Morgunblaðið - 09.08.2007, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 47
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
HILDUR Ingveldardóttir Guðna-
dóttir sellóleikari og sænski raftón-
listarmaðurinn Benny BJ Nielsen
opna í kvöld klukkan 22 hljóðinn-
setninguna Brotin milli hleina á
Vesturveggnum, sem staðsettur er í
menningarmiðstöðinni Skaftfelli á
Seyðisfirði. Hljóðin koma ekki langt
að, úr firðinum sjálfum.
„Þetta er allt nýtt efni, unnið sér-
staklega fyrir Seyðisfjörð og tekið
upp hérna,“ segir Hildur. „Við tók-
um upp hljóðfæri í tónlistarskólan-
um á Seyðisfirði. Benny vinnur mik-
ið með umhverfishljóð og er sann-
kallaður hljóðlistamaður, þannig að
við erum búin að taka upp umhverf-
ið, fossana og steinana og allt þar í
kring og þaðan kemur titillinn.
Þetta er alveg spes Seyðisfjarð-
arverk, við reynum að taka upp það
sem við heyrum forvitnilegt hér á
staðnum og blöndum því saman og
setjum á Vesturvegginn.“
Þau hafa þó haft lítil tengsl við
Seyðisfjörð fram að þessu. „Ég hef
bara komið hingað einu sinni, þegar
ég var í hljómsveitinni Rúnk í gamla
daga og spilaði í félagsheimilinu. En
þetta er æðislegur staður.“
Möguleikar hljóðsins og
takmarkanir tölvunnar
Hildur hefur verið að spila tónlist
frá því hún var pínulítil, „fyrst að
læra á selló og svo í öllu þessu
hljómsveitarbraski,“ en þaðan er
hún væntanlega þekktust fyrir að
vera einn meðlima múm. En
hljóðinnsetningarnar byrjuðu á for-
vitni, „maður er með hefðbundin
hljóðfæri og venjuleg hljóð en setur
það allt í nýtt samhengi. Gerir til-
raunir og sér hvert maður getur
farið með formið, hvernig maður
getur notað hljóðfæri eða notað há-
talara og víkkað út möguleika
hljóðsins.“
Hildur leggur áherslu á að verkið
sé lífrænt. „Tölvur eru orðnar mjög
stór hluti af allri tónlist, með þeim
verður allt pínulítið sterílt og þá
verður forvitnilegra að nota venju-
legar leiðar og nota ekki effekta.
Þegar allir eru að nota sömu effekt-
ana fer þetta að hljóma voða mikið
eins.“
Á opnuninni sjálfri halda þau
Benny og Hildur hefðbundna tón-
leika en innsetningin mun hins veg-
ar standa út 30. ágúst og á þeim
tíma verður hún síbreytileg og fær
að öðlast sitt eigið líf. „Hljóðið kem-
ur út á fjórum mismunandi stöðum
og samsetningin blandast alltaf dag
frá degi.“
En er Seyðisfjörður eina bæjar-
félagið sem fær hljóðinnsetningu?
„Við erum mjög spennt fyrir áfram-
haldi og erum með alls kyns hug-
myndir að verkefnum sem okkur
langar að gera sem tengjast sjávar-
plássum þannig að ef einhver hefur
áhuga hvet ég þá bara til þess að
bjóða okkur.“
Seyðisfjarðarsól Hildur og Benny njóta veðurblíðunnar fyrir austan á milli þess sem þau leita að hljóðum.
Hljóðmynd
af Seyðisfirði
Tónleikar og hljóð - innsetningar Hildar og BJ Nielsen
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Borgartúni 29, 105 Rvk.
S ími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. faste ignasal i
Mjög fallegt og mikið endurnýjað, 155,1 fm, einbýlis-
hús á þessum skemmtilega stað í 101 Reykjavík.
Eignin er í dag; skemmtileg íbúð með rúmgóðu eld-
húsi, björtum eldhúskrók, borðstofu og stofu með
hurð út sólpall sem er í smíðum. Í risi er stórt og
skemmtilegt herbergi með kvistglugga, fataherbergi
með gluggum og fallegu endurnýjuðu, flísalögðu bað-
herbergi með sturtuklefa. Í kjallara er lítil íbúð. Hægt
er að hafa innangengt milli hæðar og kjallara þannig
að eignin sé samnýtt. Fallegir gluggar, hvíttuð hvíteik
á stofugólfi, flísar á eldhúsi og parket á herbergi.
Eignin er nýlega endurmúruð með múrkerfi sem ekki þarf að mála. Einstakt tækifæri að eignast einbýli
á frábærum stað. Verðtilboð.
Bókhlöðustígur - 101 Reykjavík
Fallegt 260 fm parhús á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr. Húsið var byggt árið 1982 og skipt-
ist neðri hæð í forstofu, baðherbergi tvö rúmgóð
svefnherbergi, sjónvarpsstofu, þvottahús og bílskúr.
Frá neðri hæð er gengið út á sólpall. Efri hæð skipt-
ist í tvær fallegar stofur, eldhús, búr, tvö svefnher-
bergi og baðherbergi. Frá stofu og hjónaherbergi er
gengið út á mjög stórar og flísalagðar svalir til suð-
urs. Verð 68 millj.
Aðalland - Fossvogur
Stórglæsilegt, 281 fm, einbýlishús á tveimur hæðum
með innbyggðum bílskúr á frábærum útsýnisstað.
Húsið er fokhelt og selst í núverandi ástandi. Glæsi-
legt útsýni er yfir Elliðavatn, Esjuna og fl. af efri hæð
hússins og er hönnun hússins einstaklega vel heppn-
uð með mikilli lofthæð og stórum gluggum. Húsið er
þegar tilbúið til afhendingar. Verð 59,9 millj.
Faxahvarf - Útsýni
Nýtt á sölu. Fallegt steniklætt, 170,3 fm, raðhús á
tveimur hæðum með bílskúr. Á neðri hæð er flísalögð
forstofa, 3 svefnherbergi með eikarparketi, flísalagt
baðherbergi, góð geymsla með hillum, þvottahús með
útgengi út í bakgarð sem er með hellum, þvottasnúru
og grasbletti. Skemmtilegt skot er undir stiganum,
sem einnig er með fallegu eikarparketi eins og her-
bergin. Stálstigi með viðarþrepum er upp á efri hæð
en þar er opin og rúmgóð borðstofa, gott eldhús og
stofa með sv.svölum og ljósu teppi. Á eldhúsi og borð-
stofu er eldra parket á gólfi. Á hæðinni er einnig gott
herbergi með skápum. Efri hæðin er opin og skemmtileg með rúmgóðri borðstofu. Eignin er mjög vel
með farin og rúmgóð. Bílskúrinn er stakstæður og góð bílastæði við hann. Verð 36,9 millj.
Flúðasel - Fallegt raðhús m/bílskúr
Mjög falleg, 124,6 fm, 4ra herb. endaíbúð með rúm-
góðum suðursvölum og frábæru útsýni. Eignin skipt-
ist í anddyri, gang, þvottahús, baðherb, 2 svefnherb.,
sjónvarpshol, eldhús, stofu og borðstofu. Fallegar
samstæðar innr. (kirsuber). Parket og flísar á gólfum,
rúmgóðar sv.svalir með frábæru útsýni. Lyftuhús.
Stæði í bílgeymslu fylgir. Verð 33,0 millj.
Kórsalir - Útsýni
Björt og rúmgóð, 102,9 fm, 3ja herb. íbúð á 3. (efstu)
hæð með fallegu útsýni. Sérinngangur, flísalögð for-
stofa, rúmgóð herbergi með eikarparketi sem einnig er
á holi og stofu, flísalagt baðherbergi m. innr. og bað-
kari, bjart eldhús m. flísum á gólfi og þvottahúsi inn af.
Stutt í veslun og þjónustu í Spöngina. Gott leiksvæði við
húsið. Fallegt hús að sjá. Verð 22,8 millj.
Laufrimi - útsýni
Falleg og frábærlega staðsett, 4ra herbergja, 108 fm
neðri sérhæð á þessum eftirsótta stað. Gólfefni eru
parket og flísar og hafa nýlega verið endurnýjuð. Eign-
in skiptist í dag í sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi,
eldhús, baðherbergi og anddyri. Möguleiki er á að
fórna einu svefnherbergi til að hafa tvær samliggjandi
stofur en stofan í dag er rúmgóð með útgangi út á
svalir. Verð 30,9 millj.
Rauðalækur - Sérinngangur
Nýtt á sölu. Opin og björt 4-5 herbergja, 134,4 fm,
hæð ásamt 40,4 fm bílskúr (samtals 174,8 fm) í hinu
gróna og vinsæla laugarneshverfi. Búið er að útbúa
íbúð með tveimur svefnherbergjum í bílskúr. Hæðin er
vel skipulögð og skiptist í rúmgott hol, þrjú svefnher-
bergi, eldhús, baðherbergi og tvær samliggjandi stof-
ur. Tvennar svalir til, austurs frá hjónaherbergi, og
suðurs frá stofu. Góðar geymslur fylgja eigninni. Verð
41,5 millj.
Laugateigur - aukaíbúð
Ný á sölu þessi skemmtilega 61,8 fm 2ja-3ja herb.
íbúð með aukaherbergi í kjallara m/aðgangi að snyrt-
ingu sem gefur útleigumöguleika. Stofa er björt með
svölum/útsýni, eldhús m/borðkrók v/glugga, Hjóna-
herb. m/skáp, baðherb. flísalagt m/baðkeri, anddyri
m/skáp. Á stofu og holi er parket. Á eldhúsgólfi og
herb. er dúkur. Sameign var máluð sl. vetur. Húsið er
allt steniklætt að utan. Góð íbúð m/möguleika á út-
leigu. Verð 16,8 millj.
Hraunbær - m/aukaherbergi
LAUGARDAGINN 11. ágúst verður
listsýning fjögurra þekktra lista-
manna í Skaftfelli og hefst hún kl. 17.
Erla Þórarinsdóttir sýnir verkið
„Sameign; opinber rými frá nýlendu-
og sjálfstæðistíma“. Um ræðir mál-
verk af grunnflötum opinberra bygg-
inga í Reykjavík og byggingarnar
eru Hegningarhúsið, Alþingishúsið,
Hnitbjörg, Kristskirkja, Háskólinn
og Hallgrímskirkja.
Hulda Hákon sýnir hluta verksins
„Munaskrá,“ 350 spjöld með áletr-
unum innihaldslýsinga jafnmargra
kassa í geymslu Reykjavíkurborgar
sem voru í eigu Jóhannesar Kjarvals
og gefa þannig ákveðna mynd af
vinnustofu listmálarans.
Jón Óskar sýnir nokkrar teikn-
ingar með fjölbreytilegum áherslum,
tilvísunum í listasögu en ekki síður í
veröld listamannsins og hans kyn-
slóðar.
Steingrímur Eyfjörð sýnir nýtt
verk sem ber heitið „Einar 1 til Ein-
ars 2“. Verkið er útlegging á tveimur
ljóðum eftir Einar Má Guðmunds-
son.
Einar 1 til Einars 2
Morgunblaðið/Eyþór
Ein fjögurra Erla Þórarinsdóttir.