Morgunblaðið - 22.07.2007, Side 50
50 SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Björk Guð-munds-dóttir er nú
á ferð um heiminn til þess
að kynna nýjasta geisla-disk
sinn, sem heitir Volta.
Ferðin hófst með
tón-leikum í Laugar-dals-höll
í apríl og er nú hálfnuð.
Björk hefur þegar leikið á
stærstu úti-hátíðum Evrópu,
á Glaston-bury á Eng-landi
og Hróars-keldu-há-tíðinni.
Þá hefur hún líka leikið á
há-tíðum í Pól-landi og
Belgíu og síðar í mánuðinum
verður hún á Ítalíu og Sviss.
Björk hélt í ferðinni
þrenna tón-leika á Spáni.
Spán-verjar vildu fá fleiri
tón-leika, einkum íbúar í
Barce-lona, en þar er Björk
mjög vin-sæl. Á
tón-leikunum í Bilbao vakti
hrifningu þegar hún
tileinkaði Lagið „De-clare
Inde-pendence“ (Lýsið yfir
sjálf-stæði)
sjálf-stæðis-baráttu Baska,
en á hátíð-inni í
Hróars-keldu til-einkaði hún
lagið Fær-eyingum.
Heims-reisan hálfnuð
Björk í Baskalandi.
Myndun eyði-marka hefur
verið alvar-legt vandamál í
Kína í mörg ár. Ráða-menn
hafa sagt að jarð-vegs-eyðing
sé mesta
um-hverfis-vandamál sem
kínverjar glíma við.
Síðasta ára-tug hafa
Kín-verjar unnið hörðum
höndum við að koma í veg
fyrir land-fok og nú virðast
þeir loksins vera að ná
árangri. Myndir, sem
gervi-hnettir hafa tekið, sýna
að síðustu 5 ár hafa
eyði-merkurnar minnkað um
1200 fer-kíló-metra á ári.
Frá árinu 1981 hafa
tæplega 50 millj-arðar af
trjám verið gróðursettir í
Kína. Formaður kínverska
skóg-ræktar-ráðsins hefur
sagt að stjórn-völd stefni að
því að 26% landsins verði
vaxið skógi árið 2020.
Víða um heim hefur
stækkun eyði-marka verið
mjög alvar-legt vanda-mál.
Þegar eyði-merkur stækka
vaxa þurrkar og fram-leiðsla
mat-væla minnkar. Menn sér
grein fyrir þessari hættu og í
mörgum löndum er reynt að
koma í veg fyrir að
eyði-merkur stækki.
Eyði-
merkur
minnka
Föstu-daginn 19. júlí klukkan
eina mín-útu yfir ellefu var
farið að selja sjöundu bókina
um Harry Potter. Þetta er
síðasta bókin um
galdra-strákinn og vini hans.
Margir voru því mjög spenntir.
Sumir biðu í röðum fyrir
framan bóka-búðir til að
tryggja sér ein-tak. Þrjár
ís-lenskar stúlkur biðu í meira
en sólar-hring fyrir utan
bóka-búðina Nexus til að
verða örugg-lega fyrstar í
röðinni.
Það var mikil öryggis-gæsla
vegna út-gáfu bókarinnar.
Einhverjum tókst samt að
taka myndir af hverri einustu
síðu í bókinni og setja á netið
áður en hún kom út. Það er
ó-lög-legt.
Áður en sjötta bókin kom
út höfðu upp-lýsingar um
sögu-þráð hennar lekið út.
Sagt var frá sögu-lokum á
mörgum vef-síðum og því
komust margir að því hvernig
bókin endaði, án þess að
vilja það. J.K. Rowling,
höfundi bókanna, finnst
þetta mjög miður.
Harry
kveður
Á Ísa-firði eru menn nú
upp-teknir við að undir-búa
Evrópu-meistara-mótið í
svo-kallaðri
mýra-knatt-spyrnu.
Hálf-dán Bjarki
Hálf-dáns-son hefur verið
ráðinn „drullu-sokkur“
mótsins og hefur um-sjón
með því. Mótið verður háð
dagana 3.-5. ágúst og leikið
verður á fjórum völlum í
Tungu-skógi. Ýmis-legt verður
til skemmtunar fyrir
móts-gesti.
Mýra-knatt-spyrna er
til-tölu-lega ný en er orðin afar
vin-sæl íþrótt í Finn-landi og
eru þar haldin fjöl-menn mót
á hverju sumri. Leikið er í
mýr-lendi og þykir það hin
mesta skemmtun. Mótið á
Ísa-firði er nú haldið þar í
fjórða skipti.
Mýra-knatt-
spyrna
Um 7-leytið á
mánu-dags-kvöld í síðustu
viku hrapaði þyrla
Land-helgis-gæslunnar,
TF-SIF, í sjóinn rétt hjá
Straums-vík við Hafnar-fjörð.
Þyrlan var þar á
björgunar-æfingu ásamt
á-höfn björgunar-bátsins
Einars Sigur-jóns-sonar.
Um borð í þyrlunni voru
fjórir menn og björguðust þeir
allir um borð í
björgunar-bátinn.
Skömmu eftir að þyrlan
lenti í sjónum gaf fram-flot
hennar sig. Hvolfdi þyrlunni
þá, en hún flaut áfram á -öðru
flotinu.
Mjög gott veður var á
slys-staðnum og auð-veldaði
það allar björgunar-aðgerðir.
Um 30 manns tóku þátt í
björgun þyrl-unnar. Kafarar
tóku spaðana af henni. Var
þyrlan síðan dregin í land um
kvöldið og flutt í flug-skýli
Land-helgis-gæslunnar.
Björn Bjarna-son,
dóms-mála-ráð-herra, fór á
slys-staðinn ásamt Georg
Lárus-syni, for-stjóra
Land-helgis-gæslunnar. Björn
sagðist afar þakk-látur fyrir
að mönnunum skyldi bjargað.
Strax verður reynt að útvega
nýja þyrlu en TF-SIF er
senni-lega ó-nýt. Ekki er vitað
hvað olli þessu ó-happi, en
rann-sókn er hafin.
Á-höfn þyrlu bjargað
Morgunblaðið/ÞÖK
Þyrlan TF-SIF hrapaði á góðviðrisdegi.
Ingi-björg Sól-rún Gísla-dóttir,
utan-ríkis-ráð-herra, var í
síðustu viku í opin-berri
heim-sókn í Ísrael.
Á mið-viku-daginn var hitti
hún Shimon Peres, sem
ný-lega tók við embætti
for-seta Ísraels. Var búist við
að fundur þeirra stæði í 20
mínútur en þau ræddu
saman í rúma klukku-stund.
Skiptust þau á skoðunum um
al-þjóð-leg stjórn-mál og
ástandið í Ísrael og
Palestínu. Var Ingi-björg
fyrsti, erlendi
stjórn-mála-leið-toginn, sem
Shimon hitti eftir að hann
varð for-seti.
Eftir fundinn með
for-setanum heim-sótti hún
ísrelska þingið og ræddi við
forystu-menn þess.
Þá heim-sótti hún
fjöl-skyldu sem ný-lega hafði
orðið fyrir eld-flauga-árás.
Daginn eftir fór hún yfir á
vestur-bakka Jórdan-árinnar
og hitti m.a. Mahmoud
Abbas, leið-toga
Palestínu-manna og Salem
Fayyad, for-sætis-ráð-herra.
Óskuðu þeir eftir að-stoð
al-þjóða-sam-félagsins við
endur-reisn á svæðum
Palestínu-manna. Þá kynnti
hún sér hjálpar-starf Rauða
Krossins á meðal
Palestínu-manna.
Ingi-björg fór einnig til
Betlehem til að kynna sér
ástandið þar.
Ingi-björg Sól-rún í Ísrael
Ingibjörg Sólrún fór til Ísrael
og Palestínu. Netfang: auefni@mbl.is