 1.762 fm vörulager/sal á jarðhæð með þrennum stórum inn-
keyrsludyrum og er lofthæð við útveggi 10,8 metrar, en 12,7 metr-
ar við mæni. Auk þess er á jarðhæð um 522 fm sýningarsalur,
skrifstofu- og lagerhúsnæði með tæplega 5 metra lofthæð. Á 2.
hæð, millilofti, er 524 fm skrifstofu- og lagerhúsnæði auk 124 fm
skrifstofurýmis yfir 2. hæð með útsýni yfir vinnusal.
Gott athafnasvæði og stór malbikað plan. Fjöldi bílastæða.
Húsið er afar vel staðsett rétt við Sundahöfn.
Laust til afhendingar 1. október nk.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
Höfum fengið í sölu 3.700 fm lóð við Furugerði í Reykjavík. Lóðin er leigu-
lóð af hálfu Reykjavíkuborgar. Ekki liggur fyrir hversu mikið magn má byg-
gja á lóðinni. Á lóðinni stendur í dag einbýlishús auk tveggja gróðurhúsa.
Staðsetning lóðarinnar er afar miðsvæðis og bíður upp á ýmsa möguleika.
Tilvalið tækifæri fyrir byggingaverktaka.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Byggingarlóð við Furugerði
NÝLEG skilaboð Mannréttinda-
dómstólsins, varðandi það atriði að
seta sérfræðinga Landspítala – há-
skólasjúkrahúss í Læknaráði
við álitsgjöf á meintum læknamis-
tökum innan sömu stofnunar þýði
ekki hlutlausa málsmeðferð, eru
tímabær. Það hefur kostað
þrautagöngu fyrir sjúklinga gegn-
um árin að ganga erinda gagnvart
hinu opinbera með umkvörtunarefni
hvers konar á
heilbrigðisþjónustu hér á landi.
Kerfið hefur haft tilhneigingu til þess
að líta á sig sem „heil-
aga kú“ þótt eitthvað
hafi viðhorfið
breyst undanfarin
áratug. Embætti
Landlæknis hefur það
hlutverk með höndum
að tryggja gæði heil-
brigðisþjónustu en
tekur einnig við
umkvörtunum og
kærum og gefur úr-
skurði um hvort rétt
hafi verið að verki
staðið eða ekki. Við
teljum þá máls-
meðferð vera beggja vegna borðs og
viljum sjá hér embætti umboðs-
manns sjúklinga líkt og tíðkast ann-
ars staðar á Norðurlöndum þar sem
umfang heilbrigðisþjónustu er með
álika móti og hér á landi.
Eftirlit með heilbrigðisstéttum
Það er stutt síðan loks komst á raf-
rænn lyfjagagnagrunnur þar sem
Landlæknir getur fylgst með lyfja-
ávísunum en slíkt er hvort tveggja
sjálfsagt og eðlilegt.
Það er hins vegar ekki svo vel að
verki staðið varðandi læknisverk til
dæmis sérfræðinga, s.s. lýtalækna,
þar sem embættið hefur ekki og fær
ekki upplýsingar um þá starfsemi
sem fram fer í landinu hvað varðar
unnin læknisverk og fjölda sjúklinga.
Samkvæmt gildandi heilbrigð-
islöggjöf ber sérfræðingum að senda
heimilislæknum upplýsingar um
framkvæmd læknisverk á sjúkling-
um, sem hefur ekki gengið eftir í öll-
um tilfellum. Því til viðbótar hefur
ekki tekist að hafa nægilega marga
heimilislækna að störfum í landinu
og fjölmargir án heimilislæknis á
fjölmennum svæðum. Mikilvægi þess
að hægt sé að nálgast upplýsingar
um sjúklinga á einum stað er afar
mikið og forðar endurtekningum á
kostnaðarsömum rannsóknum í kerf-
inu. Samhæfing og skilvirkni allra
aðila er koma að málum sjúklinga er
forsenda árangurs í meðferð. Auka
þarf vitund lækna um kostnað við
lyfjaávísanir af almannafé en jafn-
framt þarf ríkið að tryggja það atriði
að kosta lækna á ráðstefnur erlendis
þannig að þeir hinir sömu séu alfarið
óháðir lyfjafyrirtækjum í því efni að
kynna sér nýjungar sem starfsmenn
hins opinbera.
Af mistökum má læra
Upplýsingar um mistök og óhöpp
hafa ekki verið á reiðum höndum inn-
an kerfisins, sem er ástæða til að
benda á í þessu sambandi, og gildir
þar einu hvaða aðili er spurður um
slíkt en forsenda þess að læra af mis-
tökum er að hafa upplýsingar um þau
hin sömu og flokka og greina. Að
hluta til kann ástæðan að vera sú að
samið var um ýmis mál án dómstóla-
meðferðar til skamms tíma en þar
sem örorka er til staðar af völdum
tjóns við læknismeðferðir, þá teljum
við að TR eigi að halda utan um slík-
ar upplýsingar innan sinna vébanda.
Sífellt berast fyrirspurnir þess efnis
til Lífsvogar hvort „góðir eða vondir
læknar“ séu þeir læknar sem sjúk-
lingur er að leita til en við bendum
fólki á embætti Landlæknis sem enn
hefur ekki farið þá leið að upplýsa um
kvartanir og kærur á lækna, hvað
sem tíminn kann að leiða í ljós.
Að lokum, um leið og við viljum
óska nýjum heilbrigðisráðherra vel-
farnaðar í starfi, minnum við hann á
nauðsyn þess að koma á fót embætti
umboðsmanns sjúklinga hér á landi
sem aftur mun aðstoða stjórnvöld all-
nokkuð við skipan mála.
Lífsvog vill sjá umboðsmann
sjúklinga hér á landi
Guðrún María Óskarsdóttir og
Jórunn Anna Sigurðardóttir
vilja tryggja gæði heilbrigð-
isþjónustunnar
»Mikilvægi þess aðhægt sé að nálgast
upplýsingar um sjúk-
linga á einum stað er af-
ar mikið og forðar end-
urtekningum á
kostnaðarsömum rann-
sóknum …
Guðrún María
Óskarsdóttir
Guðrún María er stjórnarmaður í
Lífsvog og Jórunn Anna varafor-
maður.
Jórunn Anna
Sigurðardóttir
MIKIÐ er rætt og ritað um of-
næmi þessa dagana vegna frjó-
korna, sem séu
óvenju snemma á
ferðinni og óvenju
mikil. En allt of
margir, sérstaklega
af yngri kynslóðinni,
eru ofnæmi ofurseldir
og telja margir
læknavísindamenn
ástæðuna liggja m.a. í
barnasprautufári nú-
tímans. En talið er að
þær geti m.a. valdið
sjálfsofnæmi. Hér áð-
ur, ef til vill ögn enn,
var ég með ofnæmi
og gat stundum orðið nokkuð
slæmur, sérstaklega ef ég kom ná-
lægt nýslegnu grasi. Þá áttu aug-
un til með að sökkva, endalaust
rennsli úr nefi og hnerrar urðu
ófáir. Þetta lagaðist ögn þegar ég
eltist, en þó man ég eftir leik-
ferðalögum sem voru mér hálf-
gerðar martraðir á stundum, bíl-
arnir óþéttir og þegar ryk og sól
komu saman gat þetta orðið
skelfilegt. En ég var svo heppinn
að kynnast manni sem þekkti
virkni fæðubótarefna
s.s. vítamína og stein-
efna og hvaða sam-
setning hentaði í
þessu og hinu tilfell-
inu. Hann sagði mér
að hunang hefði
gagnast mörgum vel
við ofnæmi, sér-
staklega frjóofnæmi
og sagði að næst þeg-
ar ég færi í leik-
ferðalag skyldi ég
byrja daginn, viku áð-
ur en lagt yrði í hann,
með því að fá mér
eina matskeið af hunangi og halda
því svo áfram í ferðinni, eftir því
hvað mér fyndist ég þurfa. Hann
sagði líka að hunangið væri betra
eftir því sem það væri dekkra og
enn tala læknavísindin gjarnan um
dökkt hunang sem allra meina
bót. Hunang er líka mjög góður
orkugjafi, en sætan skammtar sig
sjálf í blóðið eftir þörfum líkamans
og því getur ein matskeið enst
lengi. En til að gera langa sögu
stutta, þá hvarf ofnæmið og leik-
ferðirnar urðu mér ekki lengur
hálfgerð kvöl. Ég veit ekki hvort
ég er alveg laus við ofnæmi eða
ekki, en ég byrja vorin á því að fá
mér hunangsskeið af og til, svona
til að fyrirbyggja. Ég myndi mæla
með því að þeir, sem haldnir eru
ofnæmi eða eiga börn með of-
næmi, prófi hunang. Það getur
aldrei skaðað, aðeins gert gott.
Ofnæmi, sjálfsofnæmi
Hunang læknar ofnæmi segir
Aðalsteinn Bergdal. »Hann sagði líka aðhunangið væri betra
eftir því sem það væri
dekkra og enn tala
læknavísindin gjarnan
um dökkt hunang sem
allra meina bót.
Aðalsteinn Bergdal
Höfundur er leikari og lífskúnstner.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Fréttir á SMS