Morgunblaðið - 09.08.2007, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
dagbok | velvakandi
Bón til Páls útvarpsstjóra
ÉG HLUSTA alltaf á morgun-
útvarp Rásar eitt og vil ég nú biðla
því til Páls útvarpsstjóra að gefa
hlustendum frí frá banka- og pen-
ingaumræðu fyrst á morgnanna.
Við sem erum að baslast áfram
með hundrað þúsund krónur á mán-
uði höfum engan áhuga á þessu og
finnst mér þessi umræða vanvirð-
ing við þá sem lítið hafa. Væri ekki
hægt að sleppa fjármálaumræðu í
morgunsárið, Páll? Með ágætri
kveðju fyrir annars góða dagskrá.
Konan norður á hjaranum.
Stækkum Lækjartorg
HVERNIG væri að nota svæðið
sem brann í miðbæ Reykjavíkur til
að stækka Lækjartorg?
Ef hugmyndin yrði vel útfærð og
skemmtilega hönnuð gæti torgið
orðið svo fallegur sumarstaður. Ég
er komin með leiða á þessu litla
roktorgi með einni klukku.
Sigríður.
Herjólfur og jarðgöng
ÞAÐ er búið að ganga mikið á í
sambandi við jarðgöng til Vest-
mannaeyja. Hver hefur sína skoðun
á þessu máli en sannleikurinn er sá
að mjög lítill en hávær hópur gerir
sér enga grein fyrir staðreyndum
varðandi jarðgöngin. Ég ætla ekki
að fara út í löng rök í þessu máli en
sem betur fer er 80% þjóðarinnar
með sæmilega skynsemi og áttar
sig á að jarðgöng eru út í hött. Ann-
ar kostur hefur verið ræddur en
það er Bakkafjara. Sæmileg skyn-
semi er í því en reyndir sjómenn
telja að ferðir Herjólfs myndu falla
niður öðru hverju vegna sjógangs.
Aðrir benda á að keyrsla þaðan og
til Reykjavíkur með rútu tekur
rúmar tvær klukkustundir og tíma-
sparnaðurinn því mjög lítill. Þriðja
leiðin er aðeins stærri og hrað-
skreiðari Herjólfur eða með
tveggja tíma siglingu. Staðreyndin
stóra er nefnilega sú að mikill
meirihluti Eyjamanna er á því að
fara þessa leið. Þetta er mjög stór
hópur en því miður ekki mjög há-
vær.
Ég skora á samgönguráðherra,
sem tók mjög skynsama ákvörðun
með að slá af jarðgöngin, að athuga
þennan möguleika mjög vel.
Eyjamaður.
Þökk fyrir birtingu
ÉG VIL þakka Morgunblaðinu fyr-
ir að birta, 4. ágúst sl., ræðu Davíðs
Oddssonar sem hann flutti á Sól-
heimum 8. júlí sl.
Á Sólheima er svo yndislegt að
koma og það er svo fallegt þarna.
Eldri borgari.
Kettlingar fást gefins
SEXTÁN vikna gamlir kassavanir
kettlingar fást gefins. Upplýsingar
í síma 845 1660 og 899 5522.
GÆSIR í Laugardal rökræddu veður og vind við Ylfu Guðrúnu Unnars-
dóttur sem lét kvakið lítið á sig fá.
Morgunblaðið/Kristinn
Í grasagarðinum
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
YFIR HVAÐA
HÆFILEIKUM
BÝRÐ ÞÚ
HERRA MINN?
ÉG HELD
KEÐJUSÖGUM Á LOFTI
Á MEÐAN ÉG SPILA
POLKATÓNLIST
ÁHUGAVERT...
EN AF HVERJU KEÐJUSAGIR?
ÞVÍ ÞAÐ ER
ÞAÐ EINA SEM NÆR
AÐ YFIRGNÆFA
POLKATÓNLISTINA
MIKIÐ
ER
HANN
KLÁR
LOKAN OPNAST OG
SPRENGJAN, KALVIN,
STEFNIR TIL JARÐAR!
KALVIN ER MEÐ
EYÐILEGGINGARMÁTT Á
VIÐ HUNRAÐ KJARNORKU-
SPRENGJUR!
ALLUR HEIMURINN
FYLLIST ÓTTA ÞEGAR
KALVIN NÁLGAST JÖRÐINA
ÉG HELD NÚ SÍÐUR!
SJÁÐU!
FLÖSKU-
SKEYTI
!!
FLJÓTUR!
OPNAÐU
ÞAÐ!
ÞETTA ER
AUGLÝSING
FYRIR VIÐBÓTAR-
LÍFEYRISSPARNAÐ
...
UM LEIÐ OG ÞEIR
KOMAST AÐ ÞVÍ HVAR
MAÐUR Á HEIMA ÞÁ
HÆTTA ÞEIR ALDREI
ÞAÐ ER SVO FRÁBÆRT
AÐ VERA ÚTI Í VILLTRI
NÁTTÚRUNNI OG VEIÐA SÉR
SJÁLFUR TIL MATAR!
ALVEG EINS
OG ÞEIR GERA
ÚTI Á
SLÉTTUNNI
MATURINN ER SAMT
MISJAFNLEGA GÓÐUR
HÆ!
HVERNIG
HEFUR ÞÚ
ÞAÐ?
EKKI
MJÖG
GOTT...
NÚ?
HVAÐ
ER AÐ?
ÞAÐ ER
HANN PABBI
ÞINN OG
ÞESSI ÁRANS
PÓKER
!!
ÉG HÉLT AÐ
ÞÚ HEFÐIR
EKKI ÁHYGGJUR
AF ÞVÍ
ÞAÐ VAR ÁÐUR
EN HANN TAPAÐI
150.000 kr.
EH... ÞÚ
ÁTT VIÐ
300.000
TED CHAMBERS ER
AFTUR KOMINN Í BÚNINGINN
SEM HANN FANN...
Í ÚTVARPINU VAR SAGT AÐ ÞESSI
HLUTI HEFÐI ORÐIÐ VERST ÚTI
KANNSKI GET ÉG
BJARGAÐ EINHVERJUM EINS
OG ÉG GERÐI SÍÐAST
ÞAÐ ER KVIKNAÐ
Í ÞESSARI BYGGINGU
EN ÉG ER
HRÆDDUR
VIÐ ELD
Svarað í síma 5691100 frá 10-12 og
13-15 | velvakandi@mbl.is