Morgunblaðið - 09.08.2007, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
MIKILL áhugi er á íslenskukennslu
hjá útlendingum og fyrirtækjum
eins og kom fram í fjölda umsókna
um styrki til kennslunnar fyrr á
þessu ári, skv. upplýsingum
menntamálaráðuneytisins.
Ríkisstjórnin ákvað fyrr í sumar
að veita 100 milljónum kr. til nám-
skeiða í íslensku fyrir útlendinga á
síðari hluta ársins. Verða styrkir til
námskeiðahalds auglýstir á næst-
unni. Ráðuneytið auglýsti í janúar
styrki til námskeiða í íslensku sem
haldin voru fyrri hluta ársins og
sóttu alls yfir 70 fræðsluaðilar og
fyrirtæki um ríflega 144 millj. kr.
til að halda námskeið fyrir rúmlega
4.600 útlendinga. Veittir voru 60
styrkir til að halda námskeið fyrir
samtals 3.360 nemendur. Ekki
reyndist unnt að koma til móts við
ýtrustu óskir umsækjenda.
Mikill áhugi á íslenskukennslu
meðal útlendinga hér á landi
Morgunblaðið/Eyþór
Alþjóðahús hefur staðið að ís-
lenskukennslu fyrir útlendinga.
HINN 8. maí sl. lögðu af stað þeir Sverrir og Einar Þor-
steinssynir í hringferð í kringum hnöttinn á mót-
orhjólum. Þremur mánuðum og rúmum 32.000 kílómetr-
um síðar ljúka þeir ferð sinni þar sem hún hófst.
Leiðin sem þeir völdu var ekki hefðbundin en þeir
fóru mikinn hluta ferðarinnar utan alfaraleiða á torfær-
um slóðum, fjarri byggð. Þeir hafa meðal annars farið
um Norðurlöndin, Eystrasaltslöndin, Rússland, auðnir
Síberíu, fáfarna slóða Mongólíu, Japan, Alaska og Am-
eríku. Ferðinni lýkur er þeir renna í hlað hjá MotorMax
að Klettshálsi 13 föstudaginn 10. ágúst kl. 10.00 og þar mun fjölskylda
þeirra, vinir og aðrir velunnarar og áhugamenn taka á móti þeim. Allir
mótorhjólamenn eru hvattir til að hjóla síðasta spölinn með þeim bræðrum
í hóp frá Keflavík og hefst aksturinn við Flugstöð Leifs Eiríkssonar kl.
09.00, segir í tilkynningu
Heimsreisu lýkur í vikulok
HINU fornfræga gufubaði á Laug-
arvatni verður lokað frá 15. ágúst
næstkomandi.
Nýtt og betra gufubað verður svo
opnað á sumardaginn fyrsta árið
2008. Mikil uppbygging stendur
fyrir dyrum með þátttöku Bláa
lónsins. Um verður að ræða full-
koma heilsulind, sem verður opin
fyrir heimamenn og þann mikla
fjölda ferðamanna, sem sækir stað-
inn heim árlega.
Gufubaði lokað
SKIPUÐ hefur
verið níu manna
stjórn Vinnueft-
irlits ríkisins til
fjögurra ára.
Félagsmálaráð-
herra skipar í
stjórnina. For-
maður stjórnar
er Margrét S.
Björnsdóttir,
forstöðumaður
stofnunar stjórnsýslufræða og
stjórnmála við Háskóla Íslands.
Aðrir í stjórninni eru Guðrún Kr.
Óladóttir og Halldór Grönvold, til-
nefnd af ASÍ, Inga Rún Ólafs-
dóttir, tilnefnd af BHM, Sigríður
Kristinsdóttir, tilnefnd af BSRB,
Gunnar Björnsson, tilnefndur af
fjármálaráðuneyti, Hersir Odd-
son, tilnefndur af Sambandi ís-
lenskra sveitarfélaga, og Jón Rún-
ar Pálsson og Guðrún S.
Eyjólfsdóttir, tilnefnd af Sam-
tökum atvinnulífsins.
Ný stjórn
Vinnueftirlits
Margrét S.
Björnsdóttir.
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
„ÉG TEL ekki óeðlilegt að hlutdeild
þorsks í aflapottum á við byggða-
kvóta og rækju- og skelbætur sé
minnkuð, þegar dregur úr þorskveið-
inni á næsta fiskveiðiári,“ segir Einar
K. Guðfinnsson sjávarútvegsráð-
herra.
„Hins vegar er það þannig að hend-
ur okkar voru nokkuð bundnar vegna
þess að um þetta gilda tiltekin lög,
sem við að sjálfsögðu hlutum að fara
eftir við úthlutun okkar og ráðstöfun í
þessa potta á næsta fiskveiðiári. Það
er hins vegar ætlun okkar og kom
fram þegar við kynntum ráðstafanir í
tengslum við ákvörðun um lækkað
aflamark í þorski, að breyta útreikn-
ingsreglum í sambandi við byggða-
kvótana, sem mun þá leiða til þess að
hlutur þeirra sem eru með hlutfalls-
lega mestan þorskkvóta minnkar og
byrðarnar af því að leggja inn í þessa
potta verði þess vegna jafnari,“ segir
Einar.
Ígildi 11.000 tonna
af þorski tekin frá
Morgunblaðið leitaði viðbragða
ráðherrans vegna þess að tekin eru
frá ígildi 11.000 tonna af þorski áður
en úthlutað er aflaheimildum í afla-
markskerfunum tveimur. Þessar
heimildir eru nýttar í línuívilnun,
bætur til skel- og rækjubáta og
byggðakvóta. Hlutfall þessara bóta af
heildinni hefur aukizt vegna hins
mikla niðurskurðar á þorskveiðiheim-
ildum á næsta fiskveiðiári. „Þessa
mun sjá stað í frumvarpi, sem ég mun
leggja fyrir Alþingi nú á haustdögum
og þar með verður komið til móts við
þessi sanngjörnu sjónarmið, að það sé
eðlilegt að hlutur þorskkvótans í
byggðapottum muni minnka. Það
verður hins vegar ekki gert nema
með breytingu á lögum og þess vegna
var ekki hægt að taka tillit til þessara
sjónarmiða núna við ákvörðunina um
úthlutun þorsks í ákveðna byggða-
potta á næsta fiskveiðiári.“
Ekki áform um
breytingu á línuívilnun
„Það er sama með línuívilnunina.
Magnið í henni er bundið í lögum og
ég hef í sjálfu sér ekki haft nein áform
um að breyta því. Það eru fyrst og
fremst hinir þættirnir, sem ég held að
sé mikil sanngirni að sé dreift með
öðrum hætti en er gert í dag.
Það er einnig þannig, eins og við
sjáum, að ýsukvótinn hefur verið að
aukast ár frá ári. Ég tel ekkert óeðli-
legt að það sé tekið meira tillit til
þess, þegar við erum að úthluta í
þessar aflabætur, en gert hefur verið.
Þetta er hins vegar allt háð lögum
sem við þurfum að breyta áður en
hægt er að gera þær breytingar. Það
er ætlun mín að til þess geti komið á
komandi hausti,“ segir Einar K. Guð-
finnsson.
Eðlilegt að hlutdeild
þorsks í bótum minnki
Úthlutun í bætur vegna skel- og rækjubáta, byggðakvóta og
línuívilnunar er bundin í lög sem torveldar breytingar
Einar K. Guðfinnsson
Í HNOTSKURN
»Það er sama með línuíviln-unina. Magnið í henni er
bundið í lögum og ég hef í
sjálfu sér ekki haft nein áform
um að breyta því.
»Það er einnig þannig, einsog við sjáum, að ýsukvót-
inn hefur verið að aukast ár
frá ári. Ég tel ekkert óeðlilegt
að það sé tekið meira tillit til
þess, þegar við erum að út-
hluta í þessar aflabætur, en
gert hefur verið.
BREZKA fiskréttaverksmiðjan Iglo
Birds Eye er að setja á markað nýja
umhverfisvottaða afurð. Það eru
fiskfingur úr alaskaufsa, en veiðar á
honum hafa á ákveðnum svæðum
verið vottaðar sem sjálfbærar af
Marine Stewardship Council. Kem-
ur ufsinn í stað þorsks og mun Birds
Eye draga kaup á þorski saman um
4.000 tonn á ári.
Birds Eye er með 80% markaðs-
hlutdeild í fiskfingrum á Bretlandi
og mun fyrirtækið áfram nota þorsk
og ýsu í aðrar tegundir fiskfingra til
að viðhalda fjölbreytni í framboði.
Samsteypan Unilever færði alla
framleiðslu sína á fiskfingrum undir
vörumerkinu Iglo í Þýzkalandi yfir í
hinn vottaða alaskaufsa árið 2005. Þá
höfðu ufsaveiðarnar í Beringshafi og
við Aleuta-eyjar verið vottaðar sem
sjálfbærar af MSC. Verðmunur á
vottuðum ufsa og ufsa veiddum af
Rússum er lítill og því hafði þessi
breyting ekki áhrif til hækkana á
fiskfingrunum. Fiskfingurnir frá
Birds Eye verða seldir á 253 krónur,
12 stykki í pakka. Merki MSC verð-
ur á pakkningunum.
Móðurfyrirtæki Birds Eye og Iglo
leggur áherzlu á að færa framleiðslu
sína eins og unnt er yfir í umhverf-
isvottaðar afurðir úr fiskstofnum þar
sem sjálfbærar veiðar eru stund-
aðar. Jafnframt að minnka notkun á
þorski en þó ekki hætta henni alveg.
Vottaðir fiskfingur
ÚR VERINU
NÝTING flaks af þorski sem er
veiddur út af Suðausturlandi er
betri en af þorski sem er veiddur
út af Norðurlandi. Þá er flakanýt-
ing betri á tímabilinu júní til ágúst
miðað við aðra ársfjórðunga. Þetta
kemur fram í rannsókn Matís
(Matvælarannsóknir Íslands) sem
ber heitið Verkunarspá - tengsl
hráefnisgæða við vinnslu og verk-
unarnýtingu þorskafurða.
Samstarfsverkefni Matís
og Fish Seafood
Í rannsókninni, sem er sam-
starfsverkefni Matís og Fish Sea-
food, er að finna niðurstöður á því
hvernig þorskur, sem veiddur var
á mismunandi veiðisvæðum og á
ólíkum árstíma, nýtist sem hráefni
við vinnslu og verkun léttsaltaðra
þorskafurða, en sú afurð hefur átt
vaxandi vinsældum að fagna á
mörkuðum í S-Evrópu á undan-
förnum árum. Í rannsókninni voru
skoðaðir þættir eins og aldur hrá-
efnis frá veiði, los, mar, holdafar
og fleira sem getur tengst árs-
tíðabundnum sveiflum í ástandi
hráefnisins og veiðisvæðum ásamt
veiðiaðferðum og meðhöndlun afla
frá veiði til vinnslu.
„Fram komu vísbendingar um
mismunandi eiginleika þorsks á
mismunandi veiðisvæðum og árs-
tímum. Helstu niðurstöður voru
þær að veiðisvæði út af Suðaust-
urlandi gáfu marktækt betri
flakanýtingu í þorski en veiði-
svæði út af Norðurlandi, auk þess
sem flakanýting var betri á tíma-
bilinu júní-ágúst, miðað við aðra
ársfjórðunga,“ segir Sigurjón
Arason, sérfræðingur hjá Matís.
Hann segir að þegar þorskinum
hafi verið skipt í þrjá þyngdar-
flokka, hafi komið í ljós að léttasti
flokkurinn (1,4-2,1 kg) var með
meiri þyngdaraukningu við verk-
un léttsaltaðra afurða en þyngri
flokkarnir.
„Það gefur til kynna að þyngri
þorskurinn þurfi lengri tíma í
pæklun en léttari þorskurinn.
Vatnsheldni var áberandi lægri á
veiðisvæðum út af Norðurlandi og
Norðausturlandi en á öðrum mið-
um.“
Verkefnið var styrkt af AVS
rannsóknarsjóði í sjávarútvegi.
Nýting flaka mismun-
andi eftir svæðum
Betri flakanýting af þorski úti af Suðausturlandi
Morgunblaðið/Alfons
Í HNOTSKURN
»Flakanýting er betri átímabilinu júní til ágúst
miðað við aðra ársfjórðunga.
»Vatnsheldni var áberandilægri á veiðisvæðum út af
Norðurlandi og Norðaust-
urlandi en á öðrum miðum.
» Í rannsókninni voru skoð-aðir þættir eins og aldur
hráefnis frá veiði, los, mar,
holdafar og og fleira.
LANDGRÆÐSLUDAGUR land-
græðslufélaganna er í dag og af því
tilefni afhendir Landgræðsla rík-
isins landgræðsluverðlaun ársins
2007 í kvöld til einstaklinga og/eða
félaga fyrir störf þeirra að land-
græðslumálum.
Sérstök kynning á landgræðslu í
Öxarfirði fer fram í dag og afhend-
ingin verðlaunanna verður síðan í
kvöld í Skúlagarði í Kelduhverfi.
Landgræðsla
verðlaunuð