Morgunblaðið - 16.09.2007, Page 66

Morgunblaðið - 16.09.2007, Page 66
66 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Kalvin & Hobbes MAMMA, MÁ ÉG FÁ ÞESSAR BUXUR? VÁ HVAÐ ÞÆR ERU DÝRAR. ÉG Á EKKI EINU SINNI SVONA DÝRAR BUXUR. SVO ÁTTU EFTIR AÐ VAXA UPP ÚR ÞEIM „STELPUR“ ÉG ÞARF AÐ GETA NÁÐ MÉR Í STELPUR MAMMA HVAÐ HEFUR BARN AÐ GERA VIÐ SVONA DÝRA MERKJA- VÖRU? Kalvin & Hobbes GEFÐU MÉR PENING! ÉG MYNDI EKKI GEFA ÞÉR PENINGINN MINN ÞAÐ SEM MEIRA ER, ÉG Á ENGAN PENING JÚ, BÍDDU, HÉRNA ERU NOKKRAR KRÓNUR HANN ER MJÖG SANN- FÆRANDI MIÐAÐ VIÐ HVAÐ HANN HEFUR TAK- MARKAÐAN ORÐAFORÐA SLÆMT FYRIR ÞIG KARLINN Kalvin & Hobbes ... SVO ÞEGAR MAGGI ÆTLAR AÐ HAFA AF MÉR MATARPENINGANA MÍNA ÞÁ STEKKURÐU Á HANN OG ÉTUR HANN ÉTA HANN? ÞAÐ GERI ÉG EKKI AF HVERJU EKKI, HOBBES? HANN INNIHELDUR OF MIKIÐ KÓLESTERÓL TYGGÐU HANN ÞÁ BARA OG SPÝTTU HONUM SVO ÚT ÉG ER MEÐ ÁÆTLUN. ÞÚ KEMUR MEÐ MÉR Í SKÓLANN Á MORGUN... Risaeðlugrín © DARGAUD TAKIÐ YKKUR STÖÐU FYRIR LIÐSKÖNNUN! ? ERTU AÐ GERA GRÍN AÐ MÉR? FJÓRIR DAGAR Í STEININUM FYRIR ÞESSA ASNALEGU KLIPPINGU! dagbók|velvakandi Þörf á mannanafnanefnd ÞAÐ er fyllilega réttmætt að manna- nafnanefnd sé starfandi. Mörg dæmi eru um að foreldrar gefi börnum sín- um ónefni sem verða þeim að virki- legum krossi alla þeirra tíð. Og mætti stundum ætla að börnin væru óvelkomin í heiminn. Prestar mættu vera betur vakandi yfir þessu. Björn Indriðason Munurinn á stjörnuspám og stjörnuspeki Á STJÖRNUSPEKIVEF Morgun- blaðsins birtast meðal annars bréf frá lesendum. Fyrr á þessu ári barst fyrirspurn um hvernig geti staðið á því að stjörnumerkin Ljónið og Meyjan beri upp á sama dag, 23. ágúst. Umsjónarmaður síðunnar svarar því til að sólin verði í Ljónsmerki fram til klukkan 12:09 á hádegi á þessu ári en fari þá inn í Meyjar- merki. Hann bætir síðan við: „Hinar venjulegu „stjörnuspár“ dagblað- anna taka ekki mið af þessu. Þar er því haldið fram að Ljónið nái til 22. ágúst og Meyjan byrji 23. ágúst, eða álíka. Þar er bara um einhvern til- búning að ræða. Ég geri töluverðan greinarmun á stjörnuspám og stjörnuspeki.“ Ef tímasetningin 12:09 hinn 23. ágúst 2007 er slegin inn í stjörnu- fræðiforrit kemur í ljós að sólin er í miðju Ljónsmerkinu. Í Almanaki Háskólans fyrir árið 2007 stendur að sólin gangi ekki í Meyjarmerkið fyrr en 16. september. Hverju á maður að trúa? Sverrir Guðmundsson, áhugamaður um stjörnufræði. Fiskurinn í sjónum er eign Íslendinga ÉG LAS í Morgunblaðinu fyrir skömmu að viðskiptaráðherra hygð- ist skipa nefnd sem m.a. á að endur- skoða lög um fjárfestingar útlend- inga hér á landi. Í fréttinni segir að fjárfestingar útlendinga séu mjög takmarkaðar og að bein fjárfesting þeirra sé óheimil. Þeir geti þó fjár- fest óbeint í sjávarútvegsfyrirtækj- um, en eignarhlutur þeirra geti þó aldrei farið upp fyrir 33%. Ég spyr: Á nú að fara að gefa fiskinn í sjón- um? Í mínum huga væri það glæpur gegn þjóðinni að veita útlendingum aðgang að fiskimiðunum okkar. Rafn Vigfússon Diesel-peysa tapaðist ÁTTA ára stelpa tapaði hvítri diesel- hettupeysu með bleiku munstri á annarri öxlinni þar sem hún var á hringferðalagi um landið í lok júlí. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 898-7892. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is TRÉN í Hólavallakirkjugarði eru tignarleg og geyma í laufskrúði sínu minningu um sólríkt sumar. Núna skellur hver haustlægðin af annarri á landinu með tilheyrandi hvassviðri og rigningu. Trén hafa kannski skýlt þessum dreng, sem átti leið fram hjá kirkjugarðinum við Ljósvallagötu, fyrir mesta rokinu. Morgunblaðið/G.Rúnar Horft um öxl FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist ályktun frá Ungum jafnaðarmönn- um, ungliðahreyfingu Samfylking- arinnar, þar sem ríkisstjórnin er hvött til að skipa samráðsnefnd stjórnmálaflokka á Alþingi í Evr- ópumálum strax á fyrstu dögum komandi þings líkt og kveður á um í stjórnarsáttmála flokkanna. „Ungt samfylkingarfólk telur mikla þörf á opinskárri umræðu um Evrópumál hvort heldur innan eða utan Alþingis. Samkvæmt reglulegum skoðanakönnum Sam- taka iðnaðarins sést að stuðningur við aðild að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar er mikill meðal þjóðarinnar og er meirihluti þjóð- arinnar fylgjandi nánari samstarfi við nágrannaþjóðir okkar í Evrópu. Ungir jafnaðarmenn ítreka að lok- um þá afstöðu sína, og Samfylking- arinnar, að endanleg ákvörðun um inngöngu Íslands í Evrópusam- bandið eigi að vera í höndum þjóð- arinnar.“ Evrópumál á dagskrá Afmælisþakkir Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim fjölmörgu sem glöddu mig og heiðruðu í tilefni af sjötugs afmæli mínu 8. september sl. með hlýjum vinarkveðjum, heillaóskum, þátttöku í afmælisfagnaði eða á annan hátt. Sérstakar þakkir flytjum við hjónin vinum okkar og vel- unnurum fyrir rausnarleg framlög í nýstofnaðan sjóð til styrktar efnilegum nemendum við Menntaskólann að Laugarvatni Kristinn Kristmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.