Morgunblaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ VEÐUR Nicolas Sarkozy, forseti Frakk-lands, hefur vakið reiði í Egyptalandi þar sem hann hefur verið á jólaferðalagi ásamt vinkonu sinni, söngkonunni og fyrirsætunni Cörlu Bruni. Ástæðan fyrir reiðinni er sú að þau sváfu í sama hótelher- bergi en eru ógift. Karl og kona mega ekki sofa í sama hótelher- bergi í Egyptalandi nema að geta sýnt fram á að þau séu hjón, nema um ferðamenn sé að ræða. Sömu- leiðis hafa egypsk stjórnvöld verið gagnrýnd á egypska þinginu fyrir að sýna slæmt siðferðislegt for- dæmi með því að taka opinberlega á móti parinu.     Frakklands-forseti hefur einnig vakið gagn- rýni heima fyrir, en ekki út af til- hugalífinu, heldur þess hvað hann er viljugur til að þiggja greiða auð- manna. Þegar Sarkozy flaug til Luxor fékk hann lánaða þotu Vinc- ents Bolloré, vinar síns, sem lánaði Sarkozy flugvél sína og snekkju eft- ir kosningarnar svo hann gæti farið í fjölskyldufrí á Möltu. Í Sharm-el- Sheik í Egyptalandi gisti parið síð- an í boði sjeiksins af Abu Dhabi.     Ségolène Royal, sem bauð sigfram til forseta gegn Sarkozy, sagði að hann ætti ekki að stefna virðingu forsetaembættisins í voða og forðast að verða auðmönnum, sem ættu sitt undir samningum við ríkið, fjárhagsleg byrði. Í dag- blaðinu Le Monde sagði að ekki væri í lagi að Sarkozy léti auðkýf- inginn Bolloré kosta ferðir sínar og var bætt við að hann minnti meira á Silvio Berlusconi en Charles de Gaulle. De Gaulle hefði aldrei sést opinberlega í návígi við iðnjöfra og óhugsandi væri að forseti Banda- ríkjanna fengi lánaðar flugvélar auðkýfinga til að komast leiðar sinnar.     Leiðtogar verða að umgangastvald sitt og embætti með gát. STAKSTEINAR Nicolas Sarkozy og Carla Bruni í Egyptalandi. Saumað að Sarkozy ÁRAMÓT                            ! " #$    %&'  ( )                                * (! +  ,- . / 0     + -        ! "        #$$  %$ % #$$  %$ %       $$  %$ %           12       1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (    "              $$ &              :  3'45;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@).? !%   %"! %"  %!! %"' !%  %" "%    %"  "% "% !%!" !%"' '% %!"                          *$BCD  $$                                  !       *! $$ B *!   () * $  $) $    + <2  <!  <2  <!  <2  (* $, & -$./  E -                       87  "   # $            !     %   %FB     & &   '   #            (   . B     &)   '   "  #           *  +   #            $   01 $$22 $$3  $, & $4 %$   $ %$'% Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eysteinn Skarphéðinsson | 29. des Djöfullegir femínistar Það gengur djöfullegur andi laus sem heitir femínistar sagði predik- arinn á Omega sem eitt sinn þjónaði hjá þjóð- kirkjunni. Konur eiga að vera undirgefnar manni sínum segir í Biblíunni, konan á að sýni manni sínum lotningu en auðvit- að elskum við konurnar okkar og þær mega leggja eitthvað til málanna en við eigum að eiga síðasta orðið. Mað- urinn er höfuð fjölskyldunnar, ekki keyrir konan bílinn, nú? Meira: vinursolons.blog.is Guðmundur H. Helgason | 29. des „The Secret“ Mér finnst þetta vera hálfgerð popp-andleg viðleitni. Styður undir meiri sjálfshverfu og lætur fólki líða eins og heimurinn snúist í kring- um þau [...] Allur heim- urinn og allir í honum eru framlenging af þínu egói og þannig ert þú óhæfur til að taka til greina annarra manna sjónarmið [...] Eitt sem angrar mig líka varðandi Leyndarmálið er að það sýnir litla sanngirni varðandi fólki sem er veikt eða fátækt. Meira: gudmundurhelgi.blog.is Tómas Sveinsson | 29. desember Til hamingju, Margrét Það fór eins og maður vonaði að Margrét Lára yrði fyrir valinu sem Íþróttamaður ársins, en samt kom þetta skemmtilega á óvart og vil ég taka ofann fyrir íþróttafréttamönnum og þá sér- staklega fyrir það að velja konu, en manni finnst þær stundum fara hall- oka í þessu vali [...] Enn og aftur til hamingu Margrét Lára, þú ert vel að þessu komin og örugglega mikill meirihluti þjóðarinnar sammála. Meira: tommisveins.blog.is Ari Guðmar Hallgrímsson | 29. des Ofbeldi suður með sjó Það virðist hafa gengið á ýmsu í nótt, bæði í Grindavík og Reykja- nesbæ, unglingarnir virðast vera að taka létta æfingu fyrir ára- mótin, utan sá sem var að dunda sér í kirkjugarðinum, spurn- ing hvað honum hefur gengið til, finnst of ódýrt að afgreiða það með því að „hann var fullur greyið“. Svona mál á að taka föstum tökum og senda skýr skilaboð út í þjóðfélag- ið um að framkoma sem þessi verði ekki liðin, það er ekki nóg með að fólk sé ekki lengur óhult utandyra þegar kvöldar, það getur ekki heldur treyst því að grafir ástvina þeirra fái að vera í friði. Heimur versnandi fer var einhvern tíma sagt, og hafi það átt við þá, passar það ekki síður nú. Það er eins og fólki sé ekkert heilagt lengur, hvorki eigur manna, né líf og limir. Fólskulegar og tilefnislausar árásir á fólk bæði heima og heiman, skemmdir á eigum manna svo sem bílum og öðru slíku, þetta er það sem dynur á manni dags daglega bæði í ljósvakamiðlum og dagblöðum. Getum við átt von á því að eitthvað lagist í þessum efnum á nýju ári, eða heldur þetta áfram að versna? Þegar stórt er spurt verður fátt um svör. En það má lifa í voninni. Meira: sabroe.blog.is/blog BLOG.IS FRÉTTIR JÓHANNA Sigurðardóttir félags- málaráðherra hefur skipað sérstak- an starfshóp til að fjalla um þjónustu við langveik börn og fjölskyldur þeirra. Nefndin hefur það hlutverk að fara yfir þjónustuúrræði sem þeg- ar eru fyrir hendi innan ólíkra þjón- ustukerfa, s.s. heilbrigðiskerfisins, menntakerfisins og félaglega kerfis- ins, og meta hvar ástæða er til að virkja þá þjónustu enn frekar en nú er og á hvaða sviðum er mikilvægt að taka upp ný úrræði í því skyni að unnt verði að veita sem heildstæð- asta þjónustu við langveik börn og fjölskyldur þeirra. Þetta kemur fram í frétt á vef ráðuneytisins. Starfshópnum er ætlað að skila til- lögum til ráðherra eigi síðar en 15. febrúar nk. Starfshópinn skipa þau Ingibjörg Georgsdóttir, Ellý Alda Þorsteinsdóttir, Guðni Olgeirsson, Margrét Björnsdóttir og Andrés Ragnarsson. Eftir því sem fram kemur í frétt ráðuneytisins leggur félagsmálaráð- herra áherslu á að langveikum börn- um og fjölskyldum þeirra verði veitt aukið aðgengi að félagslegri þjón- ustu sem og að sálfélagslegur stuðn- ingur við fjölskyldur þessara barna verði efldur. Tilgangurinn sé að veita langveikum börnum umönnun og þjálfun ásamt nauðsynlegri aðstoð við fjölskyldur þeirra svo unnt sé að búa börnunum örugg og þroska- vænleg uppeldisskilyrði þrátt fyrir veikindin. Mikilvægt sé að auðvelda fjölskyldum langveikra barna að lifa sem eðlilegustu lífi sem og að efla þroska barnanna í samræmi við eðli og þarfir hvers þeirra og hlúa að þeim svo þau fái notið bernsku sinnar. Þjónusta við langveik börn Starfshópur fer yfir þjónustuúrræðin Í HNOTSKURN »Félagsmálaráðherra hefurskipað starfshóp sem ætlað er að fara yfir þjónustuúrræði við langveik börn. »Hópurinn á að skila tillögumtil ráðherra eigi síðar en 15. febrúar. »Markmið úttektarinnar er aðveita langveikum börnum umönnun og þjálfun ásamt nauð- synlegri aðstoð við fjölskyldur þeirra. Morgunblaðið/Kristinn Snjómokstur Kári Sigurðsson undirbýr flugeldasölu hjá björgunarsveit Hafnarfjarðar. Þorsteinn Ingimarsson | 29. des Af kjarasamningum Meðal þeirra hugmynda sem fram hafa komið í aðdraganda kjarasamn- inga var að þeir laun- þegar sem eru með yfir 300.000 kr. í mán- aðarlaun afsöluðu sér að prósentu- og/eða krónutöluhækkun. Áherzlan yrði á að hækka lægstu launin. Hugmyndin á bakvið það væri þá ekki yrði launa- skrið upp alla launaflokka sem ýtti undir verðbólgu og launahækkunin rynni öll til baka. Allt til að halda „stöðugleikanum“. Orð sem kemur alltaf upp á yfirborðið þegar kjara- samningar eru að renna út en deyr þess á milli. Einnig er horft mikið til ríkisins um að leiðrétta persónu- afsláttinn. Meira: thorsteinni.blog.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.