Morgunblaðið - 09.08.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 29
þar doktorspróf í lífefnafræði. Tæki-
færin blöstu við honum, hann gat val-
ið úr vinnu erlendis en deCode vildi
fá þennan efnilega unga mann til liðs
við sig hér og hann flutti aftur til Ís-
lands.
Fyrir stuttu síðan stóðum við í
Efstasundinu, núna ömmurnar með
ömmubörnin. Við töluðum um barna-
lánið og ömmu- og afabörnin sem nú
eru á sama aldri og þegar við höfðum
mest samband. Stefán var þar stadd-
ur með Tý Fáfni og við grínuðumst
með það hvað litli og stóri strákurinn
væru líkir. Þessi stund með Stefáni
er nú ómetanleg í minningunni. Stef-
án stóð á tímamótum í lífinu, hann
leitaði hamingjunnar, það er óskilj-
anlegt að það skyldi enda með slíkum
harmleik.
Elsku vinir, þið öll sem eigið um
sárt að binda, við sendum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Guð, blessa þau sem verða að lifa
við tómarúm sér við hlið,
Blessa þau sem syrgja
barn sem þau misstu
blessa þau sem sakna
vinar sem yfirgaf þau
blessa þau öll sem sakna
og syrgja.
(Martin Lönnebo)
Björk og Friðbjörn, Ragnar,
Auður, Arnar Steinn,
Sigurvin og fjölskyldur.
Tilhugsunin um að Stebbi vinur
okkar sé dáinn er enn svo óraunveru-
leg. Síðast þegar við hittumst öll og
áttum yndislega daga saman var í
maímánuði í fyrra. Þessi tími var
dýrmætur og eftir því sem á hefur
liðið höfum við öll lært að meta þess-
ar stundir enn frekar.
Myndirnar og minningarnar eru
mikilvægari en okkur grunaði, þegar
við sátum í rólegheitum, drukkum
bjór og snæddum pitsu í fallegu veðri
í NY. Við nýttum tímann vel, skoð-
uðum okkur um í NY og Stebbi fór
með Áslaugu meðal annars á Broad-
way show, því honum fannst ekki
hægt að fara til NY og sleppa því.
Þótt eftir á segði hann að Mama Mia
hefði verið óttalegt stelpushow naut
hann þess í botn. Út að borða fórum
við og nutum lífsins í æsispennandi
borg. Ekki óraði okkur fyrir því að
þetta yrði í síðasta sinn sem við
kvöddumst með kossi og faðmlagi.
Minningarnar eru margar og allar
eru þær góðar því Stebbi var meira
eðalmenni en flestir.
Hann var ljúfmenni, þolinmóður,
ósérhlífinn, duglegur og ástríkur fað-
ir.
Elsku Áslaug, Týr og allir aðrir að-
standendur, ykkur viljum við votta
okkar innilegustu samúð.
Þó að leiðin virðist vönd,
vertu aldrei hryggur.
Það er eins og hulin hönd
hjálpi er mest á liggur.
(Jón S. Bergmann.)
Með eftirsjá og söknuði kveðjum
við góðan vin og félaga.
Minningin um einstakan mann
mun lifa í hjörtum okkar um ókomna
tíð.
Ylfa, Marc, Anna Sigríður
og Valgeir.
Stórt skarð er höggvið í okkar hóp
og við minnumst með hlýju og sökn-
uði Stefáns Jónssonar, kærs vinar
okkar og samstarfsmanns. Stefán
kom fyrst til starfa hjá Íslenskri
erfðagreiningu sumarið 1998, stuttu
áður en hann lauk meistaraprófi í
efnafræði, og vann í rúmt ár við rann-
sóknir á efnaskiptasjúkdómum. Stef-
án vann hylli allra sem störfuðu með
honum. Hann var skarpgreindur,
áhugasamur og duglegur, og fljótur
að tileinka sér nýja þekkingu og
tækni.
Vísindin heilluðu og Stefán hélt til
doktorsnáms við Háskólann í Flór-
ída. Hann var mikill námsmaður og
náði góðum árangri í rannsóknum á
byggingu og virkni ensíma sem birt-
ust í virtum fræðiritum. Stefán talaði
oft um námsárin í Flórída og það brá
fyrir glampa í augunum. Hann efldist
í rannsóknunum, eignaðist soninn Tý
Fáfni, byrjaði að spila golf, og naut
sín í sólinni og hitanum.
Þegar hillti undir að Stefán lyki
doktorsnámi var honum boðið starf
hjá Íslenskri erfðagreiningu og 2004
tók hann við starfi verkefnisstjóra
rannsókna á erfðafræði smitsjúk-
dóma. Hann gegndi lykilhlutverki í
rannsóknum á erfðafræði berkla, al-
varlegra bakteríusýkinga, inflúensu
og svörunar við kúabólusetningu.
Rannsóknirnar eru unnar í samstarfi
við sérfræðinga á Landspítala há-
skólasjúkrahúsi, Heilsugæslunni í
Reykjavík, Háskólanum í New Mex-
ico og Erfðarannsóknastofnuninni í
Santa Fe. Stefán var líka verkefnis-
stjóri í rannsóknum á erfðafræði
kæfisvefns, í samvinnu við Landspít-
alann og Læknaháskólann í Penn-
sylvania. Stefán hafði brennandi
áhuga á verkefnum sínum og greind
og hæfileikar hins unga vísinda-
manns komu vel í ljós. Hann sýndi
frumkvæði og sjálfstæði, var athug-
ull og gagnrýninn, vann skipulega og
var afkastamikill, og alltaf rólegur og
yfirvegaður.
Ég var svo lánsöm að vinna náið
með Stefáni frá því ég hóf störf sem
deildarstjóri hjá Íslenskri erfða-
greiningu fyrir rúmum 2 árum. Það
var gott og gefandi að vinna með hon-
um. Rannsóknir eru teymisvinna þar
sem margir leggja saman og góð
samskipti forsenda þess að árangur
náist. Við ræddum niðurstöður rann-
sóknanna og lögðum á ráðin um
framhaldið, undirbjuggum kynning-
ar á þeim fyrir samstarfsfólk okkar
og skrifuðum skýrslur. Í þrígang fór-
um við saman til Bandaríkjanna,
stoltur kynnti Stefán rannsóknirnar
og kunnátta hans og áhugi leyndi sér
ekki.
Hann hafði alla burði til að geta
náð miklum árangri í veröld vís-
indanna. Rannsóknir taka tíma og
krefjast þolinmæði, uppskeran lætur
oft bíða eftir sér. Það erfitt að sætta
sig við að Stefán muni ekki sjá ávöxt
vinnu sinnar og njóta uppskerunnar
með okkur.
Stefán var félagslyndur og naut
sín í góðra vina hópi. Ferð deildar-
innar okkar nýlega til Stokkseyrar er
minnisstæð. Þá var mikið spjallað og
glatt á hjalla. Stefán hafði sterkar
skoðanir og gaman af rökræðum.
Hann var traustur og góður félagi.
Á þessari sorgarstundu er hugur
okkar, vina og samstarfsmanna Stef-
áns, hjá Tý Fáfni, Áslaugu, Heiðdísi
Lilju, foreldrum, systkinum og öðr-
um aðstandendum. Megi minningin
um góðan dreng veita þeim styrk.
F.h. samstarfsfólks hjá Íslenskri
erfðagreiningu,
Ingileif Jónsdóttir.
Það er erfitt að trúa því að hann
Stefán bekkjarbróðir okkar sé dáinn.
Þótt við bekkjarsystkinin höfum far-
ið hvert sína leiðina frá því að grunn-
skóla lauk og kannski ekki verið nógu
dugleg að halda sambandi í seinni tíð,
þá finnum við fyrir því skarði sem
höggvið hefur verið í okkar hóp og
stöndum eftir með óþægilega áminn-
ingu um það hve bilið getur verið
stutt á milli lífs og dauða.
Við minnumst Stefáns, eða Stebba,
sem góðs félaga sem naut vinsælda
meðal skólafélaga sinna enda ein-
staklega hæfileikaríkur, hvort sem
var í námi, íþróttum eða hverju öðru
sem hann tók sér fyrir hendur. Hann
var kappsamur og metnaðarfullur en
kappsemin beindist aldrei gegn okk-
ur bekkjarfélögunum, heldur keppti
hann alltaf fyrst og fremst við sjálfan
sig og eigin metnað.
Við munum eftir sjálfstæðum og
viljasterkum einstaklingi sem oft fór
sínar eigin leiðir að hlutunum en upp-
skar aldrei annað en virðingu og að-
dáun fyrir. En fyrst og fremst mun-
um við eftir góðum félaga og vini sem
átti ríkan þátt í að gera bekkinn okk-
ar að þeim frábæra hópi sem hann
var.
Við kveðjum góðan félaga með
söknuði. Fjölskyldu Stefáns og ást-
vinum sendum við hugheilar samúð-
arkveðjur.
Bekkjarsystkin úr Heiðarskóla.
✝
Okkar elskulega,
RUTH HALLA SIGURGEIRSDÓTTIR,
Ársölum 3,
sem lést á Landspítalanum, miðvikudaginn
1. ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju á
morgun, föstudaginn 10. ágúst, kl. 11.00.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á sjóðinn Blind börn á
Íslandi í síma 525 0000 og á klara@blind.is.
Ólafur Axelsson,
Jón Axel Ólafsson,
Ólafur Ragnar Ólafsson,
Jóhann Garðar Ólafsson, Hulda Dögg Proppé,
Kristín Ruth, Ólafur Ásgeir, Óttarr Daði, Róbert Aron,
Elísa G. Jónsdóttir, Jón Hannesson.
✝
Elskulegur föðurbróðir minn,
SVERRIR JÓNSSON,
Hvammi,
Húsavík,
lést mánudaginn 6. ágúst.
Jarðað verður frá Húsavíkurkirkju, þriðjudaginn 14. ágúst kl. 14:00.
Fyrir hönd systur og annarra aðstandenda,
Berta J. Einarsdóttir.
✝
Faðir minn, afi, bróðir og mágur,
GUNNAR SÆMUNDSSON,
áfengis- og vímuefnaráðgjafi,
Dunhaga 11,
Reykjavík,
lést á krabbameinslækningadeild Landspítalans,
mánudaginn 6. ágúst.
Útför auglýst síðar.
Helga Gunnarsdóttir, Baldvin Esra Einarsson,
Styrkár Baldvinsson,
Guðmundur Sæmundsson, Kristín Eyjólfsdóttir,
Þorvarður Sæmundsson, Ásta Lára Leósdóttir.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
SVANHILDUR JÓNSDÓTTIR,
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður til heimilis á Melhaga 18,
er látin.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Einar Magnússon,
Steinunn Stefánsdóttir,
Sigrún Brynja Einarsdóttir, Magnús Rannver Rafnsson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURBJÖRG SVEINSDÓTTIR,
áður til heimilis í
Gullsmára 9, Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut, þriðjudaginn
7. ágúst.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Sveinn K. Baldursson, Auður Vésteinsdóttir,
Rannveig K. Baldursdóttir,
Baldur Georg Baldursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
SIGURGEIR MAGNÚSSON
húsgagnasmiður,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfaranótt
sunnudagsins 5. ágúst.
Útförin verður auglýst síðar.
Bára Sigurgeirsdóttir, Vagn Gunnarsson,
Ægir Fr. Sigurgeirsson,
Hrönn Sigurgeirsdóttir, Hrólfur S. Jóhannesson,
Friðrik Sigurgeirsson, Hólmfríður Karlsdóttir,
Þórdís Sigurgeirsdóttir, Eyjólfur Baldursson.
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Kær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
Þorbjörg Eyjólfsdóttir,
Hafnarfirði,
áður Norðurbraut 1,
lést fimmtudaginn 2. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Víðistaðakirkju, mánudaginn
13. ágúst kl. 13.00.
Sólveig Björgvinsdóttir, Jóhannes Páll Jónsson
Eyjólfur Björgvinsson, Elsa Rúna Antonsdóttir,
Guðfinna Björgvinsdóttir, Sigurður Emilsson,
barnabörnin og fjölskyldur þeirra.
✝
Látin er móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
MARÍA JÖRGENSEN,
Engihjalla 1.
Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju, föstu-
daginn 10. ágúst kl. 13.00.
Valgerður Stefánsdóttir, Gunnar Á. Jósefsson,
Sigurður L. Stefánsson, Gyða Kristinsdóttir,
Viðar Helgason, Edda Eiríksdóttir,
Reynir Helgason, Ewa Kolga,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
HANNES ERASMUSSON,
Víkurbraut 26,
Hornafirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands,
þriðjudaginn 7. ágúst.
Rögnvaldur Hannesson,
Aðalheiður Hannesdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.