Morgunblaðið - 16.11.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 41
Atvinnuauglýsingar
ⓦ Blaðberar
óskast í
Sandgerði og
Garði
Upplýsingar gefur
Harpa Lind í síma
845 7894
Bókhald -
endurskoðun
Starfsmaður óskast á endurskoðunarskrifstofu
í Reykjavík til bókhalds- og uppgjörsstarfa.
Starfið felst í færslu fjárhags- og launabók-
halds fyrirtækja, svo og vinnu við afstemming-
ar og uppgjör í samvinnu við endurskoðanda.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl eða
á box@mbl.is fyrir 23. nóvember nk.,
merktar ,,Bókhald - 20881”.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Sjálfstæðisfélag
Garðabæjar
Laugardagskaffi
hjá Sjálfstæðisfélaginu í Garðabæ
Laugardaginn 17. nóvember kl. 11.
Gestur í laugardagskaffi Sjálfstæðisfélagsins
að þessu sinni verður Ragný Þóra Guðjohnsen
varabæjarfulltrúi og formaður forvarnanefndar
Garðabæjar.
Kveðja, stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Álftahólar 4, 204-9070, Reykjavík, þingl. eig. Halldóra Margrét
Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 20.
nóvember 2007 kl. 10:00.
Ármúli 5, 222-7739, Reykjavík, þingl. eig. Alexander Örlygsson,
gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, þriðjudaginn 20.
nóvember 2007 kl. 13:30.
Blöndubakki 16, 204-7543, Reykjavík, þingl. eig. Sara Rós Kavanagh
og Sverrir Björn Þráinsson, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, þriðju-
daginn 20. nóvember 2007 kl. 11:30.
Gyðufell 4, 205-2452, Reykjavík, þingl. eig. Bjarki Steinar Hermanns-
son, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Reykjavíkurborg og Spari-
sjóður Rvíkur og nágr., útib., þriðjudaginn 20. nóvember 2007
kl. 11:00.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
15. nóvember 2007.
Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri fullnustudeildar.
Félagslíf
Í kvöld kl. 20.30 heldur
Magnús Jensson erindi sem hann
nefnir “Þríðvíða málfræði” í húsi
félagsins Ingólfsstræti 22.
Á laugardag 17. nóvember
kl. 15-17 er opið hús. Kl. 15.30 held-
ur Þórarinn Þórarinsson erindi: “Er
hjól Borgarfjarðar fundið?”
Á fimmtudögum kl. 16.30 -
18.30 er bókaþjónustan opin svo
og bókasafn félagsins m. miklu
úrvali andlegra bókmennta.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
I.O.O.F. 12 188111681/2 9.lll.
I.O.O.F. 1 18811168 E.T.1.Sk.
EDDA 6007111619 I H&V
Aðalfundur
Boðað er til aðalfundar OpenHand hf., kt.
410890 1439, Hafnarstræti 19, Reykjavík
föstudaginn 23. nóvember nk. kl 09:00.
Fundurinn verður haldinn á Grand Hótel ,
Sigtúni 38 í salnum Hvammi.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við
9. gr. samþykkta félagsins.
2. Á fundinum munu verða lagðar fram eftir-
farandi tilögur frá stjórn félagsins:
a. Tillaga um að hlutafé félagsins verði
lækkað í allt að kr. 1.000 til að jafna út
uppsafnað tap félagsins.
b. Tillaga um hlutafjárhækkun að fjárhæð
allt að kr. 80.000.000, sem selt verður á
genginu 1 og að hluthafar falli frá for-
gangsrétti til hlutafjárhækkunarinnar.
c. Tillaga um að félagið geti tekið víkjandi
lán að fjárhæð allt að kr. 200.000.000
með breytirétti í hlutafé í félaginu.
3. Staða félagsins og horfur.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins ásamt þeim tillögum,
sem fyrir fundinn verða lagðar, liggja frammi
á skrifstofu félagsins að Hafnarstræti 19,
Reykjavík frá og með deginum í dag að telja.
Reykjavík 15. nóvember 2007
Stjórn OpenHand hf.
Raðauglýsingar
sími 569 1100
Atvinnuauglýsingar
augl@mbl.is
smíðameistari í okkar hóp en tók
ekki við öfundsverðri stöðu. Húsa-
kynni skólans í þremur gömlum og
hálfniðurníddum húsum, húsi sem
Thor Jensen reisti fyrir syni sína,
öðru sem Ágúst H. Bjarnason
byggði fyrir sig og sína og litlu
nýrra húsi við Þingholtsstræti. Með
stakri útsjónarsemi tókst Hirti að
halda húsnæðinu í horfinu næstu
fjögur árin og varð þá oft að klífa
þrítugan hamarinn.
Þegar skólinn flutti starfsemi sína
í Ofanleiti markaði Hjörtur okkar að
mörgu leyti umgengnisvenjur í nýju
húsnæði, útsjónarsamur að vanda
og gjörhugull, þéttur fyrir en okkur
kennurum bóngóður með afbrigð-
um. Hjörtur naut óblandinnar virð-
ingar nemenda sem ekki komust
upp með neinn moðreyk og gengið
var eftir því að umgengni væri með
sómsamlegum hætti. Eigi að síður
reyndist hann þeim ætíð sanngjarn
og ef um allt þraut hjá strákaormum
í nemendahópnum áttu jafnan
glæsilegar ungmeyjar skólans að-
gang að hjarta hins röggsama hús-
varðar.
Fengur var okkur kennurunum
og starfsmönnum í Hirti sem var
jafnt gleðimaður sem söngva og
engin skemmtun stóð undir nafni
nema hinn lífsglaði Skagfirðingur
kæmi þar að. Ekki dugðu venju-
bundnar skemmtanir til heldur stóð
Hjörtur fyrstur fyrir ferðum okkar
út fyrir bæinn og jafnvel lengra.
Mörg okkar muna hann kátastan í
dunandi dansi á skemmtikvöldi
austur í Pétursborg þegar hópur
okkar lagði leið sína þangað um árið.
Við í Verzló kveðjum með söknuði
góðan vin en minningin um glaðan
félaga mun lifa og við sendum Krist-
ínu og börnum okkar innilegustu
samúðarkveðjur og biðjum almættið
að vernda þau.
Kennarar og starfsfólk VÍ.
Í dag verður gerð útför Hjartar
Gunnarssonar, vinar okkar og fé-
laga til fjölda ára.
Hjörtur var einstaklega traustur
og heilsteyptur maður. Sannkallað-
ur vinur vina sinna. Hvar sem hann
fór átti hann auðvelt með að bland-
ast í hópinn og var hvarvetna hrókur
alls fagnaðar.
Hjörtur átti mörg áhugamál og
hafði mikið yndi af hestum. En þótt
hestamennskan hafi verið einna efst
á blaði var það sú ánægja sem hann
og Kristín Richardsdóttir, eiginkona
hans, höfðu af samskiptum við fólk
sem upp úr stendur nú þegar leiðir
skilur. Mörg dæmi eru um þetta og
má nefna eitt þeirra sem nýjast er.
Á vinnustað Hjartar hefur um nokk-
urt skeið verið í undirbúningi hóp-
ferð til Kína og Tíbets. Eins og
vænta mátti bókaði Hjörtur sig og
Kristínu í ferðina. En ekki nóg með
það. Hann bókaði tugi farmiða að
auki, viss um að margir vildu fara
með. Þau Kristín eiga slíkan fjölda
vina og kunningja að á kynningar-
fundi um ferðina var tilkynnt að
mættir væru um 50 fyrir tilstilli
Hjartar en það er um fimmtungur
alls hópsins. Sjálfur gat hann ekki
mætt á fundinn þótt hann væri
ákveðinn í að fara í ferðina allt þar
til ljóst var orðið að honum mundi
ekki endast aldur til.
Kristín fór að vinna hjá Lands-
virkjun fyrir um 25 árum. Það er
fjölmennur vinnustaður og eignuð-
ust þau Hjörtur þar marga kunn-
ingja og vini enda tóku þau ætíð
virkan þátt í félagslífi innan fyrir-
tækisins.
Fyrir mörgum árum myndaðist
dálítill hópur samstarfsfólks Krist-
ínar sem tekur fram gönguskóna á
sunnudagsmorgnum frá því
snemma á haustin og fram á vor.
Hópurinn hittist auk þess af og til
af ýmsu öðru tilefni og hefur mynd-
ast innan hans traust vinátta og
samheldni og átti Hjörtur sinn stóra
þátt í því.
Hjörtur var afar frjór og hug-
myndaríkur og fylgdi hugmyndum
sínum jafnan eftir af krafti og áræði.
Eitt sinn boðaði hann til dæmis allan
gönguhópinn með örstuttum fyrir-
vara í Elliðaárdal. Enginn vissi hvað
til stóð. Þegar til kom áttum við
ógleymanlega kvöldstund í útileik-
húsi í sumarblíðunni í dalnum. Ann-
að dæmi lýsir Hirti vel. Við vorum á
sunnudagsgöngu við Elliðavatn að
vetrarlagi. Þá sáum við álft sem virt-
ist frosin föst úti á vatninu. Hjörtur
hljóp strax til og reyndi að koma
fuglinum til hjálpar. Það tókst ekki,
fuglinn var of langt frá landi. Hjört-
ur lét ekki við svo búið standa held-
ur gekk alllangan spöl að íbúðarhúsi
þar í grenndinni og lét vita og bað
íbúana um að gera viðeigandi ráð-
stafanir. Þetta lýsir Hirti. Hann
hvarf ekki frá því sem hann ætlaði
sér.
Kristín mætti í sunnudagsgöng-
una rúmri viku áður en Hjörtur
kvaddi þennan heim. Þegar leið á
gönguna sagði hún okkur frá því að
Hjörtur hefði talað um að gaman
væri að fá hópinn í heimsókn á líkn-
ardeildina þar sem hann hafði notið
umönnunar um skeið. Hann var allt-
af samur við sig. Þarna áttum við
saman enn eina yndislega stund þótt
tilefnið væri annað en endranær.
Elsku Kristín. Við tökum af heil-
um hug þátt í söknuði og sorg þinni,
barnanna ykkar og fjölskyldna. Við
dáumst að þeim styrk og kærleika
sem þú hefur sýnt í þessari erfiðu
baráttu. Við treystum því að sá
fjöldi vina sem þið Hjörtur hafið
eignast um ævina muni verða fjár-
sjóður sem endist þér um alla fram-
tíð.
Gönguvinafélagið.
Hjörtur Gunnarsson, vinur okkar,
er látinn. Við minnumst hans sér-
staklega fyrir hans léttu lund, hjálp-
semi og jákvæða viðmót.
Við í Landsvirkjunarkórnum höf-
um átt margar skemmtilegar stund-
ir með Hirti og konu hans, Kristínu.
Þegar kórinn var stofnaður mynd-
aðist strax dyggur hópur áhangenda
sem hefur æ síðan fylgt kórnum
nánast hvert fótmál. Einkum eru
þetta makar kórfélaga. Þessi hópur
hefur stutt dyggilega við bakið á
kórnum og haldið uppi liðsandanum.
Fór Hjörtur þar fremstur í flokki og
verður það skarð sem myndaðist við
fráfall hans seint fyllt.
Margar skemmtilegar ferðir,
bæði innanlands og til útlanda, fór-
um við saman og átti Hjörtur ekki
minnstan þátt í að gera þær jafn
skemmtilegar og eftirminnilegar og
raun varð á. Hjörtur var sannkall-
aður gleðigjafi, traustur og sterkur,
og hafði hann jafnan lag á að finna
upp á einhverju skemmtilegu og já-
kvæðu.
Nú er skarð fyrir skildi. Kórinn
hefur misst sinn tryggasta stuðn-
ingsmann. Við kórfélagar þökkum
innilega fyrir samfylgdina og allt
sem Hjörtur hefur gefið okkur í
þessi bráðum 17 ár sem við höfum
verið samferða. Það er sárt að
kveðja kæran vin og félaga, en
minningin um hann mun lifa með
okkur alla tíð.
Elsku Kristín og fjölskylda. Við
vottum ykkur innilega samúð okkar
og biðjum Guð að styrkja ykkur á
þessari sorgarstund.
Landsvirkjunarkórinn.
Hjörtur nágranni okkar og félagi í
Línunni kvaddi fyrir aldur fram og
við syrgjum hann djúpt en minn-
umst hans með gleði því hann var
sannkallaður gleðigjafi. Frá honum
streymdi á fallegan og kankvísan
hátt alveg einstakur velvilji og hlýja.
Brosið sagði meira en mörg orð,
stríðnisglampinn var græskulaus.
Hjörtur var svo lánsamur að kunna
að meta lífið og þær gjafir sem það
færir og þessum góðu eiginleikum
deildi hann með Diddu sinni. Það
var einstaklega ljúft að sitja með
þeim og öðrum góðum grönnum við
spjall á síðkvöldi, grilla í sólskininu,
moka snjó, gróðursetja, vera saman
í afmælum og öðrum mannfagnaði
og hittast hjá Möggu og Gesti á Þor-
láksmessu.
Við sendum Diddu, Þuríði, Rík-
harði, barnabörnunum, Kollu, Tuma
og öðrum aðstandendum innilegar
samúðarkveðjur.
Sigríður Guðmundsdóttir og
Hermann Hermannsson.
Fleiri minningargreinar
um Hjört Þór Gunnarsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu á
næstu dögum.