Morgunblaðið - 16.09.2007, Page 16
16 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hvert fer fangi #38699-079?
Erlent | Margir halda að stjórnvöld í Panama fyllist hryllingi við þá tilhugsun eina að Manuel Antonio Noriega verði
framseldur. Alþjóðamál |Þótt George W. Bush sé ekki talinn hafa mikla þekkingu á sögunni hamlar það honum ekki að nota hana til að
réttlæta stefnu sína. Föst í fréttaneti | Lúis Aragones, landsliðsþjálfari Spánar er hundskammaður eftir jafnteflið við Íslendinganna.
VIKUSPEGILL »
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
E
nginn skortur er á samsæris-
kenningum; sú áhugaverðasta
er á þá leið að herstjórinn gamli
verður færður í járnum til
Frakklands og endurgjaldið
verði fólgið í komu franskra verktakafyr-
irtækja að breikkun Panama-skurðsins. Vís-
ast höfðu flestir gleymt dómnum, sem kveð-
inn var upp yfir Manuel Antonio Noriega að
honum fjarstöddum í Frakklandi árið 1999
en lögmenn þessa fyrrverandi einræðisherra
í Panama freista þess nú að koma í veg fyrir
að framsalskrafan nái fram að ganga. Hald
margra er, að stjórnvöld í heimalandi hans
fyllist hryllingi við þá tilhugsun eina að hann
kunni að snúa aftur.
Talsmenn Fangelsismálastofnunar Banda-
ríkjanna höfðu gefið til kynna að Noriega
yrði sleppt úr haldi um liðna helgi sökum
„góðrar hegðunar“ en síðustu 17 árum ævi
sinnar hefur hann varið innan fangelsismúra
í Miami. Bandarísk stjórnvöld stefna að því
að verða við framsalskröfunni og var áætlun
þeirra sú að flytja Noriega beint úr fanga-
klefanum til Frakklands. Þar var hann á sín-
um tíma dæmdur in absentia til 10 ára fang-
elsisvistar fyrir peningaþvætti. Lögmenn
hans boðuðu að þeir hygðust vísa kröfunni til
áfrýjunardómstóls í Atlanta í Georgíu-ríki.
Rök þeirra eru þau að við réttarhöldin yfir
Noriega í Bandaríkjunum hafi hann verið yf-
irlýstur stríðsfangi og því njóti hann verndar
samkvæmt ákvæðum Genfar-sáttmálanna.
Stjórnvöld í Frakklandi viðurkenni ekki
stöðu hans sem stríðsfanga og því komi
framsal ekki til álita. Dómari í Miami hafn-
aði þessari röksemdarfærslu og kvaðst hafa
fengið tryggingar fyrir því að Frakkar
myndu sjá til þess að herstjórinn alræmdi
myndi fá sömu meðferð þar og í Bandaríkj-
unum. Þessum úrskurði hyggjast lögmenn
Noriega áfrýja. Þangað til botn fæst í málið
dvelur hann í fangaklefanum, sem verið hef-
ur heimili hans undanliðin 17 ár.
Á mála hjá CIA
Innrás Bandaríkjamanna í Panama í des-
embermánuði árið 1989 kom Noriega gjör-
samlega í opna skjöldu. Hann hafði að vísu
verið varaður við og honum stóð til boða að
fara úr landi gegn loforði um að hann myndi
engin afskipti hafa af stjórnmálum. Að sögn
lögmanns hans, Franks Rubino, fékk Nor-
iega ekki trúað því að gamall vinur hans og
samstarfsmaður, George H. W. Bush Banda-
ríkjaforseti, faðir núverandi forseta, myndi
reynast reiðubúinn að reka rýtinginn í bak
honum. Það reyndust alvarleg mistök.
Bush forseti, sem átt hafði samstarf við
Noriega er hann var yfirmaður bandarísku
leyniþjónustunnar, CIA, og sá síðarnefndi
stjórnandi leyniþjónustu hersins í Panama,
blés til innrásarinnar undir yfirskriftinni
„Réttlátur málstaður“ (e. „Just Cause“). Um
26.000 hermenn tóku þátt í innrásinni og
höfðu Bandaríkjamenn þá ekki beitt svo fjöl-
mennu herliði gegn erlendu ríki frá því í Ví-
etnam-stríðinu. 5.000 manna stjórnarher Pa-
nama gat litla sem enga mótspyrnu veitt.
Noriega leitaði skjóls í sendiráði Páfa-
garðs í Panama-borg. Hann leitaði ákaft eft-
ir hæli erlendis en fékk alls staðar neitun.
Bandaríkjamenn sátu um sendiráðið og
beittu sálfræðihernaði, sem m.a. fólst í því að
geysiöflugum hátölurum var komið upp við
sendiráðið og rokktónlist leikin allan sólar-
hringinn. Slíkt fær enginn venjulegur maður
þolað og svo fór að Noriega gafst upp 3. jan-
úar 1990. Hann var snimhendis handtekinn
og fluttur til Bandaríkjanna. Þar var hann
dæmdur í 40 ára fangelsi fyrir eiturlyfja-
smygl og peningaþvætti. Bush forseti fagn-
aði niðurstöðunni sem mikilvægum áfanga í
„eiturlyfjastríðinu“ svonefnda og lofsöng
bandaríska réttarkerfið, sem tryggt hefði að
sakamaðurinn hefði hlotið réttláta málsmeð-
ferð.
Þótt fáir yrðu til þess að koma Noriega til
varnar varð ekki hjá því komist að upplýst
væri um langt samstarf hans og Bandaríkja-
manna. Og nú þegar herstjórinn fyrrverandi,
sem er orðinn er 73 ára gamall, á yfir höfði
sér fangelsisvist í Frakklandi beinist athygl-
in enn á ný að þeirri samvinnu sem Banda-
ríkjamenn áttu við herforingja og illfygli í
Rómönsku-Ameríku á dögum Kalda stríðs-
ins. Í þeim heimshluta hefur Bandaríkja-
mönnum löngum gengið illa að veðja á réttan
hest.
Sú lýsing á augljóslega við um Manuel
Antonio Noriega; vitað er að bandarískum
ráðamönnum var um margra ára skeið kunn-
ugt um samstarf hans og eiturlyfjasmyglara
í Kólumbíu auk þess sem mannréttindabrot-
in og ofbeldið gátu ekki farið framhjá nokkr-
um manni. Noriega var á hinn bóginn talinn
mikilvægur bandamaður og því álitið ráðlegt
að líta framhjá óþægilegum staðreyndum
um stjórnarfarið með tilvísun til stærri
hagsmuna í heimshlutanum. Þetta mat fór
ekki framhjá herstjóranum og mistök sín
töldu bandarískir ráðamenn aðeins geta
leiðrétt með stórfelldri innrás.
Í réttarhöldum yfir Noriega í Bandaríkj-
unum komu ýmsar óþægilegar staðreyndir í
ljós. Noriega hafði unnið sig upp innan hers-
ins og í skóla þeirrar stofnunar á sjöunda
áratugnum hafði hann gerst málaliði banda-
rísku leyniþjónustunnar, CIA. Sem yfirmað-
ur leyniþjónustu Panama-hers gat hann
miðlað mikilvægum upplýsingum til Banda-
ríkjamanna. Í réttarhöldunum yfir Noriega
árið 1991 var frá því greint að CIA hefði alls
greitt honum 320.000 dollara í laun fyrir
störf sín auk þess hann hefði hlotið „styrki
til tiltekinna verkefna“, sem samtals hefðu
numið um 11 milljónum dollara (rúmum 700
milljónum króna).
Bandaríkjamenn fengu að nýta Panama
sem njósnamiðstöð í Mið-Ameríku. Þeirri
starfsemi var ekki síst beint gegn komm-
únistastjórn Fídels Castro á Kúbu. En ný
„ógn“ hafði skotið upp kollinum í álfunni
undir lok áttunda áratugarins. Þar ræddi
um byltingarstjórn sandinista í Níkaragva,
sem Ronald Reagan Bandaríkjaforseti taldi
öldungis nauðsynlegt að koma frá völdum.
Fyrir liggur að Oliver North, ofursti og að-
alskipuleggjandi ólöglegrar vopnasölu til
Írans og aðstoðar við Contra-skæruliða í
Níkaragva, átti fund með Noriega á Ritz-
glæsihótelinu í London í septembermánuði
árið 1986. Heimildir eru fyrir því að No-
riega hafi boðist til að láta drepa helstu
leiðtoga sandinista.
Ekki kom til þess að það boð væri þegið
en Bandaríkjamenn vissu vel hvern mann
Noriega hafði að geyma. Raunar höfðu upp-
lýsingar um samstarf hans við eiturlyfja-
baróna í Kólumbíu lengi legið fyrir og ráða-
mönnum hafði þráfaldlega verið bent á að
stjórnarfarið hefði farið síversnandi frá því
að Noriega hafði gerst einráður í Panama
árið 1983.
Heiðraður í Frakklandi
Þrátt fyrir þetta naut Noriega stuðnings
bandarískra ráðamanna allt þar til í byrjun
árs 1988 er hann var formlega ákærður fyr-
ir eiturlyfjasmygl til Bandaríkjanna. Eftir
það varð rás atburða hröð. Noriega segir að
í marsmánuði 1988 hafi hann átt fund með
tveimur fulltrúum bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, sem boðið hafi honum tvær
milljónir dollara fyrir að fallast á að fara úr
landi. Þessa frásögn staðfestir Everett Ellis
Briggs, sendiherra Bandaríkjastjórnar í
Panama frá 1982 til 1986, að hluta í grein er
hann ritaði í dagblaðið International Herald
Tribune í liðinni viku. Briggs segir að í
fyrstu hafi verið leitað eftir samkomulagi
við Noriega í þá veru að hann gæfi sig fram
gegn því að hljóta mildari dóm. Þessu hafi
herstjórinn hafnað. Þótt að sönnu megi það
teljast ótrúlegt hafi Noriega þá verið boðið
að segja af sér og halda í útlegð t.a.m. til
Venesúela eða Spánar. Þessu boði hafnaði
herstjórinn einnig og virðist ekki hafa gert
sér ljóst, að Bandaríkjamenn höfðu þá
ákveðið að koma honum frá völdum. Örlög
Manuels Noriega voru ráðin.
Talið er að um 3.000 óbreyttir borgarar
hafi týnt lífi í herförinni gegn Noriega árið
1989. Mannfall í herjum beggja var lítið.
Auk Frakka hafa stjórnvöld í Panama
einnig farið fram á að Noriega verði fram-
seldur en þar á hann yfir höfði sér 40 ára
fangelsisdóm fyrir morð, mannréttindabrot
og spillingu í sex ára stjórnartíð sinni. Efa-
semdir hafa á hinn bóginn vaknað um að
hugur fylgi máli. Noriega þekkir vel til
margra þeirra sem nú eru við völd í heima-
landi hans og hann kann að búa yfir óþægi-
legum upplýsingum. Margir óttast og að
Noriega gæti hæglega komið sér undan
dómi með því að bera fé á menn innan
dómskerfisins í Panama, sem annálað er
fyrir spillingu. Margir óttast og að her-
stjórinn gamli gæti hæglega komið sér und-
an dómi með því að bera fé á rétta aðila
innan dómskerfisins í Panama, sem annálað
er fyrir spillingu. Þá nýtur sú skoðun nokk-
urs fylgis, að Noriega gæti reynst frið-
arspillir og raskað stöðugleika í landinu en
margir eru raunar þeirrar hyggju að
ástæðulaust sé að óttast hann. Fylgi við
hann sé lítið sem ekkert og óhugsandi sé að
hann geti komið róti á stjórnmál og sam-
félag.
Ein kenningin er því sú, að ráðamenn í
Panama hafi leitað til franskra stjórnvalda
og farið þess á leit að framsals yrði krafist
með tilvísun til dómsins, sem Noriega hlaut
þar árið 1999. Á móti verði tryggt að horft
verði með velvilja til franskra verktakafyr-
irtækja þegar hafist verður handa um að
breikka Panama-skurðinn, sem verður gríð-
arlega fjárfrekt og umfangsmikið verkefni.
Í valdatíð sinni átti Noriega umtalsvert
samstarf við Frakka og hermt er að hann
hafi ítrekað heimilað frönskum skipum með
kjarnakleyf efni innanborðs að sigla um Pa-
nama-skurðinn á leið til kjarnorkutilrauna í
Pólynesíu á Kyrrahafi. Allt að einu er ljóst
að Frakkar höfðu nokkrar mætur á No-
riega. Hann var t.a.m. sæmdur heiðursorð-
unni frægu, Légion d’Honneur, árið 1987.
Líklegt er að þau samskipti öll verði rifjuð
upp fari svo, að herstjórinn gamli, fangi
#38699-079, haldi í afar langa heimsókn til
Frakklands.
Til stóð að sleppa Manuel Antonio Noriega, fyrrverandi einræðisherra í Panama, eftir 17 ára vist í
fangelsi í Bandaríkjunum en nú hefur þess verið krafist að hann verði framseldur til Frakklands
AP
Endalok Manuel Antonio Noriega í janúarmánuði árið 1990, er hann var færður fyrir dómara í
Miami í Bandaríkjunum, nokkrum dögum eftir að hafa gefist upp í Panama-borg.
ERLENT»
Í HNOTSKURN
»Manuel Antonio Noriega Morenofæddist í einu af fátækrahverfum
Panama-borgar 11. febrúar árið 1934.
Hann gekk ungur í herinn og hlaut þar
skjótan frama. Noriega lýsti sjálfan sig
hershöfðingja árið 1983 og varð þá í
raun einráður í landinu þó svo hann
skipaði sjálfan sig aldrei forseta.
» Í fangelsinu mun hann hafa lesiðheimspeki og herfræði af kappi.