Morgunblaðið - 09.08.2007, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hringdu í 530 2400 og kynntu þér málið!
www.oryggi.is
Prófaðu Heimaöryggi
í tvo mánuði í sumar
– ókeypis!
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Engin krafa er gerð um framhaldsviðskipti, engin skuldbinding!
Tilboðið er í boði á þeim þéttbýlisstöðum þar sem Öryggismiðstöðin
hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu.
Vegna fráb
ærra undir
tekta
framlengju
m við tilbo
ðið til
15. ágúst
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FULLTRÚAR Orkustofnunar skoð-
uðu framkvæmdasvæði við Fjarðar-
árvirkjun og funduðu með bæjar-
stjóra, bæjarverkfræðingi og
framkvæmdaraðila á Seyðisfirði í
gær. Hákon Aðalsteinsson, sérfræð-
ingur stofnunarinnar, kvað þar hafa
komið fram skýringar á mörgum
álitamálum sem uppi voru en vildi
ekki tjá sig frekar um efni fundarins.
Birkir Þór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Íslenskrar orkuvirkj-
unar ehf., vildi ekki tjá sig um málið
að svo stöddu þegar Morgunblaðið
náði tali af honum.
Stjórnsýsluatriði ekki á hreinu
Ólafur Hr. Sigurðsson bæjarstjóri
segir fundinn hafa verið afar gagn-
legan og skýra stjórnsýsluatriði sem
ekki hafi verið á hreinu hjá neinum
aðilum málsins. Greinilega sé full
þörf á því að allir skoði sína aðkomu,
Seyðisfjarðarkaupstaður, Skipulags-
stofnun og iðnaðarráðuneytið. „Hér
kom það á daginn að öll mannvirki
sem framkvæmdunum fylgja, að
þrýstipípu og stíflum meðtöldum,
eru byggingarleyfisskyld því einka-
aðili sér um framkvæmdirnar en
ekki opinber aðili. Því hafa menn
ekki áttað sig á, hvorki við né Skipu-
lagssstofnun,“ segir Ólafur, en til
þessa hafa slík leyfi einungis verið
gefin út vegna stöðvarhúsa. Að form-
inu til er því bróðurhluti fram-
kvæmdanna unninn í leyfisleysi.
Aldrei talað um byggingarleyfi
Fyrir réttri viku fundaði bygging-
arfulltrúi með starfsmönnum Skipu-
lagsstofnunar og var þá að sögn
Ólafs gert að semja viðauka við
framkvæmdaleyfi til að skýra eftirlit
sveitarfélagsins. Ekki hafi verið
minnst á að gefa þyrfti út bygging-
arleyfi fyrir öllum mannvirkjum. Þá
hafi Skipulagsstofnun lagt höfuð-
áherslu á að bæjaryfirvöld gæfu út
framkvæmdaleyfi í upplýsingum
vegna úrskurðar um matsskyldu
virkjunarinnar vegna umhverfis-
áhrifa á sínum tíma, en hvergi
minnst á byggingarleyfi.
Segir Ólafur bæjarstjórn hafa litið
svo á að vinna ætti eftir Raforkulög-
unum frá 2003 og reglugerð um
framkvæmd þeirra frá 2005. Hins
vegar eigi að vinna eftir byggingar-
og skipulagslögum frá 1997. Ljóst sé
að eftir setningu raforkulaganna
hefði þurft að samræma lög og
reglugerðir hvað þennan eftirlitsþátt
snertir svo að á hreinu væri að allar
framkvæmdir af þessu tagi færu í
sama farveg, hvort sem þær væru á
höndum opinberra aðila eða einka-
fyrirtækja. „Það er alveg klárt að
með þessu fyrirkomulagi er verið að
brjóta jafnræðisreglu, því opinber-
um aðilum og einkaaðilum er mis-
munað,“ segir Ólafur.
Leyfin verða gefin út
Hingað til hefur einungis verið
kallað eftir upplýsingum um stöðv-
arhús vegna útgáfu byggingarleyfa.
Munu bæjaryfirvöld að sögn gefa út
leyfi fyrir öðrum verkþáttum um leið
og nauðsynleg gögn berast, en bæj-
arstjórinn kveður þau öll liggja fyrir
nú þegar, bæði um þrýstipípuna og
aðra verkþætti sem hingað til hafa
verið unnir án leyfa. Fljótlegt verði
því að afgreiða málið á réttan hátt.
Enginn vissi að öll mann-
virki þyrftu byggingarleyfi
Jafnræðisregla hugsanlega brotin Heimsókn Orkustofnunar afar gagnleg
Fundað Ólafur Hr. Sigurðsson bæjarstjóri, Sigurður Jónsson bæjarverk-
fræðingur, Ívar Þorsteinsson og Hákon Aðalsteinsson frá Orkustofnun og
Elín Smáradóttir lögfræðingur stofnunarinnar.
Ljósmynd/Einar Bragi Bragason
Þótt sár eftir framkvæmdirnar séu á mörgum stöðum mjög stór og breið er það mat margra heimamanna að frá-
gangur sé vandaður. Nokkur ár mun taka gróður að skjóta rótum í sárinu en þá verður þrýstipípan ekki sýnileg.
Í HNOTSKURN
»Byggingarleyfisskyldarframkvæmdir sem fara
fram án útgefins leyfis skal
byggingarfulltrúi stöðva og
láta fjarlægja eða afmá hin
ólöglegu mannvirki sam-
kvæmt 2. mgr. 56. gr. skipu-
lags- og byggingarlaga.
»Spyrja má hvort útgáfubyggingarleyfa hafi verið
sinnt með fullnægjandi hætti
við smávirkjanir í öðrum sveit-
arfélögum fyrst slík óvissa
hefur ríkt um þetta atriði í til-
felli Fjarðarárvirkjunar.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
Frágangur að mörgu leyti vandaður
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
STOFNFJÁRBRÉF í Sparisjóði
Húnaþings og Stranda (SPHUN)
virðast skyndilega vera orðin eftir-
sótt ef marka má tvær auglýsingar í
Morgunblaðinu nýlega. Sú síðari
birtist í blaðinu sl. laugardag þar
sem nafnlaus aðili óskaði eftir því að
kaupa stofnfjárbréf í sjóðnum.
Einhverjir stofnfjáreigendur í
SPHUN munu þegar hafa skrifað
undir einhvers konar skuldbindingu
þess efnis að selja bréf sín en slík við-
skipti eru þó háð samþykki stjórnar
sjóðsins. Egill Gunnlaugsson, for-
maður stjórnar SPHUN og dýra-
læknir á Hvammstanga, segir
stjórnina hafa tekið þá ákvörðun að
samþykkja sölu ekki á þessu stigi
málsins, hvað svo sem síðar kunni að
verða. „Við eigum eftir að hittast og
ræða þessi mál og tökum ákvörðun í
framhaldi af því,“ segir Egill en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hefur stjórn sjóðsins sent stofnfjár-
eigendum bréf þar sem segir að nið-
urstöðu sé jafnvel ekki að vænta fyrr
en undir áramót.
Bókfært virði um 3 milljarðar
Upphaflega var stofnfjáreigend-
um boðið tvöhundruðfalt nafnverð
bréfanna en heimildir Morgunblaðs-
ins herma að kaupverð í þeim samn-
ingum sem þegar hafa verið undirrit-
aðir sé um 280-falt nafnverð. Nú eigi
kaupendur í viðræðum um að greiða
300-falt nafnverð stofnbréfanna.
Sparisjóður Húnaþings og
Stranda er ekki einn af stærri spari-
sjóðum landsins en er engu að síður
öflugur og gengur reksturinn að
sögn Egils afar vel. Bókfært virði
sjóðsins um síðustu áramót mun hafa
verið um 3 milljarðar króna.
Eru tilbúnir að greiða
300-falt nafnverð
Í HNOTSKURN
»Meðal helstu eigna sjóðs-ins er eignarhlutur í Ex-
istu sem mun að mestu leyti
vera í gegnum Kistu eign-
arhaldsfélag, sem er í eigu
nokkurra sparisjóða.
»Það er að öllum líkindumsú eign sem fjárfestar eru
að sækjast eftir.
Stjórn sparisjóðsins samþykkir ekki sölu að þessu sinni
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FÉLAGSMENN í VR setja lengra
orlof og meiri sveigjanleika í vinnu-
tíma efst á blað fyrir komandi kjara-
samninga að því er fram hefur komið
í starfi rýnihópa og málefnahópa
vegna undirbúnings fyrir kjara-
samningana næsta vetur. Hafa sum-
ir félagsmenn viðrað þá hugmynd að
fjölga frídögum í 30 að hámarki, eins
og víða tíðkast hjá opinberum starfs-
mönnum og bankamönnum.
„Niðurstöður rýnihópa hjá VR
benda til þess að helstu kröfur fé-
lagsmanna séu um meira frí og auk-
inn sveigjanleika. Fjöldi frídaga á Ís-
landi er í takt við það sem best gerist
í aðildarríkjum ESB,“ segir í nýrri
umfjöllun á vefsíðu félagsins.
Ný Evrópukönnun hefur leitt í ljós
að mikill munur er á fjölda frídaga í
löndum Evrópusambandsins. Þegar
bæði er tekið tillit til almennra frí-
daga og launaðra orlofsdaga á vinnu-
markaði landanna kemur í ljós að
þeir eru flestir í Svíþjóð eða 42 en
fæstir í Eistlandi, 26. Þjóðverjar,
Ítalar og Danir eru ofarlega á lista
með 38 til 40 frídaga. Að meðaltali
fær launafólk í Evrópusambandinu
rétt rúmlega 25 daga í orlof á ári.
Ekki eru birtar heildartölur yfir
frídaga á Íslandi í samanburðinum
en skv. VR eru frídagar félagsmanna
35 til 39 talsins. Opinberir frídagar
og stórhátíðardagar á virkum dögum
11 að meðaltali en orlof 24-28 dagar.
Vilja
semja um
aukið frí
Svíar fá 42 frídaga,
hér eru þeir 35-39
ÁKVEÐIÐ hefur verið að gefa
lengri frest til að skila inn athuga-
semdum við drög að mati á umhverf-
isáhrifum 1. áfanga Sundabrautar og
er hann nú til 17. ágúst. Í lok júní var
lagður fram til mats á umhverfis-
áhrifum einn nýr valkostur, Sunda-
göng frá Laugarnesi upp í Gufunes,
sem og áður framlagður valkostur,
Eyjalausn á leið III, en í breyttri
legu. Athugasemdir skal senda á
netfangið umhverfismat@lh.is.
Áhrif Sunda-
ganga í mat
♦♦♦