Morgunblaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 30.12.2007, Blaðsíða 30
byggð í deiglu 30 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ G unnar var ekki ókunnugur málefnum bæjarins er hann tók við starfi bæjarstjóra. Hann hafði þá verið forstöðumaður fræðslu- og menn- ingarsviðs bæjarins í 10 ár en hann kom upphaflega til starfa fyrir bæ- inn sem íþróttafulltrúi 25 ára gam- all eftir farsælan handknattleiks- feril. Svo er að sjá sem keppnisandinn úr handboltanum og bakgrunnur úr skólamálum nýtist jöfnum höndum í bæjarstjórastarf- inu, ekki síst þegar kemur að skipu- lagsmálum. Fullmikil völd hagsmunaaðila Þetta gerðist fremur brátt að þú settist í stól bæjarstjóra. Hefur sjónarhorn þitt á málefni bæjarins breyst á þessum tíma sem þú hefur gegnt starfinu? „Já, það hefur gert það. Þegar maður gegnir starfi eins og ég gerði áður er maður að hugsa um þann málaflokk fyrst og fremst og að berjast fyrir umbótum þar enda var ég ráðinn til þess. Svo þegar ég sest í stól bæjarstjóra spretta upp miklu fleiri málaflokkar sem skipta máli. Skipulagsmálin skipta t.d. verulegu máli fyrir lífsgæði og vellíðan íbú- anna. Og mýmörg önnur mál. Þann- ig fær maður smám saman tiltekna mynd af samfélaginu. Sýn mín á bæjarmálin hefur því breyst. Nú reynir maður að hefja sig svolítið upp fyrir einstaka málaflokka, horfa fram á veginn og spyrja sig: „Hvað er það sem þarf til að lyfta þessu samfélagi á enn hærra plan – hvaða sýn þarf að hafa til að láta íbúunum líða vel?“ Það er eilífðarverkefni sem mér finnst gríðarlega gaman að takast á við.“ En hugmyndir þínar um það hvað er brýnast að takast á við í málefnum bæjarins, hafa þær þróast og breyst á þessum tíma? „Já, það er ýmislegt sem maður áttar sig betur á með tímanum. Svo við tökum skipulagsmálin þá skiptir verulegu máli að bæjaryfirvöld hafi þar ákveðna sýn og leiði vinnu við skipulagið. Verktakar og aðrir hagsmunaaðilar eiga oft land eða kaupa það og hafa sínar hugmyndir um nýtingu þess og þá fer kannski byggingarmagn og annað að ráða miklu meira ferðinni en einhver heildarsýn. Nú vil ég ekki kasta rýrð á verktaka sem slíka, þeir eru dugnaðarfólk. En bæjaryfirvöld verða að hafa stjórnina hér, verða að vita hvert á að stefna og hvernig þau vilja hafa þetta samfélag, sam- setningu þess og umhverfi en láta ekki teyma sig eftir fermetrum og magni. Mér hefur fundist, þegar ég er farinn að kafa betur ofan í þessi mál, að verktakar geti ráðið hér fullmiklu. Það kemur kannski til af því að þeir eru gjarnan með boltann í höndunum og hafa bæði kraft og tíma til að hugsa og framkvæma. Um leið og ég segi þetta þá styð ég einkaframtakið sem valkost í skipu- lagsmálum, skólamálum, heilbrigð- ismálum og á fleiri sviðum, þar get- ur það lyft hlutum á hærra plan. Stjórnmálamenn vita einfaldlega ekki allt, þess vegna erum við t.d. ekki með miðstýrt hagkerfi.“ Geturðu nefnt dæmi um miður æskileg áhrif hagsmunaaðila á skipulagsmálin? „Þeir geta til dæmis freistast til að kynna fyrir bæjaryfirvöldum teikningar með ákveðnu bygging- armagni sem er meira en til stend- ur. Þá er þeim í lófa lagið að draga í land við andmæli og samþykkja að minnka byggingarmagnið. Ef bæj- aryfirvöld hafa ekki skýra sýn í málinu þá standa þau kannski á endanum uppi með byggingarmagn sem er allt of mikið fyrir viðkom- andi umhverfi. Hér þurfa bæjaryf- irvöld að vera á varðbergi og stjórna ferðinni. Að sjálfsögðu eiga kjörnir fulltrúar ekki heldur að leika þennan leik gagnvart íbúum.“ Urriðaholt: ný sýn í framkvæmd Segja má að hin nýja sýn í skipu- lagsmálum Garðabæjar birtist óvíða jafnvel og í skipulagi hins nýja hverfis Urriðaholts, sem nú tekur brátt að rísa sunnan við bæinn. Þar hefur mikil vinna verið lögð í að hanna hverfi með heildstæðri sýn á vistvænt samspil byggðar og nátt- úru, grænna reita og hlýlegra götu- mynda. Hefur skipulag þess enda þegar hlotið fjölda viðurkenninga í alþjóðlegum hönnunarsam- keppnum. „Í Urriðaholti birtist mjög skýr áhersla á umhverfismál. Þar náði bærinn mjög góðri samvinnu við þróunarfélagið Urriðaholt ehf. við að þróa viðkomandi hverfi. Sú vinna hefur staðið yfir í nokkur ár. Þarna eru einfaldlega lagðar nýjar áherslur í skipulagsmálum með áherslu á að skapa vissan stað- aranda, gera náttúrunni hátt undir höfði og að hugsa mikið um vellíðan fólks. Þar má nefna svonefndar of- anvatnslausnir til að varðveita Urr- iðavatn og svo nýja nálgun í dreif- ingu rafmagns, svokallað 5 víra kerfi í stað hefðbundins 4 víra kerf- is sem dregur úr rafmengun. Þar er notast við það nýjasta sem er að gerast á þessu sviði. Skipulag þessa hverfis styðst við það skipulag bæj- arins sem fyrir var, það er bara þróað lengra og þetta gefur kannski tóninn til framtíðar. Nú er búið að hugsa þetta hverfi í þaula og byrjað að selja lóðir og við erum enn að bæta skipulagið. Það fellur vel að áherslum okkar í þá veru að vilja gera Garðabæ að snyrtilegasta og umhverfisvænasta bæ á Íslandi.“ Nú hefur Garðabær í gegnum tíð- ina kannski fyrst og fremst verið einbýlishúsabyggð í hugum fólks? „Kannski það – en það er ekkert lögmál að hér þurfi að vera eintóm einbýlishús. Við erum bara venju- legt samfélag með fjölbreytta flóru og viljum hafa bæinn þannig. Það sést líka á næstu hverfum sem eru að verða deiliskipulögð, þar er mik- ið af rað- og fjölbýlishúsum. Við viljum hafa fjölbreytt form bæði í húsagerð og yfirbragði, og að þeir sem vilja flytja í Garðabæ geti valið á milli mismunandi búsetuforma og aðstæðna. Það hefur raunar verið rauði þráðurinn í okkar pólitík að íbúarnir hafi val, hvort sem er í skólamálum, búsetu eða þjónustu, og við erum trúir því.“ Þörf á betra vinnulagi Gunnar kveðst yfirhöfuð vilja sjá aðra forgangsröðun í skipulags- málum bæjarfélaga hér. „Ég hef orðið var við það á vett- vangi sveitarstjórnarmála að menn hafa áhyggjur af ferli skipulags- mála hér. Fyrirkomulag skipulags- mála á Íslandi hefur yfirleitt verið þannig að íbúarnir koma gjarnan á síðustu stigum að þeim. Þá er oft búið að ákveða ansi mikið og það verða stundum mikil mótmæli. Ég spyr: Er þá ekki eitthvað að öllu ferlinu? Þurfum við ekki að gera þetta með öðrum hætti, fara nær íbúunum í upphafi, mynda rýni- eða áhugahópa og ræða meira við íbúana um það sem til stendur, til að fá fram þeirra áherslur? Við höf- um gert þetta til dæmis við hönnun á skólamannvirkjum hér í Garðabæ. Þá fengum við íbúana, sérfræðinga, kennara og aðra til skrafs og ráða- gerða. Arkitektinn tók líka þátt – en honum var uppálagt að teikna ekki nokkurn skapaðan hlut í fyrstu heldur bara hlusta. Þannig reynd- um við að skapa grundvöll með öll- um hagsmunaaðilum. Síðan fékk arkitektinn að vinna teikningar út frá því.“ Þetta er eitthvað tímafrekara ferli? „Já, það er það, en afurðin verður oft betri og miklu meiri sátt um hana. Hér áður fyrr fengu arkitekt- ar kannski það verkefni að teikna eitt stykki skóla. Svo kom teikn- ingin og þá lögðust menn yfir hana og sögðu kannski: „Er ekki hægt að breyta þessu herbergi aðeins eða færa það ögn?“ Svo var tekist á um það, einhverri breytingu hugs- anlega hleypt í gegn á endanum en engu öðru breytt. En þegar starf- semi var hafin í skólanum kom í ljós að húsið gegndi hlutverki sínu ekki nógu vel. Ég segi bara: Við skulum gera þetta öðruvísi til þess að verja okkur fyrir slíku. Eignarhald á skipulagi þarf að vera hjá fleirum en skipulagsnefnd og bæj- arfulltrúum. Það þarf líka að vera hjá íbúunum svo meiri sátt geti orð- ið. Þetta er verðugt verkefni fyrir stjórnmálamenn.“ Plástralausnir kvaddar Annað dæmi um nýja tíma í skipulagsmálum Garðabæjar er nýtt skipulag miðbæjar bæjarins. Þar verður m.a. reist hringlaga bygging umhverfis torg í miðju bæjarins. Á jarðhæðum þess húss verða verslanir og þjónustustofn- anir en íbúðir á efri hæðunum. „Við vonumst til að fá lifandi og skemmtilegan miðbæ með áherslu á verslun, þjónustu og menningu. Þar verður líka Hönnunarsafn Íslands til húsa.“ Þið eruð í svolítið einstæðri stöðu hér í Garðabæ. Bærinn er svo ung- ur að þið getið meira að segja skipulagt miðju hans frá grunni? „Já. Það kom líka að því að við sögðum: „Við skulum hanna þennan miðbæ frá A-Ö.“ Við fengum þróun- arfélagið Klasa til samstarfs – héld- um fyrst hugmyndasamkeppni og völdum svo aðila til að starfa með okkur. Út úr þeirri vinnu allri er nú kominn miðbær. Þetta er miklu gáfulegra að mínu viti en að vera með sífelldar plástralausnir sem taka 10 ár. Það er líka mikil sam- staða um þessa lausn hjá bæði meirihluta og minnihluta og eins og ég skynja þetta ríkir almennt sátt um hana meðal íbúa.“ Nú er risinn heilmikill stórversl- anakjarni, Kauptún, austan við bæ- inn, með risaverslunum eins og IKEA og fleiri slíkum. Hefur svona viðbót ekki mikil áhrif á bæjarfélag eins og Garðabæ og setur það í nýtt samhengi? „Það gerir það. Við erum hæst- ánægð með að fá verslun eins og IKEA hér í nágrennið. Um leið eykst auðvitað umferð mikið í kringum bæinn. Auðvitað sýnist hverjum sitt um það að taka allt þetta svæði undir verslun og þjón- ustu en við höfum farið í gegnum þá umræðu og erum ánægð með nið- urstöðuna. Nú kunna einhverjir að halda að þetta merki að hægt sé að fá hér hvaða svæði sem er undir verslun og þjónustu bara ef það er keypt nógu háu verði. Svo er þó alls ekki. Í því samhengi má nefna að við erum til dæmis nýbúin að frið- lýsa Vífilsstaðavatnið og nágrenni þess upp á fleiri hundruð hektara – það er gríðarlega stórt og mikið mál. Svo er á dagskrá að friðlýsa hraunið frá Búrfelli alla leið niður að sjó. Ég vil meina að það sé ein- stakt að svo stórt svæði í miðri byggð sé friðlýst með þessum hætti. Við erum áreiðanlega fyrsta sveitarfélag á Íslandi og þótt víðar væri leitað sem gerir slíkt. En við ætlum einfaldlega að skila þessu svæði ósnortnu til næstu kynslóðar. Auðvitað eru margir sem segja: „Eruð þið alveg brjáluð, ætlið þið ekki að selja þetta? Þið gætuð feng- ið marga milljarða fyrir þetta land.“ En það verður ekki allt talið í pen- ingum. Með því að friðlýsa svona svæði og setja hverfisvernd á Grunnvötnin sem eru fyrir ofan Víf- ilsstaðavatn þá sýnum við að okkur er alvara þegar við segjumst ætla að gera Garðabæ að umhverfisvæn- asta bæ á Íslandi. Annað væri tómt orðagjálfur.“ En hvað með til dæmis Vífilsstaði sjálfa? Áttu von á að þar verði áfram sjúkrahús um ókomna tíð? Morgunblaðið/Ómar Óákveðinn Gunnar Einarsson hefur ekki gert upp við sig hvort hann vill kveða sér frekara hljóðs á vettvangi stjórnmálanna en að sinna starfi bæjarstjóra. Ný sjónarmið í skipulags Það bar fremur brátt að að Gunnar Einarsson var skipaður bæjarstjóri Garðabæjar. Það var árið 2005 sem þáverandi bæj- arstjóri, Ásdís Halla Bragadóttir, hvarf til annarra starfa og stóllinn stóð auður. Hallgrímur Helgi Helgason ræddi við Gunnar, sem nú hefur gegnt starfinu í hálft þriðja ár en mun taka sér fjögurra mánaða leyfi eft- ir áramót til að ljúka doktorsprófi frá háskól- anum í Reading á Eng- landi. »Nú reynir maður að hefja sig svolítið upp fyrir einstaka málaflokka, horfa fram á veginn og spyrja sig: Hvað er það sem þarf til að lyfta þessu samfélagi á enn hærra plan – hvaða sýn þarf að hafa til að láta íbúunum líða vel?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.