Morgunblaðið - 09.08.2007, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hannes Haf-steinsson fædd-
ist á Ísafirði 17.
september 1951.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans 28. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Hafsteinn O. Hann-
esson, skrifstofu-
stjóri á Ísafirði, síð-
ar útbússtjóri
Landsbanka Íslands
á Eskifirði og
Grindavík, f. á Ísa-
firði 31. október 1921, d. 16. maí
1992, og Kristín Bárðardóttir hús-
móðir, f. á Ísafirði 10. júlí 1922.
Systkini hans eru Bárður skipa-
verkfræðingur í Reykjavík, f. 11.
júlí 1945, kvæntur Eddu Gunnars-
dóttur leikskólakennara, og Guð-
rún Kristjana iðjuþjálfi í Reykja-
vík, f. 29. apríl 1950, gift Einari
H. Péturssyni verktaka.
Hinn 23. júlí 1976 kvæntist
Hannes Ragnhildi Steinu Aradótt-
ur líffræðingi, f. í Neskaupstað
20. ágúst 1954. Þau skildu.
Hinn 15. des. 1978 kvæntist
Hannes Ólafíu Soffíu
Jóhannsdóttur, f. á Þórshöfn 30.
mars 1950. Foreldrar hennar
voru Jóhann Sigurður Jón Frí-
mannsson, bóndi í Gunnólfsvík,
síðar á Akureyri, f. 14. mars 1915,
Hannes lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri
1971, B.Sc.-prófi í efnafræði frá
Háskóla Íslands 1974, Civ.Ing.-
prófi í efnaverkfræði frá LTH í
Svíþjóð 1977. SM-prófi í matvæla-
verkfræði frá MIT í Cambridge í
Bandaríkjunum 1982 og Ph.D.-
prófi í matvælaverkfræði frá
Cornell Univeristy í Ithaca, New
York í Bandaríkjunum, 1987.
Hannes starfaði sem sérfræð-
ingur hjá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins í Reykjavík 1977-
1980. Stundakennari í efnafræði
og matvælafræði við Háskóla Ís-
lands 1977-1980, aðjúnkt við
efnafræðiskor Háskóla Íslands
1978-1980. Stundakennari í nær-
ingarfræði við Hótel- og veitinga-
skóla Íslands í Reykjavík 1978-
1979. Verkfræðingur hjá Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna
1987-1992, og sem markaðsstjóri
fyrir ferskar afurðir 1989-1992.
Verkefnastjóri og forstöðumaður
á matvælasviði Iðntæknistofn-
unar frá 1992 og verkefnastjóri
hjá Matís frá ársbyrjun 2007 eftir
sameiningu matvælarannsókna
ríkisins. Stundakennari í efna-
fræði og matvælafræði við Tækni-
skóla Íslands um skeið eftir 1992.
Hannes starfaði í ýmsum nefnd-
um og starfshópum á sínu sviði og
hélt fjölda fyrirlestra og erinda á
sínu sviði bæði innanlands og er-
lendis.
Útför Hannesar verður gerð frá
Grafarvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
d. 18. febr. 1989 og
kona hans Jóhanna
Sigríður Jónsdóttir,
f. 12. júní 1922, d. 20.
des. 1988. Ólafía
Soffía ólst upp í
Reykjavík hjá föð-
urbróður sínum,
Magnúsi Frímanns-
syni, f. 6. maí 1912
og konu hans Þuríði
Eggertsdóttur, f. 30.
desember 1911. Börn
Hannesar og Ólafíu
Soffíu eru: 1) Kristín
viðskiptafræðingur,
f. 6. júlí 1978, í sambúð með Kára
Kristinssyni viðskiptafræðingi, f.
11. júní 1976. Börn þeirra eru
Victor Kári, f. 28. jan. 2004 og
Kristófer Tómas, f. 18. apríl 2005.
Fyrir átti Kristín Jakob Inga
Ragnarsson, f. 23. apríl 1995 og
Melkorku Maríu Brynjarsdóttur,
f. 8. ágúst 1997. 2) Hafsteinn Orm-
ar nemi, f. 23. júní 1988. 3) Sigríð-
ur Jóna nemi, f. 21. maí 1991.
Fósturbörn Hannesar og börn
Ólafíu Soffíu eru Nína Nygård
Nilsdóttir, f. 27. sept. 1971 og
Magnús Már Nilsson viðskipta-
fræðingur, f. 28. júlí 1974, í sam-
búð með Ástu Björgu Reynis-
dóttur, f. 5. júlí 1974, dætur
þeirra eru Katrín, f. 17. febrúar
2000 og Þórey Sesselja, f. 22. nóv-
ember 2005.
Það er erfitt að trúa því að það sé
kominn tími til að skrifa síðustu orðin
til þín núna, en satt er það, tíminn
flýgur. Aldrei getur maður gleymt
ferðinni til Hollands með Ice-step 28.
júlí sl. Að vakna, vera hress og
spennt fyrir flugið, að kyssa þig bless
kl. hálffimm um morguninn, að vera
þar og fá fréttir að þú værir látinn,
brjálæðisköstin, reiðin, sorgin, tárin,
hræðslan. Af hverju Hannes Haf-
steinsson, pabbi minn? Af hverju
maðurinn sem gerði allt fyrir alla og
var alltaf til staðar fyrir mann?
Ég er svo þakklát fyrir síðustu 16
ár sem þú gafst mér, fjölskyldan var
alltaf sett í forgang hjá þér. Ég man
svo vel eftir því þegar við héldum upp
á afmælið þitt og fórum til Hollands,
Belgíu, Lúxemborgar og Frakk-
lands. Gat ekki verið betri ferð, þú
fórst ofan í tjörnina hjá Didda og
Viktoríu, enginn annar maður hafði
þor í að fara þangað ofan í nema þú,
fallegi regnboginn sem var fyrir ofan
þig og þú óskaðir þér.
Í október 2006 þá sýndir þú hug-
rekkið og mættir til Danmerkur til
þess að passa okkur grislingana.
Mamma varð veik daginn fyrir flugið
en þú ætlaðir ekkert að gefast upp og
komst, passaðir 4 krakka og 2 ung-
linga. Þetta var mikið hugrekki í þér.
Þú fórst með okkur á McDonald’s og
þú talaðir ensku, dönsku og þýsku
við afgreiðslumanninn. Við krakk-
arnir hlógum að þér.
Alltaf varstu tilbúinn að gera allt
fyrir litlu stelpuna þína, alltaf varstu
reiðubúinn að hjálpa mér að selja wc-
pappír fyrir utanlandsferðir, keyra
og dekra mig út í eitt. Þú varst svo
sterkur að vera aldrei neikvæður
með krabbann. Ég man vel eftir því
þegar ég fór að hitta þig í fyrsta
skiptið upp á spítala, man hvað ég var
stolt af þér að þú gast hreyft tærnar.
Svo þegar maður kom þangað oftar
þá varstu svo stoltur af því að þú gast
borðað sjálfur, gengið með göngu-
grind, hlegið með okkur. Ég var svo
stolt af þér og hugsaði með mér að þú
kæmist af spítalanum og myndir
losna við krabbann. Aldrei getur
maður gleymt þegar maður kom
þangað og þú sagðir: Sigga, þetta er
hjúkrunarkonan sem fór með mér í
sturtu í morgun. Ég man vel þegar
þú baðst mig flissandi að nudda á þér
tærnar, ekki gat maður neitað að
dekra smá við pabba og auðvitað
nuddaði ég. Svo þegar ég var heima í
kaffi í vinnunni og þú baðst mig að
sjá þig ganga án göngugrindar áður
en ég færi aftur í vinnuna, alltaf var
maður brosandi og stoltur af þér. Ég
er svo þakklát fyrir það að þú kvald-
ist aldrei, þú varst alltaf jákvæður og
sami pabbinn þó að þú hafir verið
mikið veikur. Aldrei mun ég gleyma
öllum þeim minningum sem ég á með
þér.
Fyrir stuttu þá sátu ég og Haf-
steinn inní eldhúsi og allt í einu heyr-
ist í Hafsteini ,,vá hvað það er skrýtið
að heyra ekki hroturnar í pabba“.
Enda er það skrýtið. Ég veit að þú
ert núna í betri höndum og ættingjar
okkar taka vel á móti þér þarna í
stórri veislu. Núna ert þú uppi á
himnum að byggja risastórt hús
handa okkur þar sem við getum verið
öll saman þegar okkar tími kemur.
Ég elska þig pabbi ótrúlega mikið og
mun alltaf elska þig.
Þín pabbastelpa,
Sigríður Jóna.
Mann setur hljóðan þegar fólk í
blóma lífsins er svo skyndilega kallað
á brott. Hannes bróðir okkar er allur.
Veikindi Hannesar komu í ljós í
byrjun júní mánaðar sl. er hann
greindist með krabbamein. Þetta
kom okkur systkinunum mjög á
óvart, þar sem hann hafði ætíð verið
heilsuhraustur.
Hannes var yngstur okkar systk-
ina. Við ólumst upp á Ísafirði í frið-
sælu og þægilegu umhverfi, sem
bauð unglingum í þá daga upp á leik
og störf við sjávarsíðuna.
Hannes var fjörugur og tápmikill
unglingur og eignaðist marga vini og
félaga á Ísafirði. Skátastarfið var
umfangsmikið í okkar fjölskyldu, úti-
legur og skátamót hingað og þangað
um landið, sem við tókum þátt í og oft
var vitnað í. Bræðurnir lærðu á blást-
urshljóðfæri og spiluðu í barnalúðra-
sveit tónlistarskólans.
Snemma komu í ljós góðir náms-
hæfileikar hjá Hannesi. Hann hóf
nám við Menntaskólann á Akureyri
eins og við eldri systkinin höfðum
gert.
Eftir háskólanám í Reykjavík hélt
hann ásamt Steinu, fyrri konu sinni
til frekara náms til Lundar í Svíþjóð.
Þar heimsóttum við þau og áttum þar
góða daga saman.
Fljótlega eftir að Hannes kom
heim frá Svíþjóð kynntist hann
Soffíu. Þau fluttu til Bandaríkjanna
1980 með þrjú börn og stundaði hann
nám bæði í Boston og Íþöku, en þar
lauk hann doktorsprófi 1987. For-
eldra okkar urðu þeirrar ánægju að-
njótandi að heimsækja þau þangað
og vitnaði hann oft til þeirra heim-
sókna.
Hannes var mikill fjölskyldumaður
og sinnti eiginkonu og börnum þeirra
af mikilli alúð og hlýju. Hann reynd-
ist börnum Soffíu, þeim Nínu og
Magnúsi mjög vel og var þeim hinn
besti faðir. Ef einhver þurfti á aðstoð
að halda var Hannes ávallt reiðubú-
inn til að bjóða fram aðstoð sína.
Meðan fósturforeldrar Soffíu lifðu,
átti hann náin og góð samskipti við
þau.
Hannes studdi vel við bakið á
börnum sínum í hvers konar fé-
lagsstarfsemi, svo sem í Fylki og víð-
ar.
Hann hafði mikinn áhuga á sínu
fagi og var mjög fróðleiksfús. Einnig
var hann mjög ötull við að veita öðr-
um af eigin fróðleik.
Í starfi þurfti Hannes að ferðast
mikið til annarra landi. Hann naut
þess að ferðast til framandi staða og
hitta starfsbræður sína í öðrum lönd-
um. Hann hafði frá ýmsu að segja,
eftir allar þessar ferðir.
Hannes hafði ákveðnar skoðanir á
framleiðslu matvæla í landinu og var
oft gaman að rökræða þessi mál við
hann. Hann hafði margvíslegar upp-
lýsingar ávallt á reiðum höndum og
gat rökstutt sitt mál ágætlega. Hann
kynntist mjög mörgum í gegnum
starf sitt og hélt marga fyrirlestra og
erindi heima og erlendis.
Fyrir okkur var Hannes frábær,
kærleiksríkur bróðir, skapgóður og
hrókur alls fagnaðar.
Öldruð móðir okkar sér nú á eftir
yngsta barni sínu. Hún á góðar minn-
ingar um duglegan, elskulegan og
tápmikinn son.
Hannes, þín er sárt saknað af
systkinum og fjölskyldum þeirra.
Elsku Soffía, Sigga, Hafsteinn,
Kristín, Maggi og Nína, megi góður
Guð styrkja ykkur í sorg ykkar og
vera með ykkur.
Guðrún Kristjana og Bárður.
Elsku pabbi minn.
Nú er kletturinn okkar fallinn eftir
stutta en hetjulega baráttu. Ég mun
aldrei geta lýst því með orðum
hversu þakklát ég er þeim 29 árum
sem ég fékk með þér, allt sem þú hef-
ur kennt mér mun ég búa að og geta
kennt mínum börnum.
Þú varst alltaf svo jákvæður og
kom það best í ljós þegar þú brostir
þínu síðasta brosi til bræðra minna
og Jakobs, eins og alltaf hélstu yfir-
vegun og varst rólegur. 28. júlí var
dagur sem hefði átt að vera öðruvísi,
við vorum bæði búin að hlakka svo
mikið til, þú varst svo sorgmæddur
yfir frestuninni þegar þú lagðist inn á
11E. Ég sagði þér að hafa engar
áhyggur, við myndum bara halda fal-
legt brúðkaup síðar.
Mikið á ég eftir að sakna símtal-
anna, tölvupóstanna og blogg-com-
mentanna þinna. Þú hefur barist svo
hart fyrir réttindum barna með
Asperger-heilkenni svo við gætum
flutt heim, ég mun sjá til þess að sú
barátta haldi áfram, eins og þú sagðir
,,dropinn sem holar steininn“.
Þú varst langbesti afi sem nokkurt
barn hefði getað óskað sér og gleymi
ég því aldrei þegar þú komst og pass-
aðir stóðið svo að við gætum skroppið
í smá frí til Búdapest og það gerðir
þú með bros á vör. Þú varst sá eini
sem sást öll mín börn nýfædd, alltaf
kom sami stolti svipurinn þegar þú
hélst á nýburunum, sagðir mér
hversu ríkur þú værir.
Í gegnum skólagönguna mína hef-
ur þú alltaf bakkað mig upp og hvatt
mig áfram, þegar mér gekk vel
hringdi ég í þig stolt og þegar mér
gekk ekki vel hringdi ég beinustu leið
í þig og fékk hvatningarorðin sem ég
þurfti. Ég var svo stolt af þér þegar
þú kláraðir þitt PhD-nám og hef ég
alltaf séð í hillingum að þú myndir
líka vera stoltur af mér þegar að mér
kæmi.
Ég minnist alltaf göngutúranna
sem við tvö áttum í Köben, þegar við
eyddum heilu dögunum að ræða um
pólitík og fá okkur pylsu. Þegar þú
komst út vildir þú bara fá að nota
tímann með okkur.
Alltaf var matur ofarlega á listan-
um og leiddist okkur ekki að fara
saman í búðina og kaupa gúmmulaði
og galdra fram veislumat. Grín og
glens eru orð sem lýsa þér, þér
fannst svo gaman að fá fólk til að
hlæja og hafa gaman af, hver man
ekki eftir hafmeyjubúningnum fræga
eða þegar þú komst í jólasveinabún-
ingi með mömmu til Köben, já, allt til
að gleðja aðra. Húmorinn fór aldrei
frá þér, hann var með þér allt fram á
síðasta dag. Þér fannst nú ekki lítið
skemmtilegt að vera að fíflast í
hjúkkunum, spurðir mig svo alltaf
eftir á, var þetta ekki í lagi, ég er
bara að reyna að gera þetta
skemmtilegra fyrir þær. Ég get eng-
an veginn skilið af hverju þú varst
tekinn frá okkur, eitthvað stórt verk
hlýtur að bíða þín sem við höfum ekki
skilning á.
Það hefur myndast stórt skarð hjá
okkur við þitt fráfall, skarð sem
hræðir mig og lætur mig fyllast
óendanlega mikilli sorg. Hins vegar
bið ég þig, pabbi minn, að hafa ekki
áhyggjur af okkur. Þú hefur nefni-
lega skilið við stóran og sterkan hóp
sem mun standa saman í þessari
miklu sorg.
Hvíldu í friði, elsku pabbi minn, og
mundu að við elskum þig óendanlega
mikið og minningin þín mun lifa að ei-
lífu.
Kristín Hannesdóttir.
Það voru mér þungbær tíðindi
þegar Gunna Sjana frænka mín
hringdi um miðjan júní síðastliðinn
og sagði að Hannes bróðir hennar
væri mjög alvarlega veikur. Var ég
varla búinn að átta mig á þessu þegar
komið var að leiðarlokum míns kæra
frænda og vinar frá barnæsku.
Við Hannes ólumst upp saman að
mestu leyti, lékum okkur saman og
brölluðum margt. Heimili foreldra
hans varð mitt annað heimili þegar
ég tólf ára missti móður mína. Góðar
og fagrar minningar frá þessum tíma
hafa rifjast upp fyrir mér síðustu
daga og létt mér mestu sorgina.
Sunnudagseftirmiðdegi á Smiðjugöt-
unni hjá ömmu hans og afa. Við spil-
uðum og drukkum súkkulaði á með-
an afi Hannesar hlýddi honum yfir
margföldunartöfluna. Ellefu og tólf
sinnum taflan reyndist alltaf snúin,
enda var skólaganga okkar ekki haf-
in. Móðir mín rak um tíma dagheimili
í skólanum að Brautarholti og smíð-
uðum við Hannes fjölda báta fyrir
börnin. Þessi framleiðsla fór fram í
kjallaranum á Hlíðarvegi 3. Mikil
spenna ríkti hjá okkur og börnunum
þegar farið var að fylgjast með sigl-
ingagetu bátanna. Og viti menn þeir
sigldu allir í burtu og sáust ekki meir.
Ekki má gleyma kanínubúskapnum.
Mikið var að gera og kanínurnar
fjölguðu sér eins og kanínur gera,
með Salómon svarta í fararbroddi.
Kanínubúskap okkar lauk skyndi-
lega í einu hressilegu norðaustan-
hretinu. Þannig mætti lengi telja
enda af miklu að taka.
Ég minnist ekki að slest hafi upp á
vinskap okkar enda Hannes einstak-
lega geðgóður og ljúfur drengur, en
þó var töluverður prakkari í honum.
Leiðir skildu um tíma þegar hann fór
í menntaskóla og framhaldsnám til
Svíþjóðar og síðar Bandaríkjanna.
Þegar tækifæri gafst töluðum við
saman og ég man hvað hann sagði
mér stoltur og spenntur „á innsog-
inu“ að hann væri að verða faðir.
Hannes var mjög léttur í lund og
hlátur hans eftirminnilegur. Ég fann
aldrei merki um að hann væri að bera
sig saman eða öfundast út í aðra, man
þó þegar hann sagði svo skemmtilega
að hann öfundaði mig mjög af því að
ég eignaðist tvíbura en ekki hann, en
það var hans draumur. Börnin okkar
beggja urðu fimm. Það var ekki síður
stolt og gleði hjá honum þegar kom
að því að barnabörnin fæddust og
þótti honum mjög vænt um fjöl-
skyldu sína og bar hag hennar fyrir
brjósti, jafnt sinna eigin barna sem
stjúpbarna og var hann alltaf tilbúinn
hvort sem fjölskyldan eða aðrir áttu í
hlut að rétta hjálparhönd og greiða
götu þeirra af mikilli fórnfýsi.
Nú þegar hann hefur kvatt okkur
hinstu kveðju kemur sterkt í hugann
hvort hann hafi ekki gleymt sjálfum
sér, aldrei heyrði ég hann kvarta en
hann var duglegur að ná sér í fréttir
um líðan annarra. Í veikindum sonar
okkar gegnum árin sýndu hann og
Soffía okkur hjónum mikinn skilning.
Það er erfitt að sætta sig við að fá
ekki að njóta nærveru hans lengur en
hans hefur verið þörf á öðrum vett-
vangi.Við Sigríður vottum allri fjöl-
skyldu Hannesar innilega samúð á
þessum erfiðu tímum um leið og við
þökkum vini okkar samfylgdina og
allar gleðigjafirnar og biðjum góðan
Guð að geyma hann.
Bárður Guðmundsson.
Síminn hringir og dóttir mín segir
móður sinni, veistu að vinur hans
pabba, hann Hannes er dáinn. Ekki
verður lýst með orðum hversu illa
okkur var brugðið, af hverju hann
Hannes, hann sem alltaf var svo
hress þrátt fyrir að stundum hafi gef-
ið á bátinn í lífinu. Nú hefur almættið
kosið að Hannes leggi upp í ferðalag-
ið langa og eitt er víst að þar mun
hann verða einn af forystusauðunum
eins og hann var í okkar jarðneska
lífi.
Kristínu móður Hannesar, Soffíu
og börnum sendi ég mínar innileg-
ustu kveðjur og skil hversu sárt er að
horfa á eftir jafngóðum dreng. En
þegar sárin gróa mun vera gott að
eiga þá gnægð góðra minninga sem
Hannes skildi eftir sig.
Kristján (Kitti) Bjarni.
Meira: mbl.is/minningar
Tíminn stoppaði og ólýsanleg sorg
helltist yfir við andlátsfregn eins af
mínu allra bestu vinum í lífinu, dr.
Hannesar Hafsteinssonar. Fyrr um
daginn höfðum við rætt saman og allt
horfði til betri vegar, en svo kom
höggið, svo snöggt, svo ótímabært.
Síðan í byrjun júní hafði vinur
minn barist hetjulegri baráttu. Í
þessari baráttu var það hann sem
þurfti styrk og aðhlynningu, en svo-
leiðis hafði það ekki verið áður. Hann
sem alla tíð var kletturinn, kletturinn
sem studdi alla aðra, hjálpaði alltaf
öðrum fyrst, aðstoðaði hvern þann
sem til hans leitaði og var ávallt
reiðubúinn að miðla af sinni miklu
reynslu og sérfræðiþekkingu.
Á þessari sorgarstundu erum við
svo harkalega minnt á hversu verð-
mætt nú-ið og fortíðin eru. Minning-
arnar um heiðursmanninn og góð-
mennið dr. Hannes hrannast upp í
huganum. Alveg frá fyrstu stundu,
sem leiðum okkar bar saman, upp-
lifði ég hans heiðarleika, hjarta-
gæsku og einlægan vilja til að hjálpa
öðrum. Það var líka alltaf stutt í glað-
værðina, húmorinn og smitandi hlát-
urinn hans.
Við getum átt marga kunningja og
marga vini, en bara örfáa bestu vini.
Ég og fjölskylda mín erum þakklát
fyrir þau forréttindi og gæfu að hafa
fengið að kynnast, starfa með og
verja frítíma með Hannesi og hans
einstöku fjölskyldu.
Ávallt stóð fjölskyldan hjarta hans
næst og sinnti Hannes einstaklega
vel bæði börnum og barnabörnum og
sýndi sínum aðdáunarverða ræktar-
semi og umhyggju. Síðustu vikurnar
hefur þessi einstaka fjölskylda sýnt
og sannað það sem Hannes lagði
ávallt áherslu á, samhug, umhyggju,
hjálpsemi og væntumþykju.
Hannes Hafsteinsson