Morgunblaðið - 09.08.2007, Síða 1
STOFNAÐ 1913 214. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
MÁLIN Á HREINU
SAUMAR KLÆÐIN Á SPAUGSTOFUMENN
OG AÐRA UGLUSPEGLA Í SJÓNVARPINU >> 18
ÍGILDI ANDÓFS EÐA
ÓMERKILEGT KROT?
GRAFFITÍ
AF LISTUM >> 15
FRÉTTASKÝRING
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
GIN- og klaufaveiki hefur fundist
á þremur kúabúum í Bretlandi en
aðeins sex ár eru síðan þarlendir
bændur urðu fyrir miklum búsifjum
af völdum veikinnar. Hún hefur
aldrei fundist á Íslandi.
Gin- og klaufaveiki er bráðsmit-
andi veirusjúkdómur sem herjar að-
allega á nautgripi, kindur, svín, geit-
ur og villt klaufdýr, t.d. hreindýr.
Þar sem veikin kemur upp drepast
að meðaltali um 5% búfjárins en
dæmi eru um mun hærri dánartölu.
Smit berst helst með lifandi dýrum
og dýraafurðum, hráu kjöti og
mjólk. Þá getur fólk borið smit á
milli, til dæmis með skófatnaði.
Menn hafa sýkst af gin- og klaufa-
veiki en það er sjaldgæft og hún ger-
ir þeim sem sýkjast lítið mein.
Vorið og sumarið 2001 geisaði gin-
og klaufaveiki í Bretlandi og greind-
ist hún þá í 2.000 tilvikum á býlum
um allt Bretland. Slátra þurfti sjö
milljónum nautgripa og sauðfjár áð-
ur en tókst að hefta útbreiðslu sjúk-
dómsins og var tjónið talið nema
átta milljörðum punda.
Íslensk yfirvöld brugðust þá við
með því meðal annars, að ferðamenn
voru látnir stíga á sérstakar sótt-
hreinsimottur við komuna til lands-
ins og ökutæki sem komu með ferj-
unni Norrænu voru hreinsuð
sérstaklega. Þá var venju fremur
reynt að hindra smygl á matvælum
inn í landið og upplýsa ferðafólk um
smithættuna.
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir segir að gripið verði til svipaðra
aðgerða nú ef sjúkdómurinn breiðist
út. Landbúnaðarráðuneytið og land-
búnaðarstofnun fylgist náið með
fréttum og fái tilkynningar um allar
aðgerðir sem gripið er til og mælt er
með gegn sjúkdómnum. Hann bend-
ir á að innflutningi á dýrum og af-
urðum sé þegar stýrt af yfirvöldum
hér á landi og því ekki þörf á sér-
stökum aðgerðum í þá átt.
Reuters
Á beit Gin- og klaufaveiki ógnar
búfénaði á Bretlandseyjum á ný.
Breskur
búfénað–
ur í hættu
Gin- og klaufa-
veiki greinist á ný
ÓSKILAMUNIR þjóðhátíðargesta
fylltu geymslu lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum eftir verslunarmanna-
helgi. Þurfti tvo pallbíla til að koma
þeim á lögreglustöðina, m.a. við-
legubúnaði, fatnaði, farsímum og
myndavélum. Í gær var búið að
sækja eða senda megnið af dótinu en
enn var eitthvað eftir, m.a. farsímar.
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Þöglir „þjóðhátíðargestir“ í óskilum
Í ÚKRAÍNU er búsettur 37 ára gamall maður sem er enn
hávaxnari en hinn kínverski Bao Xishun, sem sæmdur var
titlinum hávaxnasti maður í heimi árið 2005. Xishun er
2,36 m á hæð en hinn nýi heimsmethafi, Leonid Stadnyk,
mælist 2,58 m og er því 22 cm hærri en Xishun. Stadnyk
hefur áður fullyrt að hann sé hæsti maður í heimi en hefur
harðneitað að láta mæla hæð sína þar til nú.
Stadnyk er menntaður dýralæknir en neyddist til að
hætta störfum fyrir sex árum. Ástæðan var sú að hann
hafði ekki efni á skóm og fékk því frostbit. Erfitt er fyrir hann að finna skó
enda notar hann skóstærð nr. 64. Stadnyk býr nú hjá móður sinni í Podoly-
antsí og sér þar um búskapinn og ræktar grænmeti. Viktor Yushchenko, for-
seti Úkraínu, óskaði Stadnyk til hamingju með heimsmetið.
Hæsti maður heims
nú 22 cm hærri
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ (FME)
hefur upplýst að þremur brotum á
flöggunarskyldu í Kauphöll Íslands,
sem kærð voru til ríkislögreglustjóra
(RLR), hafi verið lokið með sektar-
gerðum þar sem hverjum aðila var
gert að greiða 200.000 krónur.
Ekki var gefin út ákæra í málun-
um og birtir FME ekki nöfn aðila.
Brot á flöggunarskyldu er þegar
aðilar tengdir inn í félag tilkynna
ekki samdægurs um breytingar á
eignarhaldi í því. Sá fyrsti dró í tvær
vikur að tilkynna flöggun, annar í
þrjár vikur og sá þriðji um dag.
Hann hafði áður fengið athugasemd-
ir vegna tveggja brota.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, sagði hlutverk
hennar að skýra Fjármálaeftirlitinu
frá brotum. „Þetta er lögbrot og það
er fyrst og fremst á valdi þeirra að
taka ákvörðun um hvort mál eru
send lengra.“ | Viðskipti
Þrjú brot
á flöggun-
arskyldu
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
SÖKUM tækjaskorts og ónógs fjölda
rúma á legudeildum hefur erfiðlega
gengið að stytta biðlista eftir hjarta-
þræðingum á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi. Þá hefur eftirspurnin eft-
ir slíkum aðgerðum aukist síðastliðin
ár, m.a. vegna stækkandi hóps eldri
borgara sem þurfa á aðgerðinni að
halda.
Að sögn Guðmundar Þorgeirsson-
ar, sviðsstjóra lyflækningadeildar I,
er vonast til að nýtt hjartaþræðing-
artæki verði tekið í notkun fyrri hluta
næsta árs samhliða þeim tveim sem
fyrir eru, en útboð fyrir tækið, sem
kostar um 120 millj., er þegar hafið.
Það er mat Guðmundar að með nýju
tæki sé nauðsynlegt að bæta við fleiri
gæslurúmum svo tækið nýtist til fulls.
Guðmundur segir nauðsynlegt að
halda rúmum hjartadeildar opnum og
tryggja stöðugt flæði en vegna mann-
eklu takist það ekki alltaf.
Óviðunandi bið
Hann telur að bæta þurfi bæði sér-
hæfðum hjartalækni og starfsfólki á
deildina en vegna mikils aðhalds í
rekstri spítalans hefur lítið fjármagn
verið afgangs í mannafla. Þetta sé
nokkuð sem bæði heilbrigðis- og fjár-
málaráðuneytið verði að athuga.
Um tvö hundruð manns eru nú á
biðlista eftir hjartaþræðingu og hefur
fjöldinn verið á því bili undanfarin
þrjú ár en í byrjun ársins 2004 var
listinn í lágmarki. Það ár var hins veg-
ar mikill niðurskurður og því snar-
fjölgaði þeim sem biðu aðgerðarinnar
og náði fjöldinn tvö hundruð manns
undir lok ársins og hefur haldist svo
til stöðugur síðan.
Í janúar var meðalbiðtími rúmir
tveir mánuðir en dæmi eru um að
sjúklingar bíði í 6-7 mánuði og segir
Guðmundur það óviðunandi.
Okkar Akkillesarhæll | 4
Tæki vantar til að vinna á
biðlistum á hjartadeildinni
Í HNOTSKURN
»Um tvö hundruð mannsbíða þræðingar og eru
dæmi þess að fólk hafi beðið
síðan í janúar.
»Helstu ástæður þessalanga biðtíma eru skortur
á tækjum og legurúmum.
»Tvö hjartaþræðingartækieru til staðar á LSH en þau
eru líka nýtt til annarra að-
gerða. Von er á þriðja tækinu
á næsta ári en slíkt kostar um
120 milljónir.
Fjölga þarf rúmum samhliða afhendingu nýs hjartaþræðingartækis á næsta ári