Morgunblaðið - 09.08.2007, Síða 14
Í HNOTSKURN
» Steinunn nam fatahönnunvið Parson School of De-
sign í New York, útskrifaðist
þaðan með láði árið 1986.
» Hún hefur unnið fyrirmörg stórfyrirtæki tísku-
heimsins, m.a. Gucci á Ítalíu,
La Perla og Calvin Klein.
» Hjá Calvin Klein þróaðihún kvenfatalínuna, CK
Sport og gallabuxnalínuna.
Meðfram rekstri kennir Stein-
unn fatahönnun í LHÍ.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
STEINUNN Sigurðardóttir fata-
hönnuður hlaut í gær norrænu hönn-
unarverðlaunin Ginen. Verðlaunin
voru veitt á opnunarhátíð tískuvik-
unnar í Kaupmannahöfn og var þar
haldin tískusýn-
ing á fötum Stein-
unnar, eða öllu
heldur fyrirtækis
hennar STEiN-
UNN. „Það eru
yfirleitt tilnefndir
fimm eða sex nor-
rænir hönnuðir. Í
ár voru það þrír
Svíar, einn Ís-
lendingur og
tveir Danir. Ég hreppti hnossið,“
sagði Steinunn í gær, kampakát með
verðlaunin. Þetta er í fyrsta sinn
sem Íslendingur hlýtur þessi verð-
laun og voru þau veitt í gær fimmta
árið í röð.
Meðal hönnuða sem áður hafa
hlotið verðlaunin eru Britt Sisseck
frá Danmörku og Hanna Sarén frá
Finnlandi. Steinunn á langan feril að
baki við tísku- og fatahönnun, var yf-
irhönnuður hjá Gucci, Kalvin Klein
og La Perla og stofnaði eigið fyrir-
tæki, STEiNUNNI, fyrir sjö árum.
Hún opnaði verslun með sama nafni
í þar síðustu viku að Laugavegi 40 í
Reykjavík.
Steinunn segir það koma að góðu
gagni að hafa starfað hjá risafyrir-
tækjum í tískuheiminum á borð við
þau sem fyrr voru nefnd, hún búi
lengi að þeirri reynslu. ,,Hún kemur
óneitanlega vel að gagni þegar mað-
ur er farinn að kynnast tískuheim-
inum,“ segir Steinunn. Hún hafi á
þeim árum lært mikið um gæði og
gæðastjórnun, mynstur og efni.
„Þegar maður fer inn í hátískuna
lærir maður svo mikið um fágun.
Það er ákveðið element af tísku sem
ég held í, í dag.“
Steinunn tekur undir það að tísku-
heimurinn, eða -bransinn, sé harður
en það eigi við um fleiri geira at-
vinnulífsins. „Það er erfitt að komast
af, það eru margir fatahönnuðir í
heiminum og samkeppnin er mikil.
Ég held því fram að ef maður vinnur
virkilega að því sem mann langar að
gera í heiminum þá skilar það sér til
baka. Ég er búin að vera lengi í
bransanum af því mér finnst þessi
fataheimur mjög skemmtilegur. Það
eiga allir bransar sína kosti og
ókosti, fataheimurinn líka. „I like to
go to work in the morning“ eins og
maður segir,“ segir Steinunn og
hlær. Það útleggst: ,,Mér líkar að
fara til vinnu minnar að morgni.“
Vel geymt leyndarmál
á Laugavegi
Bækistöðvar STEiNUNNAR eru
á Íslandi. „Ég var með verslun í
Kjörgarði en ég varð að flytja hana.
Ég hef verið vel geymt leyndarmál á
Laugaveginum,“ segir Steinunn
kímin.
Fatalínur fyrirtækisins eru seldar
víða um heim. Haldin verður kynn-
ing á þeim í verslunarmiðstöðinni
Takashimaya í New York 21. ágúst.
„Við seljum í verslanir á Englandi, í
Japan, Bandaríkjunum, allri Skand-
inavíu…,“ telur Steinunn upp.
Blaðamaður spyr hvort í ljósi
þessa sé ekki hálfgalið að vera með
bækistöðvarnar á Íslandi. „Nei, það
spyrja mig margir að þessu. Málið
er það að á Íslandi verður maður lít-
ið fyrir áhrifum frá tískuheiminum
stóra,“ segir Steinunn.
Hrærigrautur lista og hönnunar
hér á landi sé hennar helsti inn-
blástur. Hún kjósi því heldur að
starfa hér en erlendis.
Steinunn Sigurðardóttir Hlaut norrænu hönnunarverðlaunin Ginen
Fer glöð til vinnu að morgni
Ljósmynd/Maria Ellen Mark
Vandað Elísabet Davíðsdóttir fyrirsæta í fötum sem Steinunn hannaði.
Steinunn
Sigurðardóttir
14 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
NÝLEGA fannst
plötusafn Adolfs
Hitlers í húsi ný-
látins rússnesks
hershöfðingja
skammt frá
Moskvu en Hitler
var sagður þurfa
að hlusta á tónlist
til þess að geta
slakað á. Það
kemur líklega
fæstum á óvart að nokkrar plötur
Richards Wagners voru í safninu en
hitt var óvæntara að þar mátti einn-
ig finna tónlist Rússanna Tsjæ-
kovskís, Rachmaninoffs og Borodins
auk píanistans Arthurs Schnabels,
sem var gyðingur. Allar voru plöt-
urnar slitnar og rispaðar eftir
margendurtekna spilun, þrátt fyrir
að Hitler hafi fullyrt að framlag
bæði Rússa og gyðinga til tónlistar
(sem og annarra lista) hefði verið
einskis virði.
Í ofanálag er tónlist Tsjækovskís
spiluð af gyðingnum Bronislaw Hu-
berman sem var í útlegð sem opin-
ber óvinur Þriðja ríkisins.
Um hundrað plötur voru í safninu
sem rússneski hershöfðinginn Lew
Besymenski geymdi allt til dauða-
dags af ótta við að vera kærður fyrir
gripdeildir. Þegar hann lést, 86 ára
að aldri, fékk þýska blaðið Spiegel
aðgang að safninu.
Plötusafn
Hitlers
Tónlist gyðinga og
Rússa áberandi
Tónlistarunnand-
inn Adolf Hitler.
NÝ uppfærsla
Brúðuheimilis
Henriks Ibsens
hefur verið afar
umdeild í Banda-
ríkjunum. Sýn-
ingin, sem nú er
verið að sýna á
Edinborgarhátíð-
inni, heitir á
ensku DollHouse
og sker sig frá öðrum uppfærslum á
verki Ibsens að því leyti að allir karl-
mennirnir í leikritinu eru leiknir af
dvergum, en sá hæsti þeirra er að-
eins 135 sentímetrar.
Mark Povinelli er tuttugu sentí-
metrum lægri (115 sentímetrar) en
hann leikur aðalkarlhlutverkið, Tor-
vald, eiginmann Nóru. Lee Breuer,
sem leikstýrir sýningunni, kallar Po-
vinelli „vasaútgáfuna af Jean-Paul
Belmondo“ enda gefi hann franska
sjarmörnum ekkert eftir í persónu-
töfrum.
Konurnar eru hins vegar í eðli-
legri hæð og því algjörir risar við
hlið dvergana sem þær leika á móti.
Þetta telur Breur að varpi enn betra
ljósi á hversu afkáralega heimskuleg
hin stöðluðu kynjahlutverk eru, en
verk Ibsens var á sínum tíma mikil-
vægt framlag í jafnréttisbaráttu
kvenna.
Brúðuheim-
ili dverga
Henrik Ibsen
Í KVÖLD munu þær Ingunn
Snædal rithöfundur og Úlfhild-
ur Dagsdóttir bókmenntafræð-
ingur leiða næstsíðustu kvöld-
gönguna úr Kvosinni þetta
sumarið. Miðborgin verður lit-
in hýrum augum og stoppað á
stöðum sem með einhverjum
hætti tengjast bókmenntum
þar sem samkynhneigð kemur
við sögu, svo og sögu samkyn-
hneigðra í borginni. Lagt verð-
ur af stað úr Grófinni kl. 20 og gengið í um
klukkutíma, en gangan endar að þessu sinni í
elsta húsi Reykjavíkur, Aðalstræti 10, þar sem
trúbadúrinn Stella Hauksdóttir tekur lagið.
Ganga
Miðborgin litin
hýrum augum
Úlfhildur
Dagsdóttir
LISTASAFN Árnesinga fram-
lengir sýninguna Að flytja fjöll
og verða sýningarlok við lok
fjölskylduhátíðarinnar
Blómstrandi daga, sem haldin
er í Hveragerði 23.-26. ágúst.
Á sýningunni er leitast við
að varpa ljósi á fjallamálverk
eftir Ásgrím Jónsson og hvern-
ig átta núlifandi listamenn á
ólíkum aldri fást við hefðina
þegar viðfangsefnið er fjall. Má
þar m.a. nefna Ólaf Elíasson, Magnús Pálsson,
Georg Guðna, Brynhildi Þorgeirsdóttur og Þor-
björgu Þorvaldsdóttur. Listasafnið er í Hvera-
gerði og er opið alla daga, frá kl. 12 til 18.
Myndlist
Listasafn Árnes-
inga framlengir
Ásgrímur
Jónsson
SÝNING á verkum bandarísku
myndlistarkonunnar Joan
Perlman verður opnuð í Hafn-
arborg í dag kl. 17. Perlman
sýnir þar málverk.
Hún hefur lengi haft áhuga á
Íslandi, lesið íslenskar bækur
og kynnt sér íslenska menn-
ingu. Hún kom hingað árið
1995 og hélt fyrirlestur í Ný-
listasafninu. Hin hrjúfa nátt-
úra Íslands hefur upp frá því
verið algengt viðfangsefni í verkum hennar. Hún
leitast þó ekki við að túlka landslagið á raunsæjan
hátt heldur reynir að fanga dulúðina sem býr í því
og kjarna náttúrunnar.
Myndlist
Joan Perlman sýnir
í Hafnarborg
Málverk án titils
eftir Joan Perlman
♦♦♦
HINN svokallaði langlisti Man Boo-
ker-verðlaunanna var kynntur í gær.
Listinn hefur komið helstu bók-
menntasérfræðingum heims á óvart
fyrir það hversu fáa þekkta rithöf-
unda er á honum að finna, en að Ian
McEwan frátöldum eru nær allir rit-
höfundarnir tiltölulega óþekktir.
Man Booker-verðlaunin eru einkar
virt bókmenntaverðlaun sem veitt
eru árlega fyrir bókmenntaverk rit-
að á enskri tungu. Höfundar skáld-
verkanna verða að vera þegnar
Samveldisins eða Írlands.
Fyrri handahafar Booker-sins eru
m.a.: J M Coetzee, Yann Martel,
Salman Rushdie og Kiran Desai.
Langlistinn 2007
Nicola Barker – Darkmans
Edward Docx – Self Help
Tan Twan Eng – The Gift Of Rain
Anne Enright – The Gathering
Mohsin Hamid – The Reluctant
Fundamentalist
Peter Ho Davies – The Welsh
Girl Lloyd Jones – Mister Pip
Nikita Lalwani – Gifted Ian
McEwan – On Chesil Beach
Catherine O’Flynn – What Was
Lost
Michael Redhill – Consolation
Indra Sinha – Animal’s People
AN Wilson – Winnie & Wolf
Langflestir óþekktir
Reuters
J M Coetzee Hefur hlotið Booker-
inn tvívegis, 1983 og 1999.