Morgunblaðið - 22.07.2007, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚLÍ 2007 51
Félagsstarf
Ferðaklúbbur eldri borgara | Frá
Skagafirði verður ekið inn á hálendið
að Laugafelli og þaðan niður í Eyja-
fjörð og inn á Akureyri. Hrísey, Dalvík,
Ólafsfjörður, Svarfaðardalur og
Skíðadalur. Uppl. og skráning í síma
892-3011, Hannes. Eigum laus sæti í
ferðina 30. júlí til 3. ágúst í Flateyj-
ardal og Fjörð.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Skráning fer nú fram í dags-
ferð í Veiðivötn og virkjanir fimmtu-
daginn 26. júlí, ennfremur í tveggja
daga ferð í Landmannalaugar, Eldgjá
og Lakagíga. Nánari upplýsingar og
skráningarlistar eru á töflum fé-
lagsmiðstöðvanna Gjábakka s. 554-
3400 og Gullsmára s. 564-5260.
Félagstarfið Langahlíð 3 | Ferðalag á
Nesjavelli og Þingvöll næstkomandi
þriðjudag 24. júlí. Lagt verður af stað
kl. 13. Kaffi verður drukkið á Hótel
Valhöll. Kostnaður á mann verður um
3.000 kr. Nánari upplýsingar í síma
552-4161.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Ferð um
Reykjanes fimmtudaginn 26. júlí kl.
13. Farið um Kálfatjörn, Voga, Kefla-
vík, Sandgerði, Hvalsnes og Stafnes
síðan um Hafnir að Reykjanestá. Síð-
an í Grindavík í Saltfisksetrið. Kaffi
drukkið í Bláa Lóninu.
Kirkjustarf
Fríkirkjan Kefas | Almenn samkoma
kl. 20. Sigrún Einarsdóttir prédikar.
Lofgjörð og fyrirbænir í lok samkomu
fyrir þá sem vilja. Kaffi og samvera
eftir samkomu. Allir velkomnir.
Viðey | Kl. 14.30 verður klaust-
urmessa í Viðeyjarkirkju. Sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson messar, Voces
Thules syngur nokkur lög og sr. Þórir
Stephensen flytur erindi um Viðeyj-
arklaustur. Eftir messu verður leið-
sögn um klausturrústirnar. Siglt er
frá Sundahöfn kl. 14.15 og kaffisala er
í Viðeyjarstofu til kl. 17.
Morgunblaðið/Golli
Gjöf frá söngelskum
drengjum | Vinirnir Baldvin
Fannar Guðjónsson, 6 ára,
og Sigurður Magni Fann-
arsson, 7 ára, gáfu Rauða
krossinum 1.324 krónur sem
þeir söfnuðu með því að
syngja frumsamin lög og
Gamla Nóa fyrir vegfar-
endur. Peningarnir renna til
aðstoðar börnum úti í heimi
sem ekki búa við viðunandi
lífskjör. Á myndinni má sjá
Sigurð Magna Fannarsson
með fenginn.
Hlutavelta | Þessar duglegu stelpur, Þorbjörg Andrea Ásgrímsdóttir
og Karen Kristín Vignisdóttir, héldu tombólu og færðu Rauða kross-
inum ágóðann, 5.414 krónur.
dagbók
Í dag er sunnudagur 22. júlí, 203. dagur ársins 2007
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. (Lúkas 6, 44.)
Fáskrúðsfirðingar haldaFranska daga helgina 27. til29. júlí. Margt verður um aðvera í bænum, eins og Berg-
lind Ósk Agnarsdóttir framkvæmda-
stjóri hátíðarinnar segir frá: „Hátíðin
er nú haldin í tólfta sinn en á Frönsk-
um dögum minnumst við sögu franskra
sjómanna við bæinn sem spannar rösk-
lega þrjár aldir. Hér áttu franskir sjó-
menn verbúð, starfræktu stóran spít-
ala og kapellu, og margir þeirra báru
hér beinin og eru jarðsettir í franska
grafreitnum,“ segir Berglind.
Á Frönskum dögum er boðið upp á
skemmtun fyrir alla fjölskylduna:
„Haldin verður skemmtidagskrá á
sviði í bænum þar sem allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Þar koma m.a.
fram nemendur tónlistarskólans í
sveitarfélaginu, og við höfum fengið
hingað til lands hæfileikaríkan ungan
franskan listamann sem syngur og
leikur fyrir gesti hátíðarinnar,“ segir
Berglind.
Haldinn verður tjaldmarkaður á
meðan á hátíðinni stendur, þar sem
hægt verður að finna margs konar
handverk og muni, gómsæt matvæli úr
héraði og jafnvel bókmenntaverk frá
bókaútgáfu staðarins: „Við viljum sýna
gestum hvað við erum að bardúsa hér
austur á fjörðum og endurspegla fjöl-
breytnina,“ segir Berglind.
Safnið Fransmenn á Íslandi verður
að sjálfsögðu opið á meðan á hátíðinni
stendur: „Við höldum einnig sýningu á
þjóðbúningum, flugvélamódelum og
myndlist, svo eitthvað sé nefnt,“ segir
Berglind af dagskrá Franskra daga.
Hefð hefur skapast á Frönskum
dögum fyrir tónleikum Bergþórs Páls-
sonar í Fáskrúðsfjarðarkirkju: „Berg-
þór fær hvert ár einhvern valinkunnan
listamann með sér, og eru tónleikarnir
eru ætíð vel sóttir, og franskir tónar í
aðalhlutverki,“ segir Berglind en
Diddú syngur með Bergþóri að þessu
sinni.
Brekkusöngur og flugeldasýning
verður að kvöldi föstudagsins, þegar
hátíðn verður formlega sett og á laug-
ardagskvöld verður haldinn harm-
onikkudansleikur, unglingadansleikur
og stórdansleikur síðast um kvöldið
þar sem hljómsveitin Buff spilar.
Finna má nánari upplýsingar um
Franska daga á heimasíðu Fjarða-
byggðar á slóðinni www.fjardabyggd-
.is.
Hátíð | Fjölbreytt dagskrá á Frönskum dögum helgina 27. til 29. júlí
Fjör á Fáskrúðsfirði
Berglind Ósk
Agnarsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 1964. Hún
stundaði nám við
Alþýðuskólann á
Eiðum og þá við
Fjölbrautaskólann
í Ármúla og lauk
loks námi frá
Fóstruskóla Íslands 1989. Hún starf-
aði hjá leikskólum Reykjavíkur og
leikskóla Fáskrúðsfjarðar, fyrst sem
leikskólakennari og síðar deild-
arstjóri og leikskólastjóri. Berglind er
gift Hans Óla Rafnssyni launafulltrúa
og eiga þau tvö börn.
Mannfagnaður
Reykir, Hrútafirði | Boðið verður til
Sagnavöku að Reykjum í Hrútafirði, þar
sem fram kemur helsta sagnafólk Norð-
urlanda og Skotlands, ásamt íslensku
sagnafólki. Fjölbreytt dagskrá með sögum
og söngvum. Aðgangur ókeypis. Allir vel-
komnir.
Tónlist
Akureyrarkirkja | Sumartónleikar kl. 17.
Flytjendur eru Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðlu-
leikari, Sólbjörg Björnsdóttir, sópran og
Björn Steinar Sólbergsson, orgelleikari. Á
efnisskránni er fjölbreytt tónlist. Tónleik-
arnir standa í klukkustund og er aðgangur
ókeypis.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn | KK &
Maggi Eiríks halda tónleika í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum kl. 15. Á efnisskránni
verða lög af nýrri plötu þeirra félaga
„Langferðalög“ auk margra þekktra söng-
laga úr fórum þeirra félaga.
Hallgrímskirkja | Hannfried Lucke, pró-
fessor í orgelleik við Mozarteum í Salz-
burg, leikur á kvöldtónleikum, 22. júlí kl.
20. Á efnisskránni eru verk eftir J.L.
Krebs, Dietrich Buxtehude, J.S. Bach, Jo-
hannes Brahms, Felix Mendelssohn, Mau-
rice Duruflé og Louis Vierne.
Börn
Patreksfjörður | Leikhópurinn Lotta mun
sýna barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi á
Sjúkrahústúninu á Ísafirði kl. 14 í dag. Upp-
lýsingar og miðasala í s. 699-3993 og á
www.123.is/dyrinihalsaskogi.
Útivist og íþróttir
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd
(SJÁ) | Sjálfboðaliðasamtök um nátt-
úrvernd fara í vinnuferð í þjóðgarðinn í
Jökulsárgljúfri 30. júlí–6. ágúst nk. Tveir
möguleikar. Annars vegar löng ferð þar
verið er allan tímann eða styttri ferð sem
þátttakendur taka sem hluta af sumarleyfi.
Upplýsingar í s. 8656677 og 8957609.
HIN ellefu ára gamla Kristin
Turgeon les blindraletursútgáfu af
sjöundu og síðustu bókinni um
galdrastrákinn Harry Potter í Bost-
on í Massachusetts í gær.
Í þessari útgáfu er Harry Potter
and the Deathly Hallows heilar
1100 blaðsíður og vegur um fimm
kíló.
Harry Potter fyrir alla
Reuters
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi ályktun frá stjórn smá-
bátafélagsins Reykjaness:
„Við teljum að stofnstærðar-
mælingar Hafró séu byggðar á
alltof veikum grunni til þess að
ákveða heildaraflamark hvers
fiskveiðiárs fyrir sig. Togararall-
ið er látið vega 100% í þeirri
ákvörðun, en þar kemur fram að
áætlað mat þorskstofnsins sé á
bilinu 565-580 þúsund tonn. Þeg-
ar þeir styðjast við togararall og
mælingar á fiski er stofninn á
bilinu 620-640 þúsund tonn. Ef
stuðst er við mælingar úr haust-
ralli 2006 er þorskstofninn áætl-
aður 810-830 þúsund tonn.
Hvað er búið að gerast á þess-
um fáu mánuðum?
Meðalþyngdartölur falsaðar
Það skyldi þó aldrei vera að
það væri verið að finna verstu út-
komuna til að menn hrykkju
nógu mikið við. Áætluð þyngd
Hafró á fimm aldursflokkum
þorsks 10-14 ára gamals er út úr
öllu korti miðað við meðaltal á ár-
unum frá því mælingar hófust.
Að halda því fram að þorskur 10
ára með meðalþyngd upp á 8,728
kg vigti 5,819 kg og 14 ára þorsk-
ur með meðalþyngd 15,317 kg
vigti 6,943 kg í dag er ekkert ann-
að en fölsun á tölum til að ná nið-
ur þyngd og stærð þorskstofns-
ins.
Ef eitthvað er til í þessum töl-
um skuldar Hafró okkur og
landsmönnum öllum skýringu á
því hvað er að gerast í hafinu.
Botntroll á ekki að leyfa á
hrygningarsvæðum
Mikið er talað um að nýliðun
undanfarin ár sé mjög slæm og
eigi eftir að koma illa niður
seinna. Smábátafélagið
Reykjanes hefur undanfarin ár
ályktað um friðun viðkvæmra
hrygningarsvæða fyrir botn-
dregnum veiðarfærum því við
teljum að skark með botn-
dregnum veiðarfærum skaði
skjól og botngróður sem er
mikilvægur fyrir hrogn og við-
kvæmt ungviðið. Svæðið hérna
við Reykjanes er eina svæðið
við landið þar sem togurum,
allt að 42 metrar, er hleypt upp
á 4 sjómílur frá landi vestur úr
Sandgerði, einnig mega þeir
toga upp að 3 sjómílum suður
af Grindavík. Þessi svæði eru
mjög mikilvæg hrygningar-
svæði þorsks, ýsu og síldar,
sem er í bullandi hrygningu
þarna núna.
Smábátafélagið Reykjanes
hefur margítrekað bent sjávar-
útvegsráðuneytinu á þessi at-
riði en þeir hafa alltaf skellt
skollaeyrum við því!
HHÍ og 12 milljónir tonna
Hagfræðistofnun Háskóla
Íslands gaf út þá yfirlýsingu að
best væri að hætta að veiða
þorsk í 2-4 ár og stækka þannig
stofninn í um 1.200 þúsund
tonn!
Það er auðsjáanlegt að hag-
fræði er ekkert skyld vistfræði.
Halda hagfræðingarnir að
þorskurinn lifi á sjónum einum
saman?
Þorskstofninn þarf á tífaldri
þyngd sinni af fæðu að halda á
ári og því þarf 600 þúsund
tonna stofn á u.þ.b. 6 milljónum
tonna af fæðu að halda á ári. Ef
stofninn er 1.200 þúsund tonn
þarf um 12 milljónir tonna.“
Telja mælingar
Hafró byggðar
á veikum grunni
FRÉTTIR