Morgunblaðið - 30.12.2007, Side 10
10 SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
TÍSKA ER FJÁRFESTING
Morgunblaðið/Kristinn
Á góðri stundu Gabriel og Áslaug í brúð-
kaupi Mortimer Singer. Áslaug er í kjól sem
hannaður er af Matthew Williamsson.
Fótbolti Áslaug með Gunnari syni sínum á
leik með Chelsea í London.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Yfir hátíðirnar klæðir fólk sig í
sparifötin, Siggi er í síðum
buxum, Solla bláum kjól.
Þannig er tískan. En tískan á
sér aðra hlið, stefnumótunar
og fjármögnunar. Áslaug
Magnúsdóttir býr í New York
og er einn af stofnendum TSM
Capital, sem fjárfestir í tísku.
N
ew York er ein af fjórum höf-
uðborgum tískuheimsins. Sam-
keppnin er hörð í iðandi mann-
mergðinni; allt er þetta fólk í
flíkum frá hinum og þessum
hönnuði – það er barist um
þessar gínur á gangstéttunum.
Og Áslaug Magnúsdóttir tekur þátt í þeim
slag.
Á 9. hæð í einu af háhýsunum við Park
Avenue á Manhattan er Marvin Traub Asso-
ciates til húsa, ráðgjafarfyrirtæki Traubs,
fyrrum forstjóra Bloomingdales. Og þar hefur
TSM Capital einnig aðsetur, sem stofnað var
fyrr á árinu af Marvin Traub, Mortimer Sin-
ger og Áslaugu Magnúsdóttur, sem stýrir
fjárfestingarfyrirtækinu auk þess að taka að
sér stöku ráðgjafarverkefni fyrir Marvin
Traub Associates.
TSM Capital sérhæfir sig í stefnumótun og
fjármögnun hönnunarfyrirtækja, sem eru á
þröskuldi þess að ná alþjóðlegri útbreiðslu, og
hefur nú þegar séð um tvær fjárfestingar,
annarsvegar í Mathew Williamson og hins-
vegar í Rachel Roy Fashions. Stefnt er að því
að ljúka fimm til tíu slíkum samningum á
næstu þremur árum.
Hóf störf hjá McKinsey
Áslaug Magnúsdóttir lauk lögfræðinámi við
Háskóla Íslands árið 1993. Eftir það vann hún
sem lögfræðingur hjá Deloitte í skatta- og fé-
lagarétti frá 1994 til 1997. Þá fór hún í fram-
haldsnám til Bandaríkjanna, ætlaði aðeins í
eins árs meistaranám í lögfræði við Duke-
háskólann í Norður-Karólínu. „En þegar ég
var komin þangað langaði mig til að vera að-
eins lengur, segir hún brosandi. „Og viðskipta-
fræðin hafði alltaf togað í mig. Ég hafði tekið
hagfræðikúrsa samhliða lögfræðinni heima,
þannig að ég sótti um MBA beint úr laganám-
inu og fór í tveggja ára nám í Harvard.“
Þegar MBA-náminu lauk árið 2000 flutti
hún til London og vann hjá ráðgjafarfyrirtæk-
inu McKinsey í þrjú og hálft ár. „Yfirleitt þeg-
ar fólk byrjar að vinna þar er þess gætt að það
fái sem víðtækasta reynslu, þannig að ég fékk
tækifæri til að kynnast helstu hliðum við-
skiptalífsins, vann þvert á greinar og deildir,
en meginstefið fólst í stefnumótun og skipu-
lagningu á starfsemi fyrirtækja.“
Skipulag McKinsey er þannig að verkefni
eru auglýst á innra netinu, þar sem starfsfólk
fyrirtækisins um allan heim getur lesið sér til
um þau og sótt um að fá að vinna að þeim. Þar
er reynsla starfsmanna lögð til grundvallar og
valið í hópa út frá því, þannig að samsetningin
sé dýnamísk. „Ég vann um alla Evrópu, í
Austurlöndum og einnig í Bandaríkjunum.
Fyrsta verkefnið var í Los Angeles,
stefnumótunarvinna fyrir alþjóðlegt lögfræði-
fyrirtæki, og ég eyddi fyrsta vetrinum þar. Þó
að ég byggi í London var ég annars staðar
80% af tímanum, oft þrjá til fjóra mánuði í
senn. Þetta var æðislegt meðan á því stóð.“
En líka svolítið flókið. „Ég hafði kynnst eig-
inmanninum Gabriel [Levy] í MBA-náminu,
en það var ekki fyrr en undir lokin, þannig að
hann flutti til New York að því loknu en ég til
London. Svo var sonur minn á Íslandi, þannig
að ég var í vinnu hjá McKinsey á virkum dög-
um, en ferðaðist um helgar til New York eða
Íslands. Þetta var því erilsamur tími. Þegar
Gabriel flutti til London árið 2003 ákvað ég
fljótlega upp úr því að hætta hjá McKinsey og
einfalda líf mitt aðeins.“
Fyrsti fundur með Weinstein
Áslaug réði sig til Baugs árið 2004, sem þá
var með fámenna skrifstofu í London. „Gunnar
Sigurðsson var yfir skrifstofunni, nýfluttur til
London, þar var einn ritari og svo Ágústa
Ólafsdóttir, sem hætti tveim mánuðum eftir að
ég byrjaði. Þannig að þetta var pínulítil eining.
Ég vann fyrst og fremst að stórum fjárfest-
ingum í smásölugeiranum, þar sem Baugur
sérhæfir sig í yfirtökum á gamalgrónum fyrir-
tækjum, sem hafa fest sig í sessi. En svo þró-
aðist starfið með öðrum hætti. Stofnuð var
þróunardeild, sem ég tók yfir og rak, vegna
þess að við sáum fjölmörg tækifæri í
sprotafyrirtækjum, sem ekki féllu að hinu
dæmigerða Baugsmódeli. Þar þurftu fjárfestar
að koma inn til að fjármagna vöxtinn, svo við
keyptum okkur inn í nokkur fyrirtæki og veitt-
um þeim aðhald og stuðning.“
En flutningar voru í kortunum. „Svo vildi
maðurinn endilega flytjast aftur heim til New
York,“ segir Áslaug elskulega. „Ég kom hing-
að í lok október í fyrra og þá var félagi okkar
úr MBA-náminu, Brian Jacobsen, sem vinnur
fyrir Tower Brook, í viðskiptum við Marvin
Traub. Ég hafði átt símafundi með Marvin, en
hann kynnti mig fyrir honum, og Marvin réð
mig fyrstu vikuna sem ég var í New York.“
Áslaug hóf störf í kringum þakkargjörð-
arhátíðina í fyrra og fyrsti fundurinn var með
Harvey Weinstein, stofnanda Miramax, sem
lengi hefur verið einn áhrifamesti kvikmynda-
framleiðandi vestanhafs. „Þá vildi hann fara að
reka tískufyrirtæki í fyrsta skipti,“ segir Ás-
laug.
TÍSKA