Morgunblaðið - 09.08.2007, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HINN 30. júlí sl. horfði ég og
hlustaði á samtal í
Kastljósi.
Þar áttust við
Ágúst Ólafur Ágústs-
son, varaformaður
Samfylkingarinnar
og Hörður Svav-
arsson, áfengis- og
vímuefnaráðgjafi hjá
SÁÁ.
Það er skemmst
frá því að segja að ég
trúði vart eigin eyr-
um þegar Ágúst
hafði orðið!
Hvar hefur þessi
blessaði maður alið
manninn?
Það sorglega við
þetta var að í frétta-
tímanum á undan
Kastljósi var einmitt
sagt frá gríðarlegum
áfengisvanda Finna;
að þeir hefðu lækkað
áfengisgjaldið fyrir 3
árum en ekki haft er-
indi sem erfiði því
það hefði snúist upp í
andhverfu sína og
drykkja aukist til
muna.
Í Morgunblaðinu
mátti síðan lesa að
ofdrykkja er aðaldán-
arorsök í Finnlandi.
En Ágúst Ólafur hefur tröllatrú
á að ef við lækkum áfeng-
iskaupaaldurinn, leyfum sölu á
bjór og léttvíni í matvöruversl-
unum, lækkum verðið um tugi
prósenta, þá verði vandinn þar
með úr sögunni.
Ágúst er líka undrandi og
hneykslaður á hversu margir hafa
farið í meðferð á Íslandi.
Hann virðist ekki vita hversu
lánsöm við erum að hafa svo
greiðan aðgang að frábærum
meðferðarúrræðum. Ég er efins
um að nokkurt annað
land bjóði upp á betri
þjónustu.
Hvar annars staðar
getur fólk annaðhvort
tekið upp símann eða
labbað inn á Vog eða
Landspítala og bók-
staflega sjúkdóms-
greint sig sjálft og
óskað eftir meðferð?
Ég er ein af þess-
um lánsömu að hafa
átt kost á úrlausn á
mínum áfengisvanda
með hjálp frábærra
lækna og ráðgjafa.
Mig langar líka til
að vita að ef það er
svona nauðsynlegt að
auðvelda aðgengi að
áfengi svo takast
megi á við vandann.
Hvers vegna var þá
gripið til þess að læsa
tóbak inn í skápum
og skúffum og gera
viðamiklar ráðstaf-
anir til að koma því
úr augsýn almenn-
ings?
Eru þær forvarnir
algjörlega unnar til
einskis? Hvað segja
kannanir um það?
Að lokum vil ég
lýsa yfir aðdáun minni á Herði
Svavarssyni að hafa haldið það út
að hlusta á svo aumkunarverðan
málflutning sem varaformaðurinn
viðhafði.
Í alvöru talað?
Auður Þorgeirsdóttir trúði vart
eigin eyrum þegar Ágúst Ólaf-
ur hafði orðið í Kastljósinu
Auður Þorgeirsdóttir
» Ágúst Ólafurhefur trölla-
trú á að ef við
lækkum áfeng-
iskaupaald-
urinn, leyfum
sölu á bjór og
léttvíni í mat-
vöruverslunum
og lækkum
verðið þá verði
vandinn úr sög-
unni.
Höfundur er formaður FÍFV (Félag
íslenskra forvarna- og vímuefnaráð-
gjafa).
VERSLUNARMANNAHELG-
IN er liðin hjá, ein mesta ferða- og
gleðihelgi ársins allt frá því að
elstu menn muna.
Nú virðist eins og breyting sé
að verða á, enda ekki undarlegt,
þar sem flestar helgar sumarsins
eru að verða „verslunarmanna-
helgar“ með tilheyr-
andi uppákomum hér
og þar um landið. Á
undanförnum árum
hefur verið blásið til
veislu á Akureyri um
verslunarmannahelg-
ina, sem bæjarbúar
hafa almennt ekki
verið sáttir við. Fyrir
ári síðan var ein slík
og að henni lokinni
skrifaði ég í Morg-
unblaðið:
„Margir Akureyr-
ingar þorðu ekki að
heiman um verslunarmannahelg-
ina, þar sem „Vinir Akureyrar“
höfðu blásið til enn einnar hátíð-
arinnar. Til þess nýttu þeir meðal
annars skattpeninga bæjarbúa.
Árangurinn var sá, að til bæjarins
komu 18.000 manns, að því er tals-
menn hátíðarinnar töldu. Það þýð-
ir, að íbúatala bæjarins hefur tvö-
faldast þessa helgi. Það er
ábyrgðarhluti að efna til slíkrar
veislu, öryggi bæjarbúa og gesta
þeirra er stefnt í hættu.“
Síðar í grein minni sagði:
„Við Akureyringar viljum taka
vel á móti okkar gestum en þegar
slíkur fjöldi kemur á einni helgi
gengur það ekki upp. Hver grastó
á tjaldsvæðunum var nýtt, sund-
laugin var yfirfull, það voru bið-
raðir við alla veitingastaði, örtröð
og jafnvel vöruþurrð í verslunum.
Þær voru margar hverjar opnar
fram undir morgun og þar voru
látlaust „straujuð“ greiðslukort
ungmennanna, hvernig svo sem
ástand þeirra var.“
Þetta var skrifað fyrir ári, eftir
slæma „sukkveislu“ á Akureyri. Á
eftir var bærinn eins og eftir loft-
árás. Kostnaður bæjarfélagsins og
bæjarbúa var mikill, við hreinsun
og lagfæringar en svonefndir „Vin-
ir Akureyrar“ réðu sér ekki fyrir
kæti; þeir höfðu grætt
á tá og fingri. Sá
gróði fór ekki í að
hreinsa bæinn, svo
mikið er víst.
Nú kveður hins
vegar við annan tón
hjá „Vinum Akureyr-
ar“. Stjórnendur bæj-
arins eru vondir við
okkur, sögðu tals-
menn þeirra strax í
upphafi hátíðar. - Þeir
meina ungmennum
landsins að koma á
tjaldsvæði bæjarins,
(til að skapa þar eitt allsherjarfyll-
irí með tilheyrandi skrílslátum og
sóðaskap). Þetta er dónaskapur
við æsku Íslands, sögðu þeir
brostinni röddu – og hefðu allt
eins getað bætt við: - Nú náum við
ekki í krónurnar úr pyngju þeirra
lengur!
Þeir sem fylgst hafa með frétt-
um í sumar, hafa heyrt af ófriði
drukkinna ungmenna á tjald-
stæðum hér og þar um landið.
Krakkarnir virðast nota nútíma-
boðtækni til að blása til fagnaða,
sem í mörgum tilvikum hafa endað
með skelfingu. Þetta varð til þess,
að stjórnendur vinsælla tjald-
svæða gripu til þess ráðs, að
meina ungmennum aðgang, fyrst
og fremst til að fjölskyldufólk gæti
haft frið. Þetta hefur í flestum til-
vikum dugað og sem betur fer
gripu stjórnendur Akureyrarbæjar
til þess sama. Ég óska Sigrúnu
Björk Jakobsdóttur og hennar
fólki í bæjarstjórninni til hamingu
með það framtak. Það heppnaðist
fullkomlega. Það leit að vísu ekki
vel út á meðan norðangarrinn blés
en um leið og sólin lét sjá sig fyllt-
ist bærinn af fólki. Allir skemmtu
sér vel og það sást varla kusk á
sparifötum bæjarins eftir helgina.
Ég tel næsta víst, að meirihluti
bæjarbúa sé ánægður með hvernig
til tókst. Tjaldsvæðin voru full af
fjölskyldufólki, sem naut dvalar-
innar og fékk þá þjónustu, sem við
Akureyringar viljum veita. Að vísu
er talið, að gestirnir hafi verið
helmingi færri í ár en í fyrra, eða
um 8- 9 þúsund manns. Það er al-
veg nóg fyrir 17 þúsund manna
samfélag. Samt sem áður halda
„Vinir Akureyrar“ áfram að berja
lóminn, með dyggri aðstoð frétta-
manna, sem dettur ekki í hug að
leita uppi „ánægða“ bæjarbúa.
Það er vissulega gaman að fá
góða gesti í bæinn, þeir kaupa sitt
lítið af hverju og skapa veltu í
bæjarfélaginu, sem skapar fyrir-
tækjum betri afkomu og þá vænt-
anlega starfsmönnum þeirra betri
laun. Ég veit allt um þetta en öll
slík starfsemi þarf að vera innan
velsæmismarka. Það er enginn
sómi að því fyrir verslanir bæjar-
ins, að hafa opið allan sólarhring-
inn og strauja viðskiptakort mis-
drukkinna unglinga, þar til þau
eru rauð glóandi. Það jafngildir
þjófnaði í mínum augum.
Nú hafa „Vinir Akureyrar“ hót-
að að hætta skemmtanahaldi um
verslunarmannahelgar framtíð-
arinnar. Það verður bara að hafa
það, ef þessir menn eru ekki til-
búnir til að þróa þá stefnu sem
mörkuð var um síðustu helgi. Aðr-
ir hlaupa eflaust í skarðið. Þeir
geta þá ef til vill fengið að líta í
reikningshald „Vina Akureyar“.
Hvernig er þessi rekstur fjár-
magnaður? Hvað og hverjum er
borgað?
Ekki er borgað fyrir hreinsun
bæjarins, svo mikið er víst. Hvað
hefur t.d. Bragi Bergmann og
hans fyrirtæki fengið fyrir sinn
snúð? Eru svonefndir „Vinir Akur-
eyrar“ tilbúnir að leggja spilin á
borðið?
Akureyringar; til hamingju með
vel heppnaða hátíð um nýliðna
helgi. Vonandi kvika stjórnendur
bæjarins hvergi og tryggja að á
Akureyri verði „fjölskylduvænar“
verslunarmannahelgar á komandi
árum.
„Ein með öllu“
Til hamingju Akureyringar
með vel heppnaða hátíð segir
Sverrir Leósson
» Sem betur fer tókstað skapa fjölskyldu-
stemmningu á Akureyri
um nýafstaðna versl-
unarmannahelgi, þökk sé
stjórnendum bæjarins.
Sverrir Leósson
Höfundur er útgerðarmaður
á Akureyri.
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
MORGUNBLAÐIÐ er með í notk-
un móttökukerfi fyrir aðsendar
greinar. Formið er að finna ofar-
lega á forsíðu fréttavefjarins mbl.is
undir liðnum „Senda inn efni“.
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er
notað þarf notandinn að skrá sig
inn í kerfið með kennitölu, nafni og
netfangi, sem fyllt er út í þar til
gerða reiti. Næst þegar kerfið er
notað er nóg að slá inn netfang og
lykilorð og er þá notandasvæðið
virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri há-
markslengd sem gefin er upp fyrir
hvern efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsamleg-
ast beðnir að nota þetta kerfi.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.
Móttökukerfi
aðsendra
greinaMeistaramatur
á Vefvarpi mbl.is
Nýr þáttur á mbl.is þar sem lands-
liðskokkarnir Bjarni og Ragnar
matreiða humarfyllta nautalund
og portobello-sveppi ásamt grilluðu
grænmetis- og ávaxtasalsa.
Þú sérð uppskriftirnar á Vefvarpi mbl.is