Morgunblaðið - 16.11.2007, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 2007 43
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9-16.30, leikf. kl.
8.30, bað kl. 10-16, bingó kl. 14, söngstund kl. 15.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, opin smíðastofa kl. 9-
16.30, kaffi kl. 15, dansleikur kl. 15.30, Þorleifur og
Elsa leika fyrir dansi.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn
handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, há-
degisverður, kertaskreyting, frjálst að spila, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnust. í handm. opin kl. 9-16.
leiðb/Halldóra annan hvern föstud. frá kl. 13-16.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Bingó í Gullsmára kl.
14. Kortaverð 100 kr. Tískusýning Gullsmára, 17. nóv.
kl. 14. Kaffiveitingar o.fl. Skvettuball í félagsheimili
Gullsmára 13, 17. nóv. kl. 20-23. Verð 500 kr. Veit-
ingar seldar. Þorvaldur Halldórsson leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Félagsfundur verð-
ur í Stangarhyl 4, 22. nóvember kl. 17. Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra mætir á fundinn.
Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30, málm- og
silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50. Útgáfuhátíð kl. 17, í
tilefni dags íslenskrar tungu. 200 ár eru frá fæðingu
þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar gefur ljóða-
hópurinn Skapandi Skrif út ljóðabókina „Í sumardal“.
Félagsvist kl. 20.30. 18. nóv. kl. 16. mun Nafnlausi
leikhópurinn bjóða upp á skemmtidagskrá.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga
kl. 9.15, leikfimi kl. 10.30, hádegisverður kl. 11.40. Kl.
12 minnast Heiður Gestsdóttir og Stefán Friðbjarn-
arson þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu Jónasar
Hallgrímssonar. Bingó kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi
kl. 12, félagsvist kl. 13, námskeið í ullarþæfingu kl. 13.
Rúta fer frá Garðabergi kl. 12.45.
Félagsstarf Gerðubergs | „Dagur íslenskrar tungu í
Fellaskóla“ kl. 9, Gerðubergskórinn syngur. Vinnu-
stofur opnar kl. 9-16.30, prjónakaffi/bragakaffi kl. 10,
létt ganga um nágrennið kl. 10.30. Frá hádegi spila-
salur opinn, kóræfing fellur niður. Mánud. 17. nóv. kl.
13.30 les Edda Andrésd. úr bók sinni.
Furugerði 1, félagsstarf | Messa kl. 14. Prestur sr.
Ólafur Jóhannsson, Furugerðiskórinn syngur undir
stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur. Kaffi eftir messu.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, hádegismatur kl.
12, bingó kl. 14, kaffi kl. 15.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.30, brids
kl. 13, boccia kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 9-11, Björg F. Opin
vinnustofa kl. 9-12, postulínsmálning. Böðun fyrir há-
degi. Hádegisverður kl. 11.30. Hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Gönguferð alla laugardagsmogna
kl. 10. Listasmiðjan býður upp á ýmislegt í handverki.
Leiðbeinendur eru Laufey Jónsdóttir og Selma
Jónsdóttir. Bókmenntahópur þriðjudagkvöld kl. 20-
21.30. Uppl. 568-3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi blaða-
klúbbur kl. 10, létt leikfimi kl. 11, opið hús, spilað á spil
kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan kl. 9-16, vinnust. í
handm. kl. 9-16, myndlist m/Hafdísi kl. 9-12, leikfimi
kl. 13, guðsþjónusta fyrsta föstud. í mán. kl. 14.
SÁÁ félagsstarf | Dansleikur í Von Efstaleiti 7.
Hljómsveitin Strákar leikur gömlu og nýju dansana.
Húsið opnað kl. 22.
SÁÁ félagsstarf | Dansleikur verður í Von Efstaleiti
7. Hljómsveitin Strákar leikur gömlu og nýju dans-
ana. Húsið opnað kl. 22.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl 9.15-
14.30, handavinna kl 10.15-11.45, spænska – byrj-
endur kl. 11.45-12.45, hádegisverður kl. 13.30-14.30,
sungið v/flygilinnKl 14.30-15.45, kaffiveitingar kl.
14.30-16, dansað í Aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, leirmótun
kl. 9, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, bingó kl.
13.30. Uppl. í síma 411-9450.
Kirkjustarf
Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með hreyfi- og
bænastund á Dalbraut 27, kl. 10.15.
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl. 20. Prédik-
un, tónlist og spjall.
Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara alla þriðju-
daga og föstudaga kl. 11 - 14. Leikfimi, súpa, kaffi.
KFUM og KFUK | Alþjóðleg bænavika KFUM og
KFUK. Bænastundir eru á hverjum degi þessa viku kl.
12.15-13 á Holtavegi 28. Léttur hádegisverður.
Kirkjuskólinn í Mýrdal | Samvera Kirkjuskólans í
Mýrdal í Víkurskóla á laugardagsmorgnum kl. 11.15.
80 ára afmæli. Hlíf Ólafsdóttir
lífeindafræðingur verður áttræð
hinn 23. nóvember næstkomandi.
Maður hennar, Magnús Hall-
grímsson verkfræðingur, varð 75
ára fyrr í mánuðinum. Þau hjónin
munu taka á móti gestum í safn-
aðarheimili Háteigskirkju laug-
ardaginn 17. nóvember milli kl.
20 og 23. Þau vonast eftir að sjá
sem flesta af vinum og ætt-
ingjum.
Gullbrúðkaup |
Hjónin Berta
Björgvinsdóttir og
Guðni Jónsson,
Sautjándajúnítorgi
3 í Garðabæ, eiga
fimmtíu ára brúð-
kaupsafmæli í dag,
16. nóvember. Þau
njóta dagsins á
bökkum Signufl-
jóts og í görðum
Parísarborgar.
Hlutavelta | Tvær vinkonur á Ak-
ureyri héldu tombólu við versl-
unarmiðstöðina Glerártorg og köku-
lottó í hverfinu sínu og söfnuðu 19.121
kr. sem þær gáfu Rauða krossinum.
Þær eru: Birna Pétursdóttir og Sól-
veig Agnarsdóttir.
Söfnun | Kristján Nói Benja-
mínsson stofnaði verslun og
seldi ýmsa hluti m/annars
óskasteina, myndir o.fl. og
færði Rauða krossi Íslands
ágóðann kr. 5.934, til hjálpar
fátækum börnum.
dagbók
Í dag er föstudagur 16. nóvember, 320. dagur ársins 2007Orð dagsins: Og eins og vér höfum borið mynd hins jarðneska, munum vér einn-
ig bera mynd hins himneska. (I. Kor. 4, 16.)
Heimspekistofnun Háskólansefnir til málþings á laug-ardag um heimspeki í skól-um.
Málþingið er haldið í stofu 101 í Lög-
bergi og stendur yfir frá 10 til 16.
Gunnar Harðarson er einn af skipu-
leggjendum þingsins:
Efla hugsun og rökræður
„Hugmyndin er að ræða stöðu, hlut-
verk og möguleika heimspekinnar á hin-
um ýmsu skólastigum. Til málþingsins
höfum við fengið áhugaverðan hóp fólks
sem bæði hefur kennt heimspeki og
rannsakað heimspekikennslu á grunn- og
framhaldsskólastigi,“ segir Gunnar. „Við
beinum sjónum okkar einkum að því
hvert framlag heimspekinnar getur orðið
til almenns þroska einstaklingsins innan
skólakerfisins, það hlutverk sem heim-
spekin getur leikið í að efla leitandi og
skapandi hugsun, rökræður í jafn-
ingjahópi og virka þátttöku í lýðræð-
islegu samfélagi.“
Samræðufélag og menntastefna
Fyrsta erindi málþingsins flytur
Hreinn Pálsson þar sem hann ræðir um
hvernig heimspekilegt samræðufélag
myndast meðal nemenda. Næstur mun
Geir Sigurðsson fjalla um erindi barna-
heimspekinnar við íslenskan samtíma
og Ólafur Páll Jónsson ræðir um skóla
og menntastefnu.
Framsækni og siðferðisþroski
„Eftir hádegishlé flytur Brynhildur
Sigurðardóttir erindið Heimspekival í
unglingaskóla, Jóhann Björnsson fjallar
um verkefnið Siðferðilegt sjálfræði sem
unnið var við Réttarholtsskóla, og loks
ætlar Róbert Jack að fjalla um ýmsar
tilraunir sem hann hefur gert í heim-
speki á framhaldsskólastigi,“ segir
Gunnar. „Í þriðju lotu málþingsins
fjallar svo Ármann Halldórsson um
heimspeki og framsækin kennslufræði,
og Kristín H. Sætran flytur erindið Tími
heimspekinnar í framhaldsskólanum.“
Finna má nánari upplýsingar um
dagskrá málþingsins á viðburðadagatali
Háskóla Íslands á slóðinni http://
www.hi.is.
Málþingið er öllum opið og aðgangur
ókeypis.
Menntun | Málþing Heimspekistofnunar í Lögbergi á laugardag kl. 10-16
Heimspeki í skólum
Gunnar Harð-
arson fæddist í
Reykjavík 1954.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
MR 1974, BA-
gráðu í heim-
speki, bók-
menntum og ís-
lensku frá
Háskóla Íslands 1978, maitrise-
gráðu frá Háskólanum í Montpel-
lier 1979 og doktorsgráðu frá Par-
ísarháskóla 1984. Hann er dósent í
heimspeki við Háskóla Íslands.
Gunnar er kvæntur Guðbjörgu
Benjamínsdóttur ráðgjafa og eiga
þau þrjú börn.
Dans
Básinn | Haustball Harmoniku-
félags Selfoss verður í Básnum,
Ölfusi.
Tónlist
Glerárkirkja | Söngvafjölskylda
Jóhanns Konráðssonar söngvara
og Fanneyjar Oddgeirsdóttur
syngur fyrir Norðlendinga kl.
20.30. Fram koma: Jóhann Már
og Svavar Hákon Jóhannssynir,
Jóna Fanney Svavarsdóttir, Örn
Viðar og Stefán Birgissynir, Lína
Björk Stefánsdóttir, Erlendur Þór
Elvarsson og Helga Bryndís
Magnúsdóttir.
Grand Rokk | Þingeyska þjóð-
lagapönkrokkgleðibandið Ljótu
hálfvitarnir fagnar eins árs af-
mæli sínu með yfirlitstónleikum
kl. 22 á laugardagskvöld. Gamalt
og nýtt efni í bland. 1.500 kr. inn.
Iðnó | Útgáfutónleikar South Ri-
ver Band verða kl. 16 og mun
sveitin leika af nýja diskinum,
Allar stúlkurnar, ásamt efni af
öðrum diskum sveitarinnar. SRB
hefur gefið út fjóra geisladiska.
Silencio-tangókvartettinn leikur
á tónleikum og milongu 17. nóv-
ember. Tangóhljómsveitin Silen-
cio var stofnuð í Evrópu árið
2001. Húsið opnað kl. 21. Að-
gangseyrir er 1.500 kr.
Ráðhús Reykjavíkur | Tónleikar
Lúðrasveitar verkalýðsins verða
með klezmer-þema. Haukur
Gröndal hefur aðstoðað sveitina
við að útsetja klezmerlög fyrir
tónleikana en þeir verða haldnir
17. nóvember kl. 14. Aðgangur er
ókeypis.
Söngskóli Sigurðar Demetz |
Grandagarði 11. Á degi íslenskrar
tungu verða tónleikar kl. 18. Mun
söngdeildin Þvert á stíl syngja
lög eftir Tómas R. Einarsson við
undirleik Helga M. Hannessonar
píanóleikara og Leifs Gunn-
arssonar bassaleikara. Kl. 20
syngja einsöngsnemendur lög og
útsetningar eftir Jón Þór-
arinsson.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | Í tilefni af
200 ára fæðingarafmæli Jón-
asar Hallgrímssonar verður sýn-
ingin Ferðalok um manninn,
skáldið og náttúrufræðinginn
Jónas Hallgrímsson opin á sýn-
ingartíma kl. 11-17. Sýningin
stendur fram í júní 2008.
Skemmtanir
Vélsmiðjan Akureyri | Geir-
mundur Valtýsson leikur fyrir
dansi föstudag og laugardag.
Húsið opnað kl. 22. Frítt inn til
miðnættis.
Uppákomur
Hrafnista, Reykjavík | Árlegur
jólabasar iðjuþjálfunar Hrafnistu
í Reykjavík verður 17. nóvember
kl. 13-17. Á sama tíma verður
vöfflukaffi Ættingjabandsins frá
kl. 13.30 á 4. hæð Hrafnistu.
Kópavogsdeild Rauða kross Ís-
lands | Fatamarkaður kl. 15-19 í
dag og 17. nóvember kl. 12-16, í
sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg
11, 2. hæð. Seld verða notuð föt
ásamt alls kyns varningi. Verð
300-1.500 kr. Allur ágóði rennur
til styrktar börnum og ung-
mennum í Mósambík.
Fyrirlestrar og fundir
Reykjavíkurakademían | Eng-
ilbert S. Ingvarsson flytur erindi
17. nóvember kl. 14-16 um sögu
byggðar á Snæfjallaströnd. Til-
efnið er útkoma bókarinnar Und-
ir Snjáfjöllum – þættir um bú-
setu og mannlíf á
Snæfjallaströnd.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-
samtakanna er 895-1050.
FÉLAGSSTARF
eldri borgara í Mos-
fellsbæ verður með
sölu á ýmiss konar
handverki, á morg-
un, laugardaginn 17.
nóvember, kl. 12-16 í
Listasal og Bóka-
safninu í Kjarna.
Vorboðarnir, kór
eldri borgara syng-
ur frá kl. 14.
Basar í
Mos-
fellsbæ
FRÉTTIR
rubbi, -a, -ar K grófprjónaður sokkur eða vettlingur.
Rubbinn er hlýr
Í TILEFNI af útgáfu 30 ára af-
mælisrits Eiðfaxa verður efnt til
afmælishátíðar í Vetrargarðinum
í Smáralind á milli kl. 16 og 19 í
dag, föstudaginn 16. nóvember.
Þar munu margir af fremstu
knöpum landsins úr meistaradeild
VÍS sýna hesta sína og taka þátt í
keppni í hægatölti, segir í frétta-
tilkynningu.
Meðal hestamanna sem fram
koma á hátíðinni verður Valdi-
mar Bergstað, en hann var kjör-
inn efnilegasti knapinn árið 2007
á uppskeruhátíð hestamanna um
síðustu helgi.
Þá mun Þorvaldur Árni Þor-
valdsson reiðkennari verða með
sýnikennslu í grunnatriðum reið-
mennskunnar.
Leitast verður við að bjóða upp
á spennandi og skemmtilega dag-
skrá þar sem lögð er áhersla á að
skemmta bæði hestamönnum sem
öðrum. Settir verða upp sýning-
arbásar í Vetrargarðinum þar
sem fyrirtæki sýna vörur sem
tengjast hestamennsku og fé-
lagasamtök hestamanna kynna
starfsemi sína.
Aðgangur að afmælishátíðinni
er ókeypis og er hægt að nálgast
dagskrá hennar á vef Eiðfaxa:
www.eidfaxi.is
Töltkeppni
í verslunar-
miðstöðIKEA á Íslandi ætlar annað
árið í röð að styðja við inn-
lend verkefni Barnaheilla
með sölu taudýra í verslun
sinni. Barnaheill munu fá
100 kr. af hverju seldu tau-
dýri á tímabilinu 15. nóv-
ember til 24. desember
2007. Upphæðin sem safn-
ast rennur óskipt til inn-
lendrar starfsemi Barna-
heilla.
„Barnaheill hvetja alla,
sem leggja leið sína í IKEA
nú fyrir jólin, að gleðja
börnin með kaupum á tau-
dýrum. Ávinningurinn
verður okkar allra. Jafn-
framt þakka Barnaheill
IKEA á Íslandi kærlega
fyrir þennan frábæra
stuðning,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Taudýr til
styrktar
Barnaheillum
MARKAÐSDAGAR verða haldnir
dagana 16. og 17. nóvember á Eið-
istorgi á Seltjarnarnesi.
Í dag, föstudaginn 16. nóvember,
milli kl. 15 og 18 verða m.a. spákon-
ur í Nýjalandi sem kíkja í tarrot-
spilin sín fyrir 1.000 kr. í u.þ.b. 15
mín.
Fjölmargir aðilar verða með
varning til sölu.
Markaðs-
dagar á
Eiðistorgi