Morgunblaðið - 22.07.2007, Page 43

Morgunblaðið - 22.07.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 43 HUGVEKJA S agan segir að eitt sinn hafi tveir vinir verið á gangi í eyðimörk. Á leiðinni fóru þeir að rífast, og annar gaf hinum léttan kinnhest. Honum sárnaði að vonum, en án þess að segja nokkuð skrifaði hann í sandinn: „Í dag gaf besti vinur minn mér, einn á ann!“ Þeir héldu nú áfram göngunni þar til þeir komu að vatnslind og óðu út í. Sá sem kinnhestinn fékk var nærri drukknaður. En þá bjargaði vinurinn honum. Þegar hann hafði jafnað sig, risti hann í stein: „Í dag bjargaði besti vinur minn mér frá drukknun.“ Vinurinn sem bæði hafði hrellt hann og bjargað spurði: „Þegar ég sló þig skrifaðir þú í sandinn og nú ristir þú texta á steininn. Hvað kemur til?“ Hinn svaraði: „Þegar einhver særir þig áttu að skrifa um það í sandinn, þar sem blær fyrirgefn- ingarinnar getur eytt því. En þegar einhver gerir þér gott áttu að meitla það í stein þar sem eng- inn getur eytt því.“ Lærðu að skrifa sárindi þín í sandinn en hamingjuna í stein. --- Til er saga af litlum dreng sem var afar geðvondur. Faðir hans gaf honum naglapakka og sagði honum að í hvert sinn sem hann missti stjórn á skapi sínu skyldi hann negla einn nagla í bakhlið grindverksins. Fyrsta daginn negldi dreng- urinn 37 nagla í grindverkið. Næstu vikur lærði hann að hafa stjórn á reiði sinni og negldum nöglum fækkaði dag frá degi. Hann uppgötvaði að það var auð- veldara að hafa stjórn á skapi sínu en að negla alla þessa nagla í girðinguna. Loks rann upp sá dagur að enginn nagli var negldur og drengurinn hafði lært að hafa stjórn á sér. Hann sagði föður sínum þetta og hann lagði til að nú drægi drengurinn út einn nagla fyrir hvern þann dag sem hann hafði stjórn á skapi sínu. Dagarnir liðu og loks gat drengurinn sagt föður sínum að allir naglarnir væru horfnir. Fað- irinn tók soninn við hönd sér, leiddi hann að grindverkinu og sagði: „Þú hefur staðið þig með prýði, en sérðu öll götin á grind- verkinu? Það verður aldrei aftur eins og það var áður. Þegar þú segir eitthvað í reiði skilur það eftir ör alveg eins og naglarnir.“ Þú getur stungið mann með hnífi og dregið hnífinn aftur úr sárinu, en það er alveg sama hve oft þú biðst fyrirgefningar, örin eru þarna samt áfram. Ör sem orð skilja eftir sig geta verið jafn- slæm og líkamleg ör. Vinir eru sjaldgæfir eins og demantar. Þeir hlusta á þig, skiptast á skoðunum við þig og opna hjarta sitt fyrir þér. Ef okk- ur finnst að við höfum ekki gætt okkar og ef til vill skilið eftir göt í grindverki einhvers sem okkur er kær, ættum við alltaf að vera fljót til að leita sátta og biðja fyr- irgefningar. --- Danski presturinn Skovgaard Petersen segir á einum stað: „Einu sinni prédikaði ég í kirkju á Jótlandi. Uppi á kór- grindunum stóðu tréskurð- armyndir af postulunum. Þær voru fagrar og áhrifamiklar séðar framan úr kirkjunni. En þegar ég sneri mér frá altarinu og horfði aftan á þær, sá ég mér til angurs að þær voru holar að innan. Þetta vakti með mér alvarlegar hugs- anir. Þetta gerði svo sem post- ulunum ekkert til. Þeir þoldu það. Þeir voru allir heilsteyptir menn. En mér varð hugsað til okkar hinna. Hvernig litum við út? Ekki framan úr kirkjunni, eins og söfnuðurinn sá okkur, heldur séð frá altarinu – með augum Guðs?“ --- Að lifa er: að elska það sem í oss finnum best. Að lifa er: að leitast við að lífga það sem mest. Að lifa er: að láta sjást hvað lífið gilda kann. Að lifa er: að hegðun hrein æ, heiðri sannleikann. Að lifa er: að losa úr hug allt logið, rangt og spillt. Að lifa er: í sinni sál að sjá Guðs tillit milt. Naglarnir Dæmisögur voru ein leið meistarans til að koma boðskap sínum á framfæri, eins og víða má lesa í samstofna guðspjöllunum. Sigurður Ægisson er með eitt og annað til umhugsunar af þeim toga í dag, en allt samt úr nútímanum. sigurdur.aegisson@kirkjan.is Sumarbrids á Akureyri Alla þriðjudaga í sumar er spilað bridge í hinu nýja og flotta húsnæði Bridgefélags Akureyrar í Lionssaln- um við Skipagötu. Mæting tók kipp við flutninginn þrátt fyrir að margir væru í sumarleyfum, þar á meðal fréttaritarinn. Hér eru úrslit undanfarin kvöld: 3. júlí, 6 pör: Víðir Jónsson – Reynir Helgason +9 Gissur Jónasson – Jón Sverrisson +7 Ragnh. Haraldsd. – Ólína Sigurjónsd. +5 10. júlí, 8 pör. Hér kom ótrúleg staða upp svo við verðum að birta fleiri sæti: Pétur Guðjónsson – Víðir Jónsson +13 Marinó Steinarsson – Ólafur Steinarsson +4 Björn Þorláksson – Bragi Jóhannsson +3 Gissur Jónasson – Jón Sverrisson +2 17. júlí, 10 pör: Reynir Helgason – Frímann Stefánsson +33 Hermann Huijbens – Stefán Vilhjálmss.+21 Ólína Sigurjónsd. – Ragnh. Haraldsd. +18 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Föstudaginn 29 júní var spilað á 12 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Ragnar Björnss. – Gísli Víglundsson 289 Björn Árnason – Ólafur Gíslason 256 Björn Karlsson – Jens Karlsson 233 A/V Magnús Oddsson – Óli Gíslason 269 Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldsson 259 Bragi V. Björnss. – Oddur Jónsson 250 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is JARÐIR - LANDSPILDUR - SUMARHÚS YFIR 100 BÚJARÐIR OG LANDSPILDUR OG UM 60 SUMARHÚS Á SÖLUSKRÁ FM EINNIG Á SÖLUSKRÁ MIKILL FJÖLDI EIGNA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU. Sjá nánar á www.fmeignir.is - www.fasteignamidstodin.is Jörðin Lambafell er upprunalega 200 hektarar að stærð og samanstendur af fjalli, sem er metið um 80 hektarar, og undirlendi fyrir framan/sunnan fjallið og dal, Fjalldalur, fyrir ofan/norðan fjallið. Lambafell og Lambafellsheiði koma beint suður úr hábungu Eyjafjal- ljökuls. Jörðunum Lambafell og Seljavellir fylgir mikil hitaréttindi sem hafin var nýting á 2003. Jörðinni Lambafell he- fur verið skipt upp í nokkrar lóðir, að hluta verið tekin úr landbúnaðarnotkun, reist gistihús, 2 gistihýsi, lögð hitavei- ta, um 600 fm kanadískt bjálkahús með þrefölfdum bílskúr. Verið er að vinna að aðalskipulagsbreytingum vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á jörðinni á heilsudvalarstað með starfstengslum við 28 húsa þorp. Miklir möguleikar eru á uppbyggingu frístundabyggðar á jörðinni og í tengslum við heilsuhótelið. Jörðin er einstök undir hábungu Eyjaf- jallajökuls, fáir staðir þar sem rís jafn hratt land frá flatlendi upp í um 1670 metra háa bungu jökulsins. Hitaréttindin opna einstaka mögu- leika á uppbyggingu ásamt þjónustu við nágrannabyggðir. Jörðin er aðeins 150 km frá Reykjavík og malbiki og láglendi. Þjóðvegur 1 fer í gegnum jörðina. Allar nánari uppl. veitir Hákon í síma 898-9396, Óskað er eftir tilboði í jörðina Hákon Svavarsson löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali. LAMBAFELL UNDIR EYJAFJÖLLUM            Kirkjubraut 5, Akranesi og Grensásvegi 13, Reykjavík Beint nr. 570-4824 Fax 570-4820 Gsm 898-9396 Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali SVARFHÓLSSKÓGUR ÞRASTARLUNDUR B-gata 3 (land á milli Þingvallavegar og Kóngsvegar). Samtals er húsið 69,3 fm, þ.e. sumarhús auk úti- geymslu, u.þ.b. 4 fm. Húsið er 52,5 fm og gestahús er 16,8 fm. Um er að ræða vandaðan bústað á frábærum stað. Eignarlóð (innbú fylgir). Verð 16,5 millj. Sölumaður: Sigurður, sími 898 3708. Mjög fallegt, samtals um 90 fm, hús á 11.300 fm lóð (tvær lóðir) í landi Svarfhóls í Svínadal. Tvö rúmgóð svefnherb. á neðri hæð og eitt stórt á efri hæð. Húsið er 68,3 fm auk svefnlofts um 25 fm. Sérstaklega vandað, hlýlegt og fallegt hús með öllum búnaði. Fullbúið eldhús, rafmagn, hitaveita, heitur pottur. Stór og góð verönd. Mikill gróður en á unda- förnum árum hefur mikið verið gróðursett á lóðinni. Stutt í veiði, golf og sund. Verð 25 millj. Sölumaður: Þórhallur, sími 896 8232.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.