Morgunblaðið - 09.08.2007, Blaðsíða 22
ferðalög
22 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
M
ontreal er önnur
fjölmennasta
frönskumælandi
borg í heimi, að-
eins París er fjöl-
mennari. Mér reyndist vandalaust
að gera mig skiljanlegan á ensku,
enda eru flestir heimamanna jafn-
vígir á ensku og frönsku.
Montreal er ekki stór, samnefnd
eyja er 50 km löng og 15 km þar
sem hún er breiðust eða um 500
km² og íbúarnir eru tæpar 2 millj-
ónir í borginni sjálfri, en alls býr á
svæðinu eitthvað á fimmtu milljón.
Almenningssamgöngur eru greið-
ar, neðanjarðarlestir og stræt-
isvagnar aka um eyjuna þvera og
endilanga og leigubílar eru ódýrir
á íslenskan mælikvarða.
Hún sýnir sig líka vera suðupott
ólíkra menningarheima, veitinga-
staðir margir og fjölbreyttir og
fyrir allar buddur. Gistingu má
sömuleiðis fá fyrir fáeinar krónur í
koju á farfuglaheimili þó einnig sé
hægt að leigja sér hótelsvítu með
öllum þægindum fyrir um 200 þús-
und krónur nóttina – og svo auð-
vitað allt þar á milli.
Paradís fyrir kaupglaða
Fyrir þá sem hafa gaman að
versla er Montreal hreinasta para-
dís, en vert er að leggja á minnið
að uppgefið verð er yfirleitt án
söluskatta til ríkisins, 7%, og til
sveitarfélags, 7,5%, alls um 14,6%
á flestri vöru og þjónustu, þó ekki
allri, bækur bera t.d. 7% skatt og
matur í verslunum engan (nema
tilbúnir réttir). Þjórfé, (tips) er þá
yfirleitt 15% á veitingastöðum
(nema skyndibitastöðunum), bör-
um og næturklúbbum og í leigubíl-
um.
Montreal er ákaflega græn borg
og útivistarmöguleikarnir margir.
Göngustígar í náttúrunni eru í
kílómetravís og hjólastígar eru
góðir. Miðpunkturinn er „fjallið“
sem borgin og eyjan draga nafn
sitt af Mont Royal – eða Kon-
unglega fjallið. Þangað upp er gott
að fá sér göngutúr frá miðborginni
– eða jafnvel fara í lautartúr í al-
menningsgarðinum, Mont Royal
Park, sem prýðir hlíðar fjallsins. Í
skjóli trjánna og á flötunum eru
borð og bekkir eru fyrir þá sem
þess óska og fyrir þá sem kunna
að njóta er ótölulegur fjöldi fugla
og plantna sem ég kann engin deili
á. Útsýnið er frábært og sést jafnt
yfir miðbæinn með öllum sínum
verslunum og veitingahúsum, sem
og yfir ána og Monteregian-
hæðirnar, náttúruperlu í nágrenn-
inu.
Hjólastígar eru um alla borg
enda segir bandaríska tímaritið Bi-
cycling Montreal vera bestu borg-
ina fyrir hjólreiðar í Norður-
Ameríku.
Eitthvað við allra hæfi
Montreal iðar af lífi – hvort sem
maður er að leita að menningar-
viðburðum, stórum hátíðum eða
börum og veitingastöðum. Mont-
real hefur þetta allt saman og frá
því að rökkva tekur og fram undir
morgun er líf og fjör á börum og
veitingastöðum.
Þannig má nefna að djasshátíðin
í Montreal er haldin um mán-
aðamót júní-júlí ár hvert og var
haldin í 28. sinn í sumar, en hátíð-
in er kostuð af Alcan og General
Motors í Kanada. Í 11 daga og
nætur fremja ríflega 2.500 tónlist-
armenn hvaðanæva úr heiminum
list sína. Einn allsherjar hræri-
grautur á máli sem allir kunna:
tónlist.
Montreal er á tveimur hæðum.
Neðanjarðar eru um 33 kílómetrar
af göngustígum sem tengjast
neðanjarðarlestum, strætisvögnum
og járnbrautarlestum. Á degi
hverjum flæða um 500.000 manns
um þessa neðanjarðarborg. Þarna
eru um 1.700 verslanir og versl-
anamiðstöðvar, sumar margar
hæðir. Þarna tengjast 400 leikhús,
kvikmyndahús og önnur afþreying,
hótel, veitingahús, söfn og þannig
má áfram telja.
Ef veðrið er leiðinlegt er óþarfi
að fara út. Maður tekur lyftuna í
hótelinu, eða fjölbýlishúsinu heima,
niður í kjallara, ekur í neðanjarð-
arlestinni að áfangastað og sömu
leið til baka, með öllum innkaupum
og heim aftur!
Quebec-búar taka kaffi, að ekki
sé minnst á espresso, af fullri al-
vöru. Kaffihús eru órjúfanlegur
hluti hverfanna í Montreal og iða
af lífi. Kaffimaskínurnar eru auð-
vitað í aðalhlutverki en staðirnir
bjóða einnig upp á prýðilegar súp-
ur, salöt og „croque-monsieurs“, að
ekki sé minnst á „croissants“ og
sætar kökur. Um helgar er yf-
irleitt hægt að fá morgunverð fram
yfir hádegi.
Allt til útivistar
Ég gekk í félag um daginn, eða
öllu heldur kaupfélag, Mountain
Equipment Coop nefnist það. Ég
var búinn að skoða framboðið örlít-
ið á Netinu, áður en ég mætti á
staðinn. Þeir leggja ekkert upp úr
innréttingum eða skrauti en þarna
fæst allur útivistarfatnaður á hag-
stæðu verði að mér finnst. Sjálfur
var ég fyrst og fremst að leita að
hjólafatnaði og fann nóg af honum.
Félögum mínum heyrðist ég ætla
að fara að kaupa mér jólaföt og
biðu spennt að sjá varninginn. Ég
á eftir að kaupa margt og mikið í
þessu kaupfélagi. Póstverslunin
okkar (ég er félagi!) er líka góð!
esso@mbl.is
Um 330 þúsund formúlu-
áhugamenn alls staðar að úr
heiminum streyma til Mont-
real aðra helgina í júní ár
hvert, en þá er F1 Grand Prix
of Canada haldin á Gilles-
Villeneuve-kappakstursbraut-
inni. Hinir láta sér nægja að
fylgjast með herlegheitunum
á sjónvarpsskjánum heima í
stofu, enda eru hótelin bókuð
langt fram í tímann. Ég fékk að fara salíbunu á kappakstursbrautinni
og ég sá menn líka hjóla þarna. Geri það næst. www.grandprix.ca
Formúlan
Vinalega heimsborgin Montreal
Montreal er heimsborg
eins og þær gerast
bestar, enda á hún sér
um 400 ára sögu og er
blanda þess besta frá
Norður-Ameríku og
Evrópu. Stefán Ólafs-
son upplifði Montreal
sem suðupott ólíkra
menningarheima.
Mannlíf í Montreal Götur og torg í þessari skemmtilegu kanadísku borg hreinlega iða af mannlífi á góðviðrisdegi.
Auðveld yfirferðar Það er ákaflega auðvelt að komast um í Montreal,
gangandi, á línuskautum eða á hjóli, sem og með neðanjarðarlestinni.
Leikgleði Heimamenn bregða á leik fyrir ferðalanginn.
Á vef upplýsingaskrifstofu ferða-
mála, www.tourisme-montreal-org
er hafsjór upplýsinga um borgina
og þar finnur maður einnig lista
yfir óteljandi hátíðir og atburði ár-
ið um kring.
www.montrealjazzfest.com
Mountain Equipment Coop
Montreal Central, 8989, boulev-
ard de l’Acadie. www.mec.ca
Reuters
Suðupottur þjóðanna
Uppruni íbúanna er margvíslegur og menn leggja mikla rækt við uppruna
sinn og flagga honum óspart, samanber Vestur-Íslendingana. Þetta end-
urspeglast í veitingahúsaflórunni. Fyrsta spurningin er því hvað viltu
borða? Viltu mat frá Asíu, Afríku, Evrópu eða Ameríku, og þá hvaðan í
þessum álfum. Algengt verð á réttunum er 500 til 1.500 krónur, auk
drykkjarfanga og söluskatta.
House of Jazz, 2060, Aylmer Street. Afbragðs úrval suðurríkjarétta, súp-
ur, salat, smáréttir, kjúklingaréttir, rif og steikur, svo fátt eitt sé talið sem
hægt er að neyta meðan hlýtt er á ljúfan djass. Verð réttanna er frá 4 og
upp í 19 dali, svo kvöldið verður ljúft.
www.houseofjazz.ca
Restaurant et Taverne Magnan 2602, rue St. Patrick. Roast beef, lax og
humar, vænar steikur og rif af grillinu. Verðið fer eftir stærð steikarinnar.
170 g roast beef kostaði 14,45 dali og 566 g kostuðu 35,95 dali, þegar ég leit
þar inn. www. magnanresto.com
Les Beaux Jeudis, 1449, Crescent Street. Klassískur franskur matseðill,
steik tartare, lambalæri Provençale og piparsteik flamberuð við borðið.
Verð á aðalréttum er 20 til 45 dalir.
www.thursdaysbar.com
Globe, 3455, Boulevard Saint-Laurent. Matseðillinn er ákaflega ferskur
og ræðst af því hráefni sem er í boði hverju sinni. Verð á aðalréttum er frá
50 dölum og á forréttum frá 15 dölum. Það er vissara að panta því stað-
urinn er ákaflega vinsæll en afgreiðslan er ljúf og fagmannleg.
www.restaurantglobe.com
Restaurant de l’Institut, 3535, Saint-Denis Street. Einstök reynsla fyrir
bragðlaukana þar sem kokkar og prófessorar Institut de tourisme et d’hô-
tellerie de Quebec leiðbeina snillingum framtíðarinnar. Verð á aðalréttum
er frá 50 dölum og á forréttum frá 15 dölum.
www.ithq.qc.ca
Briskets, 1093, Beaver Hall Hill. Sérhæfir sig í reyktu kjöti sem borið er
fram í einskonar samloku. Afgreiðslan er hröð og verðið innan við 20 dali.
info@briskets.ca
Komdu með vínið með þér
Þar sem vínveitingaleyfi er afar dýrt í Kanada hafa sumir veitingamenn
kosið að halda matarverðinu í hófi og bjóða gestum að koma sjálfir með
vínið með matnum.
Skilti í glugga gefa til kynna hvort vín sé selt eða hvort gestir geti haft
það með sér (Apportez votre vin).