Morgunblaðið - 09.08.2007, Page 40
Þegar allir eru að nota
sömu effektana fer
þetta að hljóma voða mikið
eins … 47
»
reykjavíkreykjavík
Einar Bárðarson verður að teljast
einn færasti viðskiptamógúll
skemmtanaiðnaðarins í dag. Auk
þess að stýra útgáfufyrirtækinu Be-
liever Music í Bretlandi þar sem
bæði Garðar Thór og Nylon eru á
mála, sinnir hann heimamarkaðnum
í gegnum fyrirtækið Concert sem
hann starfar enn hjá þrátt fyrir að
hafa selt Senu ráðandi hlut á síðasta
ári. Þannig hefur Einar og Concert
tekið að sér umboðsþjónustu fyrir
svo marga vinsæla tónlistarmenn
(og skemmtikrafta) að þegar Kaup-
þing fær þá hugmynd að bjóða þjóð-
inni á stórtónleika á Laugardalsvelli
og snýr sér til Einars til að skipu-
leggja herlegheit-
in, er málið auð-
leyst. Sex af átta
atriðum (SSSól,
Björgvin Hall-
dórsson, Nylon,
Todmobile, Luxor,
og Garðar Thór)
sem verða í boði á
Laugardalsvelli
eru nefnilega tengd Einari eða Con-
cert með einum eða öðrum hætti.
Því hefur það líklegast ekki tekið
langan tíma að grafa upp öll síma-
númerin hjá listamönnunum og
standa svo í samningaviðræðum við
þá fram á rauða nótt.
Hæg eru heimatökin
Kvikmynda-
gerðarmaðurinn
Rúnar Eyjólfur
Rúnarsson lauk
nú um helgina
upptökum á nýrri
stuttmynd sem
tekin var upp í
gömlu herstöðinni í Keflavík.
Söguþráður myndarinnar er tölu-
vert frábrugðinn Síðasta bænum
sem hlaut tilnefningu til Óskarsins
fyrir tveimur árum en myndin mun
víst fjalla um hóp unglinga sem
lendir í fullorðinsteiti með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum. Rúnar
naut hjálpar nokkurra samnem-
enda sinna úr Konunglega kvik-
myndaháskólanum í Kaupmanna-
höfn, þar sem hann stundar nú
nám en leikarar eru meðal ann-
arra Árni Ólafur Ásgeirsson, Gísli
Örn Garðarsson, Víkingur Heiðar,
Hera Hilmarsdóttir og Ómar Örn
Hauksson. Það er Zik Zak sem
framleiðir en enn er óráðið hve-
nær stuttmyndin verður tekin til
sýninga.
Brjálað partí í gömlu
herstöðinni í Keflavík
Framleiðslufyrirtækið Zik Zak
hefur á síðustu árum stimplað sig
inn sem eitt framsæknasta fram-
leiðslufyrirtæki Íslands á sviði
kvikmynda. Fyrirtækið hefur með-
al annars staðið að baki myndum á
borð við Síðasta bæinn, Nóa Albín-
óa, Fíaskó, Gargandi snilld og Nice-
land og nú er í framleiðslu kvik-
myndin The Good Heart sem Dagur
Kári skrifar og leikstýrir. Mikið
hefur gengið á við undirbúning á
myndinni en eins og áður hefur
komið fram voru líkur á að Ryan
Gosling og Tom Waits myndu leika
í henni. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafa tímasetningar
á upptökum ekki hentað þeim fé-
lögum, Waits og Gosling og því hef-
ur þurft að fresta myndinni aftur
og aftur. Nú mun þolinmæðin vera
að þrotum komin og Dagur Kári og
Zik Zak munu vera farnir að líta í
kringum sig. Útgáfuár myndar-
innar mun enn vera áætlað 2008.
Tímabundnar stjörnur
Sverrir Norland
sverrirn@mbl.is
RÁN Magnúsdóttir heitir 16 ára gamall ljós-
myndari sem hefur feril sinn með hvelli. Um
daginn birtist grípandi verk eftir hana,
sjálfsmynd sem kallast Freckles (ísl. Frekn-
ur), á forsíðu brasilíska ljósmyndatíma-
ritsins Fotographos, og hefur vakið þó-
nokkra athygli.
„Þeir hringdu í mig og spurðu hvort þeir
mættu birta mynd eftir mig á forsíðunni,“
útskýrir stúlkan, hógværðin uppmáluð. „Og
ég sagði auðvitað bara já.“ Aðstandendur
blaðsins rákust á myndir Ránar á síðunni
www.flickr.com, en þar hefur hún birt
fjöldann allan af myndum og uppskorið fyr-
ir vikið mikið lof annarra notenda síðunnar.
Léleg að mála og teikna
Rán kveðst „hafa dundað sér við ljós-
myndun í svona tvö ár.“ Hún segir ástæðuna
einkum vera hversu fallegt sé í sveitinni þar
sem hún býr en hún dvelst til að mynda í
Flatey á Breiðafirði hjá ömmu sinni og afa
nú yfir sumartímann.
„Mig langaði til þess að sýna öðrum þessa
fegurð. Ég málaði þegar ég var yngri, og
teiknaði, en ég komst að því að ég var alveg
svakalega léleg í því, svo að ég sneri mér að
ljósmynduninni.“
Viðbrögðin láta líka ekki á sér standa;
ófáir útlendingar hafa látið í ljós hrifningu
sína á náttúrumyndum stúlkunnar.
Í sumar sinnir hún þó ekki eingöngu
ljósmyndun, heldur annast hún einnig ýmis
tilfallandi störf í sveitinni, auk þess að
starfa öðru hverju á hótelinu.
Ljósmyndari framtíðarinnar?
Myndir Ránar eru ólíkar og margbreyti-
legar; sumar svarthvítar en flestar í lit. Hún
segist ekki halda neitt sérstaklega upp á
einhverja ákveðna ljósmyndara en heillist
þó af mörgum og reyni að læra af þeim.
„Ég tek myndir af náttúru, fuglum, port-
rett-myndir … Þetta er bara mjög fjöl-
breytt, held ég,“ segir hún. Hana langi að
reyna frekar fyrir sér á ljósmyndunarsvið-
inu í framtíðinni. „Ég fer á IB-braut í MH í
haust. Síðan langar mig í skóla í Bretlandi
eða í Bandaríkjunum.“ Hún þagnar aðeins,
bætir svo við: „Ég er með augastað á tveim-
ur skólum,“ en vill greinilega ekki láta of
mikið uppi um frekari áform, enda ung að
árum.
Fangar fegurð landsins
Forsíðumyndin Rán grettir sig og geiflar með svo eftirminnilegum hætti að aðstandendur brasilíska ljós-
myndatímaritsins Fotographos féllu í stafi. Ákváðu þeir að fá myndina til birtingar á forsíðu tímaritsins.
Skoða má myndir Ránar á ljósmyndasíðunni
http://www.flickr.com.