Morgunblaðið - 16.11.2007, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 31
ÖLL samfélög manna eiga sér
tungumál enda er tungumál mik-
ilvægasta samskiptatæki mannsins
og segja má að málhæfni sé ein meg-
inforsenda þess að afla sér þekk-
ingar og menntunar og njóta vel-
gengni. Í tilefni dags íslenskrar
tungu er ekki úr vegi að líta aðeins
til þess hvernig börn tileinka sér
móðurmálið og hvaða áherslur eru
lagðar í námi ungra barna á mál-
tökuskeiði.
Tungumál er flókið kerfi reglna
sem við í bernsku virðumst tileinka
okkur að mestu fyrirhafnarlaust og
án sérstakrar kennslu. Það er einkar
athyglisvert að það tekur flesta full-
orðna mörg ár að ná valdi á erlendu
tungumáli, oft með misjöfnum ár-
angri, en börn ná á ótrúlega stuttum
tíma valdi á meginatriðum málkerf-
isins og eru um 4–5 ára aldur flest
orðin altalandi.
Máltækið „Því læra börnin málið
að það er fyrir þeim haft,“ má sann-
arlega til sanns vegar færa enda til-
einka börn sér aðeins mál að það sé í
umhverfi þeirra. Í fljótu bragði
mætti því ætla að börn læri mál með
því að herma eftir því sem þau
heyra. Það kemur hins vegar fljótt í
ljós þegar við athugum málfar barna
að þetta er mikil einföldun og segir
ekki alla söguna. Börnum virðist
vera eðlislægt að tileinka sér mál og
þau búa þegar við fæðingu yfir ýms-
um ásköpuðum eiginleikum sem
gera máltökuna svo átakalausa. Það
bendir einnig margt til þess að mál-
takan fylgi ákveðnu ferli þar sem
eitt stig tekur við af öðru.
Við heyrum gjarnan ung börn
segja: „Þetta er fuglur“ eða
„Mamma hlaupti“. Slíkar setningar
segir enginn fullorðinn svo varla
herma börnin þetta eftir þeim. Öll
búa börnin samt til álíka setningar
og virðast öll gera svipaðar „villur“.
Málþroski barna fylgir þannig
ákveðnum reglum alveg frá upphafi
þar sem hvert stigið tekur við af
öðru. Þessar reglur geta hins vegar
verið nokkuð frábrugðnar reglum í
máli fullorðinna og því tölum við um
að börn geri „villur“ í málinu. Það er
samt athyglisvert að öll gera börnin
sömu villurnar t.d. í beygingum orða
og myndun fleirtölu en aðrar villur
gera þau alls ekki svo sem í röð orða
innan setningar. Það virðist því vera
langt frá því tilviljanakennt á hvern
hátt börnin vinna úr málumhverfi
sínu.
Börn alhæfa algengar reglur s.s.
um beygingu orða og fleirtölumynd-
un. Þannig er t.d. algengast í ís-
lensku að karlkyns nafnorð endi á
–́uŕ í nefnifalli eintölu eins og hestur
og maður og því segja börn gjarnan
fuglur í stað fugl eða stólur í stað
stóll.
Álíka alhæfingar eiga sér stað
þegar börn glíma við beygingu
sagna. Veikar sagnir eru mun fleiri í
íslensku en sterkar og beyging
þeirra mjög regluleg. Þar er þátíð-
arendingin -aði algengust og því yf-
irfæra börnin hana á sterkar sagnir
og segja hlaupaði og lesaði í stað
hljóp og las.
Fyrstu æviár sín vinna börnin úr
þeim reglum sem málumhverfið lýt-
ur og ná á tiltölulega stuttum tíma
ótrúlegum árangri þegar þau til-
einka sér flóknar reglur móðurmáls-
ins. Flestir fullorðnir eiga mun erf-
iðara með að tileinka sér nýtt
tungumál þrátt fyrir að hafa reglur
móðurmálsins að styðjast við og
kerfisbundna kennslu í málinu. Það
virðist því vera sem börn séu sér-
staklega næm fyrir tungumálum.
Rannsóknir styðja þetta og talað
hefur verið um næmiskeið máltöku
til 12 ára aldurs. Sennilegt þykir þó
að aðalnæmiskeiðið sé aðeins til 5
eða 6 ára aldurs. Til að hægt sé að
tala um að barn hafi móðurmál verð-
ur það að læra það á þessum aldri.
Dragist máltakan til aldursbilsins 5
– 12 ára virðast börnin ekki ná full-
um tökum á málfræði móðurmálsins.
Auðugt, vandað málumhverfi í
bernsku stuðlar að því að börnin nái
góðu valdi á málinu og verði færir
málnotendur svo tungumálið megi
verða þeim lykill til náms, þroska og
samskipta við aðra alla ævina. Því
víðtækari reynslu sem barn fær á
einu stigi máltökunnar þeim mun
betra veganesti hefur það inn á það
næsta.
Það er alkunna að á aðalnæmi-
skeiði máltökunnar gengur meg-
inþorri barna í leikskóla, flest dag-
langt. Í síðari hluta þessarar greinar
verður fjallað um þær aðferðir og
áherslur sem helst er unnið eftir til
að styðja við málþroska barna í leik-
skólastarfi. Þar verður fyrst og
fremst fjallað um talmálsþroska
barna en að þessu sinni horft
framhjá því starfi sem unnið er til að
byggja undir læsi og ritmálsþjálfun
barnanna, enda ekki unnt að gera
hvoru tveggja skil í stuttri blaða-
grein.
Máltaka barna og
áherslur í leikskólastarfi
Ingibjörg M. Gunnlaugs-
dóttir skrifar í tilefni af
degi íslenskrar tungu
» Vandað málumhverfií bernsku stuðlar að
því að börn nái góðu
valdi á tungumálinu svo
það verði þeim lykill til
náms, þroska og sam-
skipta alla ævi.
Ingibjörg Margrét
Gunnlaugsdóttir
Höfundur er aðstoðarleikskólastjóri.
skuðrildi, -is H kerlingarskrukka,
dækja, flókatrippi.
Hún er alls
ekkert skuðrildi