Morgunblaðið - 30.12.2007, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 2007 27
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
E
inn ganginn enn hefur
Arnold Schwarzeneg-
ger, ríkisstjóri Kali-
forníu, tekið forystuna í
mikilvægu máli og skot-
ið flokksbræðrum sínum í Repúblik-
anaflokknum skelk í bringu. Hann
býr nú við meirihluta demókrata í
báðum deildum Kaliforníuþings, en
hefur eftir stormasamt upphaf lært
að lifa með þeim og það svo vel að
flokksbræðrum hans er um og ó.
Skömmu fyrir jól tókst honum með
tilstyrk demókrata í fulltrúadeild
Kaliforníuþings að fá samþykkt al-
mannatryggingakerfi, sem á að ná til
allra 36 milljóna Kaliforníubúa 2010,
með niðurgreiðslum og skattafslátt-
um fyrir þá sem eiga í erfiðleikum
með að greiða tryggingagjaldið.
Rétt er að hafa í huga, að málið á
eftir að koma til kasta öldungadeild-
arinnar, en engu að síður þykir ár-
angur Schwarzeneggers mikilvægur
og sem pólitískt útspil afar sterkt.
Þeir demókratar sem sækjast eftir
útnefningu flokks síns til forseta-
framboðs hafa tekið tryggingamálin
upp á sína arma og þá einkum Hilary
Clinton, sem í forsetatíð manns síns,
kom fram með hugmyndir um al-
mannatryggingakerfi sem féllu í
grýttan jarðveg þá. En nú er öldin
önnur og Schwarzenegger hefur far-
ið lofsamlegum orðum um baráttu
Hilary Clinton á þessu sviði. Það
faðmlag hræðir repúblikana, sem
vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að
stíga, en vilja helzt sem minnst af al-
mannatryggingamálum vita.
Schwarzenegger hefur hins vegar
hvatt flokksbræður sína til þess að
hætta að láta demókratana hrekja sig
til hægri en sækja inn á miðjuna með
mál sem almenning varða og þar séu
almannatryggingar efstar á blaði.
„Ég segi: (við repúblikana) Styðjið
minn málstað og hann mun verða of-
an á. Og þið munuð njóta góðs af þeg-
ar þið sækist eftir atkvæðum kjós-
enda. Þið getið þá sagt: Ég beitti mér
fyrir almannatryggingum, menntun,
heilnæmri fæðu fyrir börnin … þetta
eru allt góð málefni og ég vil að flokk-
urinn standi með þeim í stað þess að
streitast á móti þessu öllu.“ Það fer
ekkert á milli mála hver er vitinn sem
vísar repúblikönum leiðina. Kúrsinn
kemur frá Kaliforníu. Frá Hvíta hús-
inu berst bara villuljós.
Samningar um húsnæðisvexti
og mál gegn ríkisstjórninni
Og Schwarzenegger hefur á fleiri
sviðum tekið forystuna af frambjóð-
endum og Hvíta húsinu, nú síðast
þegar hann gekk fram fyrir skjöldu
og samdi við fjóra stóra lánveitendur
á sviði húsnæðismála um frystingu á
vaxtastigi húsnæðislána, en húsnæð-
ismálin eru komin á dagskrá þeirra
sem keppa að því að verða forsetaefni
flokkanna. Og hvernig sem á því stóð
þá tilkynnti Schwarzenegger um sam-
komulag sitt að morgni dagsins sem
fjármálaráðherra Bandaríkjanna,
Hank Paulson, gerði í blaðaviðtali
grein fyrir sjónarmiðum alríkisstjórn-
arinnar í húsnæðismálunum, sem
hvetur lánveitendur til að aðstoða fólk
til að halda heimilum sínum og skorar
á þingið að taka húsnæðisvextina al-
varlega og afgreiða vandann með
neyðarlöggjöf. Málflutningur ráð-
herrans féll í skuggann af fram-
kvæmdum fylkisstjórans í Kaliforníu.
Þriðja málið, þar sem Arnold
Schwarzenegger hefur tekið af skar-
ið svo nemur lengra en út fyrir fylk-
ismörk Kaliforníu og beinist að rík-
isstjórn George Bush, er sú ætlan
hans að höfða mál gegn bandarísku
umhverfisstofnuninni, EPA, til að
hnekkja ákvörðun hennar um að
hafna kalifornískum lögum, sem
setja þröngar skorður við magni CO2
í útblæstri bíla.
Schwarzenegger hefur sagt
ákvörðun EPA „lagalega óverjandi“
og er ekki í nokkrum vafa um að mál-
staður Kaliforníu verði ofaná: „Við
munum sigra vegna þess að lögin,
vísindin og krafa fólksins um leið-
togahæfileika eru á okkar bandi.“
Enn og aftur nefnir Schwarzenegger
leiðtogahæfileikana á nafn og það
ekki út í bláinn, því sautján ríki hafa
gefið til kynna að þau muni setja
sambærileg lög og Kalifornía, ef
EPA samþykkir.
Bandaríska umhverfisstofnunin er
ekki á þeim buxunum ennþá, en það
verður ekki auðvelt fyrir Bush eða þá
flokksbræður hans sem vilja leysa
hann af hólmi, að sitja undir stöðugu
ámæli fyrir aðgerðarleysi gegn lofts-
lagsbreytingum.
Það fer um menn í Hvíta húsinu,
þegar ríkisstjóri Kaliforníu hnyklar
vöðvana og setur í brýrnar!
Kostnaðurinn vex
mönnum í augum
Það viðhorf Schwarzeneggers að
það sé sama hvaðan gott kemur, jafn-
vel frá demókrötum, hefur löngum
farið fyrir brjóstið á flokksbræðrum
hans. Nú þegar er deilt um það, hvort
Schwarzenegger hafi átt frumkvæði
að almannatryggingamálinu eða bara
stokkið um borð hjá demókrötum,
þegar þeir voru komnir með mótaðar
hugmyndir. Hins vegar er ljóst að
hann tók málið upp á sína arma í
óþökk flokksbræðra sinna, sem vildu
hvergi nálægt því koma og greiddu
allir sem einn atkvæði gegn því. En
demókratar eru í meirihluta og þeir
samþykktu frumvarpið allir sem
einn. Schwarzenegger brosti breitt
þegar atkvæðagreiðslan var afstaðin,
faðmaði að sér talsmann demókrata
og sagði þá hafa tekið sögulegt fram-
faraskref. Það fór ekkert á milli mála
hverjir voru afturhaldið í það skiptið!
En þótt fulltrúadeildin hafi sam-
þykkt frumvarpið er það bara hálfur
sigur. Öldungadeildin er eftir og
mörgum demókrötum þar vex kostn-
aðurinn í augum. Til þess var tekið að
forystumaður demókrata í öldunga-
deildinni tók ekki þátt í fögnuði
flokksbræðra sinna í fulltrúadeildinni
og fylkisstjórans, þegar frumvarpið
hafði verið samþykkt. Kostnaðurinn
var líka það sem repúblikanar í full-
trúadeildinni báru fyrir sig. „Ríkis-
stjóri vor … ríkisstjórinn, sem lofaði
að auka ekki skatta, vinnur í raun
með meirihluta demókrata hér í
deildinni að því að koma fram mestu
skattaaukningu á fyrirtækin í sögu
Kaliforníu.“ Líklegt er, að flokks-
bræður þeirra í öldungadeildinni taki
undir þann málflutning. Því er spáð
að leið málsins í öldungadeildinni
verði öllu torsóttari fyrir fylkisstjór-
ann, sem lætur hins vegar eins og
ekkert geti stöðvað hann á þessari
réttlætis- og framfarabraut. Það
þurfi einfaldlega að skapa þverpóli-
tíska samstöðu í ríkinu og til þess sé
hann rétti maðurinn!
En þótt Schwarzenegger láti eins
og ekkert sé, þá eru fjármálahorfurn-
ar sagðar allt annað en glæsilegar.
Fyrirsjáanlegur fjárlagahalli ríkisins
á næsta ári sé um 14 milljarðar doll-
ara og kostnaðurinn við trygginga-
kerfið er metinn annað eins svo menn
telja einsýnt að eitthvað verði undan
að láta. En ekki fylkisstjórinn. Það
gerði hann aldrei á hvíta tjaldinu og
nú talar hann eins og það sé honum
jafn fjarri í raunveruleikanum. Leið-
togar vísa leiðina en víkja ekki af
henni!
Framtíðin sker úr um það, en á
meðan berast fréttir af því að demó-
kratar í fulltrúadeildinni sitji sveittir
yfir vangaveltum um tryggingagjöld
fólks og fyrirtækja og að fylkisstjór-
inn hafi falið starfsliði sínu að finna
hverja þá holu, þar sem kreista megi
fram einhvern sparnað. Að öðrum
kosti er talið að hann beiti flötum nið-
urskurði á öll útgjöld fylkisins og er
þá talað um allt að 10%. Skattahækk-
anir eru ekki til í hans huga, en
flokksbræður hans óttast að hann sé
heillum horfinn í bjargi demókrata,
sem reyndar eru þegar farnir að tala
um óhjákvæmilegar skattahækkanir.
Sá voldugasti og sá vinsælasti
Framtakssemi fylkisstjórans í
Kaliforníu hefur ekki alltaf farið vel í
húsbóndann í Hvíta húsinu, þótt hon-
um mislíki svo sem ekki að njóta ein-
hvers skins af frægðarsól flokksbróð-
ur síns. Til þess hefur verið tekið að
það hafi aldrei farið vel á með fylk-
isstjóranum og forsetanum og er
sagt, að missættið megi rekja til þess
að Schwarzenegger var á sínum tíma
stjórnskipaður líkamsræktarráðgjafi
Bush eldri í forsetatíð hans. Þá fékk
hann þá tilfinningu fyrir syninum, að
hann væri bara pabbadrengur og
kom fram við hann sem slíkan. Því
hefur Bush aldrei gleymt og hann
studdi Schwarzenegger ekki þegar
hann sóttist fyrst eftir ríkisstjóra-
embættinu í Kaliforníu. Og
Schwarzenegger var svo sem ekki að
leggja lykkju á leið sína til stuðnings
Bush þegar hann sóttist eftir forseta-
embættinu.
Þannig hefur andað köldu milli
þessa voldugasta repúblikana í
Bandaríkjunum og einhvers þess vin-
sælasta. Í ræðu, sem Schwarzen-
egger flutti í bandaríska blaða-
mannaklúbbnum í febrúar sl. sagði
hann Bush vera of mikinn flokkshest
og vitnaði til þess að sjálfur reykti
hann bæði með demókrötum og re-
públikönum í reyktjaldi sínu, sem
hann kom upp fyrir utan kaliforníska
þinghúsið, þegar reykingar voru
bannaðar í opinberum byggingum.
„Ég ráðlegg forsetanum eindregið að
koma sér upp reykingatjaldi,“ sagði
fylkisstjórinn og brosti sínu breið-
asta.
En í skógareldunum í Kaliforníu í
haust náði hitinn að bræða ísinn milli
þessara tveggja manna og þeir
slíðruðu sverðin. Forsetinn hrósaði
fylkisstjóranum fyrir stjórn hans og
hét öllum þeim stuðningi, sem alrík-
isstjórnin gæti látið í té, og fylkis-
stjórinn hrósaði forsetanum fyrir
skjót og góð viðbrögð. Þar með var
eins og eitthvert samband væri kom-
ið á, kannski bara af illri nauðsyn og
án allra tilfinninga – en samband
samt.
Það er þó ljóst að Schwarzenegger
ætlar eftir sem áður að freista þess
að hafa sem mest áhrif á dagskrá for-
setakosninganna, sem framundan
eru.
Maður fólksins en
ekki flokkanna
Arnold Schwarzenegger talar tals-
vert um sjálfan sig sem mann sem sé
eiginlega hafinn yfir bandarísku
flokkana. Kannanir sýna að hann á
þrátt fyrir allt ekki aðeins stuðning
almennra repúblikana í Kaliforníu
heldur og meira en helmings demó-
krata. Og vinsældir hans ná langt út
fyrir Kaliforníu. „Við vorum kjörnir
til þess að þjóna fólkinu en ekki flokk-
unum,“ segir hann en um leið og hann
gagnrýnir flokkana, segir hann af og
frá að hann ætli að hlaupa frá borði
repúblikana.
Hann er kvæntur inn í Kennedy-
fjölskylduna og telst eini repúblikan-
inn í þeirri demókratafjölskyldu.
Eiginkona hans, María Shriver
fréttamaður, hefur reyndar „viður-
kennt“ að hún hafi, þrátt fyrir sín
demókratísku gen, stutt eiginmann-
inn í stjórnmálabaráttu hans.
Á flokksþingi repúblikana 2004 gaf
Schwarzenegger þessa skýringu á
því að hann gerðist repúblikani, en
hann er innflytjandi frá Austurríki.
„Ég komst loksins hingað 1968.
Það var mikill dýrðardagur. Ég kom
tómhentur en átti mér drauma. For-
setakosningar voru á fullu og ég
horfði á Nixon og Humphrey eigast
við í sjónvarpinu. Vinur minn, sem
talaði bæði ensku og þýzku, þýddi
fyrir mig. Mér fannst Humphrey
segja hluti sem minntu mig um of á
sósíalismann sem ég hafði nýlega
brotizt undan.
Svo talaði Nixon. Hann talaði um
frjálst framtak, minni ríkisumsvif,
lækkun skatta og eflingu hersins.
Orð Nixons voru eins og ferskur and-
blær. Ég spurði vin minn: Fyrir
hvaða flokk er hann? Hann er repú-
blikani. Þá er ég repúblikani, sagði
ég. Og ég hef verið repúblikani allar
götur síðan.“
Heimildir:
Barron’s
Bílablað Morgunblaðsins
BBC News
The Economist
Financial Times
The New York Times
Los Angeles Times
U.S.News &World Report
Fullsterkur fylkisstjóri
Arnold Schwarzenegger tekur frumkvæðið í almannatryggingum og húsnæðislánavöxtum og
býður Bush byrginn með málshöfðun til að hnekkja úrskurði bandarísku umhverfisstofnunarinnar
Reuters
Kampakátur Arnold Schwarzenegger stendur í stórræðum heima fyrir og vill sveigja þá sem keppa að því að
verða forsetaframbjóðandi repúblikana að þeim málum sem hann segir skipta kjósendur mestu máli.
SVIPMYND»
Í HNOTSKURN
»Arnold Schwarzenegger fæddist 30. júlí 1947 í Austurríki; þessvegna fékk hann síðar viðurnefnið austurríska eikin. Hann fluttist
til Bandaríkjanna 1968.
»Fjórtán ára fékk hann áhuga á vaxtarrækt og 1965 varð hannEvrópumeistari í unglingaflokki og tveimur árum síðar varð hann
heimsmeistari í vaxtarrækt. Hann vann þann titil fjórum sinnum.
»Schwarzenegger setti stefnuna þvínæst á Olympíu-titilinn semhann vann í annarri tilraun 1970 og hélt honum til 1975, er hann
dró sig í hlé frá atvinnumennskunni. Hann kom þó aftur 1980 og vann
titilinn einu sinni enn.
»1970 lék Schwarzenegger í sinni fyrstu kvikmynd; Herkúles íNew York. Hann lék í nokkrum kvikmyndum á áttunda áratugn-
um, en sló loks í gegn 1982 í fyrstu Conan-myndinni og þegar þeim
sleppti tók Tortímandinn við. Hann lék í fjölmörgum kvikmyndum
þess utan, þar til hann sneri sér að stjórnmálum.
»Hann náði kjöri sem ríkisstjóri Kaliforníu í aukakosningum 2003.Í nóvember 2006 var hann endurkjörinn.