Morgunblaðið - 16.09.2007, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Sími 533 4800
Laugavegur 182 • 4. hæð • 105 Rvík Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
70 fm 2ja herbergja íbúð á rólegum og fallegum stað fyrir eldri borgara 60 ára og
eldri. Eignin skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi, svefnherbergi, tvöfaldan sól-
skála og geymslu. Mikil sameign fylgir eigninni. Íbúð 104. V. 23,5 millj.
Opið hús í dag milli kl. 14:00 og 14:30, verið velkomin
Sléttuvegur – Opið hús
Glæsileg 121,1 fm. 3ja herbergja íbúð, þar af 6,3 fm sérgeymsla, í lyftuhúsi á 4.
hæð. Íbúðin skiptist í hol, 2 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og
stofu + borðstofu. Góðar suðursvalir, frábært útsýni. Stæði í bílgeymslu fylgir.
V. 32,9 millj.
Glósalir – glæsileg íbúð
103,6 fm 4ra herbergja efri sérhæð í 2-býli. Íbúðin skiptist í forstofu, stigahús,
þrjú herbergi, stofu, eldhús, baðherbergi og búr/þvottahús. Laus við kaupsamn-
ing. V. 29,5 millj.
Melabraut - sérhæð
Góð 98,7 fm 4ra herbergja íbúð á jarðhæð við Hofsvallagötu. Íbúðin skiptist í for-
stofu, tvö barnaherbergi , hjónaherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi, geymslu og
sameiginlegt þvottahús í sameign. V. 27,9 millj.
Hofsvallagata
ATVINNUHÚSNÆÐI TIL LEIGU
Bakkabraut 2 - Kópavogi
Til leigu mjög gott ca. 480 fm iðnaðarhúsnæði við Bakkabraut í Kópavogi. Húsnæðið sem
um ræðir er með mjög góðri lofthæð og stóri innkeyrsluhurð. Nýtist sérstaklega vel sem
geymsluhúsnæði. Hér er á ferðinni vel staðsett rúmgott húsnæð sem hentað getur margvís-
legri starfsemi. Hagstæð leigukjör.
Allar frekari upplýsingar veitir Jón Gretar Jónsson
sölumaður Húsakaupa í síma 840 4049.
Guðrún Árnadóttir lögg. fasteignasali
flúðasel 4 - fallegt raðhús
Opið hús í dag milli kl. 16 og18
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Nýtt á sölu - Fallegt steniklætt 170,3 fm raðhús á 2 hæðum með bílskúr. Á neðri hæð
er flísalögð forstofa, 3 svefnherbergi með eikarparketi, flísalagt baðherbergi, góð
geymsla með hillum, þvottahús með útgengi út í bakgarð sem er með hellum, þvotta-
snúru og grasbletti. Skemmtilegt skot er undir stiganum sem einnig er með fallegu
eikarparketi eins og herbergin. Stálstigi með viðarþrepum er upp á efri hæð en þar er
opin og rúmgóð borðstofa, gott eldhús og stofa með sv.svölum og ljósu teppi. Á eld-
húsi og borðstofu er eldra parket á gólfi. Á hæðinni er einnig gott herbergi með skáp-
um. Efri hæðin er opin og skemmtileg með rúmgóðri borðstofu. Eignin er mjög vel
með farin og rúmgóð. Bílskúrinn er stakstæður og góð bílastæði við hann.
Verð 35,9 millj.
Hafliði tekur vel á móti gestum milli kl. 16 og 18. Teikningar á staðnum.
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
MAÐURINN minn er með syk-
ursýki eins og þúsundir annarra Ís-
lendinga. Þetta er lífstíðardómur
sem hefur í för með sér miklar
breytingar á lífs-
háttum og hættu á
mörgum alvarlegum
fylgikvillum.
Minn maður er mjög
passasamur og fylgir
þeim ráðum sem hann
fékk við uppgötvun
sjúkdómsins. Því betur
sem hann passar sig
því minna þarf hann af
lyfjum, því jafnari sem
blóðsykurinn er því
sjaldnar þarf hann að
mæla hann. Í framtíð-
inni eru minni líkur á
aukaverkunum eins og t.d. krans-
æðasjúkdómum. Þar sem við búum í
velferðarsamfélagi eru lyfin hans og
blóðsykursmælarnir niðurgreiddir.
Þótt passasemi hans sé fyrst og
fremst til þess fallin að viðhalda eig-
in lífsgæðum hlýst sú hliðarverkun
af að útgjöld samfélagsins verða
minni. Tala nú ekki um ef honum
tekst, eins og ég vona auðvitað, að
forðast alvarlegri fylgikvilla syk-
ursýkinnar því þeim fylgja dýrar
sjúkrahúsvistir, aðgerðir, aflimanir
og örorka.
Allir vita að sykursjúkt fólk verð-
ur að forðast sykur. Það sem færri
vita er að líkaminn, og þá meina ég
líkami allra, bregst við hvítu hveiti
eins og sykri. Því verður sykursjúkt
fólk að forðast hvítt hveiti. Og þá er-
um við komin að ástæðu þessara
skrifa.
Á sumrin fara Íslendingar í ferða-
lög. Það er gjarnan stoppað í vega-
sjoppum eða komið við í grillhúsum
og veitingastöðum á viðkomandi
stöðum. Ódýrast og einfaldast er að
fá sér hamborgara eða samloku.
Flestallir skyndibitar eru í brauði. Á
öllum stöðum, alls staðar, er hvítt
brauð. Stundum er hægt að fá venju-
legt heilhveiti-samlokubrauð í stað-
inn, oftast ekki. Til að losna við
brauðið þarf að velja úr dýrari hluta
matseðilsins eða fara á fínni veit-
ingastað. Þegar við erum á ferðalög-
um standa okkur til boða þrír kostir:
1)Vera alltaf með nesti og setjast
hvergi inn. 2) Þurfa alltaf að kaupa
einn dýrasta réttinn á matseðlinum.
3) ,,Svindla“ á mataræðinu. Þetta er
það sem við höfum gert
undanfarið, valið bara
einn af þessum kostum.
En þetta er náttúrlega
ekki mjög hátt þjón-
ustustig.
Ef við færum hring-
inn í kringum landið
þyrftum við skv. val-
kosti eitt alltaf að passa
upp á að vera í kaup-
stað þegar verslanir
eru opnar, það mætti
ekkert út af bregða.
Við værum í slæmum
málum ef það spryngi
dekk. Skv. valkosti tvö þyrftum við
að vera ívið ríkari en annað fólk. Við
erum það ekki. Valkostur þrjú er
ekki ósvipaður því að óvirkur alkó-
hólisti væri á ferð og hvergi fengist
neitt nema áfengi. Hva! Er ekki allt í
lagi að fá sér einn?
Þegar upp er staðið snýst þetta
ekki bara um okkur eða ferðalög.
Ekki er langt síðan að birt var viðtal
við ungan mann í sjónvarpinu sem
var orðinn blindur vegna ómeð-
höndlaðrar og/eða illa meðhöndl-
aðrar sykursýki. Viðtalið var tekið
vegna þess að börn og unglingar
með sykursýki sinna sjúkdómnum
mjög illa. Börn og unglingar vilja
vera eins og hinir. Hinir krakkarnir
fá sér nammi, drekka kók og borða
hamborgara. Það er hægt að fá syk-
urlaust kók. Hugsið ykkur ef það
væri nú hægt að fá hamborgara í
heilhveitibrauði. Unglingurinn getur
fengið sér kók og hamborgara eins
og hinir krakkarnir án þess að
leggja heilsu sína að veði.
En það er ekki bara sykursýki.
Reglulega birtast fréttir um það að
offita sé að verða alvarlegt vanda-
mál. Það er talað um offitufaraldur.
Börn og unglingar eru víst líka að
verða alveg sérstaklega feit. Nú má
segja að hver og einn eigi að bera
ábyrgð á sjálfum sér og foreldrar á
börnum sínum. Við vitum það hins
vegar fullvel að fólk eyðir ekki jafn
miklum tíma í matargerð og það
gerði. Ef allir væru mjög meðvitaðir
og hefðu nægan tíma gengju ekki
allir þeir matsölustaðir sem ganga í
dag. Ef öll börn hefðu alltaf komið
nestuð í skólann hefði væntanlega
ekki komið fram sú krafa að það
ættu að vera mötuneyti í öllum skól-
um.
Nú má mér sem öðrum vissulega
vera það ljóst að skyndibitar eru eðli
sínu samkvæmt óhollir og það öllum.
Hins vegar er skyndibitamatur í
Danmörku ekki nándar nærri jafn
óhollur og á Íslandi því þar er búið
að banna notkun á hertri fitu. Í Sví-
þjóð er hægt að fá mjólkurlausan
mat því margir eru með mjólk-
uróþol. Þá eru ótaldir allir þeir sem
eru með glútenóþol.
Á Íslandi er hægðatregða algilt
vandamál hjá eldra fólki. Hægða-
tregða stafar yfirleitt af trefjaskorti.
Það eru engar trefjar í hvítu hveiti.
Þær eru hins vegar í heilhveiti.
Ef einhver þarf að passa línurnar
eða heilsuna þarf viðkomandi að
borða ,,vondan“ mat. Það er ímyndin
sem við höfum. Þegar við heyrum að
einhver þurfi að passa mataræðið
sjáum við viðkomandi umsvifalaust
fyrir okkur að naga gulrót. Þetta
þarf ekki að vera svona. Danir hafa
sýnt okkur það. Svíar hafa sýnt okk-
ur að það er hægt að taka tillit til
allra. Það er hægt að selja hamborg-
ara í heilhveitibrauði, franskar kart-
öflur úr alvöru kartöflum sem eru
ekki djúpsteiktar í hertri fitu og
eggjalausa kokteilsósu. Ef viljinn er
fyrir hendi er þetta hægt. En ég er
ekki að fara fram á þetta. Ég er að-
eins að óska eftir þeim valmöguleika
að geta fengið heilhveitibrauð í stað-
inn fyrir hvítt.
Fá allir að sitja
við sama borð?
Ásta Svavarsdóttir skrifar um
mataræði sykursjúkra og
„þjóðvegafæði“
» Flestallir skyndibit-ar eru í brauði. Á öll-
um stöðum, alls staðar,
er hvítt brauð.
Ásta Svavarsdóttir
Höfundur er grunnskólakennari.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn