Morgunblaðið - 16.09.2007, Blaðsíða 56
ESPIGERÐI - GLÆSILEGT ÚTSÝNI
Mjög góð 8 herbergja íbúð á tveimur hæðum á 8. og 9. hæð (efstu) í
góðu fjölbýli með glæsilegu útsýni yfir borgina af þremur svölum,
alls 187,8 fm. Neðri hæðin: forstofurými,
3 stofur, eldhús og gestasnyrting. Efri
hæðin: stofa, 4 svefnherbergi, baðher-
bergi, þvottahús. Í sameign er þvotta-
hús, stórt leikherbergi og sérgeymsla.
Húsið er vel við haldið og sameign lítur
mjög vel út. Skipti á raðhúsi möguleiki.
Verð 72 millj.
Þverholti 14 | 101 Reykjavík | Sími 595 9000 | www.holl.is | holl@holl.is
M
b
l 9
09
94
2
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
56 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Í NÝRRI tillögu um skipulag í nánd
Lækjartorgs er lagt til að húsið
Lækjargata 4, sem nú telst ein höf-
uðprýði Árbæjarsafns, verði flutt til
baka í miðbæinn og sett niður við
Kalkofnsveginn, norðan Lækj-
artorgs. Vafalaust er að þar myndi
húsið smellpassa og falla afar vel að
hugmynd arkitektanna um nýja
heildarmynd eldri húsa í Kvosinni.
En þetta yrði ekki gert sárs-
aukalaust. Húsið gegnir mikilvægu
hlutverki í Árbæjarsafni segir borg-
arminjavörður og mun ekki ofsagt.
En, er nauðsynlegt að flytja hús-
ið? Ef ég man rétt er Lækjargata 4
bindingshús, sem afar vandasamt
yrði að flytja og það yrði mjög dýrt.
Í þessu sambandi spyr ég: Yrði
ekki hampaminna og jafnvel ódýrara
að reisa einfaldlega „kópíu“ af Lækj-
argötu 4 þarna við Kalkofnsveginn
og leyfa upprunalega húsinu að
dvelja áfram þar sem það nú er í Ár-
bæjarsafni? Hafa má í huga að húsið
í núverandi gerð er ekki „forn-
gripur“ að öllu leyti.
Ég leyfi mér að álíta að húsið sé
nú fyrst og fremst vönduð nýsmíði í
upprunalegum stíl utan um forna
innviði og binding sem þar varðveit-
ist að mestu hulinn þiljum.
Annað atriði leyfi ég mér að nefna
í þessu sambandi: Fyrrum stóð
formfagurt hús austan Lækjartorgs,
fast við lækinn, sem rann opinn þar
til hann var leiddur í stokk í upphafi
liðinnar aldar. Þetta hús byggði Carl
Ziemsen árið 1840 og síðar rak Jes
Zimsen þar verslun, segir Árni Óla í
bókinni Skuggsjá Reykjavíkur. Við
austurgafl hússins stóð auk þess lát-
laust hús með háu risi, sem mig
minnir að hafi verið nefnt Baðstofan
og hýsti lengi minjagripaverslun.
Því nefni ég þetta að mér kemur til
hugar hvort hönnuðir gætu ekki sótt
hugmyndir í þessi merku hús sem
þarna stóðu fyrrum.
ÓTTAR KJARTANSSON,
Blásölum 22, Kópavogi.
Á að flytja húsið Lækjargötu
4 úr Árbæjarsafni?
Frá Óttari Kjartanssyni:
Í MORGUNBLAÐINU 10. sept-
ember var frétt undir fyrirsögn-
inni „Útlendingar bjarga mál-
unum“. Þegar ég las fréttina þá
átti ég ekki til orð. Það sem verið
var að tala um var að ráða útlend-
inga í umönnunarstörf fyrir fatl-
aða. Ég spyr er ekki allt í lagi?
Hvernig haldið það að sé að vera
fatlaður, aldraður eða barn og
geta ekki átt eðlileg tjáskipti
vegna tungumálaerfiðleika? Ég vil
taka það fram að ég er alls ekki á
móti útlendingum og finnst það í
góðu lagi að þeir flytji hingað.
Finnst þó að frumskilyrði eigi að
vera að þeir læri íslensku áður en
þeir eru ráðnir í sum störf. Maður
getur ekki farið orðið í Bónus og
spurt um vöru öðruvísi en að eiga
það á hættu að lenda á útlendingi
sem skilur mann ekki. Sömu sögu
er að segja ef maður tekur strætó
og ætlar að spyrja til vegar, það
lyftir bara upp öxlum. Ég læt það
svo sem ekki fara mikið í taug-
arnar á mér en mér finnst það
farið að ganga einum of langt að
ætla að fara ráða útlendinga í
umönnunarstörf. Þar sem ég tala
ekki eða skil ensku er kannski
kominn tími á að ég drífi mig í að
læra hana. Ég gæti lent í því að
þurfa á þessari þjónustu á að
halda og þá er betra að geta tjáð
sig.
Það á að mínu mati að skylda
hvern þann sem ræður útlendinga
í störf að kosta þá á íslensku-
námskeið. Svo þurfa Íslendingar
að vera duglegir að tala íslensku
við þá útlendinga sem hér eru.
Það er ekki nóg að þeir læri ís-
lensku og tala svo við þá á öðru
tungumáli.
Í sömu frétt er talað um að það
þyrfti að mennta fleiri þroska-
þjálfara og bæta starfskjör þeirra.
Það er alveg rétt en ég vil benda á
að það eru líka félagsliðar, sjúkra-
liðar og stuðningsfulltrúar sem
vinna þessi störf. Það þarf að
bæta starfskjör og virða alla sem
vinna við þessi störf. Þessi störf
eru mjög krefjandi og ekki fyrir
alla að vinna þau. Starfsfólk þarf
að geta tekist á við mjög mis-
jafnar og erfiðar aðstæður.
Í annarri frétt sem birtist í
sama blaði er talað um að ástandið
sé miserfitt. Rætt er um að á
sumar starfsstöðvar vanti 37
stöðugildi á meðan á aðrar vanti 3
stöðugildi. Manni finnst svolítið
skrítið að það skuli vera svona
mikill munur þarna á og spyr
maður sig af hverju það stafar?
Liggur það í því að á starfsstöðv-
unum er komið misjafnlega fram
við starfsfólkið og misjafnlega til
móts við þarfir þess? Á mínum
vinnustað er lagt mikið upp úr
góðum starfsanda, þar er hverjum
og einum hrósað fyrir vel unnin
störf og það sem vel er gert. Stutt
er við bakið á starfsfólkinu þegar
eitthvað er að. Haldið er reglulega
námskeið sem starfsfólki er boðið
að fara á. Haldin eru keilumót,
farið í gönguferðir og á árshátíðir
og annað skemmtilegt þjappar
starfshópnum saman. Einnig er
reynt að koma til móts við starfs-
fólkið eins og kostur er í sambandi
við vaktir o.fl. Það skiptir miklu
máli að manni líði vel í vinnunni
og sé sáttur, en hitt er svo annað
mál að launin mættu vera miklu
hærri.
RANNVEIG BERTHELSEN,
félagsliði og starfsmaður
hjá SSR.
Umönnunarstörf
Frá Rannveigu Berthelsen:
NÆR 80 nemendur stunda leiðsögu-
nám við Leiðsöguskóla Íslands í vet-
ur. Aldrei áður hafa svo margir
stundað nám við skólann. Vinsældir
námsins eru vissulega góðar fréttir
fyrir íslenskar ferðaskrifstofur og
ferðaskipuleggjendur sem hafa átt í
erfiðleikum með að finna fagmennt-
aða leiðsögumenn um hábjargræð-
istímann.
Menntun leiðsögumanna hófst
með formlegum hætti árið 1977 þeg-
ar Leiðsöguskóli Íslands var stofn-
aður en áður höfðu verið haldin stutt
námskeið á vegum Ferðaskrifstofu
ríkisins sem þá var og hét.
Atvinnutækifærum fyrir verðandi
leiðsögumenn hefur fjölgað síðustu
ár í takt við fjölgun erlendra ferða-
manna til Íslands en frá upphafi hef-
ur Leiðsöguskóli Íslands útskrifað
um 1.100 nemendur.
Erlendum fararstjórum sem ekki
hafa orðið sér úti um fagmenntun í
leiðsögn um Ísland hefur einnig
fjölgað undanfarin ár. Sú staða hlýt-
ur að vekja spurningar um öryggi
ferðamanna í náttúru Íslands, neyt-
endavernd, brot á vinnulöggjöf með
tilliti til skráningarskyldu, lág-
markslauna og svartrar atvinnu-
starfsemi.
Leiðsögumenn skipta gríðarlega
miklu máli í upplifun ferðamanna í
skipulögðum hópferðum. Óhætt er
að fullyrða að fagmenntaðir leið-
sögumenn frá Leiðsöguskóla Íslands
hafi tekið þátt í því að skapa Íslandi
framúrskarandi ímynd erlendis
enda er vitað að ferðamenn sem
heimsækja landið og fara ánægðir
heim eru besta auglýsingin.
Lögverndun starfsheitis leiðsögu-
manna er löngu tímabær. Í 1. grein
laga um skipan ferðamála 73/2005 er
skýrt tekið fram að tilgangur lag-
anna sé að hafa fagmennsku og
neytendavernd að leiðarljósi. Lög-
verndun starfsheitis leiðsögumanna
kæmi ekki í veg fyrir að ófagmennt-
aðir einstaklingar stunduðu leiðsögn
frekar en kennarar koma í veg fyrir
að leiðbeinendur stundi kennslu.
Lögverndun starfsheitis leiðsögu-
manna kæmi til með að gera leiðsög-
unám enn eftirsóknarverðara til
hagsbóta fyrir íslensk fyrirtæki í
ferðaþjónustu, íslenskt hagkerfi og
ekki síst þá fjölmörgu ferðamenn
sem heimsækja landið.
STEFÁN HELGI VALSSON,
leiðsögumaður,
Grundarstíg 6, Reykjavík.
Leiðsögunám aldrei vinsælla
Frá Stefáni Helga Valssyni:
! "# $ %& ' (#& # '
)
$ "
#& # & # & $
$
* #
#
#
"
+% "*#& '& '
Óskar R. Harðarson og Jason Guðmundsson, löggiltir fasteignasalar
F A S T E I G N A S A L A N
MIKLABORG
Síðumúli 13 Sími 569 - 7000 www.miklaborg.is
Höfum fengið í einkasölu fallegt 106 fm einbýlishús í þessu rólega
bæjarfélagi. Eignin er töluvert endurnýjuð að innan. Nú er rétta tæki-
færið til að eignast sjarmerandi einbýlishús/ sumarhús á viðráðan-
legu verði. Hagstæð áhvílandi lán. V. 14,9 m. 6820.
Húsið Sólbakki stendur við Sandgerði 3 á Stokkseyri.
Eignin verður til sýnis og sölu í dag sunnudag,
á milli kl. 15-16. Ragna S. Óskarsdóttir sölumaður
tekur vel á móti ykkur. Sími hennar er 892 3342.
SÓLBAKKI -STOKKSEYRI
0PIÐ HÚS
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Fréttir á SMS