Morgunblaðið - 09.08.2007, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 09.08.2007, Blaðsíða 21
Fréttir í tölvupósti úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 21 greiðsluunglingarnir, og margfalda þá tölu svo með 15 sem bætist á reikninginn. Af hverju þarf Víkverji að borga fyrir hundó- merkilega plastpoka með auglýsingu versl- unarinnar á? Hvers vegna kosta pokar á Íslandi en í engu öðru landi. Nú er sagt að þessir aurar renni til landgræðslu, en væri ekki nær að fyrirtækin, sem eiga allar þessar verslanir, leggi til hluta af gróða sínum í landgræðslu? Ekki nóg með að matur sé hér heimsins dýrastur og gangar lág- vöruverslananna flestra þeir þrengstu í heimi, heldur þarf einnig að rukka fyrir plastið sem þessi lúx- usvarningur (þ.e. matur) er borinn heim í. Víkverja var öllum lokið um daginn er hann sótti Bónus á Sel- tjarnarnesi heim. Þó þar sé heimsins almennilegasta afgreiðslukona, sem brosir eyrna á milli og býður hressi- lega góðan dag, þá dugði það ekki til að bjarga verslunarferðinni frá súr- um endi. Víkverji var nefnilega rukkaður fyrir gráan plastpoka af rúllu, alls ómerktan og heldur efn- islítinn, líkt og hann væri litprent- aður lúxusplastpoki frá grísnum góða. Ekki er öll vitleysan eins. Þá er hér að lokum sneið frá Vík- verja til Sam-bíóanna. Hvers vegna hækka bíóin miðaverð þegar sýnt er með stafrænni sýningarvél? Nú kostar miðinn 950 krónur og enn er salurinn jafn Coke-klístraður og áð- ur. Málið er að Víkverji getur ekki valið að sjá myndina með rispum og kuski á gamaldags hátt og sparað örlítið. Skyldi miðaverð hækka með nýjum poppvélum næst? Víkverji verðurgjarnan pirraður í matvöruverslunum og þá sérstaklega ef þær eru þannig úr garði gerðar að tvær kerrur geta varla mæst á gangi. En Víkverji kýs þó lágvöruverslanir, þó svo Íslendingum þyki ekki skemmtilegast að versla þar (hefur það verið vísindalega kann- að hvar Íslendingum þykir skemmtilegast að versla?). Til að spara sér mörg þúsund krónur í hverri innkaupaferð leggur Víkverji á sig leiðindin. Eitt hefur Víkverji aldrei skilið þegar kemur að af- greiðslukassa matvöruverslana, en það er pokarukkunin. „Hvað ertu með marga poka?“ spyrja af-             víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Ég var svo heppinn að fá dagbók frá bankanum mínum í byrjun ársins. Þar getur maður víst við hátíðleg og sjaldgæf tilefni skrifað eitthvað merkilegt sem á dagana hefur drifið. Í minni dagbók er meira að segja hægt að lesa vikuleg gullkorn frá ein- hverjum snillingnum.    Yfirleitt hafa þetta verið hnyttin, brosleg, kímin og jafnvel – jafnvel – fyndin ummæli. Nema núna í þessari viku. Þá voru þau bara illkvittnisleg.    „Blaðamaður hefur engar hug- myndir – og hæfileikann til að koma þeim á framfæri.“ Þessi hughreystandi orð birtust mér síðastliðinn mánudag. Þau eru eign- uð austurríska háðfuglinum Karl Kraus, sem sjálfur var blaðamaður og vissi því sínu viti.    Orðin sátu í mér, nú á hátindi gúr- kutíðarinnar, rétt fyrir holskeflu haustmánaðanna. Allt þar til mér var bent á það að nú eigi að fara að safna undirskriftum þar sem skorað er á meirihluta bæjarstjórnarinnar á Ak- ureyri að segja af sér vegna tjald- stæðanna um síðustu helgi. Þá small allt saman.    Ég nefnilega hef ekki hugmynd um hvað er að gerast. Hef ekki hugmynd um í hvers konar klessu málið er eig- inlega komið. Hef örlitla hugmynd um hvers vegna málið fór eins og það fór. Það skiptir hins vegar litlu máli. Enda er ég nú einu sinni blaðamaður.    En jæja. Ég verð samt að segja að nú þurfa menn að slíðra sverð og fara að tala saman. Það vantar ekki fleiri upphlaup í bænum þar sem Lúk- asarmálið fór af stað. Gestir Einnar með öllu fengu að lýsa sinni skoðun á viðmiðunum og bauluðu eftirminnilega á hana á loka- kvöldi hátíðarinnar. Það var eitt inn- legg. Vinir Akureyrar hafa líka lýst sinni skoðun á málinu með skýrum hætti.    Það má samt ekki gleyma því að fjöl- margir voru ánægðir með versl- unarmannahelgina. Það var minna rusl í miðbænum. Það voru færri slagsmál. Herbragðið um rólega verslunarmannahelgi gekk upp. Verður ekki að taka það með í reikn- inginn?    Fyrir utan þennan eina bæjarlífs- punkt, er nú mest allt fjörið á næst- unni bundið við Húllumhævikuna. Til dæmis fjórar opnanir á Safnasafninu á laugardaginn, auk fastra liða á Dal- vík og við Hrafnagil.    Já, og svo er Akureyrarvaka víst á næsta leiti ... AKUREYRI Hjálmar Stefán Brynjólfsson Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson Ein með öllu Hvort ætli hátíðin hafi heppnast vel eða ekki? Fáðu úrslitin send í símann þinn Orlando Vacation Home Sales If you or someone you know is interested in buying a home in Florida, we can help. Meredith Mahn and Thorhallur Gudjonsson of Gardatorg have teamed up to bring you the best service, both in Iceland and in Orlando at NO cost to you. For more information call 896-8232 or visit us at: www.LIVINFL.com Domus Pro Real Estate Maitland Florida 32751 (321) 438-5566 www.stilling.is // stilling@stilling.is sýnum stillingu í umferðinni uð á eyjunni með góðum árangri. Saltsuðan hófst á Læsø á miðöld- um og var fyrsti iðnaður Dana. Grunnvatnið á suðurodda Læsø er mjög salt (10-15%) og það er hráefn- ið í saltgerðina. Saltsuðukofarnir hafa nú verið endurbyggðir í upprunalegri mynd með stórum opnum pönnum þar sem saltið er soðið samkvæmt eldgöml- um kúnstarinnar reglum. Ferða- menn á öllum aldri geta fylgst með framleiðsluferlinu og fengið að heyra söguna í leiðinni frá ein- hverjum aðstandenda saltsuðunnar. Safn og verslun þar sem hægt er að kaupa salt og fylgihluti þess, ásamt snyrtivörum unnum úr saltinu, eru einnig á staðnum. Eftir stoppið í saltsuðunni og kakótíma fyrir ferðalangana var haldið af stað á hjólunum síðasta legginn aftur heim á farfuglaheimili. Valin var leið meðfram ströndinni og ekki komust allir torfæruleiðina þar sem hjólað var í fjörunni vestast á eyjunni, rétt áður en áfangastaðnum Vesterø var náð að kvöldi. En það var ævintýri sem gleymist ekki í bráð, sérstaklega ekki þeim 9-12 ára sem tóku þátt í því. Þá var gott að vera með aukaskó og föt innan seil- ingar. Ströndina við Læsø nota ann- ars fleiri til sól- og sjóbaða, fæstir láta sér detta í hug að hjóla þar. Hjólaleiðin í kringum Læsø er um 55 km og er góð dagleið með stopp- um á þessum helstu stöðum. Frekar má kannski mæla með því að hjóla hringinn á lengri tíma til að njóta þess að skoða áhugaverða staði á leiðinni. Eða bara hægja aðeins á taktinum og njóta þess að stoppa oftar t.d. til að kaupa lífrænt græn- meti, hunang og egg frá bændum sem leggja varning sinn í þar til gerða sjálfsafgreiðslukassa úti í veg- arkanti. Sælkeravara er á hverju strái í Læsø og með sumarhús við ströndina er hægt að lifa ljúfu lífi. Ýmis ævintýri á leiðinni Kort yfir hjólaslóðir á Læsø er hægt að fá lánuð á bæði hjólaleigum og gististöðum á eyjunni. www.laesoe.dk (ýmsar upplýs- ingar um eyjuna, gistingu, veitingastaði o.fl.) www.sydesalt.dk (saltverk- smiðjan) www.laesoe-line.dk (ferjan frá Fre- drikshavn) www.jarvis-laesoe.dk (hjólaleiga) Læsø er í Kattegat, eins og hálfs tíma ferjuferð frá Fredrikshavn á Jótlandi. Ef bíll er ekki með í för til Læsø, þarf ekki að panta pláss í ferjunni heldur nægir að kaupa miða á staðnum. Læsø hentar afar vel til hjólreiða og nóg er af hjólum og hjólaleigum á eyjunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.